Morgunblaðið - 08.09.2004, Síða 10

Morgunblaðið - 08.09.2004, Síða 10
FRÉTTIR 10 MIÐVIKUDAGUR 8. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ STJÓRNENDUR Símans hafa sent frá sér fréttatilkynningu, þar sem áréttað er að markmið kaupa fyr- irtækisins á Fjörni ehf. sé að auka verðmæti Símans og skila arði til eigenda hans. Fréttatilkynningin er svohljóðandi: „Vegna umfjöllunar að undan- förnu um kaup Símans á Fjörni ehf. vilja stjórnendur Símans árétta eft- irfarandi: Markmiðið með kaupum Símans á eignarhaldsfélaginu Fjörni ehf. er að stuðla að því að fjárfesting Sím- ans í fjarskiptakerfum um land allt skili hámarksarði til eigenda félags- ins og að auka verðmæti félagsins, m.a. í ljósi fyrirhugaðrar sölu þess. Stjórn fyrirtækisins, sem kosin er á aðalfundi, tók ákvörðun um þessi viðskipti ásamt forstjóra. Á undanförnum árum hefur Sím- inn unnið ötullega að því að byggja upp fullkomin fjarskiptakerfi sem þjóna tugþúsundum viðskiptavina vítt og breitt um landið. Síminn hef- ur byggt upp GSM og NMT kerfi sem samtals ná til 99% þjóðarinnar, ADSL þjónustu sem nær til 92% þjóðarinnar og ISDN þjónustu sem nær til um 99,6% þjóðarinnar, auk þess sem sjónvarpsþjónusta á ljós- leiðaraneti Símans nær til um 35.000 heimila. Dreifing á stafrænu sjónvarpsefni um fjarskiptanet Símans er ný tækni sem eykur möguleika á nýt- ingu á fjarskiptakerfunum. Aukin nýting eykur möguleika á því að hagkvæmt verði að efla dreifikerfi fyrirtækisins enn frekar, sem m.a. mun koma íbúum í fámennari byggðarlögum til góða. Rekstur fjarskiptaþjónustu tekur örum breytingum og skilin milli fjar- skiptaþjónustu og afþreyingarþjón- ustu eru óðum að hverfa, jafnt hér á landi sem erlendis. Stjórnendur Símans telja að kaupin á Fjörni séu rökrétt skref í þá átt að tryggja áfram sterka stöðu Símans á ís- lenskum fjarskiptamarkaði. Með kaupunum gefst Símanum möguleiki á að dreifa vinsælu afþreyingarefni um dreifikerfi sín, sem að mati stjórnenda félagsins er ein forsenda þess að Síminn geti áfram verið í fremstu röð fyrirtækja á þessum markaði. Síminn mun áfram leita leiða til að bæta nýtingu fjarskiptakerfa sinna um allt land, m.a. með samningum við önnur fyrirtæki um dreifingu á afþreyingarefni. Kaup Símans á Fjörni munu ekki hafa nein áhrif á þjónustu Símans við önnur fyrirtæki á þessu sviði og verður öllum við- skiptavinum tryggður jafn aðgangur að dreifikerfum fyrirtækisins. Síminn hefur gert ráðstafanir til að tryggja að rekstur Breiðvarpsins sé aðgreindur frá öðrum rekstri Símans, í samræmi við fjarskiptalög og ákvörðun samkeppnisráðs frá 1998. Síminn hefur bæði upplýst Póst- og fjarskiptastofnun og Sam- keppnisstofnun um hvernig staðið er að þessari aðgreiningu. Reiknings- skil Breiðvarpsins eru í samræmi við lög um ársreikninga og góða reikn- ingsskilavenju. Þess misskilnings hefur gætt að ákvörðun samkeppn- isráðs frá 1998 snúi að ljósleiðar- aneti Símans, oft nefnt Breiðband. Hið rétta er að hann snýr eingöngu að fjárhagslegum aðskilnaði Breið- varps sem er sjónvarpsþjónusta Símans.“ Yfirlýsing frá Símanum um kaupin á Fjörni ehf. Markmiðið að auka arð- semi og verðmæti Símans BORGARFULLTRÚAR Sjálfstæð- isflokksins lögðu fram tillögu á fundi borgarstjórnar í gær þess efn- is að hefja undirbúning að sölu á öll- um hlut Reykjavíkurborgar í Véla- miðstöðinni ehf. og Malbikunarstöðinni Höfða ehf. Var henni vísað til borgarráðs að tillögu Þórólfs Árnasonar borgarstjóra. Þórólfur sagði eðlilegt að skipa verkefnisstjórn til að skoða hvort breyta þyrfti öðrum rekstri á veg- um borgarinnar samhliða breyting- um á rekstri þessara tveggja fyr- irtækjum. Á verkefnisstjórnin, að tillögu borgarstjóra, að kanna hvernig losa megi Reykjavíkurborg út úr rekstri Vélamiðstöðvarinnar og Malbikunarstöðvarinnar Höfða án þess að hagsmunir hennar sem kaupanda þjónustunnar væru fyrir borð bornir. