Lesbók Morgunblaðsins - 07.08.2004, Síða 15
UM tíma héldu menn ekki vatni yfir þeirri
snilli Kristjáns Guðmundssonar myndlist-
armanns að geta ferðast með heilu sýning-
arnar í rassvasanum. Kristján var þá að
gera blýferninga á veggi og gat því geymt
blýstiftin í vasa sínum þegar hann ferðaðist.
Þetta ferðavandamál leystist reyndar að
mestu með tilkomu myndbandsins og svo
með DVD-spilurum, en myndlistarmenn
geta nú geymt margmiðlunardiska í vas-
anum og óskað svo eftir skjávarpa eða sjón-
varpi þegar á hólminn er komið. Engu að
síður er þetta enn vandamál fyrir þá sem
ekki geta lagað list sína að margmiðl-
unartækninni og þurfa að burðast með
objekta um landið og hvað þá út fyrir land-
ið. Pjetur Stefánsson tekur þetta vandamál
fyrir á sýningu sinni „Tourist artist – Trav-
elling light“, sem þýða má sem „Ferða-
mannalistamaður – Að ferðast létt“, og er
þessa dagana í Galleríi Klaustri í kjallara
Gunnarsstofnunar á Austurlandi. Pjetur
hefur rúllað saman fjórum lituðum plastfólí-
um og stungið undir handleggina fyrir
ferðalagið, límt þær svo á veggi gallerísins
að ofanverðu svo þær verpast upp að neðan.
Afraksturinn verður skúlptúrískt rýmisverk
í anda mínimalisma eða naumhyggju og
gengur satt að segja ágætlega upp sem
slíkt.
Ég verð að játa að ég hef ekki séð mikið af
verkum frá Pjetri, enda hefur hann verið
mun virkari í myndlistarpólitík undanfarin ár
en í sýningarhaldi. Fyrst sem formaður SÍM
(Samband íslenskra myndlistarmanna) og nú
sem formaður Íslenskrar grafíkur. Það litla
sem ég hef séð frá honum eru fígúratíf mynd-
verk, lauslega unnin og samræmast Nýja
málverkinu. Sýningin í Gunnarsstofnun kem-
ur mér því nokkuð á óvart. Virkar þannig séð
sem sniðug hugdetta og gengur ágætlega
upp, eins og áður sagði.
MYNDLIST
Skriðuklaustur – Gunnarsstofnun
Opið alla daga frá 10–18. Sýningu lýkur 21.
ágúst.
RÝMISVERK PJETUR STEFÁNSSON
Jón B.K. Ransu
Morgunblaðið/Ransu
Frá sýningu Pjeturs Stefánssonar í Skriðuklaustri.
Lesbók Morgunblaðsins ˜ 7. ágúst 2004 | 15
Handverk og hönnun, Að-
alstræti 12: Sumarsýningin.
Til 5. sept.
i8, Klapparstíg 33: Jeanine
Cohen. Til 21. ágúst.
Íþróttahúsið, Eiðum: Dieter
Roth. Fram í desember.
Íslensk grafík, Hafnarhúsi:
Ólafur Þórðarson. Til 7.
ágúst. „Sumir nytjahlutanna
hafa jafnvel gagnrýnar póli-
tískar skírskotanir.“ JBK
Ransu.
Kling og Bang gallerí,
Laugavegi: Paul McCarthy
og Jason Rhoades. Stein-
grímur Eyfjörð. Til 29.
ágúst.
Klink og Bank, Braut-
arholti: Samsýning tuttugu
ungmenna. Til 14. ágúst.
Listasafn ASÍ: Hafsteinn
Austmann. Til 15. ágúst.
Listasafnið á Akureyri:
Hagvirkni. Til 22. ágúst.
Listasafn Árnesinga: Bók-
verk – Bókalist. Samsýning
íslenskra myndlistarmanna:
Myndlist
Árbæjarsafn: Þjóðbúningar
og nærfatnaður kvenna frá
fyrri hluta 20. aldar. Til 31.
