Morgunblaðið - 08.09.2004, Page 6
FRÉTTIR
6 MIÐVIKUDAGUR 8. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Borgartúni 23 · 105 Reykjavík · Sími: 512 7575 - www.heimur.is
Tölvuheimur er framsækið tímarit um allt sem viðkemur tölvum og tækni. Í nýjasta
blaðinu er til dæmis fjallað ítarlega um nýjustu fartölvurnar sem í boði eru hér á
landi og fartölvukaupendum leiðbeint. Einnig eru valdar bestu græjurnar, íslenska
Windows-útgáfan prófuð, lesendum kennt að nýta tölvuna betur við vinnu sína
og margt fleira. Nánari upplýsingar á www.heimur.is eða í síma 512 7575.
Tölvuheimur
á frábæru áskriftartilboði
Nýir áskrifendur Tölvuheims fá
fimm blöð á verði tveggja.
Þeir sem gerast áskrifendur
fyrir 5. október fá hálfs
árs áskrift á
einungis
1.500 krónur
YFIRSTJÓRN Fjarðaáls-Alcoa á
Íslandi veltir nú fyrir sér hvernig
og hvort hafa megi áhrif á ört
hækkandi fasteignaverð á Mið-
Austurlandi. Fyrirtækið hefur
áhyggjur af því að erfitt muni reyn-
ast að fá fólk til að flytja á svæðið
til að vinna í álverinu, ef fasteigna-
verð er mjög hátt.
„Það er augljóst að við munum
ekki geta ráðið allt það vinnuafl sem
við þurfum úr nágrenni álversins,
það er einfaldlega ekki nægt fólk til
staðar,“ segir Hrönn Pétursdóttir,
starfsmannastjóri og upplýsinga-
fulltrúi fyrirtækisins. „Við verðum
því að fá fólk annars staðar af land-
inu og það þarf að sjá sér hag í því
að flytja, þ.á m. fjárhagslegan hag
sem er stór hluti ákvörðunar. Ef
fasteignaverð fer upp úr öllu valdi
þá fáum við einfaldlega ekki fólk til
að flytja og koma til starfa í ál-
verinu. Það er stórmál fyrir Fjarða-
ál að til sé húsnæði svo fólk geti
flutt austur án mikils fyrirvara. Það
húsnæði þarf að vera á verði sem
fólk ræður við og telur sig geta selt
aftur og notað sem fjárfestingu.“
Um hvaða möguleika Fjarðaál-
Alcoa eigi til að hafa áhrif á fast-
eignaverð segir Hrönn það nú í at-
hugun innan fyrirtækisins. „Við höf-
um þó sérstaklega rætt við stóru
byggingarverktakana sem hafa
fengið mest úthlutað hér á svæðinu.
Um leið og við verðum komin með
nokkuð ítarlegarlegar tölur um
hversu marga við ráðum og hvenær,
og þegar við erum búin að gera
könnun á því hversu mikið af því
fólki við fáum héðan og hversu
marga annars staðar frá, munum
við setjast niður með þessum bygg-
ingarverktökum og fara yfir þörf-
ina. Þeir bíða margir hverjir með að
ganga frá fullnaðarbyggingaráætl-
unum uns þessar upplýsingar liggja
fyrir.“
Mest af starfsmannaráðningum
til álversins á Reyðarfirði mun fara
fram síðla árs 2006, en álverið á að
hefja framleiðslu vorið 2007. Gert er
ráð fyrir að um 450 starfsmenn
þurfi til að reka og viðhalda ál-
verinu.
Alcoa hefur áhyggjur af
fasteignaverði á Austurlandi
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Forsvarsmenn Fjarðaáls óttast að hátt fasteignaverð á Mið-Austurlandi
leiði til þess að þeim reynist erfitt að fá nógu marga starfsmenn í vinnu.
Reyðarfirði. Morgunblaðið.
FJÁRFLUTNINGABÍLL valt við
bæinn Berunes í sunnanverðum
Reyðarfirði skömmu fyrir hádegi í
gær. Flutningabílnum, sem var með
um 250 lömb um borð, var ekið út í
kant til að hleypa umferð fram úr
en það tókst ekki betur til en svo að
vegkanturinn gaf sig og bíllinn fór
á hliðina. Alls drápust um 75 lömb í
veltunni, þar af nokkur sem voru
svo illa farin að þeim varð að lóga á
staðnum.
Lömbin voru á leið frá eigendum
sínum í Breiðdal til slátrunar í slát-
urhúsi Kaupfélags Skagfirðinga á
Sauðárkróki, um 500 km leið. Þau
voru flutt í stórum bíl sem getur
tekið um 400 kindur í einni ferð. Að
sögn lögreglunnar á Fáskrúðsfirði,
sem kvödd var á vettvang, slapp
bílstjórinn með minniháttar meiðsl.
Fékk hann aðstoð vegfarenda og
síðar lögreglu við að ná fénu úr
bílnum. Var lömbunum sem lifðu
smalað í girðingu skammt frá slys-
stað, þangað sem annar bíll sótti
þau síðdegis í gær og flutti á
áfangastað.
Að sögn lögreglu var aðkoman á
slysstað í gær ljót en þetta er ekki í
fyrsta sinn sem lögreglumenn á Fá-
skrúðsfirði lenda í svipuðu. Fyrir
fimm árum valt fjárflutningabíll á
leiðinni milli Stöðvarfjarðar og Fá-
skrúðsfjarðar og þá varð fjártjón
mun meira.
Um 75 lömb drápust í bílveltu
Voru á leið frá Breiðdal til slátrunar á Sauðárkróki
Í VIKULEGRI bænastund Dóm-
kirkjunnar í dag verður beðið fyrir
þeim sem fórust í Rússlandi og öllum
þeim sem um sárt eiga að binda.
