Morgunblaðið - 08.09.2004, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 08.09.2004, Blaðsíða 12
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF 12 MIÐVIKUDAGUR 8. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ – kraftur til flín! VI‹ GERUM GOTT BETRA KB ÍBÚ‹ALÁN LÆKKUM Í 4,2% FASTA VEXTI AFTURVIRKIR VAXANDI viðskiptahalli og aukin verðbólga eru merki um ójafnvægi í þjóðarbúskapnum. Þetta kom fram í máli Ignólfs Bender, forstöðumanns greiningardeildar Íslandsbanka, á morgunverðarfundi bankans í gær, þar sem rætt var um horfurnar í þjóð- arbúskapnum. Hann sagði að aðrir neikvæðir þættir kæmu einnig til eins og mikil skuldsetning, sterk króna og hættan á þenslu. Hins vegar sagði hann að margt jákvætt væri í spil- unum svo sem nýhafið hagvaxtar- tímabil, aukinn kaupmáttur og hækk- andi eignaverð, góður aðgangur að fjármagni, lækkandi langtímavextir og aukin útrás fyrirtækja. Þá væri aukin samkeppni á markaðinum og einstaklega mikill framleiðnivöxtur í samfélaginu. Fram kom í máli Ingólfs að við blasi mynd sem sé ekki svört, ekki hvít, heldur svarthvít. Horfur væru bjartar, en blendnar, eins og hann orðaði það. „Það má segja að stór hluti þess hagvaxtar sem við höfum séð eigi sér rætur í eignaverðshækk- unum,“ sagði Ingólfur. Ekki bara björt mynd „En myndin er ekki bara björt,“ sagði Ingólfur síðan. „Hún er dökk á vissan máta. Við sjáum verðbólguna við efri þolmörk og yfir því sem er í löndunum sem við viljum bera okkur saman við. Viðskiptahallinn hefur aukist verulega og er kominn umfram það sem getur samrýmst stöðugleika í hagkerfi. Hann er meiri en í þeim löndum sem við viljum bera okkur saman við og stefnir í að verða meiri en í nokkru öðru OECD-ríki.“ Sagði hann að viðskiptahallinn stefndi í að verða 8,4% af landsfram- leiðslu í ár og fari á næsta ári í tæp 11% af landsframleiðslu, sem yrði meiri halli en hefur sést síðan 1946, að því er fram kom í máli hans. Ingólfur sagði að heimilin hefðu verið í miklum ham að undanförnu, þau hefðu byrjað hagvaxtarskeiðið á undan öllum öðrum á grundvelli stór- iðjuframkvæmdanna. Þau hefðu hafið vöxtinn og tekið út vöxt einkaneyslu umfram vöxt kaupmáttar. Hann sagði skuldsetningu heimilanna vaxandi og ekki yrði breyting á því á næstunni. Lánamöguleikar væru meiri og tæki- færi hjá fólki að lækka greiðslubyrði sína, taka eign sem bundin er í íbúð- arhúsnæði og beina henni annað, þar á meðal í einkaneyslu. Ingólfur sagði að viðskiptahallinn ógnaði styrk krónunnar. Hann vildi ekki gefa upp hvenær krónan gæti gefið eftir eða hve mikið. „Þó er hægt að segja að það muni eiga sér stað á næstu 2–3 árum.“ Ekki bóla Ingólfur ræddi frekar um eigna- verðshækkanirnar og hvort um eignabólu væri mögulega að ræða, sem ætti eftir að springa með látum einn daginn. Allt tal um slíkt væri ekki skrýtið þar sem hlutabréf og fasteignir hefðu hækkað mikið. Hann sagðist ekki telja að um bólu væri að ræða. Til dæmis gæti skýringin ein- faldlega legið í því að fyrirtækin væru nú betri og verðmætari. Mælikvarðar eins og VH-gildi gæfu heldur ekki til- efni til að ætla að um eignabólu væri að ræða og það gerðu ekki heldur mælikvarðar á fasteignamarkaði eins og húsnæðisverð á móti byggingar- kostnaði. Ingólfur sagði að staðan á vinnu- markaði væri sérstök. Þrátt fyrir aukna þenslu væri árstíðaleiðrétt at- vinnuleysi að aukast, þ.e. hagvöxtur- inn skapaði