Sunnudagsblaðið - 15.04.1956, Blaðsíða 6

Sunnudagsblaðið - 15.04.1956, Blaðsíða 6
150 SUNppAOSBLA Ð I D BEIHINGAMENN VETRARDAG einn árið 1809 hafði bakari nokkur, Jan Prysky að nafni, falið sig bak við deiga- trogið, meðan hann hafði auga með lærlingi sínum, litlum og grannholda dreng, sem hét Wlad- islaw, en hann var á rjátii nálægt bakka fullum af brauðhnúðum. Jan Prysky hélt andanum niðri í sér. Wladislaw færði slg nær brauðabakkanum. Ilmurinn af nýj um brauðhnúðunum orkaði á hann eins og áfengur drykkur. Hann litaðist fióttalega um, og svo gerði hann nákvæmlega það sem Prysky hafði búizt við, — greip einn brauðhnúðinn og beit úr honum stórt stykki. „Nú já !“ hrópaði Jan Ptysky, um leið og hann stökk úr felustað sínum. „Loksins hef ég staðið þig að verki, kvikindið þitt, þjófur!" Hann var risavaxinn með snúið yfirskegg. Lærlingurinn misti brauðhnuðínn og hrökk saman í lmút. Bakarinn reiddí til höggs. Wladislaw beygði sig, kostaðí iér í gólfið og skreið út milli fóta meistara síns ákveðinn í því að koma aldrei aftur. Prysky hrufl- aði sig á hendi á horni blikkbak- ans, um leið og hann hafði slegið tll drengsins. Þegar Pryskys var að nokkru runnin reiðin, sleikti hann blóðið úr sárinu, tók brauðhnúðinn upþ af gólfínu og borðaði hann. Hann var maður, sem ekki vildi láta neitt fara í súginn. Þvl næst fór hann inn til sín að borða. Þremur dögum eftir þetta tók hönd hans að bólgna. Fjórum dög- um síðar fékk hann sáran verlc upp í holhöndina, og var allur undirlagður af þrautum. Læknir- inn sagði: „Vertu hughraustur, maður minn. Á vígvellinum af- limar maður svona á tíu sekund- um.“ En hann var nú tvær mín- utur og þrjótíu sekundur að fjar- iægja handlegg Pryskys. Hann staðhæfðl að það væri honum sjáifum að kenna, vegna þess að hann hefði ekki legið kyrr meðan á aðgerðinni stóð. Jan Prysky varð nú að ráða sér bakarasvein, en þegar hann var orðinn kunnur meðal flestra við- skiptavina Pryskys, opnaði hann sjálfur brauðgerðarhús í sömu götu. Jan Prysky var orðinn blá- snauður. Hann vissi ekki lengur hvernig hann ætti að vinna sér fyrir málungi matar og húsnæði. Kvöld nokkurt stöðvaði hann vel- SM ÁS AGA eftir Gerald Kersh. búinn vegfaranda á aðalgötu Varsjáv og rétti fram hina tómu ermi, um leið og hann sagði: „Géfðu gömlum hermanni skild- ing“. Og silfurpeningur féll í út- rétta hönd hans. Svona auðvelt var þetta þá. Prysky hafði fundið sér tekjuöflunarleið. Síðan kallaði hann sig Jan Prysky, fyrrverandi líðsforinga í Poniatowsky-her- deildinni, og var kælddur snjáðum einkennisbúningi. Tímarnir voru erfiðir. Napoleon hafði yfirfyllt betlarastéttina. Eigi að síður komst Perysky vel af. Hann gift- ist stúlku að nafni Etelka, og fað- ir hennar sem hét Polacek, lifði af því að skrifa bænaskrár. Þau bjuggu í kjallaraopum og úti- fylgsnum, og betluðu sig áfrani um þvera Evrópu, meðan þau ólu upp son sihn, Janko, og kenndu honum leyndardóm þessarar at- vinnugreinar. „Geymdu hvern eyrir,“ sagði Prysky. „Taktu aðeins á móti, en láttu ekki eyrir frá þér. Karlmenn eru grunnhyggnir, en konur eru verri. Krjúptu í auðmýkt, og fólk gefUr þér tveim höndum. Enginn vill neita hungruðum manni um mat. Kauptu ekkert, ekki einu sinni brauð, og geymdu það, sem safnast í belti þínu.“ ■ Etelke, andaðlst í Prag. Jan dó á fátækrahæli í Ilamborg. Janko rannsakaði íatnað hans og fann tíu þúsund franka í gulli og verð- bréfum. Hann fór í öllu að ráðum föður síns, og þess vegna lét hann lík Jans liggja kyrrt, svo að hið opinbera yrði að sjá um greftrun- ina. Svo girti hann sig peninga- beltinu og gekk út á götuna, og þegar hann veitti athygli góðlegu andliti velklæddrar konu í pylsu- sölu einni, gekk hann fyrir hana og sagði: „Náðuga frú, í guðs bænum, gefið mér skilding." „Vesalings drengurinn, enn hvað þú ert magur,“ sagði konan. Janko minntist þessara orða, og eftir það borðaði hann svo lítið, sem hann framast komst af með. Árið 1835, þegar honum fæddist sonur, var hann hver- vetna kallaður „daufdumbi mað- \irinn“ í fátækrahverfunum. Karl sonur hans var krypplingur. „Guði sé lof,“ sagði Janko. „Þessi kryppa er gulls í gildi!“ Og það var hún líka. Karl fékk skammlaust uppeldi, var snar og

x

Sunnudagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sunnudagsblaðið
https://timarit.is/publication/302

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.