NT - 31.12.1985, Síða 20
• ’Síf ”t" ' «* ^ '
^v“^FiöSají&£'^£"'-'\ Vy /í!*''
doka við og skoða vinningaskrána
hjá SÍBS1986. Hún hefur aldrei verið glæsilegri
- aldrei hærra vinningshlutfall.
Meira en fjórði hver miði hlýtur nú vinning. Eitt hundrað og tíu milljónir
króna í pottinum og nítján þúsund miðaeigendur hljóta vinning,
allt uppp í 2 milljónir króna á einn miða.
Við þetta bætast svo 3 aukavinningar:
PAJERO SUPER WAGON Í FEBRÚAR
VOLVO 740 GLE í SEPTEMBER
PEUGEOT2Q5 GR í JÚNÍ
■ÍIBAIIL M3S AB KállPA SÉR ffl&Á
\V'
ALDREI
GLÆSILEGRA
■ Ellefu brennur á höfuðborg-
arsvæðinu munu lýsa upp ára-
mótin, ef veður leyfir. Brennurn-
ar eru staðsettar víðsvegar í borg-
inni og verður kveikt í þeim flest-
um klukkan 21-22 um kvöldið.
Brennurnar verða á eftirtöldum
stöðum: Á mótum Hofsvallagötu
og Sörlaskjóls. Skammt þar frá
verðurönnurbrenna við Ægisíð-
una. Ein brcnna vcrður í Skerja-
firði og verður hún við Skildinga-
nes. Þá er bálköstur við Bústaðar-
veg, sunnan við útvarpshúsið. í
Laugardal verður brenna, við
Holtaveg. Ein brcnna verður í
Grafarvogi á hæðinni við Frosta-
fold og Fjailkonuveg. Ártúnsholt
skartar cinni brennu við Árbæjar-
safn og Reyðarkvísl. Þrjár brenn-
ur verða í Breiðholti. Ein við
Suðurfell og önnur við Norður-
fell. Sú þriðja verður á ÍR svæð-
inu í Kvosinni. Þá er einungis Ár-
bærinn ótalinn. Þar verður ein
brenna við Fylkisvöllinn.
Áramótabrcnnan á Seltjarn-
arnesi veröur á Valhúsahæð.
Kópavogsbúar geta safnast
saman við brennu sem staðsett
verður á Kársncsi, á hafnarfyll-
ingunni. Nágrannar þeirra Hafn-
fírðingar skarta hvorki meira né
minna en fimm bálköstum.
Brenna vcrður við öldurnar við
kirkjugarðinn. Þá verða tvær
brennur við Skjólvang vestan við
Hrafnistu og aðrar tvær verða á
-Hvaleyrarholti.
Þrjár brennur verða í Garða-
bæ. Sunnan við Amameslækinn, í
mýrinni vestan við Bæjarbraut,
og loks ein á Hraunsholti sunnan
við Stórholt.
Akureyringar geta séð þrjár
brennur um áramótin. Þar af
verða tvær í Glerárhverfi, önnur á
Bárufellsklöppum ög hin í
Bakkahlíð. Þriðja brennan verð-
ur við Innbæ, Árnagarði.
Stærsta brcnna þeirra fsfirð-
inga verður á íþróttavellinum. Þá
verða einnjg brennur i Hnífsdal
og á Skeiði, innarlega í firðinum.
Brenna verður á gömlu rusla-
haugunum á Húsavík.
Tvær stórar brennur verða á
Selfossi. Önnur við Gagnheiði og
hin norðan Ölfusár. Nágrannar
Selfyssinga brenna einnig, og rná
nefna Hveragerði, Þorlákshöfn,
Stokkseyri, Eyrarbakka, Hellu
og Hvolsvöll.
Kveikt verður í bálkesti
þeirra Ólafsvíkinga, sem stendur
niðri við höfn, nánar tiltekið við
Norðurgarðinn.
í Mosfellssvcit verða tvær
brennur, og standa þær báðar við-
Reykjaveginn.
Ein brenna verður á Álftanesi í
landi Gestastaða. í Keflavík
verður ein stór brenna, ofan við
görnlu bæjarskemmurnar. Stór
brenna verður við Innri Njarðvík,
skanimt frá Reykjanesbraut. Þá
eru brennur í öllum þéttbýlis-
kjörnum á Suðurnesjum. Grinda-
vík, Sandgerði, Höfnuin, Garði
og Vogum Vatnsleysuströnd.
brennur