ekki atvinnu fyrir innlent vinnuafl. Hann sagði að enn væri van- nýtt og dulin framleiðslugeta inni í fyrirtækjunum, fyrst þyrfti að nýta hana áður en nýráðningar tækju við. Merki um ójafnvægi í þjóðarbúskapnum Morgunblaðið/Ómar Samrunar? Horfur í þjóðarbúskapnum eru bjartar en blendnar að því er fram kom á morgunverðarfundi Íslandsbanka í gær. Jón Þórisson, aðstoð- arforstjóri bankans, sagði hagræðingu framundan á fjármálamarkaði. HLUTHAFAFUNDI í Opnum kerf- um Group, sem halda átti í gær til að kjósa nýja stjórn að félaginu, var af- lýst að beiðni Kögunar, sem hafði óskaði eftir því að fundurinn yrði haldinn. Í tilkynningu frá stjórn Op- inna kerfi til Kauphallar Íslands í gær sagði að vegna þessa hefði ekki verið lengur tilefni til að halda hlut- hafafund og því hefði hann verið af- boðaður. „Ég vona að við fáum nú tækifæri til að leita að lausn sem er til hags- bóta fyrir alla hluthafa, starfsmenn og viðskiptavini félagsins,“ sagði Frosti Bergsson í samtali við Morg- unblaðið gær. Flokkadrættir hafa átt sér stað Í tilkynningu frá Kögun í gær sagði að félagið hefði fallið frá beiðni sinni um að haldinn verði hluthafa- fundur í Opnum kerfum Group. „Ljóst er að flokkadrættir hafa átt sér stað í hluthafahópi OKG sem Kögun telur félaginu ekki til hags- bóta. Kögun telur affarasælla að reyna til þrautar að ná samkomulagi um stjórn félagsins og leiðir til að efla það í framtíðinni. Markmið Kög- unar með fjárfestingu sinni í OKG, sem nemur nálægt 3 milljörðum króna, er að hámarka arðsemi OKG öllum hluthöfum þess til hagsbóta. Félagið hyggst halda 35,77% hlut sínum í OKG og leita áfram leiða að ofangreindu markmiði,“ segir í til- kynningu Kögunar. Gunnlaugur M. Sigmundsson, for- stjóri Kögunar, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að Kögun teldi það ekki til hagsbóta fyrir Opin kerfi Group, hvernig svo sem kosning til stjórnar félagsins hefði farið, að í fé- laginu væru tvær blokkir, þar sem önnur hefði þrjá stjórnarmenn og hin hefði tvo. „Við töldum að það væri rétt að skapa svigrúm til þess að menn geti kannað betur hvort ekki væri hægt að skipa málum með öðrum hætti, til hagsbóta fyrir alla hluthafa,“ sagði Gunnlaugur. Tvær blokkir með um 40% Þær tvær blokkir sem gert var ráð fyrir að myndu takast á um yfirráðin í Opnum kerfum á fundinum í gær eru annars vegar Frosti Bergsson, Íslandsbanki, og ýmsir smærri hlut- hafar, og hins vegar Kögun, Straum- ur og fleiri. Báðar fylkingarnar eru með í kringum 40% hlut í Opnum kerfum. Hluthafafundi aflýst ● VIÐSKIPTI í Kauphöll Íslands í gær námu samtals liðlega 3,2 milljörðum króna. Þar af voru viðskipti með skuldabréf fyrir um 2,6 milljarða en hlutabréf fyrir um 600 milljónir. Um helmingurinn af þeim viðskiptum var með hlutabréf í KB banka. Hlutabréf í Burðarási hækkuðu mest, eða um 0,8%. Úrvalsvísitalan stóð í stað og var 3.407,08 stig. Hlutabréfavísitölu vestanhafs hækkuðu nokkuð en þær hreyfðust lítið víða í Evrópu. Úrvalsvísitalan nánast óbreytt                           !" #$ %& #'   %( )* %(+ % ,+ % - %(+ % )* %( . $* .$( $!* & /&#"   / %$# 0 12$" 0  1!" #$ %& +' 3     #*#" #$ %& #4* &5 ! 1  )* %( !*&*$   6 1 " % 6* +"78%  +' 6 #9  ':72 #%  ; + %  , *(+  ,&% -<# =% "7 %% >2$" 0)! 0<*(  %%* % 0* #4* &0* %( 0=*   0*1  2 #9 2' ? %& ?9&& %& 1   %  %%*  % :1' 11 50=+$&   !  "#  +  ! $*( @9" #"   - %(<1 )* %( ?