ágúst.
Gallerí Sævars Karls: Krist-
ín Reynisdóttir. Til 18. ágúst.
Gerðarsafn: Ný aðföng. Til
8. ágúst. „Það er sérstaklega
gaman að sjá eldri verk eftir
eldri listamenn í bland við
yngri í góðum samhljómi.“
R.S.
Hafnarborg: Samsýning
fimm listamanna. Stefnumót:
Düsseldorf – Hafnarfjörður
og verk Þorbjargar Hösk-
uldsdóttur. Til 23. ágúst.
Hallgrímskirkja: Steinunn
Þórarinsdóttir. Til 1. sept.
Sumardagur. Til 8. ágúst.
Listasafn Ísafjarðar: Sara
Vilbergsdóttir. Til 1. októ-
ber.
Listasafn Íslands: Umhverfi
og náttúra – Íslensk mynd-
list á 20. öld. Til 29. ágúst.
Listasafn Einars Jónssonar:
Opið alla daga, nema mánu-
daga, kl. 14–17. Til 15. sept.
Listasafn Reykjavíkur – Ás-
mundarsafn: Maðurinn og
efnið. Yfirlitssýning. Til
2006.
Listasafn Reykjavíkur –
Hafnarhús: Þorvaldur Þor-
steinsson. Til 8. ágúst. Ný
safnsýning á verkum Errós.
Listasafn Reykjavíkur –
Kjarvalsstaðir: Francesco
Clemente. Roni Horn. Til 22.
ágúst.
Listasafn Sigurjóns Ólafs-
sonar: Listaverk Sigurjóns í
alfaraleið. Til 5. sept. Opið
alla daga, nema mánudaga,
kl. 14–17. Til 1. okt.
Listasafn Reykjanesbæjar:
Erró – Fólk og frásagnir. Til
29. ágúst.
Listasetrið Kirkjuhvoli,
Akranesi: Bjarni Þór
Bjarnason og Ásta Salbjörg
Alfreðsdóttir. Til 15. sept.
Ljósmyndasafn Reykjavíkur,
Grófarhúsi: Finnsk samtíma-
ljósmyndun. Til 29. ágúst.
Norræna húsið: Samsýn-
ingin 7 – Sýn úr norðri. Til
29. ágúst.
Safnasafnið, Svalbarðs-
strönd: 11 nýjar sýningar.
Safn – Laugavegi 37: Opið
mið.–sun. kl. 14–18. Sum-
arsýning úr safnaeign. Ný
verk eftir Katharinu Grosse
og Eggert Pétursson. Til 26.
sept. Leiðsögn alla laug-
ardaga.
Safn Ásgríms Jónssonar:
Þjóðsagnamyndir Ásgríms
Jónssonar.
Skaftfell, Seyðisfirði: Að-
alheiður S. Eysteinsdóttir.
Til 8. ágúst.
Skálholt: Staðarlistamenn
eru Þórður Hall og Þorbjörg
Þórðardóttir. Til 31. sept.
Þjóðmenningarhúsið: Hand-
ritin. Heimastjórn 1904.
Þjóðminjasafnið – svona var
það. Eddukvæði. Til 1. sept.
Landsbókasafn Íslands –
Háskólabókasafn: Handband
á Íslandi 1584–2004. Kvenna-
hreyfingar – innblástur,
íhlutun, irringar. Söguleg út-
gáfa Guðbrandsbiblíu 1584 til
vorra daga. Til 31. ágúst.
Leiklist
Vetrargarðurinn, Smára-
lind: Fame, lau., fim. „Dans-
ar þeirra Björnsdætra eru
flottir og vel leystir af leik-
hópnum.“ Þ.T.
Austurbær: Hárið, fös. „Það
er eins og enginn leikaranna
trúi á þau gildi sem persón-
urnar sem þeir leika halda
fram í verkinu.“ S.H.
