Sunnudagsblaðið - 15.04.1956, Blaðsíða 16
160
SUNNUDAGSBLAÐIÐ
FLUGUMFERÐ
Síðastliðið ár komu
837 883 flugvélafarþegar
á Kastrupflugvöll við
Kaupmannahöfn, en
703 892 árið 1954.
□ □ □
MINKANDI BÍLAINN-
FLUTNINGUR.
Árið sem leið, þegar
meira var flutt inn af
bifreiðum til Íslands, en
um getur á nokkru öðru
ári, dró töluvert úr bif-
reiðainnflutningi til Dan-
merkur. Þá voru fluttar
þar inn bifreiðar fyrir
samtals 317.796.000 krón-
ur danskar, en árið áður
fyrir 458.485.000 krónur.
□ □ □
LÖGREGLUMORÐ.
Á síðastliðnum tíu ár-
um liai'a 1 000 lögreglu-
þjónar verið myrtir í
Vestur-Þýzkalandi, og
5 800 hafa særst alvar-
lega.
□ □ □
GYÐINGAR.
Af um 10 milljónum
íbúum Algiers eru um
130 000 Gyðingar.
□ □ □
ILLA KLÆDDUR
BRÚDGUMI.
Það kom nýlega fyrir í
Bonn, að hvítklædd
brúður mætti hjá lög-
manni og beið þar í eftir-
væntingu góða stund eft-
ir mannseíninu, sem hún
ætlaði að giftast. Loksins
kom brúðguminn klædd-
ur verkamannáfötum og í
gummístígvélum. Hann
gaf þá skýringú á hátt-
erni sínu, að móðir sín
hefði sagt, að það tæki
því ekki að spariklæðast
þó maður gifti sig, og þar
að auki hefði hann ekki
haft tíma til að skipta um
föt. En ekkert varð þó af
hjónavígslunni fyrr en
maðurinn hafði haft fata-
skipti.
□ □ □
ÓVENJULEG ERFÐA-
SKRÁ.
Þetta gérðist í borg
einni í Frakklandi: Auð-
ugur, einhleypur maður
andaðist fyrir skömmu,
og voru ýmsir að vélta
því fyrir sér, hvérja hann
myndi arfleiða að ríki-
dæmi sínu. Á skrifborði
þess látna fundust tvö
bréf. Á öðru var svohljóð-
andi utanáskrift: ,,Opn-
ist fyrir jarðarförina", en
á hinu. „Opnist ekki fyrr
en jarðarförin hefur far-
ið fram.“ — Lögreglu-
stjóri borgarinnar bland*
aði sér sjálfur í málið og
þegar hann opnaði fyrr-
nefnda bréfið varð hann
ekki lítið undraíndi, er
hann las í því fyrirmæli
frá hinum látna um að
hann óskaði eftir því, að
jarðarför sín færi fram
klukkan 5 að morgni. Og
auðvitað var farið að ósk-
um hins framliðna, en
aðeins fimm fylgdu hon-
um til grafar, þar á með-
al lögreglustjórinn. —
Þegar jarðarförin var um
garð gengin opnaði lög-
reglustjórinn hitt bréfið,
og nú taldi hann það
sannarlega ekki eftir sér
að hafa farið snemma á
fætur til þess að vera
viðstaddur jarðarförina,
því að í þessu bréfi stóð,
að auðæfi hins látna
skyldu skiptast að jöfnu
milli þeirra, sem fylgt
hefðu honum til grafar.
□ □ □
BREYTTIR TÍMAR.
Árið 1906 — fyrir rétt-
um íimmtíu árum var
stúlka ein liandtekinn í
New York, og vitið þið
hvers , vegna ? Hún sat
upp í bifreið og reykti
sígarettu! — Nú aka
ungar mæðrum barna-
vögnum sínum með síga-
rettu í munninum, — og
engum þykir neitt sak-
næmt við það.
,□;□□’
DEYJANDI PRESTUR
GAF BLINDUM SÝN.
Nýlega andaðist 34 ára
gamall prestur í Mílanó,
og var banamein hans
krabbi. Fyrir dauða sinn
liafði hann mælt svo fyr-
ir, að augu sín skyldu
grædd í 12 ára gamlan
blindan dreng, og hafa
læknar tjáð, að aðgerðin
hafi tekist vel, og dreng-
urinn muni fá fulla sjón.
□ □ □
FJÁRDRÁTTUR HJÁ
RITHÖFUNDUM.
Nýlega . hefur komizt
upp um stórfeldan fjár-
drátt hjá danska rithöf-
undafélaginu. Hefur
gjaldkeri félagsins, Laur-
itz Jacob Sehmidt, dreg-
ið sér 75—80 þúsund
krónur úr sjóði flélags-
ins á síðastliðnum 15—20
árum.
SUNNUDAGSBLAÐIÐ
ÚJTGEFANDI: Sunnudagsblaðið li.L
RITSTJÓRI: Ingólfur Kristjánsson,
Stórholti 17. Sími 6151. Box 1127.
AFGREIDSLA: Ilverfisgötu 8—10. Sími 4905.
Lausasöluverð kr. 5,00. Ársfjórðungsgjald kr. 60.
Alþýðuprentsmiðjan.