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, odd- viti Sjálfstæðisflokksins, gerði grein fyrir tillögunni og sagði að Reykja- víkurborg ætti að draga saman seglin á samkeppnismarkaði. Leyfa ætti fyrirtækjum að keppa um að veita þjónustu fyrir borgina á sem hagkvæmastan hátt. Björn Bjarnason, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks, fagnaði ræðu borgarstjóra og sagðist þeirrar skoðunar að stefna ætti að sölu þessara tveggja fyrirtækja. Reynsla ríkisstjórnarinnar sýndi að skyn- samlegt væri að losa fyrirtæki und- an opinberum afskiptum þegar þau væru í þeim aðstæðum að keppa við einkafyrirtæki. Ekki ætti að setja á laggirnar nefndir til að rannsaka neitt í þessum efnum heldur til að framkvæmda á sama veg og einka- væðingarnefnd hefði gert á vegum ríkisins. Þórólfur hafði þá bent á að bæði Vélamiðstöðin og Malbikunarstöðin störfuðu á fákeppnismarkaði og vera þeirra á markaðnum efldi sam- keppni á þessum sviðum. Fá fyr- irtæki veittu gámaflutningaþjón- ustu eins og Vélamiðstöðin. Gæta þyrfti að hagsmunum Sorpu sem Reykjavíkurborg ætti stærstan hluta í. Malbikunarstöðin Höfði væri annar af tveimur langstærstu aðilunum á því sviði á suðvestur- horni landsins. Reykjavíkurborg yrði að tryggja að hún yrði ekki undirseld einokun losaði hún sig við fyrirtækið. Björn Bjarnason kom að því að selja Skólavörubúðina og sagði hann það hafa verið eina fyrirtækið sinnar tegundar á þeim tíma. Marg- ir hefðu talið það fara gegn hags- munum skólanna að fyrirtækið yrði ekki lengur í eigu ríkisins. Annað væri uppi á teningnum eftir sölu fyrirtækisins til einkaaðila. Þau rök verkuðu því ekki sterkt á hann að fá fyrirtæki störfuðu á sama sviði og Vélamiðstöðin og Malbikunarstöðin og því bæri að fara varlega. Morgunblaðið/Þorkell Stefán Jón Hafstein og Stefán Jóhann Stefánsson, borgarfulltrúar R- listans, bera saman bækur á fyrsta fundi borgarstjórnar eftir sumarleyfi. Verkefnisstjórn undirbúi sölu Vélamiðstöðvarinnar BJÖRK Vilhelmsdóttir, borg- arfulltrúi Vinstri grænna og formaður félagsmálaráðs Reykjavíkurborgar, vísaði ásökunum Ögmundar Jónas- sonar, þingmanns Vinstri grænna, þess efnis að borgaryf- irvöld væru að bera fársjúkt fólk út á götu, á bug í ræðustól borgarstjórnar í gær. Sagðist hún hafa svarað gagnrýni Ög- mundar opinberlega en gæti ekki rætt málefni einstaklings á opnum fundi borgarstjórnar. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn, fór fram á utan- dagskrárumræðu um málefni húsnæðislausra í Reykjavík í gær. Sagði hann ásakanir Ög- mundar alvarlegar og þetta væri ekki bara einhver þing- maður, eins og Björk hefði haldið fram, heldur þingflokks- formaður Vinstri grænna og formaður Bandalags ríkis og bæja (BSRB). „Að borgarfulltrúinn vilji ekki tjá sig um þessar alvarlegu ásakanir tel ég gagnrýnivert,“ sagði Vilhjálmur. „Ég tel auð- vitað að formaður félagsmála- ráðs og borgarfulltrúinn, Björk Vilhelmsdóttir, eigi að tjá sig um það þegar slíkar ásakanir eru bornar á hendur okkar sveitarfélags í þessum efnum.“ Spurði Vilhjálmur hvort það gæti farið svo að einhver ein- staklingur borgaði Reykjavík- urborg ekki leigu fyrir afnot af íbúð í tíu ár. Vildi hann fá upp- lýst hvernig brugðist væri við langvarandi vanskilum. Björk sagði að ýtarlegt svar við því yrði lagt fram á fundi félags- málaráðs. Vísaði ásökunum Ögmundar Jónassonar á bug „ÞEIR sem hafa komið til landsins selja helmingi meira en þeir sem ekki hafa komið,“ segir Baldvin Jónsson, framkvæmdastjóri Áforma, um rúmlega 30 bandaríska og danska kaupmenn sem hér eru staddir til að kynna sér búskap sauðfjárbænda og íslenska sveita- menningu. Baldvin segir að ásamt fjölmiðla- mönnum frá Bandaríkjunum og Danmörku muni