Iðnó: Light Nights. Íslensk-
ar þjóðsögur fluttar á ensku,
mán., fös.
Kvikmyndir
Borgarbíó, Akureyri:
I, Robot (SV)
Spider-Man 2 (SV)
Háskólabíó
King Arthur (HJ)
Shrek 2 (SV)
Good Bye Lenin! (HL)
Laugarásbíó
Shaun of the Dead (HJ)
Shrek 2 (SV)
Regnboginn
I, Robot (SV)
Spider-Man 2 (SV)
Eternal Sunshine …
(HL)
The Day After Tomorrow
(SV)
Sambíóin Reykjavík, Kefla-
vík, Akureyri
King Arthur (HJ)
Around The World in 80
Days (HJ)
Shrek 2 (SV)
Harry Potter and the Prison-
er of Azkaban (HJ)
Raising Helen (HJ)
Smárabíó
I, Robot (SV)
Spider-Man 2 (SV)
ÁSTAND heimsmála virðist vera nokkuð stór
biti að fjalla um á lítilli sýningu og þegar ég las
innganginn að sýningu Kristínar Reynisdóttur
í Galleríi Sævars Karls hvarflaði það að mér að
hún færðist mikið í fang, svo yfirgripsmikil
málefni leggur hún til grundvallar innsetningu
sinni – upplifunina að vera áhorfandi og þátt-
takandi á tímum átaka í heiminum, spurningar
um tilgang trúarbragða, stöðu mannkyns.
Hvar er að finna rætur tilfinninganna, hjá fjöl-
skyldu, samfélagi eða einstaklingum? Í sýn-
ingarskrá kemur einnig fram að verkin eru
unnin eftir heimsókn til Sarajevo haustið 2003.
Þegar ég síðan steig niður í salinn hjá Sæv-
ari sá ég hins vegar að allar þessar spurningar
má með góðu móti sjá endurspeglast í verk-
unum tveimur sem Kristín hefur sett upp.
Annað þeirra er veggverk, staurar líkir girð-
ingarstaurum með afar oddhvössum haus eru
festir á bláa plötu með litlum spegli í miðjunni.
Þeir virka ógnandi á mann, svo hvassir eru
oddarnir sem stingast beint inn í rýmið. Blái
liturinn minnir á hvolfþak sveitakirkju og litli
flöturinn í miðjunni á flúr líkt því sem sjá má í
arabískum byggingum. Girðingarstaurarnir
eru allt í senn afmörkun svæðis, vísa til ná-
grannaerja og eru vopn. Hér koma saman
margir þættir sem hafa einkennt lífið í Sara-
jevo á undanförnum árum. Stærra verk Krist-
ínar er innsetning sem lýsir einhvers konar
ógnarjafnvægi, svo viðkvæmu að manni finnst
það geta brostið þá og þegar og þá yrði fjand-
inn laus. Mikil spenna einkennir verkið, sam-
ansett úr köðlum sem strekktir eru út í alla
veggi gallerísins en í miðju eru málmhringir
sem halda öllu á sínum stað og þar myndast
stjörnumynstur sem hægt er að sjá sem vísun
í trúarbrögð eða einhvers konar æðri strúktúr,
þungamiðju. Þetta er einfalt verk en þó nær
það að skapa sterkt og ótrúlega hlaðið and-
rúmsloft, þrungið innri spennu. Allir þræðir
eru strekktir til hins ýtrasta og má ímynda sér
að ef einn þeirra bresti losni þeir allir og þá er
betra að forða sér.
Verk Kristínar lifa líka góðu lífi án þess for-
mála sem hún gefur þeim, svo einfalt og auð-
lesið er myndmál þeirra en formálinn gerir
verkin þó hlaðnari að merkingu en ella og
hjálpar áhorfandanum að setja sig inn í hugs-
un listakonunnar. Verk hennar eru allt í senn
opin fyrir túlkun, vísa sterkt í samtíma okkar,
vinna á áhrifaríkan hátt í rýminu og vekja til
umhugsunar. Spennuna sem ríkir í þeim má
heimfæra upp á innra líf einstaklings, fjöl-
skyldu eða heils samfélags.
