Lesbók Morgunblaðsins - 11.09.2004, Blaðsíða 15
Lesbók Morgunblaðsins ˜ 11. september 2004 | 15
Kvikmyndir
Borgarbíó, Akureyri:
Dís (HJ)
Grettir/Garfield (SV)
Fahrenheit 9/11 (HJ)
Háskólabíó
The Terminal
(SV)
The Bourne Supremacy
(SV)
Ken Park
(HL)
Before Sunset
(SG)
Coffee and Cigarettes
(SV)
Supersize Me (SV)
Capturing he Friedmans
(SV)
The Village (SV)
King Arthur (HJ)
Shrek 2 (SV)
Good Bye Lenin!
(HL)
Laugarásbíó
Dís (HJ)
The Bourne Supremacy
(SV)
The Stepford Wives
(SV)
Grettir/Garfield
(SV)
Fahrenheit 9/11
(HJ)
Regnboginn
Dís (HJ)
Notebook (HL)
Hellboy (HJ)
I, Robot (SV)
Spider-Man 2 (SV)
Grettir/Garfield
(SV)
Dirty Dancing 2
(SV)
Sambíóin Reykjavík,
Keflavík, Akureyri
The Terminal (SV)
The Bourne Supremacy
(SV)
The Prince & Me (HL)
Thunderbirds (SG)
Catwoman (SV)
The Village (SV)
New York Minute (HJ)
King Arthur (HJ)
Shrek 2 (SV)
Gauragangur í sveitinni
(SV)
Smárabíó
Dís (HJ)
Hellboy (HJ)
Grettir/Garfield (SV)
Spider-Man 2 (SV)
Myndlist
Gallerí +: Þorvaldur Þor-
steinsson – Alltaf að mála.
Opin um helgar. Til 26. sept.
Gallerí Sævars Karls: Sjafn-
ar Gunnarsson. Bandaríkja-
forsetar. Til 23. sept.
Gerðarsafn: Sígild dönsk
hönnun og íslensk hús-
gagnahönnun. Til 19. sept-
ember.
Hafnarborg: Katrín Elvars-
dóttir. Astrid Kruse Jensen.
Fimm skartgripahönnuðir
frá Danmörku. Til 20. sept.
Íþróttahúsið, Eiðum: Dieter
Roth. Fram í desember.
Kunstraum Wohnraum,
Ásabyggð 2, Akureyri: Ul-
rike Scoeller. Til 21. okt.
Listasafn Akureyrar: Boyle-
fjölskyldan. Til 24. okt.
Listasafn ASÍ, Freyjugötu:
Hildur Bjarnadóttir í Ás-
mundarsal. Hafdís Helga-
dóttir í Gryfju. Arinstofa: Úr
eigu safnsins. Til 12. sept.
Listasafn Einars Jónssonar:
Opið alla daga, nema mánu-
daga, kl. 14–17. Til 15. sept.
Listasafn Árnesinga: Elín
Hansdóttir. Til 12. sept.
„Listamanninum tekst síðan
svo vel til við innsetningu
sína að það er nánast eins
og maður sé staddur inni í
einni af teikningum lista-
mannsins sem sýndar eru í
anddyri listasafnsins. Sam-
spil lita og forma er sem
sagt mjög gott og Elín hefur
góð tök á safninu sem heild,
sem er ekki sjálfsagt. Með
litum og formum spilar síðan
hljóðið, þ.e. vatnsskvaldrið,
og sterk lykt af bæði húðlit-
aða teppinu og gula plast-
dúknum.“
Listasafn Ísafjarðar: Sara
Vilbergsdóttir. Til 1. októ-
ber.
Listasafn Íslands: Gler-
listaverk eftir sænska gler-
listamenn.
síðustu þremur áratugum.
Sumarsýning úr safnaeign.
Ný verk eftir Katarinu
Grosse og Eggert Pét-
ursson. Til 26. sept.
Safn Ásgríms Jónssonar:
Þjóðsagnamyndir Ásgríms
Jónssonar.
Salur íslenskra myndlist-
armanna: Jónas Bragi
Jónassonopnar sýningu á
nýrri og eldri verkum. kl.
14:00.
Skálholt: Staðarlistamenn
eru Þórður Hall og Þorbjörg
Þórðardóttir. Til 31. sept.
Leiklist
Borgarleikhúsið: Danshátíð
lau., sun. Lína Langsokkur,
sun. Paris at night, lau, sun.
Leikfélag Akureyrar: Brim,
lau.
Vetrargarðurinn, Smára-
lind: Fame, lau., sun.
Austurbær: Hárið, lau., sun.
Þjóðleikhúsið: Edith Piaf á
stóra sviðinu, lau. Dýrin í
Hálsaskógi, sun. Græna
landið á litla sviðinu, sun.
