Lesbók Morgunblaðsins - 07.08.2004, Blaðsíða 12
12 | Lesbók Morgunblaðsins ˜ 7. ágúst 2004
Kvikmyndaleikstjórinn GeorgeLucas ætlar að setja upp kvik-
mynda- og hreyfi-
myndaver í Singa-
púr. Þetta verður
fyrsta kvikmynda-
verið sem hann
byggir utan Banda-
ríkjanna.
Lucas, sem
þekktastur er fyrir
þríleikina Stjörnu-
stíð og Indiana Jon-
es, sagðist í viðtali spenntur fyrir fyr-
irhuguðu samstarfi Lucasfilm og
yfirvalda í Singapúr, sem eiga um
fjórðung í fyrirtækinu.
„Við bestu mögulegu aðstæður hér
í Singapúr gefst okkur kostur á að
þróa saman nýjar leiðir í kvikmynda-
gerð. Með blönd-
un starfshátta frá
austri og vestri
ættum við að geta
sýnt hluti sem aldrei hafa sést áður,“
sagði Lucas.
Yfirvöld í Singapúr hafa gegnum
tíðina verið þekkt fyrir strangt kvik-
myndaeftirlit og margar mest sóttu
myndir vestanhafs hafa einfaldlega
verið bannaðar þar í landi. Aðspurður
hvort þessi stranga löggjöf ætti eftir
að hafa áhrif á framleiðslu myndanna
sagði Micheline Chau, yfirmaður
hins nýja kvikmyndavers, að svo væri
ekki.
„Við sjáum fram á framleiðslu á af-
ar fjölskylduvænu efni svo þetta ætti
ekki að verða vandamál,“ sagði hún.
Fyrirtækið Lucasfilm hefur fram-
leitt fimm af tuttugu mest sóttu
myndum allra tíma og hlotið nítján
Óskarsverðlaun fyrir myndir sínar.
Áætlað er að kvikmyndaverið verði
opnað á næsta ári.
Leikarinn Robert De Niro verðurverðlaunaður á kvikmyndahá-
tíðinni í Feneyjum sem fram fer í
næsta mánuði. Við-
urkenningin felst í
ítölsku ríkisfangi
og eru heið-
ursverðlaun af
hálfu stjórnenda
hátíðarinnar. De
Niro er fyrir
bandarískur rík-
isborgari en lög í
Bandaríkjunum
kveða á um að fólk geti átt mest tvö
ríkisföng.
Langafi og langamma De Niros
voru Ítalir sem fluttust til Bandaríkj-
anna fyrir um 100 árum.
De Niro fer til Feneyja til kynn-
ingar á sinni nýjustu mynd, teikni-
myndinni Shark Tale, þar sem hann
ljær hákarlahöfðingjanum Don Lino
rödd sína.
Nú stendur til að endurgera kvik-myndina Valley of the Dolls frá
árinu 1967. Söng-
konan Janet Jack-
son hefur tekið að
sér aðalhlutverk
myndarinnar eftir
að kollegi hennar
Christina Aguilera
hafnaði hlutverkinu
vegna annríkis, en
hún vinnur nú
hörðum höndum að
næstu breiðskífu sinni.
Valley of the Dolls segir sögu
þriggja kvenna og hvaða áhrif vera
þeirra í sviðsljósinu hefur á þær.
Leikkonurnar Patty Duke og Sharon
Tate, fyrrverandi eiginkona Romans
Polanskis, fóru með aðalhlutverkin í
upprunalegu myndinni. Það er Betty
Thomas sem leikstýrir myndinni.
Eftir gífurlega velgengni fyrstumyndanna um Kónguló-
armanninn hefur
verið ráðist í
gerð þriðju
myndarinnar.
Þau Tobey Mag-
uire og Kirsten
Dunst munu sem
fyrr fara með að-
alhlutverkin en
þó í síðasta
sinn, að sögn
fréttavefjar BBC.
Áætlað er að Spiderman 3 verði
frumsýnd árið 2006 eða 2007.