= #=  9&& %& #4* &)* %( 0<  ' $     5      5   5 5 5    5  5 5 5 5 5 5 5 5 5 5 5 5 $9 %&# #9  ' $ 5  5  5  5 5 5 5 5     5 5 5   5 5 5 5 5 5 5 5 5 5  5 5 5 5 5 5 5 5 5 5 5 5 5 5 5 5 A5  BC 5 A BC A5 BC 5 5 A  BC 5 5 A5 BC A BC 5 5 A5 BC 5 5 5 5 5 5 5 5 5 A5BC 5 5 5 5 5 5 5 5 5 5 5 5 5 5 5 5 6$ *(    ( & % ? *+<*( &D , 0 * '  ' ' ' 5 '  ' '  ' '  ' ' 5 '  5  5 ' 5 ' ' ' 5   5 5 5 5 5 5   5 5 5 5 5 5             5      5   5   5                5  5      5        <E8'' ?6'F 2&% *  !"*(       5   5  5  5 5   5  5 5 5 5 5 5  5 5 5 5 5 5 Málstofa Hagfræðistofnunar og Viðskiptafræðistofnunar HÍ Stef- án Bjarni Gunnlaugsson, Háskól- anum á Akureyri, flytur í dag erindi um „umframávöxtun á íslenskum hlutabréfamarkaði,“ á málstofu Hagfræðistofnunar og Viðskipta- fræðistofnunar Háskóla Íslands, sem hefst kl. 12.15 í stofu 101 í Odda. Stefán mun fara yfir niðurstöður rannsóknar á íslenska hlutabréfa- markaðinum frá ársbyrjun 1993 til loka júní 2003. Í DAG ÞETTA HELST … VIÐSKIPTI ÞÓR Sigfússon, framkvæmdastjóri Verslunarráðs, kallaði eftir auknu frumkvæði íslenskra fyrirtækja á morgunverðarfundi Íslandsbanka í gær. Sagði Þór að mikil tækifæri lægju fyrir einkafyrirtæki í þjónustu sem hið opinbera sinnir að mestu leyti í dag, svo sem heilsugæslu, orku- vinnslu, menntamálum og jafnvel vegaframkvæmdum. Vildi Þór meina að þangað til fyrirtækin sjálf sýndu frumkvæði og færu með hugmyndir á borð yfirvalda héldi ríkið áfram að sjá um þjónustuna. Þór nefndi sem dæmi að ef einkaaðili færi og byðist til að byggja Sundabraut gæti það flýtt þeirri framkvæmd um 7–10 ár. Vísaði Þór einnig til nágrannaland- anna þar sem einkaaðilar taka að sér sífellt fleiri verkefni frá hinu opin- bera. Nýlegt dæmi væri einkafyrir- tæki í Svíþjóð sem ræki 7 skóla, fyr- irtæki í Bretlandi sem starfrækti heilt skólahverfi, sænskt fyrirtæki sem ætti hlut í fyrirtæki sem rekur tug fang- elsa í Bretlandi og ástralskt fyrir- tæki sem ræki veg í Noregi. „Við erum að dragast aftur úr. Hér á landi standa ríkisfyrirtæki í yf- irtökum á einkafyrirtækjum. Hlutfall einkaskóla er mun minna hér en ann- ars staðar. Enginn áhugi er á einka- rekstri í heilsugæslu,“ sagði Þór í er- indi sínu. „Það þarf að ryðja burt hindurvitnum og fordómum gagnvart einkarekstri.“ Hann sagði að um væri að ræða 130 milljarða markað og spáði því að árið 2010 yrðu öflug fyr- irtæki þegar starfandi á framan- greindum sviðum, skráð í kauphöll. Þá sagði hann að það sæist best á útrásarfyrirtækjunum hvar ríkið hefði dregið sig í hlé. „Útrás er eink- um þar sem einkamarkaður hefur fengið að blómstra.“ Ríkisvæðing í gangi Sagði Þór að hér á landi væri mjög kröftug ríkisvæðing í gangi þar sem ríkisfyrirtæki færu fram í samkeppni við einkaaðila, oft sprotafyrirtæki. Hann sagðist hafa af því áhyggjur að eitthvað í umhverfinu ylli því að ráða- menn væru farnir að tala aftur um að fjölga ríkisstofnunum. Þór sagði einnig að vending hefði orðið í viðhorfum til einkarekstrar og úr því yrði að bæta. Sífellt meira væri talað um græðgi þegar talið bærist að viðskiptalífinu og stjörnur viðskipta- lífsins væru orðnar skúrkar. Þetta kristallaðist svo í því að rætt væri um að setja lög á viðskiptalífið. Fyrirtækin þurfa að sýna frumkvæði Þór Sigfússon ( G 0HI     B B !?0@ JK !! "   B B LL /.K "! !! " # B B ,!K $ " "" #!  B B ML@K JN;%$ "  "    B B

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.