Morgunblaðið - 08.09.2004, Page 4
FRÉTTIR
4 MIÐVIKUDAGUR 8. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Plúsfer›ir • Hlí›asmára 15 • Sími 535 2100
Dubli
n
37.810kr.
Dublin bíður þín
á mann miðað við að 2 fullorðnir ferðist saman.
Innifalið: Flug, gisting í 3 nætur á Bewleys hótelinu,
íslensk fararstjórn og allir flugvallarskattar.
Netverð
4., 11., og 25. nóvember
STRANDBLAK nýtur vaxandi vinsælda hér á
landi eins og um alla Evrópu, að sögn Einars
Sigurðssonar sem situr í stjórn blakdeildar HK
og er nýkrýndur Íslandsmeistari í greininni.
Áhugann má að einhverju leyti rekja til Ólymp-
íuleikanna.
„Við höfum ekki mikið verið að kynna þetta
enn þá en fólk sýnir þessu mjög mikinn áhuga.
Íþróttin sjálf er einfaldari en venjulegt blak og
svo er ákveðin stemning að spila í sandinum.
Bikiníin skemma ekki fyrir. En aðalatriðið er
þessi sumarstemning sem myndast vegna sands-
ins.“ Og Einar segir mikið lagt upp úr stemn-
ingu í kringum strandblakið, t.d. sé jafnan leikin
tónlist á meðan keppt er. Strandblakvellinum í
Kópavogi er ekki komið fyrir niður við strönd,
en það segir Einar vera algengt. „Mikið af mót-
um í Evrópu eru haldin inni í miðri borg. Menn
færa vellina viljandi inn í land og losna þannig
við vindinn.“
Á Smáþjóðaleikunum í Andorra í júní á næsta
ári verður í fyrsta sinn keppt í strandblaki og
munu Íslendingar senda lið bæði í karla- og
kvennaflokki.
Aukinn áhugi eftir Ólympíuleikana
Krakkarnir sem biðu í röð eftir að komast á
dýfingapallinn í Sundhöllinni á dögunum hafa ef-
laust verið innblásnir af glæsilegum tilþrifum
dýfingafólks á nýafstöðnum Ólympíuleikum í
Aþenu. „Það eru margir krakkar sem hafa mik-
inn áhuga á þessu núna. Ég hef heyrt talað um
að það séu margir farnir að leika sér á brett-
inu,“ segir Eyleifur Jóhannesson, yfirþjálfari hjá
Ægi, um áhuga ungu kynslóðarinnar á dýf-
ingum. „Þetta er áhugaverð íþrótt og leiðinlegt
að það sé ekki til æfingaraðstaða hérlendis.“
Stóri pallurinn í Sundhöllinni er í um 3,5
metra hæði yfir vatnsyfirborði en algengasta
hæð palla á Ólympíuleikunum er um þrisvar
sinnum meiri, eða 10 metrar.
Sjálfur kveðst Eyleifur þó spá annarri ólymp-
ískri vatnsíþrótt vinsældum á næstunni, en það
er sundknattleikur. „Það er miklu stærri íþrótt
en til dæmis handbolti.“ Hann segir að með
nýju innilauginni í Laugardal myndist aðstaða
til að æfa sundknattleik og von sé til að fleiri
ólympískar vatnsíþróttir ryðji sér til rúms.
Aukinn áhugi á strandblaki og dýfingum
Morgunblaðið/Golli
Sex kvennalið og tíu karlalið mættu til leiks á
Íslandsmótið í strandblaki um síðustu helgi.
Morgunblaðið/Sverrir
Sjaldan hefur verið meiri áhugi en einmitt nú, að Ólympíuleikunum nýloknum, á því að stökkva af
stóra brettinu í Sundhöllinni. Ekki er óalgengt að þar sé biðröð eftir að komast til að stökkva.
MÁLEFNI samkynhneigðra eru í
stöðugri umræðu og athugun hjá
íslensku þjóðkirkjunni rétt eins og
hjá systurkirkjum hennar erlendis,
að sögn Karls Sigurbjörnssonar
biskups. Í skýrslu nefndar for-
sætisráðherra um réttarstöðu sam-
kynhneigðra, sem kynnt var í
fyrradag, er kirkjan hvött til þess
að breyta viðhorfum sínum til
hjónabanda samkynhneigðra
þannig að þeir geti fengið kirkju-
lega vígslu.
Í samtali við Morgunblaðið
sagðist Karl ekki hafa kynnt sér
tillögur nefndarinnar til hlítar.
