Lesbók Morgunblaðsins - 07.08.2004, Blaðsíða 10

Lesbók Morgunblaðsins - 07.08.2004, Blaðsíða 10
10 | Lesbók Morgunblaðsins ˜ 7. ágúst 2004 E itt sinn fyrir mörgum árum þegar ég var í Mexíkóborg, nánar tiltekið í hverfinu Coyacán í fylgd með Sole, vor- um við varla komin út úr bíln- um hennar þegar hún tók eftir að lyklarnir höfðu orðið eftir inni í honum. Ein hliðarrúðan var rifuð til að lofta út, svo hitinn í bílnum yrði ekki kæfandi, en rifan var ekki nógu stór svo hægt væri að koma hendi inn og ná lyklunum sem voru í seiling- arfjarlægð í sætinu. Sole gramdist minna að hún hafði gleymt lyklunum en að þeir skyldu vera með svona ósvífn- um hætti fyrir augunum á henni en höndin næði ekki til þeirra. Við stóðum á götunni ráðalaus og ég spurði hvort ekki væri hægt að fá aðstoð lögreglunnar. Sole vildi það síst af öllu. Vegna þess að einu sinni þegar hún hafði lent í smávandræðum og beðið um aðstoð umferðarlögreglunnar leiddi það til þess að maðurinn hótaði að sekta hana nema hún tæmdi veskið. Meðan á þessum vandræðum stóð bar að lög- regluþjón sem horfði á bílinn og rifuna jafn ráðalaus og við, en góðu heilli krafðist hann ekki peninga. Ekki langt frá okkur sat ungur piltur undir húsvegg með systur sinni og fylgdist með okkur af athygli meðan hann lék á gítar ítölsk lög úr kvikmynd eftir Fellini og söng langdregið. Allt í einu sagði lögregluþjónninn að eina ráð- ið væri að finna þjóf sem kynni á bílalæsingar. Við renndum augunum til söngvarans en hann var saklaus á svip og auðheyrt á söngnum að í honum leyndist ekkert þjófseðli. Þá var eins og við manninn mælt, ungan pilt bar að og við sögðum honum frá vandræðum okkar. Hann velti vöngum en bar ekki fram tillögur um lausn á málinu. Þetta virtist fara í taugarnar á lög- regluþjóninum sem taldi sig vera mannþekkj- ara. Ert þú ekki þjófur? spurði hann í þannig tón að auðheyrt var að hann vissi að þetta væri ekk- ert annað en þjófur. Jú, svaraði pilturinn hógvær. En þú ættir að sjá að ég er vasaþjófur og kann ekki á læsingar. Lögregluþjónninn rak honum ekki löðrung fyrir hvað hann var hortugur. Þjófurinn og hann voru auðsæilega af mildu mexíkönsku teg- undinni. Nú höfðu safnast um bílinn menn og reynt að troða hendi inn um rifuna, þótt hver maður sæi að það væri engin leið. Einhver sagði að ekki einu sinni nýfæddur þjófur kæmi fingri inn um svona þrönga rifu. Mér fannst þetta viturlega mælt og í sam- ræmi við þekkingu á höndum sem ég hafði feng- ið hjá þjóf sem kallaði til mín: „Fáðu með mér maísstöng, óhræddur, ég drep og ræni þegjandi eða alls ekki.“ Nú kom sér vel fræðslan við maísátið. Ég sá að hluti áhorfenda voru þjófar á ýmsum sviðum öðrum en því að ljúka upp bíllásum. Ég talaði við þjófana eins og jafningja og fannst undarlegt að þarna skyldi ekki vera bíla- þjófur. Lögregluþjónninn varð fyrir svörum og sagði að á þessum tíma dags legðu fáir bílum þar sem við vorum, heldur á stað sem ég man ekki lengur hvar var. Þegar ég leit í kringum mig var engan bíl að sjá. Innan skamms höfðu þjófarnir misst áhug- ann og horfið til starfa sinna. Sama var að segja um lögregluþjóninn. Við vorum ein eftir að frá- töldum drengnum sem hélt áfram að syngja. Í eðli mínu er ég ekki næmur á þjófa, en vegna maísins góða var hvíslað að mér að ég skyldi tala við drenginn og segja af kurteisi inn- fæddra: Góðan daginn. Þú ert góður söngmaður og ef- laust líka ágætur þjófur. Ég er betri þjófur en gítarleikari, en sleppum söngnum, svaraði drengurinn. Mig grunaði það, sagði ég en hélt hann væri nýgræðingur sökum ungs aldurs. Geturðu opnað bílinn? spurði ég. Drengurinn lét sem það væri fyrir neðan virðingu sína að opna bíl, hann væri fyrir stærri verkefnin. En þegar ég sótti meiri visku í maís- stöngina ásakaði hann mig fyrir að hafa ekki séð að hinir gátu ekkert. Þetta voru þjófar á öðru sviði, sagði hann. Ég er aftur á móti alhliða þjófur. Mér fannst ég sjá það, sagði ég. Svo þú ættir að opna bílinn. Drengurinn reis á fætur, opnaði strax, varð ekkert hreykinn og fór aftur undir vegginn að syngja. Sole vildi borga fyrir greiðann en drengurinn virti hana ekki viðlits. Þá baðst hún afsökunar að hafa gleymt að sannur þjófur yrði sér úti um borgun með sínum hætti. Drengurinn lét orðin sem vind um eyrun þjóta og virti fyrir sér systur sína. Ekki var þarna margt um manninn og kannski valdi hann þess vegna dapurlega sönginn. Við biðum í talsverðan tíma eftir hálfgerðum þjóf. Það er sú tegund sem gætir bíla fyrir greiðslu og stelur ekki nema við vissar að- stæður. Þegar einn bar að, greiddum við honum fyrirfram og fórum að skoða húsið þar sem Trotský var myrtur. Í húsinu var lítið að sjá og fyrst ég var þreytt- ur á Fridu Kahlo snerum við fljótt aftur. Þjóf- urinn stóð við bílinn og allt á sínum stað. Við þökkuðum og hann þakkaði okkur og sagðist líka leiðast Frida Kahlo. Drengurinn söng og lék enn á sínum stað og systir hans fletti upp um sig kjólnum auðsæi- lega með litlum árangri. Allt í einu datt Sole í hug að fara í bókabúð ekki langt í burtu. Við skildum dótið eftir í bíln- um, enda ætluðum við ekki að vera lengi, og höfðum gleymt hættunni sem stafar af þjófum. Við komum fljótlega aftur, sáum hvergi bílinn og héldum andartak að við hefðum villst en átt- uðum okkur. Á gangstéttinni var allt lauslegt úr bílnum í snyrtilegri hrúgu og Sole spurði: Tókst þú lyklana? Þegar ég svipaðist um var drengurinn farinn með gítarinn, systur sína og sönginn. Í Mexíkóborg ’Nú höfðu safnast um bílinn menn og reynt að troðahendi inn um rifuna, þótt hver maður sæi að það væri engin leið. Einhver sagði að ekki einu sinni nýfæddur þjófur kæmi fingri inn um svona þrönga rifu. Mér fannst þetta viturlega mælt og í samræmi við þekkingu á höndum sem ég hafði fengið hjá þjóf sem kallaði til mín: „Fáðu með mér maísstöng, óhræddur, ég drep og ræni þegjandi eða alls ekki.“‘ Smásaga Eftir Guðberg Bergsson

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.