Morgunblaðið - 08.09.2004, Page 2

Morgunblaðið - 08.09.2004, Page 2
FRÉTTIR 2 MIÐVIKUDAGUR 8. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ HELMINGURINN KONUR Stefnt er að því að helmingur starfsmanna í álverinu á Reyðarfirði verði konur. Álverið er hannað með það fyrir augum að meðalkonan geti starfað þar. Samherji fjárfestir Stjórn Samherja samþykkti í gær kaup hlutabréfa í þýskum og bresk- um útgerðarfélögum fyrir 2,3 millj- arða króna. Alls voru samþykktar fjárfestingar upp á 2,7 milljarða. Barist í Bagdad Talið er að meira en fjörutíu Írak- ar hafi fallið og 270 særst í bardög- um milli Bandaríkjahers og liðs- manna Mehdi-hers sjíta-klerksins Moqtada al-Sadrs í Bagdad í gær. Tala fallinna liðsmanna Bandaríkja- hers frá því að ráðist var inn í Írak fyrir einu og hálfu ári er nú komin í 1.000. Mótmæli í Moskvu Talið er að um 130 þúsund Rússar hafi tekið þátt í mótmælum gegn hryðjuverkum sem fram fóru í mið- borg Moskvu í gær. Vildi fólkið mót- mæla aðgerðum manna í Beslan í Norður-Ossetíu sem á föstudag lykt- aði með því að 335 lágu í valnum, þar af 165 skólabörn. Y f i r l i t Í dag Fréttaskýring 8 Viðhorf 24 Úr verinu 11 Minningar 24/28 Viðskipti 12 Dagbók 30/32 Erlent 14 Myndasögur 30 Minn staður 15 Víkverji 30 Höfuðborgin 16/17 Staður og stund 32 Akureyri 16/17 Menning 33/41 Landið 18 Leikhús 34 Suðurnes 18 Af listum 34 Daglegt líf 19 Bíó 38/41 Umræðan 20/21 Ljósvakamiðlar 42 Bréf 21 Veður 43 Forystugrein 22 Staksteinar 43 * * * Kynningar – Morgunblaðinu í dag fylgir auglýsingablaðið Uppáhalds vörumerkin þín frá Nýherja. Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ólafur Stephensen, aðstoðarritstjóri, olafur@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfull- trúi, orri@mbl.is Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@ .is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Andrea Guðmundsdóttir, andrea@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl                                   ! " #          $         %&' ( )***                     VEXTIR á viðbótarlánum Íbúðalánasjóðs eru enn þá 5,3% og hafa ekki lækkað eins og vextir á almennum íbúðalánum Íbúðalánasjóðs, sem nú eru 4,35%, tæpu einu prósentustigi lægri. Íbúðalán bankanna eru einnig með verulega lægri vöxtum en viðbótarlánin, eða 4,2%. Sigurður Geirsson, forstöðumaður fjárstýr- ingasviðs Íbúðalánasjóðs, segir að í gildandi lögum sé mælt fyrir um það að vextir viðbótar- lána skuli vera ákveðnir ár hvert við gerð fjár- hagsáætlunar, þannig að samkvæmt lögum séu vextir þessara lána ákvarðaðir fyrir eitt ár í senn. Vextirnir hafi verið óbreyttir, 5,3%, það sem af sé þessu ári. Sigurður segir að ekki hafi verið um sam- drátt að ræða í umsóknum um viðbótarlán svo nokkru nemi að undanförnu. Viðbótarlán hafi numið um sex milljörðum króna á síðasta ári. Heimild til lánveitinga í viðbótarlánum í ár sé sjö milljarðar og væntanlega þurfi að sækja um meiri heimildir til þess að geta sinnt öllum ósk- um um viðbótarlán. Sigurður sagði að vextir af nýjum lánum ættu að ákvarðast við gerð fjár- hagsáætlunar fyrir næsta