List með boðskap missir stundum marks
þegar vísifingur listamannins hefst á loft og
stundum verða listamenn eins og sníkjudýr, í
versta falli ferðalangar í leit að eymd og volæði
til að vinna úr, en hér er ekkert slíkt á ferð.
Kristínu tekst vel upp, hún vinnur úr sinni
persónulegu reynslu á áhrifaríkan hátt og án
þess að setja sig á háan hest. Hún nýtir sér
miðil sinn myndlistina á persónulegan hátt til
að skapa beinskeyttar myndir sem eru ríkar af
tilvísunum í umheim okkar og samtíma en um
leið hrein og klár myndverk.
Morgunblaðið/Þorkell
Kristín Reynisdóttir: Innsetning með köðlum.
MYNDLIST
Gallerí Sævars Karls
Til 18. ágúst. Galleríið er opið á verslunartíma.
BLÖNDUÐ TÆKNI, KRISTÍN REYNISDÓTTIR
Ragna Sigurðardóttir
Á NEÐRI hæðinni í Skaftfelli, menningar-
miðstöð á Seyðisfirði, hefur Hildigunnur Birg-
isdóttir komið fyrir lítilli innsetningu sem hún
nefnir „Hring eftir hring“. Ég býst við að
þetta sé fyrsta einkasýning hennar síðan hún
útskrifaðist frá Listaháskóla Íslands í fyrra,
en engar slíkar upplýsingar liggja þó frammi
fyrir sýningargesti.
Verkið er unnið beint á vegginn. Hring-
vegur er gerður úr taui, leikfangabílar mynda
hring, mótorknúin dós snýst í hringi og geisla-
spilari er saumaður inn í poka þar sem heyrist
lágt talað „hring eftir hring eftir hring …“
Einnig má sjá plastburkna sem nærist á sól
sem birtist okkur sem lampi og lýsir á málaðar
rætur og vatn sem þá næra plöntuna, eða rétt-
ara sagt staðgengil plantna. Semsagt, verkið
fjallar um hringrás. Hringvegurinn hefur hjól
sem listakonan málar á vegginn. Sjálft ferða-
lagið er þannig áfangastaðurinn. Vegurinn
sem slíkur er leikfangalegur útlits, minnir á
bílabraut, og vísar til vélrænnar starfsemi, líkt
og færiband. Undir niðri má svo finna spurn-
ingar um umhverfismál, árekstra náttúrulegra
og vélrænna hringrása, eyðileggingu á barns-
legu sakleysi.
Myndmálið sem listakonan tileinkar sér
heyrir undir poppsúrrealisma, sem er nokkuð
áberandi myndmál í samtímalistum og skartar
listamönnum á borð við Carrol Dunham, Tak-
ashi Murakami og Kenny Scharf. Einnig kem-
ur austurríski myndlistarmaðurinn Friedens-
reich Hundertwasser (1928–2000) mér í huga,
sem kannski er hulinn áhrifavaldur á margan
poppsúrrealistann. Ég hafði allavega ekki séð
hann í því samhengi fyrr.
Innsetningin er því nokkuð yfirgripsmikil
þótt hún sé smá, býr yfir sköpunargleði og
flott frumraun hjá þessari ungu listakonu.
MYNDLIST
Skaftfell, Seyðisfirði
Sýningin er aðgengileg á afgreiðslutíma kaffihúss-
ins. Henni lýkur 18. ágúst.
BLÖNDUÐ TÆKNI HILDIGUNNUR BIRGISDÓTTIR
Jón B.K. Ransu
Verk Hildigunnar Birgisdóttur, Hring eftir hring.
Morgunblaðið/Ransu