Listasafn Reykjavíkur – Ás-
mundarsafn: Maðurinn og
efnið. Yfirlitssýning. Til
2006.
Listasafn Reykjavíkur –
Hafnarhús: Ný safnsýning á
verkum Errós. Kenjarnar –
Los Caprichos. Finnur Arn-
ar. Til 3. október.
Listasafn Sigurjóns Ólafs-
sonar: Mánasigð. Græn-
lenska listakonan Isle
Hessne. Safnið er opið alla
daga nema mánudaga frá kl.
14–17. Breyting verður á af-
greiðslutíma 1. október.
Nýlistasafnið, Laugavegi 21:
Til 13. sept. Sýning á safna-
eign.
Ráðhús Reykjavíkur:
Focus, félag áhugaljósmynd-
ara. Ísland í fókus. Til 21.
sept.
Safnasafnið, Svalbarðs-
strönd: 11 nýjar sýningar.
Safn – Laugavegi 37: Opið
mið. til sun. kl. 14–18. Tvær
nýjar sýningar opnaðar kl.
16:00. Ívar Valgarðsson, ljós-
mynd og glerverk. Pieter
Holstein, pappírsverk frá
FURÐULEGT nokk þá gerist það ósjaldan
þegar rætt er um myndlist og myndlist-
armenn að notuð eru hugtök sem tengjast
hernaði. Talað er um landvinninga og að
listamenn nái yfirráðum yfir rýminu. Í
þessu samhengi er það skemmtilegt að loks-
ins þegar Kjarvalsstaðir eru „yfirunnir“ er
það af fíngerðri konu. Í stað þess að hunsa
rýmið eins og oft gerðist áður fyrr eða
þvinga það til hlýðni eins og maður sér
stundum hefur Rögnu Róbertsdóttur hrein-
lega tekist að fá loftið alræmda til að vinna
með sér og geri aðrir betur. Hún sýnir
þannig í verki að það reynist vel að sýna
umhverfinu virðingu og leyfa því að vera
eins og það er, með kostum og göllum. Það
er engu líkara en þessi langt í frá auðveldi
sýningarsalur hafi verið sérhannaður fyrir
verk hennar en mig grunar að þannig áhrif
hafi sýningar hennar einatt, ekki aðeins hér.
Yfirlitssýningin Kynngikraftur var opnuð á
Kjarvalsstöðum um síðustu helgi og sýnir
Ragna verk frá tveimur síðustu áratugum.
Afstaða Rögnu til listar sinnar er þannig að
hún fellur í þann hóp listamanna sem ekki
gera greinarmun á þeirri sköpun sem felst í
að setja upp sýningu á verkum sínum og
sköpun verkanna sjálfra en þessi afstaða er
heilladrjúg. Þannig er uppbygging sýningar
Rögnu og staðsetning verka fullkomlega út-
hugsuð svo sem best verður á kosið. Hún
spilar saman eldri og nýrri verkum og tekst
að mynda eina heild en um leið er þróun
listar hennar í átt frá skúlptúr í tengslum
við byggingarlist yfir í tvívíð verk með opn-
ari túlkunarmöguleikum augljós.
Fyrri verk Rögnu á sýningunni leika sér
með form sem finnast í náttúrunni, þannig
lætur hún saga fyrir sig grjót í formi sem
minnir á stuðlaberg og hleður því upp líkt
og byggingu eða býr til gólfflöt í anda
naumhyggjulistar. Hún notar einnig torf
sem hún rúllar upp og hún málar hringi á
vegg og minnir þannig á eilífðarhringrás
náttúrunnar. Ragna hóf listsköpun sína á
þeim tíma þegar naumhyggjulistin átti mik-
ið upp á pallborðið og það má segja að hún
hafi verið þeirri stefnu trú alla tíð en það
væri að gera lítið úr list hennar að flokka
hana eingöngu sem slíka því hún tengist
fleiri stefnum auk þess að vera persónuleg.
Á síðari árum hefur Ragna verið þekktust
fyrir hraunverk sín sem gerð eru úr litlum,
svörtum eða rauðum hraunmolum og þekja
stóra fleti á vegg, sum mynda fleti á gólfi
eða utanhúss, á Kjarvalsstöðum eru tvö
verk utandyra, ferningur og göngustígur.