ár. Nú væri til skoð- unar innan Íbúðalánasjóðs hversu bindandi við- komandi lagaákvæði er og hvort heimilt sé að breyta vöxtum á viðbótarlánum fyrr en ella. Ætluð þeim sem þurfa sérstaka aðstoð Viðbótarlán koma til viðbótar húsbréfalánum og geta numið allt að 25% af markaðsvirði íbúð- ar, en lánveiting að meðtöldu húsbréfaláni get- ur þó aldrei orðið meiri en sem nemur 90% af markaðsvirði. Sækja þarf um lánin til húsnæð- isnefndar viðkomandi sveitarfélags. Uppfylla þarf sérstök skilyrði hvað tekjur og eignir varðar til þess að eiga rétt á viðbótarláni, en lánin eru ætluð þeim sem búa við erfiðar að- stæður og þurfa sérstaka aðstoð við íbúðar- kaup, að því er fram kemur á heimasíðu Íbúða- lánasjóðs. Þar kemur einnig fram að meðalárstekjur einstaklings mega nema rúmum tveimur millj- ónum og hjóna tæpum þremur milljónum og 340 þúsund kr. til viðbótar fyrir hvert barn undir tvítugu. Eignamörkin eru 2,2 milljónir og eru þau endurskoðuð árlega. Þá kemur fram að þegar íbúð með áhvílandi viðbótarláni er seld þarf annaðhvort að greiða lánið upp eða þarf kaupandi að uppfylla öll skil- yrði fyrir veitingu viðbótarláns. Rúmlega 11 þúsund manns hafa fengið við- bótarlán frá því þau hófu göngu sína árið 1999. Meðallánið í fyrra var um 1,9 milljónir og því má gera ráð fyrir að lántakar á síðasta ári hafi verið rúmlega þrjú þúsund talsins. Vextir á viðbótarlánum Íbúðalánasjóðs enn 5,3% Ekki orðið vart samdráttar í umsókn- um um viðbótarlán NÝJAR úthlutunarreglur Rannís munu veikja stöðu Viðskiptaháskól- ans á Bifröst til að sækja í sjóði Rannís að mati Runólfs Ágústsson- ar rektors. Vilhjálmur Egilsson, ráðuneytisstjóri sjávarútvegsráðu- neytisins, telur úthlutunarreglurnar þá ekki koma sér vel fyrir starfsemi Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins að þessu leyti. Runólfur Ágústsson segir að sú ákvörðun stjórnar Rannís að styrkja ekki sameiginlegan kostnað verkefna, muni klárlega veikja stöðu skólans til að sækja enn frek- ar eftir rannsóknafé hjá Rannís. „Við stöndum þannig í dag að við fáum ákaflega takmarkað fjármagn til rannsókna frá menntamálaráðu- neyti í samanburði við ríkishá- skólana,“ segir Runólfur. „Þeir fá verulegt rannsóknafjármagn frá ríkinu sem gerir þeim kleift að kosta þessa þætti, en við höfum ekki úr slíkum fjármunum að spila og þess vegna veikir það stöðu okk- ar til þess að sækja í samkeppn- issjóði á vegum Rannís.“ Missa af verkefnum „Við erum í þeirri stöðu núna að við erum t.d. með stórt verkefni sem styrkt er af ESB og það er töluverður halli á því verkefni, sem skólinn þarf að bera, en ESB styrk- urinn dugir ekki til að fjármagna allt verkefnið. Þá stóð okkur til boða í vor að taka þátt í sam- norrænu verkefni, sem við urðum að hafna af því að við gátum ekki greitt það mótframlag sem þurfti og töpuðum þar með verkefni upp á 8 milljónir. Nú erum við sett í þá stöðu að geta ekki sótt um í sjóði Rannís því við höfum ekki burði til að greiða mótframlag.