Lesbók Morgunblaðsins - 07.08.2004, Blaðsíða 13

Lesbók Morgunblaðsins - 07.08.2004, Blaðsíða 13
Lesbók Morgunblaðsins ˜ 7. ágúst 2004 | 13 New York sveitin The Strokes sendi með-limum í aðdáendaklúbbi sínum sjaldgæft góðgæti fyrir stuttu. Í þeim pakkanum er m.a. að finna geisladisk með tveimur áður óút- komnum lögum, mynddisk sem kallast In Transit með myndefni frá tónleikaferðalagi sem sveitin fór í sumarið 2001 og barmmerki. Á diskinum er lagið „When It Started“ af fyrstu plötu sveitarinnar, Is This It? tekið upp á tónleikum sveitarinnar á Íslandi sem fram fóru í Broadway í apríl 2002. Hitt lagið er prufuupptakan „Elephant Song“ sem þeir Al- bert Hammond, Jr, gítarleikari og Julian Casablancas söngvari tóku upp árið 1999 og hefur það aldrei komið út opinberlega. Í farvatninu er svo tónleikaplata sem kemur líklega út fyrir jól.    Þýska rokksveitin Rammstein snýr aftur íhaust með fjórðu hljóðversplötu sína, en áætluð útgáfa er lok september. Fyrsta smá- skífa plötunnar, „Mein Teil“ hefur tafist nokk- uð en hún kom loksins út í síðustu viku í Þýskalandi, Austurríki og Sviss. Til Íslands og annarra landa berst hún hins vegar ekki fyrr en í endaðan ágúst. Vinnuheiti stóru plöt- unnar, sem kemur út í september, er Reise Reise. Rammstein fara svo í umfangmikið tón- leikaferðalag í haust    Athens-sveitingeðþekka R.E.M., með hinn sjarmerandi Mic- hael Stipe í broddi fylkingar, hefur nú tilkynnt um titil næstu hljóðvers- skífu sinnar og mun hún heita Around The Sun. Kemur hún út 4. október en viku áður kemur fyrsta smá- skífan út, „Leaving New York“. Þetta er þrett- ánda hljóðversplata sveitarinnar og segir söngvarinn Stipe að hún muni verða í póli- tískara lagi og staða heimsmála í dag liggi skáldgáfu hans nærri. R.E.M.-liðar munu fara í tónleikaferðalag um heiminn til að fylgja eftir.    Hin „glæpsamlega óþekkta“ hljómsveit,American Music Club, er kominn saman aftur. Sveitin er ein mesta „költ“-sveit rokks- ins, endalaust hampað af gagnrýnendum en sala á plötum nánast engin. Ný hljóðversplata, Love Songs for Patriots, kemur út í haust, sú fyrsta síðan hinn opinberi svanasöngur, San Francisco, kom út árið 1994. Platan kemur út í október og ætlar sveitin að túra grimmt um Bandaríkin í kjölfarið. Leiðtogi sveitarinnar, Mark Eitzel, þrýsti á um þessa endurkomu en sólóferill hans hefur verið upp og ofan. Þá verður tónleika- ferðalagið skipulagt með tilliti til þess að að- algítarleikarinn Vudi er í föstu starfi sem strætisvagnsstjóri í Los Angeles. Fremstur meðal jafningja í breskutilraunasveitinni Soft Machine vartrymbillinn Robert Wyatt, semvar á sinni tíð einn fremsti trommuleikari Breta. Hann hætti í sveitinni haustið 1971 og sendi frá sér sólóskífuna The End of an Ear um líkt leyti og næstu tvö ár stýrði hann hljómsveitinni Matching Mole. Matching Mole náði að senda frá sér tvær breiðskífur og hætta að minnsta kosti einu sinni, en skömmu áður en upp- tökur hófust á fyrirhug- aðri þriðju plötu sveit- arinnar vorið 1973 féll Wyatt út um glugga á þriðju hæð þar sem hann var að fíflast dauðadrukkinn. Hann slasaðist alvarlega, lamaðist meðal annars frá mitti, og næstu mánuðir fóru í erfiða og sársaukafulla endurhæfingu. Meðan á endurhæfingunni stóð hélt Wyatt áfram að semja tónlist samhliða því sem hann endurskipulagði líf sitt. Eiginkona hans, Alfreda Benge, Alfie, var honum mikil stoð og var honum einnig yrkisefni í mörg- um laganna. Þegar kom að því að taka upp lögin sem hann samdi á sjúkrabeðnum lék Wyatt á hljómborð og slagverk en fékk framúrskarandi tónlistarmenn til að spila undir hjá sér, Richard Sinclair og