Janet Jackson
Erlendar
kvikmyndir
George Lucas
Robert De Niro
Spiderman
Mikið er gaman að fara í bíó og sjámynd þar sem gert er stólpagrín aðhégómleikanum í heimi okkar full-orðna fólksins. Í teiknimyndinni
Shrek 2 tekst þetta fantavel og á myndin því ekki
síður erindi við fullvaxta fólk en lítil börn. Við sem
teljum okkur vitkast og þroskast með árunum
höfum svo gott af því að láta minna okkur á
hversu auðveldlega við látum
glepjast á tímum þar sem yf-
irborðið og rétta útlitið skiptir
jú öllu máli. Allt í kringum
okkur eru skilaboð um að feg-
urst séu nef sem eru undur
pen og rétt formuð (af lýtalæknum) og enginn
getur talist kynþokkafullur nema sá hinn sami
hafi líkamsræktaðan rass, þrýstinn (sílikon)barm
og hlutföll öll eftir fyrirfram gefnum forskriftum.
Svo ekki sé talað um að kunna sig og klæðast
réttu fötunum. Þeir sem ekki falla inn í stað-
almyndina eru útskúfaðir og eiga litla möguleika.
Svo er okkur í það minnsta sagt með einum eða
öðrum hætti í neyslusamfélaginu.
Prinsessan Fíóna og ástmögur hennar Shrek í
fyrrnefndri bíómynd eru allt það sem enginn vill
vera: Þau eru græn, feit, skeggjuð, með skög-
ultennur, klaufsk og klunnaleg tröll sem ropa og
reka við á röngum augnablikum. Og þau eiga
heima í lágkúrulegri mýri og finnst skemmtilegt
að velta sér upp úr drullunni og klóra sér frjáls-
lega í rassinum. Enda fer því fjarri að þau séu
samþykkt í Órafjarrilíu, borg hégómans (sem
minnir sterklega á Hollywood). Þar eru drauma-
prinsar „eins og englar hafi skorið út andlit
þeirra“ og alvöru prinsessur eru mittismjóar,
smáfríðar og penar í alla staði. Slíkt útlit hlýtur að
vera ávísun á sælu að eilífu … eða hvað? Fíónu og
Shrek stendur til boða að öðlast samþykkt útlit
svo þau þurfi nú ekki að burðast með þessa ljótu
útlitsgalla og svo þau geti „fúnkerað“ í Óra-
fjarrilíu þar sem allir vilja vera vinir fallega fólks-
ins. En viti menn, tröllin velja að vera þau sjálf:
Tröllslegir hlunkar með fáránleg eyru og alltof
stór nef. Þau sigrast á hégómanum (sem er ekki
svo lítið átak á þessum síðustu og verstu átrösk-
unartímum). Kóngurinn verður aftur á móti
hlægilegur hégómlegur froskur og draumaprins-
inn reynist hrútleiðinlegur, ofdekraður og sjálf-
umglaður.
Æ, það er svo gott að sjá ævintýri þar sem
„ljóta“ fólkið stendur með sjálfu sér og himneska
fegurðin kemur innan frá. Og tími til kominn að
blessuð börnin fái að sjá endi sem er á annan veg
en gamla klisjan um fögru prinsessuna og mynd-
arlega prinsinn sem ná saman og lifa sæl að eilífu
amen.
Himnesk fegurð
’Þau sigrast á hégóm-anum (sem er ekki svo lít-
ið átak á þessum síðustu
og verstu átröskunartím-
um). ‘Sjónarhorneftir Kristínu Heiðu
Kristinsdóttur
khk@mbl.is
H
inn indverskættaði Bandaríkja-
maður Manoj Nelliyattu Shya-
malan, eða M. Night Shya-
malan, er um þessar mundir
ókrýndur konungur hryllings-
spennunnar í Hollywood. Síð-
ustu þrjár myndir hans, sem allar fjalla um yf-
irnáttúrulega atburði, Sjötta skilningarvitið, The
Sixth Sense (‘99), Unbreakable (’00) og Signs
(’02), hafa rakað saman vænni
fúlgu, eða um 1,3 milljörðum
Bandaríkjadala. Sú fjórða, Þorpið
(The Village), fór beint á toppinn í
Bandaríkjunum í síðustu viku og
stefnir í að verða með tekjuhærri myndum árs-
ins. Hið óþekkta virðist hafa hertekið hug hans
eftir að Shyamalan skrifaði handrit bókarinnar
um Stúart litla, undirstöðu afbragðs barnamynd-
ar sem gerð var sama ár og Sjötta skilningar-
vitið. Börn koma þó mikið við sögu í spennuhroll-
unum hans öllum.