“ Vilhjálmur Egilsson ráðuneytis- stjóri segir að ætlast sé til þess af rannsóknastofnunum að þær fjár- magni sig að hluta til í gegnum samkeppnissjóði og til þess að það kerfi virki verði sjóðirnir að setja reglur sem gera ráð fyrir því að stofnanirnar sæki um fé. Nýjar út- hlutunarreglur Rannís um að ekki megi greiða kostnað vegna fastra starfsmanna eða yfirvinnu þeirra, virðast ekki koma vel út fyrir starf- semi Rannsóknastofnunar fiskiðn- aðarins að þessu leyti. Segist hann munu taka málið upp á fundi sam- starfsnefndar um vísindi innan hinna ráðuneytanna í næstu viku. Gagnrýni á nýjar úthlutunarreglur Rannís Erfitt fyrir háskólann að sækja um styrki ENGINN árangur varð á fundi vegna kjaradeilu grunnskóla- kennara hjá ríkissáttasemjara í gær og var fremur um bakslag að ræða í viðræðunum en að eitthvað miðaði, að sögn Finn- boga Sigurðssonar, formanns Félags grunnskólakennara. Verkfall grunnskólakennara hefst á miðnætti 19. september hafi samningar ekki tekist fyrir þann tíma. Finnbogi sagði að fundurinn hefði ollið vonbrigðum. „Ég held að það megi frekar tala um að það hafi verið afturför en hitt. Alla vega er ég ekki jafn bjartsýnn á að samningar tak- ist eftir þennan fund, eins og maður hefur kannski reynt að vera fram að þessu.“ Samningafundurinn í gær var um fjögurra tíma langur og var rætt um vinnutíma kennara og kennsluskyldu. Árangurs- laus samn- ingafundur LANDSELSKÓPUR sem tekinn var í fóstur í Hús- dýragarðinum í vor fékk að fara aftur í sjóinn eftir ár- angursríka hressingardvöl hjá starfsfólki Hús- dýragarðsins. Selnum var sleppt við Gunnunes í Kollafirði og var orðinn pattaralegur eftir sumarið, en líf hans hékk á bláþræði um tíma í sumar. Hann fannst í Meðallandi snemma í maí og var þá ekki nema 8 kg að þyngd, en nýfæddur kópur er um 15 kg. Var hann fóðr- aður á síldarmauki og næringardrykkjum og svo loks lifandi fiski uns tímabært var að sleppa honum. Var hann þá orðinn 23 kg og fékk merki frá Hafrann- sóknastofnun að skilnaði. Selurinn virtist þó ekki frels- inu beint feginn því hann tók sér góðan tíma í að kveðja í fjörunni og halda á haf út. Morgunblaðið/Ómar Það var ekki laust við að það gætti saknaðar í augum selsins þegar hann kvaddi starfsmenn Húsdýragarðsins. Sleppt eftir vist í Húsdýragarðinum BROTIST var inn í íbúð á Vatnsstíg í gærkvöld og munum fyrir um 450 þúsund krónur stolið. Að sögn lög- reglunnar í Reykjavík hafði inn- brotsþjófurinn Macintosh-tölvu, tvær stafrænar myndavélar og far- síma með sér á brott úr íbúðinni og mun innbrotið hafa átt sér stað milli klukkan 18 og 20. Verðmætum upp á 450 þúsund stolið í íbúð FJÖLÞJÓÐLEG æfing sprengju- eyðingarsveita, Northern Chall- enge 2004, sem Landhelgisgæslan stóð að á dögunum í samvinnu við Varnarliðið, fær mjög góða dóma hjá norska sjóhernum. Á heimasíðu norska sjóhersins er rætt við yfirmann sprengjueyðing- arsveitar Norðmanna, Morten Hø- vik, og haft eftir honum að hann hafi ekki upplifað eins árangurs- ríka æfingu á þessu sviði í mörg ár. Samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni náðu sprengjueyðingarsveitirnar að ljúka 130 verkefnum. Norski sjóherinn ánægður með Gæsluna

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.