Hugh Hopper spiluðu á bassa, Laurie Allen á trommur, Suður-Afríkumaðurinn Mongezi Feza á trompet, Gary Windo á saxófóna og klarínett, Fred Frith á lágfiðlu, Ivor Cutler á konsertínu aukinheldur sem hann lagði til rödd í einu lagi og Mike Oldfield á gítar. Alfreda Benge söng bakraddir. Nick Mason, liðsmaður Pink Floyd, stýrði upptökum. Spítalalögin komu svo út á plötunni Rock Bottom fyrir réttum þrjátíu árum og er lyk- ilverk í breskri rokksögu, ein af þeim plöt- um sem menn heyra enduróma í óteljandi útgáfum öðrum. Tónlistin er blanda af lág- stemmdu grípandi poppi, ótilgreindri fram- úrstefnu og frjálsum djass og textarnir sveimkenndir, sumir hálfgerðir bulltextar. Nafn plötunnar og það hve textanir eru tormeltir hafa margir túlkað sem hún spegli örvæntingu og þjáningu, hún sé hróp kram- ins hjarta, en ég man enn þegar ég heyrði plötuna fyrst í reykmettuðu herbergi í bak- húsi í Kópavogi haustið 1974 hve mér fannst mikil gleði felast í flutningnum og bjartsýni. Miklu um það réð vitanlega söngrödd Wyatts sem er óþvinguð og liggur hátt, barnalega tær. Þegar síðan rýnt er betur í textana kemur í ljós að platan er hylling lífs- ins, lofsöngur um ástina og allt það smáa sem gefur lífinu lit og gildi. Gott dæmi um það er lagið Sea Song sem er með sérdeilis tyrfnum texta, að því er virðist svartnætt- israusi, rödd úr djúpunum. Við nánari skoð- un (og með smáhjálp frá Wyatt, sjá texta í bæklingi geisladisksútgáfunnar) áttar hlust- andi sig á að lagið er almennar vangaveltur um geðsveiflur, hvort þær séu eins og sjáv- arföll, og samtímis barnaleg frásögn af því hversu gaman sé að synda í myrkri. Varla þarf að taka fram að hljóðfæra- leikur á plötunni er fyrsta flokks, Feza spil- ar af snilld en hann lést á geðsjúkrahúsi ári síðar, Oldfield tekur sitt besta sóló, Hopper og Sinclair fara á kostum á bassann, sér- staklega sá síðarnefndi (til að mynda í Sea Song), Laurie Allen var afbragðs trymbill og svo má telja. Wyatt er enn að gefa út plötur, skammt síðan Cuckooland kom út. Þær eru allar góðar, flestar frábærar, þótt engin nái snilldinni á Rock Bottom. Mæli með Ruth Is Stranger Than Richard (1975), Dondestan (1991), Shleep (1997) og Cuckooland (2003). Rock Bottom kom út í júlílok 1974. Hún var gefin út á geisladisk af Ryko 5. maí 1988 og Hannibal í Bretlandi 20. apríl sama ár. Lofsöngur um ástina og lífið Poppklassík Eftir Árna Matthíasson arnim@mbl.is orð“ sveitarinnar sem hún hefur leynt og ljóst haldið fram, þ.e. að vera einstök sveit sem skeytir ekkert um óskrifaðar reglur popp- tónlistar. Fyrsta breiðskífan, sem áður hefur verið nefnd, kom út 1999 og olli vonbrigðum. Vissu- lega er hún dálítið veik, kannski vegna þeirrar gríðarlegu eftirvæntingar og pressu sem um- lék hana. Tvær síðustu plötur Beta Band eru þó hvað skrítnastar, aðallega vegna þess hversu venjulegar þær eru! Greinarhöfundur er ekki enn búinn að komast til botns í því hvað meðlimir voru að spá með Hot Shots II (’01) og þeirri nýjustu, Heroes to Zeros (’04). Þær ganga einfaldlega ekki upp, miðað við yf- irlýsingar meðlima og stefnu bandsins. Í við- tölum ræddu þeir fjálglega um að þeir hlustuðu eingöngu á neðanjarðarhipphopp og öryggið sem umlykur fyrstu þrjár plöturnar gaf til kynna að hér væri komið alvöruband, sem fylgdi listrænum hugsjónum umfram markaðslega fylgispekt. Af hverju skilar þetta sér ekki inn á þessar tvær síðustu plötur? Þær eru ágætar sem slíkar, en ósköp hefðbundnar og þegar verst lætur hálfgerð meðalmennska sem ber þær uppi. Eru Mason og félagar Til stóð á tímabili að fyrirsögn grein-arinnar yrði „Póstmódernísk popp-sveit