Fáguð meðhöndlun á efninu
Shyamalan gerir betur en að leikstýra mynd-
unum sínum, hann skrifar handritin, er vandvirk-
ur á sinn hátt og áberandi metnaðarfullur – sem
kemur m.a. fram í að hann hefur reynt að tengja
titil verka sinna við eigið nafn. Leikstjóranum
tekst einstaklega vel að laða fram ógnvekjandi
og dularfullt andrúmsloft, þrungið undirliggjandi
spennu. Þær eru ekki síst forvitnilegar sakir fág-
aðrar meðhöndlunar á efni sem minni spámenn
sólunda gjarnan svo úr verða auðgleymdar, oft
sóðalegar B-myndir. Persónur hans eru ann-
aðhvort gæddar yfirnáttúrulegum hæfileikum
eða ósköp venjulegt fólk og aðstæðurnar gjarnan
álíka óskyldar: Forn álög, heitstrengingar, bölv-
un, hindurvitni, í bland við umferðarslys eða
jafnvel átök við verur utan úr geimnum.
Handritshöfundurinn Shayamalan er vissulega
vandvirkur og vel máli farinn og fær þessar
mögnuðu, þjóðsagnakenndu hugmyndir sem skil-
uðu Sjötta skilningarvitinu, hans langbestu
mynd. Aðrar eru lítilsigldari og þá duga ekki
alltaf til gáfulegur texti, fagleg vinnubrögð leik-
stjóra, frábærra tónskálda og tökumanna til að
breiða yfir fábreytnina. En hvað sem öllu líður
tekst Shyamalan jafnan að laða fram þetta æs-
andi, dularfulla og ógnvekjandi, a.m.k. í hluta
verka sinna og skapa fáein augnablik sem kippa
áhorfandanum fram á sætisbrúnina. Slíkir
galdrar laða jafnan að sér bíógesti.
Veröld hrolla Shyalamans er dökk og draugs-
leg, áhorfandinn getur hæglega ímyndað sér að
leikstjórinn/handritshöfundurinn sé alinn upp við
grútartýru í drungalegum, íslenskum afdal með
Þjóðsögur Jóns Árnasonar á hnjánum, bak-
grunnur hans gæti ekki verið ólíkari því. Shya-
malan er fæddur á Indlandi 1970, en fluttist ung-
ur með foreldrum sínum til Bandaríkjanna. Þau
eru bæði velmetnir læknar og er drengurinn al-
inn upp í frægu auðmannahverfi í Fíladelfíu
(myndir hans gerast allar í heimaríkinu, Penn-
sylvaníu). Hann fékk ungur áhuga á kvikmynda-
gerð en foreldrarnir gáfu honum aðeins átta ára
gömlum, forláta 8 mm kvikmyndatökuvél og síð-
an var ekki til baka snúið. Eftirlætisgoð hans í
æsku voru ekki garpslegar íþróttastjörnur held-
ur ungir og eftirtektarverðir kvikmyndagerð-
armenn á borð við Steven Spielberg og George
Lucas.
Fyrsta langa bíómyndin lét ekki bíða lengi eft-
ir sér. Á táningsárunum hélt Shyalaman til Ind-
lands að kanna rætur sínar og Praying with
Anger (’92), er að mestu leyti afrakstur ferðar-
innar. Á frumsýningardaginn var höfundurinn
aðeins 21 árs gamall en Shyamalan fór einnig
með eitt aðalhlutverkið og fjármagnaði verkið al-
gjörlega. Praying With Anger er lítið og per-
sónulegt drama en fékk jákvæða dóma líkt og
Wide Awake, sem hann stóð að á svipaðan hátt 6
árum síðar.
Ein besta draugamynd allra tíma
Á þessum tíma lauk Shyamalan námi í kvik-
myndafræðum frá Tisch listaháskólanum í New
York og hélt þaðan troðna slóð til fyrirheitna
landsins, Hollywood. Hann skrifaði fljótlega
kvikmyndagerð barnabókarinnar Stuart Little
en framleiðslan dróst og kom myndin ekki á
markaðinn fyrr en um svipað leyti og Shyamalan
hafði tekið Hollywood með skyndiáhlaupi með
Sjötta skilningarvitinu, einni bestu draugamynd
allra tíma. Gagnrýnendur voru hugfangnir af
snjallri fléttunni, en þær eru jafnan umvafðar
dulúð í verkum höfundarins. Áhorfendur voru
ekki síður með á nótunum því myndin varð sú
næst tekjuhæsta árið 1999.