Bænastundin hefst kl. 12 með því að
dómorganistinn, Marteinn H. Frið-
riksson, leikur sorgarlög. Sr. Hjálm-
ar Jónsson les ritningarorð og flytur
hugleiðingu og bæn.
Hjálmar segir að hörmungarnar í
Rússlandi láti engan ósnortinn. Allir
séu hjartanlega velkomnir að sýna
samstöðu og samhug með þátttöku í
stuttri helgistund í kirkjunni.
Bænastund í
Dómkirkjunni
GÆSLUVARÐHALD yfir Litháan-
um, sem reyndi að smygla um 300
grömmum af kókaíni til landsins
29. ágúst sl., hefur verið framlengt
um fjórar vikur, að kröfu sýslu-
mannsins á Keflavíkurflugvelli.
Maðurinn var handtekinn af toll-
vörðum við komuna frá Kaup-
mannahöfn og reyndist hann hafa
um 70 pakkningar af fíkniefnum
innvortis.
Varðhald fram-
lengt um 4 vikur
SKÁKSVEIT Rimaskóla teflir á
Norðurlandamóti grunnskólasveita
(1.–10. bekk) í Stokkhólmi um næstu
helgi og aðra helgi á Norðurlanda-
móti barnaskólasveita (6–12 ára) sem
fram fer í Reykjavík.
Nemendur 3.–7. bekkjar Rima-
skóla voru af þessu tilefni kallaðir á
sal í gærmorgun þar sem Helgi Árna-
son skólastjóri rifjaði upp glæsilegan
árangur skólans á skákmótum á liðn-
um árum. Viðstaddir voru Helgi
Ólafsson, stórmeistari í skák, sem
þjálfar sveit Rimaskóla, Hrafn Jök-
ulsson, forseti Hróksins, og Guð-
laugur Þór Þórðarson, þingmaður,
borgarfulltrúi og formaður Ung-
mennafélagsins Fjölnis. Tveir síðast-
nefndu tefldu eina hraðskák í tilefni
dagsins og nutu fulltingis liðsmanna
sveitarinnar en skákinni lauk með
jafntefli.
Í skáksveit Rimaskóla eru: Hjörv-
ar Steinn Grétarsson, Norð-
urlandameistari 10 ára og yngri,
Ingvar og Sverrir Ásbjörnssynir og
Hörður Aron Hauksson. Drengirnir
eru fæddir 1991–1993 og vekur það
sérstaka athygli að sveitin leikur í
tveimur aldursflokkum á mótunum,
6–15 ára í Svíþjóð og 6–12 ára í
Reykjavík.
Hjörvar Steinn Grétarsson, f. 1993,
hefur þrátt fyrir ungan aldur teflt á 1.
borði í skáksveit skólans síðustu þrjú
ár. Auk þess sem hann er Norð-
urlandameistari í sínum flokki hafn-
aði hann í 5. sæti á síðasta heims-
meistaramóti barna, árið 2003.
Hjörvar sagði að stefnan væri tekin á
þriðja sætið á mótinu í Stokkhólmi
um næstu helgi og 1.–2. sætið á Norð-
urlandamóti barnaskóla í Reykjavík
um aðra helgi. Hann hefði æft stíft að
undanförnu og sagðist mjög ánægður
með Helga sem þjálfara liðsins.
Skáksveit Rimaskóla
á leið til Stokkhólms
Morgunblaðið/Ómar
Skák Hrafns og Guðlaugs Þórs lauk með jafntefli, en þeir fengu góða aðstoð frá skáksveit Rimaskóla.
STEINGRÍMUR J. Sigfússon, al-
þingismaður og hluthafi í Síman-
um, krefst þess í bréfi sem hann
sendi stjórnarformanni Símans,
Rannveigu Rist, í gær að boðað
verði til hluthafafundar. Vitnar
Steingrímur til samþykkta félags-
ins, 14. tölulið, frá 22. mars sl. máli
sínu til stuðnings.
„Ástæða þessarar kröfu er nýtil-
komin ákvörðun stjórnenda fyrir-
tækisins um kaup á umtalsverðum
eignarhlut í fjölmiðlafyrirtækinu
Skjá einum ásamt tilheyrandi sýn-
ingarrétti á sjónvarpsefni. Ég tel
hafið yfir vafa að ákvörðunin um
þessi kaup feli í sér verulegar
breytingar á
rekstri félagsins
sem skylt sé að
bera undir hlut-
hafafund sbr.
tölulið 26.2. í
samþykktum fé-
lagsins frá 22.
mars 2004.
Ég tel einnig
rétt og skylt að
hluthöfum gefist
nú kostur á að ræða tilgang félags-
ins almennt, sbr. 3. gr. samþykkta
þess, og hvort verið sé að fram-
fylgja eðlilegri stefnu í rekstri
þess í því ljósi, þ.m.t. í fjárfest-
ingum að undanförnu. Vísa ég í
þessu sambandi einnig í 9. og þó
einkum 10. kafla laga nr. 2/1995
um hlutafélög, sbr. sérstaklega 80.
og 85. gr. þeirra laga. Í samræmi
við tölulið 15.2 í áður tilvitnuðum
samþykktum félagsins óska ég eft-
ir því að ofangreind málefni verði
öll á dagskrá fundarins,“ segir
Steingrímur í bréfi sínu. Afrit af
bréfinu því voru send Brynjólfi
Bjarnasyni, forstjóra Símans, Geir
H. Haarde fjármálaráðherra og
Sturlu Böðvarssyni samgönguráð-
herra.
Ekki náðist í stjórnarformann
Símans í gær.
Steingrímur J. Sigfússon, hluthafi í Símanum
Krefst hluthafafundar
Steingrímur J.
Sigfússon