kveður“. Hugmyndin sprattekki upp vegna þess að greinin er vistuð í Lesbókinni, heldur er leitun að rokk- sveit sem fellur betur að þessu orði, orði sem allir þekkja en enginn skilur. The Beta Band var stofnað í Edinborg árið 1997 af Steve Mason (söngur, gítar), Robin Jones (trymbill) og John Maclean (plötuklór og hljóðsarpur). Síðar bættist bassaleikarinn Richard Greentree í hóp- inn. Liðskipanin hefur ver- ið óbreytt síðan en fjór- menningarnir hafa auk áðunefndra hljóðfæra dútlað við þau verkfæri sem hendi eru næst. Frá degi eitt var nefnilega allt opið hjá sveit- inni. Hið póstmóderníska ástand, eins og sum- ir vilja kalla nútímann, gengur út frá því að enginn einn sannleikur sé til og öll mörk, til dæmis á milli há- og lágmenningar, séu horfin. Að því leytinu til er Beta Band hin algera póst- móderníska sveit þar sem meðlimir hafa gert það sem þeim sýnist hvað tónlistarsköpun varðar. Leiðtogi sveitarinnar varð t.d. fok- vondur þegar fyrsta breiðskífa sveitarinnar, samnefnd henni, kom út árið 1999. Höfðu þeir félagar ætlað að hafa hana tvöfalda, og koma fyrir tveimur tuttugu mínútna löngum sveim- lögum eða „ambient“. Útgáfufyrirtæki sveit- arinnar lagði blátt bann við þessu og einnig þeirri áætlun Masons að platan yrði tekin upp í öllum heimsálfunum. Stuttu eftir að platan kom út lýstu þeir félagar svo því yfir að platan væri ömurleg! Og svo eru menn hissa á að þeir hafi ekki náð neinum markaðsvinsældum!? Súrkál Arfleifð Beta Band mun fyrst og fremst byggjast á fyrstu þremur útgáfum sveit- arinnar, þremur stuttskífum sem síðar var safnað á eina plötu (The Three EPs, 1998). Plöturnar, allar fjögurra laga, heita Champion Versions, The Patty Patty Sound og Los Ami- gos Del Beta Bandidos og komu út á árunum 1997 og 1998. Tónlistin er svo gott sem ólýs- anleg þar sem vaðið er úr hefðbundinni popp- lagauppbyggingu yfir í döbb, yfir í þýskt súr- kálsrokk og bara yfir í það sem þeim félögum var hugleikið hverju sinni. Það merkilega er að þetta gengur allt saman upp og þessar plöt- ur eru þær sem fylla hvað best upp í það „lof- kannski með eitt allsherjar póstmódernískt grín í gangi? Bless Líklega er kvörtunin um skort á markaðs- vinsældum síðasti brandarinn frá leiðtog- anum, Steve Mason. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem frábærar sveitir hætta út af vin- sældaergelsi eða peningaskorti (Thin White Rope er líklega besta dæmið þar um. Snökt, snökt). Í barnslegri einfeldni trúði ég því bara að Beta Band væri rekið á öðrum forsendum. Það viðurkennist því að Beta Band er kvatt með næsta þungum trega. Þeir voru með þetta – en klúðruðu því. Bassaleikarinn Greentree segir á heimasíðu sveitarinnar, www.bet- and.com: „Beta Band-eplið er orðið ofþroskað og fullt af möðkum. Það verður að falla af trénu svo að fræin geti snúið aftur ofan í mold- ina.“ Beta Band fer svo í kveðjutúr um Bretland í haust. Greentree og Mason ætla að einbeita sér að sólóverkefnum, sá síðarnefndi að ára- löngu hliðarverkefni sínu, King Biscuit Time. Jones og Maclean ætla hins vegar að skipta tíma sínum á milli kvikmynda og tónlistar. The Beta Band: Grafskript The Beta Band Robin Jones, John Maclean, Stephen Mason, Richard Greentree. Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is Eina áhugaverðustu sveit Bretlands síðast- liðin ár, The Beta Band, þraut örendið í vik- unni. Átta ára saga hennar er um margt þversagnakennd. Á meðal uppgefinna ástæðna fyrir endalokunum var skortur á markaðsvinsældum, einkennileg umkvörtun frá sveit sem alla tíð hefur verið rígbundin við jaðarinn.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.