Stjórnendur Disney, dreifingaraðila mynd-
arinnar, gerðu allt sem í þeirra valdi stóð til að
halda í ótvíræða starfskrafta þessa 28 ára,
óvænta gullmola og önnur Hollywood myndin
hans, Unbreakable, fór fljótlega í gang með sama
leikara í aðalhlutverki. Sá er enginn annar en
gamli harðhausinn Bruce Willis, sem var allt í
einu orðinn eftirsóttur og vinsæll á nýjan leik.
Willis stendur sig frábærlega í báðum mynd-
unum, ekki síst í Sjötta skilnuingarvitinu sem er
einstaklega vel skrifuð draugasaga af gamla
skólanum. Með óvæntum endi, sögð afdrátt-
arlaust án umtalsverðra brellna – mögnuð sagan
er aðall myndarinnar, nokkuð sem telst harla
óvenjulegt í Hollywood. Unbreakable er hins-
vegar talsvert gruggugri, skrifuð undir áhrifum
af teiknimyndasögum sem Shyalaman hefur víst
mikið dálæti á. Willis leikur mann sem sleppur
einn lífs af (og án skrámu), úr hræðilegu járn-
brautarslysi þar sem á annað hundrað manns
farast. Þá kemur til sögunnar dularfullur náungi
(Samuel L. Jackson), með undarlega kenningu í
kollinum …
Myndin gekk vel, fékk lofsamlega dóma og
Disney dró upp 5 milljónir dala til að greiða
Shyamalan fyrir Signs, og er það hæsta upphæð
sem fengist hefur fyrir handrit í kvikmyndaiðn-
aðinum – jafnvel að Joe Eszterhas meðtöldum.
Myndin er vísindahrollvekja um bræður (Mel
Gibson og Joaquin Phoenix), bændur í Pennsylv-
aníu. Einn góðan veðurdag er búið að slá risa-
vaxin furðutákn í akrana. Óvelkomnir gestir eru
á ferð.
Signs er líkt og önnur verk höfundar, óaðfinn-
anleg fyrir augað og þétt stjórnað. Shyamalan
rær hinsvegar á mið sem þrátt fyrir fantasíu-
rammann, ofbjóða trúgirni áhorfandans. Ekki
síst meginsögufléttan sem stendur öðrum hug-
myndum höfundar að baki, er í rauninni yf-
irgengilega einföld. Samt sem áður gekk þessi
auðgleymdi vísindahrollur ágætlega, dulúðug
undraveröld Shyamalans hittir greinilega í mark
hjá bíógestum um allan heim.
Í hrollinum, Þorpið, sem er frumsýnd hér
heima um helgina, leitar Shyamalan fanga á
svipuðum slóðum, leyndardómsfullur óhugnaður
blundar rétt undir að því er virðist eðlilegu yf-
irborði. Bakgrunnurinn lítið og vinalegt þorp,
umgirt skógi. Eitthvað miður gott lúrir úti á
mörkinni en þorpsbúar hafa gert samning við
myrkraöflin í skóginum: Ef mannfólkið hreyfir
sig ekki út úr þorpinu, heldur óvætturinn sig í
trjáþykkninu. Óhjákvæmilega kemur sú staða
upp að lokum að þorpsbúar verða að ganga á bak
orða sinna.
Sagan af Pí í undirbúningi
Þorpið er líkt og aðrar Hollywood myndir Shya-
malans, unnin af úrvalsmannskap, jafnt leikurum
sem tæknimönnum. William Hurt, Sigourney
Weaver, Adrien Brody, Joaquin Phoenix og
Bryce Dallas Howard, dóttir leikarans og síðar
leikstjórans Rons Howard, fara með aðal-
hlutverkin, en snillingarnir Roger Deakins og
James Newton Howard sjá um tökur og tónlist.
Næsta verkefni Shyalamans verður væntanlega
kvikmyndagerð metsölubókarinnar Sagan af Pí
(Life of Pi), eftir Yann Martel og kom út hér-
lendis á síðasta ári í þýðingu Jóns Halls Stef-
ánssonar.
Konungur hryllanna
Í Þorpinu – The Village, er einn fremsti drauga-
sagnamaður kvikmyndanna enn kominn á stjá
um válega veröld hrollvekjunnar
Eftir Sæbjörn
Valdimarsson
saebjorn@
heimsnet.is
M. Night Shyamalan ásamt Bryce Dallas Howard
við frumsýningu Þorpsins í Bandaríkjunum.
Adrien Brody og Bryce Dallas Howard