Hann sagðist á hinn bóginn fagna
öllum hvatningarorðum sem gefin
væru af góðum hug. Starfshópur á
vegum kirkjunnar væri nú að
ræða málefni samkynhneigðra.
Þessi mál væru því í ákveðnum
farvegi og vildi hann ekki tjá sig
frekar um þau í bili.
Jón Helgi Þórarinsson, sókn-
arprestur í Langholtsprestakalli,
sem situr í starfshópnum segir
mikilvægt að efla umræðu innan
kirkjunnar um stöðu samkyn-
hneigðra, bæði meðal presta og
leikmanna. Slíkt taki mikinn tíma
enda hafi margir hafi skoðun á
þessum málum enda snerti þau
kirkjuna í heild sinni.
Aðspurður segist Jón Helgi ekki
vita til þess að nokkur kirkja í
heiminum hafi gefið samkyn-
hneigða saman með kirkjulegri
vígslu.
Í stöðugri
umræðu innan
kirkjunnar
RÍFLEGA tvítug kona hefur verið
dæmd í Héraðsdómi Vestfjarða í
eins mánaðar fangelsi, skilorðs-
bundið, fyrir að hafa tekið í
heimildarleysi bifreið á Ísafirði
og ekið henni til Hólmavíkur þar
sem hún skildi hana eftir.
Atvikið átti sér stað síðla í apr-
íl í vor og fann lögreglan bifreið-
ina við áhaldahús Hólmavík-
urhrepps á Skeiði. Konan var
ákærð fyrir nytjastuld og játaði
hún skýlaust sök. Hún hefur ekki
áður komist í kast við lögin og
var fullnustu refsingarinnar
frestað um tvö ár. Fellur hún nið-
ur að þeim tíma liðnum haldi
konan skilorðið.
Dæmd fyrir
bílstuld
Á SÝNINGU Þjóðminjasafnsins,
sem opnuð var í byrjun mánaðar-
ins, eru nokkrir munir úr eigu
Jóns Sigurðssonar forseta og Ingi-
bjargar Einarsdóttur konu hans.
Þetta eru m.a. skrifborð Jóns,
skrifborðsstóll, pípuhattur hans og
heimilisbókhald þeirra hjóna.
Það kemur kannski mörgum á
óvart að uppgötva að Jón átti kan-
arífugl sem varðveittur er á Þjóð-
minjasafninu. Fuglinn var stopp-
aður upp eftir að hann drapst og
er hann á sýningunni.
Tryggvi Gunnarsson bankastjóri
keypti húsbúnað Jóns og Ingi-
bjargar á uppboði eftir lát þeirra
1879.
Kanarífugl Jóns
Sigurðssonar
Morgunblaðið/Eggert
ÚRSKURÐARNEFND fjar-
skipta- og póstmála hefur hafnað
kröfu Símans, Ríkisútvarpsins og
Íslenska sjónvarpsfélagsins um að
fella úr gildi ákvörðun Póst- og
fjarskiptastofnunar frá 10. maí síð-
astliðnum, varðandi áframhaldandi
notkun Íslenska útvarpsfélagsins á
alls 16 rásum til stafrænna sjón-
varpssendinga.
Magnús Ragnarsson, fram-
kvæmdastjóri Skjás eins, segist
ákaflega hissa á því að þessu máli
sé vísað frá á lagatæknilegum for-
sendum. Ekki sé fjallað um það
efnislega. „Þetta er mjög sér-
kennilegt þegar eins miklir hags-
munir eru í húfi og raun ber vitni,“
segir Magnús. „Eftir stendur að
úthlutun Póst- og fjarskiptastofn-
unar á rásum til Íslenska útvarps-
félagsins fyrir stafrænar sjón-
varpssendingar er sérkennileg,
rétt áður en ný fjarskiptalög tóku
gildi. Þetta gerðist einnig rétt eftir
að fyrir lá skýrsla um stafrænt
sjónvarp, þar sem bent var á að
þetta sé takmörkuð auðlind og það
þurfi að umgangast hana sem
slíka.“
ÍÚ veitt heimild
til allt að átta ára
Forsaga þessa máls er sú að
þann 27. júní 2003 heimilaði Póst-
og fjarskiptastofnun Íslenska út-
varpsfélaginu, sem rekur Stöð 2,
Sýn og fleiri sjónvarps- og út-
varpsstöðvar, áframhaldandi notk-
un á umræddum rásum. Var heim-
ildin veitt til átta ára fyrir helming
rásanna en til sex ára fyrir hinn
helminginn. Íslenska útvarpsfélag-
inu hafði áður verið veitt heimild
til notkunar á sama fjölda rása á
sama tíðnisviði til eins árs í senn.
