Sunnudagsblaðið - 15.04.1956, Blaðsíða 9

Sunnudagsblaðið - 15.04.1956, Blaðsíða 9
SUNNUDAGSBLAÐIÐ 153 úí í hinn hættulega leik ástarinn- ar. Niðurstaðan varð sú, að í júni- mánuði 1573 lagðist Marie á sæng i höllinni Fayet og fæddi stóran strák. (Konungurinn hafði heldur viljað, að hún fæddi ekki í París „til þess að valda konu sinni ekki leiðindum“.) Svo fqr, að Marie nægði ckki lengur. Hann var altékinn hrein- um ,,frygðaeldi“, og hann kastaði sér út í hiiy). svakalegasta ólifnað og skipulagði ásamt bróður sín- um, hertoganum af Anjou (síðar Hinrik III.) og Henri af Navarre (síðar Hinrik 4..), mjög léttúðugar livöldskemmtanir með enn létt- úðugura kvenfólki. Sum þessara samkvæma ollu hneykslum, sem talað var ,um út um alla Evrópu. Sumar af drósunum létu sig ekki múna um qð segja frá ýmsu því, er þar gcrðist, i smáatriðum. Þannig var það, að um þctta leyti var skrifað bréf, sem komst í ann- arra hendúr, og var skrifað af nianni nákunum hirðinni, þar sem rætt er um eina slíka nautna- veizlu. „Ég veit“, sagði bréfritar- inn, „hvernig þessir þrír, fögru aðalsmenn létu naktar konur bera fram mat sinn í alvarlegri veizlu, og höfðu síðan af þeim allt gagn að máltíðinni lokinni.“ Hertoginn af Anjou var mjög karlmannlegur maður, þrátt fyrir allt sem sagt hefur verið um hann. Hann var ákaflega vel vaxinn, laglegur og kvenhollur með af- úrigðum. Hann var ef til vill dálítið kvenlegur í útliti, því að ‘stássrneyjar Katrínar möðúr hans úöfðu haft það sér til skemmt- Unar að skreyta hann, mála og atökkva á hann ilmvatni. Þannig Vandist hann á ýmislegt, sem mönnum kann nú að virðast und- arlegt, en var það.ekki þá, svo sem að bera hringa og jafnvel eyrna- lokka. Einnig púðraði hann sig og notaöi ilmvatn og litaði jafnvel varir sínar. Þetta var undarlegur smekkm', en kom þó ekki í vcg fyrir, að hertoginn af Ánjou væri hinn ágætasti félagi kvenna, sem hami fór með í rúmið. — Hann var vanur að velja sér félaga mcðal stássmeyja móður sinnar, og var það henni engan veginn á móti skapi, auk þess sem hún mun hafa skipað þeim að vera eftirlátar við syni sína. í stuttu máli var hertoginn af Anjou, að minnsta kosti á þessum tíma, algjörlega eðlilegur og jafn- Karl 9. í kvcmiahópi. vel, svo að notuð séu orð móður hans, „góður foli“. En þótt Katrín af Medici væri meðmælt því, að synir hennar væru livor um sig með stúlkum úr stássmeyjahópnum, var hún ekkert hrifin aí þessum „sam- kvæmum“, þar sem margir voru við, og stefndu heilsu hvors um sig í hættu“. Hún leitaði því ráða til að ná Anjou, sem var uppá- hald hcnnar, út úr þessum veizlu- höldujn, og tókst það mcð aðstoð nýrrar stássmeyjar, ungfrú Itené de Hieux. Ujjgfrú de Itieúx var um tvítugt, ljóshærð og mjög vel gcfin. Anjou varð þegar ástfang- inn af henni og fékk Desportes til að yrkja, í sínu nafni, til herrn- ar ljóð, sem hún svaraði með öðru ljóði, orktu af sama Desportes. Nokkrum dögum síðar tengdu þau svo saman æsku sína í her- bergi einú v Louvre. Á meðan á þessu stóð hélt Karl 9. ákaft fram hjá Marie Touchet og hafði nú að hjákonu Héléne nokkra Bon, konu Charles Condi, herbergisþjóns., síns. Ef til vill hefur þetta samband orðið til þess, að hann dó um aldur fram: sumir höfundai' slá því föstu, að hinn afbrýðissami eiginmaður „liafi flýtt endalokum keppiiiaut- ar sína með því að blanda eitri í ,,meðöl“ þau, sem hinn síðarnefndi varð að taka inn oft á dag“. Ekki cru þó til nein skilríki, er sanni þessa kenningu. í staðinn ei'u næstum allir sagnfræðingar þess tíma sammála um að slá föstu, að þegar Karl 9. var orðinn alveg örmagna af sjúkdómi sínum, veizlunum og munaðinum og tók að kvarta um andarteppu í hei'bei'gi því í höll- inni í Vincennes, þangað sem hann hafði verið fluttur, kom Marie Touchet til að heimsækja hann og var hjá honum nóttina. Þessi fundur, segja þeir, varð hinum berklaveika konungi ban- vænn; og einn annálahöfundm' hikar ekki við að slá föstu, að Kari 9. „flýtti þannig dauða sínum með ánægju, sem liann veitti sér á slæmum tíma eða óhóflega“. Hvcrsu sem það kann að vera, þá dó konungurinn 30. marz 1574, tuttugu og fjögra ára gamall, og skildi Marie Touchet eftir mjög ruglaða . . . □ □ □ „Takið ljósa hárið af Marilyn Monroe, og hvað er þá cftir ?“ „Fallegasta sköllótta konan j ljeijninmjj.“

x

Sunnudagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sunnudagsblaðið
https://timarit.is/publication/302

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.