Ragna safnar molunum m.a. úr hrauni úr
Heklu og Kötlu og felst töluverð vinna í
þeirri söfnun. Eftir hreinsun og flokkun
hraunsins ber listakonan lím á veggflöt og
tekur sig svo til og kastar molunum í vegg-
inn. Einhverjir loða við en aðrir falla á gólf-
ið og er kastað aftur. Hún stýrir að nokkru
leyti áferð og útliti verkanna en eftir kastið
notar hún töng til að bæta í eða taka úr þar
sem við á við sköpun blæbrigðaríks yf-
irborðsins. Í þessum verkum er áhugaverð
spenna milli náttúrulegs efniviðarins og
myndhugsunar menningar okkar, milli þess
hvernig molunum er annars vegar þeytt í
límið og hins vegar raðað af kostgæfni, að
ekki sé minnst á ógnandi ofurkraftinn sem
skapaði þessa mola í upphafi og er okkur Ís-
lendingum vel kunnur. Ógnin sem felst í
hraungosum er líka í mótsögn við meðferð
Rögnu á gosefninu, hér er náttúran tekin og
tamin en á svo varfærinn og blíðlegan hátt
að hún veit ekki af því, rétt eins og Kjar-
valsstaðir gefa eftir og sýna sína bestu hlið.
Vinnuaðferð Rögnu felur í sér ákveðna nálg-
un við naumhyggju eins og áður var sagt en
einnig við jarðlistaverk, athafnamálverkið
og landslagshefðina en það má hiklaust líta
á veggverk hennar sem hluta af sögu ís-
lenska landslagsmálverksins. Hún reynir
ekki að endurskapa náttúruna heldur býr til
nýjar myndir út frá fagurfræði og hug-
myndum samtímans um eiginleika og hlut-
verk samtímalistar. Hún reynir ekki að
skapa blekkingu eða dýpt í myndum sínum
heldur byggir á hinu sýnilega yfirborði og
samspil hennar við byggingarlist sýning-
arrýmisins er mjög í anda hugmynda í list-
um síðari tíma þar sem listaverkin eru skoð-
uð í samhengi við umhverfi sitt en ekki
aðskilin frá því. Nálgun hennar við íslenskt
landslag er einnig frumleg í jöklamyndunum
sem gerðar eru úr glerbrotum og það er
einstaklega fallegt hvernig stirnir á mynd-
flötinn líkt og snjóbreiðu. Það er hressandi
að sjá verk sem að hluta til á ætt sína að
rekja til naumhyggjustefnunnar en hikar
ekki við að leyfa sér að vera hreinlega fal-
legt á næstum barnslegan hátt. Í gler-
brotaverkunum kemur sérlega vel fram
hvernig listakonan leitar ekki einungis beint
til náttúrunnar sjálfrar til að finna marg-
brotnar birtingarmyndir hennar heldur
kemur einnig auga á þær í manngerðum
hlutum.
Það má í grófum dráttum skipta þessari
sýningu Rögnu í þrjá þætti sem þó allir
spila saman, eldri verk, hraun- og gler-
verkin og síðan nýrri verk úr plasti í neon-
litum en þau eiga að öllum líkindum eftir að
birtast eitthvað áfram og kannski í fleiri
myndum. Ekki má gleyma veggverki úr
skeljum en þar kristallast enn einn þáttur í
verkum Rögnu, sú hlið sem sýnir þau líkt og
verksummerki um náttúruna, rétt eins og
jarðlög með steingervingum.
Leikurinn sem mér finnst ég finna fyrir í
öllum verkum Rögnu kemur skemmtilega
fram í miðrými Kjarvalsstaða þar sem
hraunmolar eru lokaðir milli glerja og
mynda sjóndeildarhring. Þetta minnir á litla
sandleikinn með marglitum sandi sem er
hristur til að skapa ýmiss konar mynstur.
Ég finn fyrir launskemmtilegum húmor í
list hennar sem gerir hana enn fjöl-
breytilegri en ella og ljær sýningu hennar
aukna vídd. Það er ekki síst þessi tilfinning
sem gerir heimsókn á sýningu hennar
skemmtilega og eftirminnilega fyrir list-
áhugafólk sem almenning allan. Nú er upp-
lagt tækifæri til að kynna sér list Rögnu
sem hefur um árabil verið ein okkar
fremstu listamanna. Þessi sýning býður
áhorfandann velkominn og það er ekki hægt
annað en hrífast með ástríðunni sem svo
greinilega liggur að baki.
MYNDLIST
Kjarvalsstaðir
til 31. október. Kjarvalsstaðir
eru opnir daglega frá kl. 11–17.
KYNNGIKRAFTUR
BLÖNDUÐ TÆKNI, RAGNA RÓBERTSDÓTTIR
Ragna Sigurðardóttir
Morgunblaðið/Þorkell
Húmor „Ég finn fyrir launskemmtilegum húmor í list hennar sem gerir hana enn fjölbreytilegri en ella og ljær sýningu hennar aukna vídd.“
Kjarvalsstaðir sigraðir