Með bréfi dagsett 16. desember
2003 óskuðu Síminn, Ríkisútvarpið
og Íslenska sjónvarpsfélagið, sem
rekur Skjá einn, eftir því við Póst-
og fjarskiptastofnun að þeim tíðni-
sviðum sem Íslenska útvarpsfélag-
inu hafði verið úthlutað yrði end-
urúthlutað fyrir stafrænar
útsendingar sjónvarps. Töldu kær-
endur það skjóta skökku við að út-
hluta einum aðila svo stóru tíðni-
sviði auk þess sem að sá forskot
sem Íslenska útvarpsfélaginu væri
veittur setti alla aðra vinnu við
stafrænt sjónvarp í uppnám, þar
sem vandséð væri að fleiri en eitt
kerfi gæti þrifist á þeim litla
markaði sem væri hér á landi.
Norðurljós og Landsíminn áttu í
viðræðum um uppsetningu á sam-
eininglegu kerfi sem dreifðu staf-
rænu sjónvarpsefni. Upp úr þeim
viðræðum slitnaði fyrir skömmuog
fyrirhugar Norðurljós að byggja
upp eigið kerfi.
Íslenska útvarpsfélagið
heldur úthlutuðum rásum
Úrskurðarnefnd
fjarskipta- og
póstmála hafnar
kröfum sam-
keppnisaðila ÍÚ
RAUÐI kross Íslands ákvað í gær að
senda eina milljón króna til stuðn-
ings hjálparstarfi Rússneska Rauða
krossins í Beslan. Alþjóða Rauði
krossinn fór fram á það við félagið að
það útvegaði sérfræðing í áfallahjálp
til starfa í Beslan og verið er að
kanna möguleika á því.
Í neyðarbeiðni Alþjóða Rauða
krossins, fyrir hönd Rússneska
Rauða krossins, er beðið um alls 50
milljónir króna til að hjálpa alls um
2.000 manns. Féð verður notað til að
halda áfram að veita þeim sem lentu
í gíslatökunni og aðstandendum
þeirra margvíslegan stuðning í að
minnsta kosti tólf mánuði.
Að auki er í undirbúningi að veita
þeim sem urðu fyrir líkamstjóni
sjúkraþjálfun og heimahlynningu,
starfrækja félagsmiðstöð fyrir ung-
menni í Beslan og greiða fyrir dvöl á
heilsuhæli fyrir fjölskyldur sem eiga
um sárt að binda.
Rauði kross Íslands sendi einnig í
gær samúðarkveðjur til Rússneska
Rauða krossins vegna morðanna.
Rauði kross Íslands hefur opnað
söfnunarsímann 907 2020 til stuðn-
ings hjálparstarfi í Beslan. Með því
að hringja í númerið færast 1.000 kr
á símreikninginn. Féð verður notað
til að styðja þá sem lentu í gíslatök-
unni og aðstandendur þeirra.
Rauði krossinn svarar
neyðarbeiðni frá Beslan
SNJÓFLÓÐASETUR Veðurstofu
Íslands tekur til starfa á Ísafirði á
næstu vikum og verður það til
húsa í Þróunarsetri Vestfjarða á
Ísafirði. Setrið er stofnað að frum-
kvæði umhverfisráðuneytisins og í
samvinnu við bæjaryfirvöld á Ísa-
firði, með sérstakri fjárveitingu
frá Alþingi. Kemur þetta fram í
fréttatilkynningu frá umhverfis-
ráðuneytinu
Harpa Grímsdóttir, M.Sc. jarð-
fræðingur, hefur verið ráðin for-
stöðumaður snjóflóðasetursins og
tekur hún til starfa innan tíðar.
Helstu verkefni nýja snjóflóða-
setursins verður gerð hættumats
fyrir öll skíðasvæði landsins auk
þess sem vöktun á ofanflóðahættu
á norðanverðum Vestfjörðum verð-
ur hluti af starfsemi setursins. Þá
er gert ráð fyrir að á setrinu verði
unnið að ýmsum rannsóknum og
vísindalegum athugunum á snjó og
snjóflóðum. Gert er ráð að tveir
starfsmenn starfi á setrinu í upp-
hafi.
Snjóflóðasetur
Veðurstofu Ís-
lands tekur til
starfa á Ísafirði