kaupmennirnir taka þátt í göngum og réttum í Gnúpverjahreppi og gæða sér á kjötsúpu á Flúðum, svo eitthvað sé nefnt. Áform hafa um árabil fengið er- lenda fjölmiðlamenn til landsins til að vekja athygli á landbúnaði. Að þessu sinni er hingað komið tökulið frá bandaríska almennings- sjónvarpinu PBS til að gera sjón- varpsþátt um kokkinn Jeff Tunks sem rekur þrjá veitingastaði í Washington D.C. og verður þar fjallað um sjálfbæran íslenskan landbúnað og fiskveiðar. Hyggjast þeir róa til fiskjar með trillukörlum á Austfjörðum í dag. Einn helsti fréttamaður CBS-sjónvarpsstöðv- arinnar, James Adams, sé einnig að kanna hvaða möguleikar séu fyrir fréttaumfjöllun um Ísland. Að auki eru blaðamenn frá dönsku blöð- unum BT og Börsen og tveimur virtum útvarpsstöðvum í Banda- ríkjunum með í för. Baldvin segir að allt sé þetta fólk hingað komið fyrir tilstilli Áforma. Ódýrara en auglýsingar „Þetta er auðvitað ódýrara en að kaupa auglýsingar í fjölmiðlum,“ segir Baldvin og bætir við að fjár- munir til auglýsinga séu af af- skaplega skornum skammti. Baldvin bendir á að á þessu ári sé íslenskt lambakjöt selt í 111 versl- unum Whole-Foods verslanakeðj- unnar sem, samkvæmt New York Times, séu dýrustu og virtustu mat- vöruverslarnir í Bandaríkjunum. Í Danmörku verði hægt að fá íslenskt lambakjöt í 150 verslunum. Um 20 veitingastaðir á austurströnd Bandaríkjanna og þrír af vinsæl- ustu veitingastöðunum í Kaup- mannahöfn muni einnig bjóða upp á íslenskt lambakjöt. Kaupmenn og kokkar kynna sér íslenskan landbúnað Selja meira eftir Íslandsheimsókn Morgunblaðið/RAX STJÓRN Heimdallar tekur heils hugar undir nýbirtar tillögur nefnd- ar forsætisráðuneytisins um úrbæt- ur til þess að jafna réttarstöðu sam- kynhneigðra og gagnkynhneigðra í samfélaginu og hvetur til þess að lögum um staðfesta samvist verði breytt þannig að samkynhneigðum pörum í staðfestri samvist verði heimilað að frumættleiða börn. Nefnd forsætisráðuneytisins klofnaði í afstöðu sinni til þess hvort heimila ætti ættleiðingar samkyn- hneigða para á erlendum börnum eða tæknifrjóvganir samkvæmt tæknifrjóvgunarlögum til tveggja kvenna í staðfestri samvist. „Stjórn Heimdallar telur engin rök til þess að gera greinarmun á ís- lenskum og erlendum börnum í þessu sambandi og telur að heimila eigi tæknifrjóvganir til kvenna í staðfestri samvist. Þá tekur stjórn Heimdallar undir tillögur nefndarinnar um það að gerðar verði nauðsynlegar laga- breytingar til þess að tryggja að samkynhneigð pör geti stofnað til sambúðar með sömu réttaráhrifum og gagnkynhneigð pör. Stjórn Heimdallar hvetur alþing- ismenn til þess að beita sér fyrir nauðsynlegum breytingum á lögum í samræmi við tillögur nefndarinnar, sem miða að því sjálfsagða markmiði að samkynhneigðir og gagnkyn- hneigðir búi við sömu réttarstöðu,“ segir í ályktun frá Heimdalli. Heimdallur Styður tillög- ur um réttar- stöðu sam- kynhneigðra TYRKNESKT fyrirtæki, SA-RA, átti lægsta tilboð í stálmöstur Fljóts- dalslínu 3 og 4, sem ætlað er að flytja raforkuna frá Kárahnjúkavirkjun að álveri Alcoa í Reyðarfirði. Megintil- boð Tyrkjanna var upp á 479 millj- ónir króna en frávikstilboð var nærri sjö milljónum lægra. Tilboð SA-RA er um 77% af kostnaðaráætlun Landsvirkjunar upp á 623 milljónir. Alls bárust tilboð frá fimm erlend- um fyrirtækjum, en áður hafði tíu fyrirtækjum verið boðið að taka þátt í lokuðu útboði. Tilboð komu frá fyr- irtækjum í Króatíu, Slóvakíu og á Spáni, auk Tyrklands. Næstlægsta boð var upp á 574 milljónir en hið hæsta upp á 862 milljónir króna. Fljótsdalslína 3 verður um 50 km löng með 159 möstrum en Fljóts- dalslína 4 verður 53 km með 166 möstrum. Alls eru möstrin því 325 og 20–37 metrar á hæð. Tyrkir buðu lægst í möstrin

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.