Morgunblaðið - 08.09.2004, Side 15
Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi
Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Skapti Hallgrímsson, skap-
ti@mbl.is, Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson,
krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-
5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 669-1115. Árborg-
arsvæðið og Landið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Óvenjulegt knattspyrnumót | Mót
verður haldið í svokallaðri mýrarknatt-
spyrnu á Ísafirði næstkomandi laugardag.
Á heimasíðu aðstandenda mótsins,
www.folk.is/myri2004, er upphaf íþrótt-
arinnar rakið til sumaræfinga finnskra
gönguskíðamanna sem vildu fá fjölbreytni í
æfingarnar yfir sumartímann. Í skóglendi
Norður-Finnlands eru talsverð mýrlendi og
á einu slíku svæði var byrjað að leika knatt-
spyrnu. Þróaðist þetta yfir í keppni og mót
á svæðinu.
Fyrir fjórum árum var farið að skipu-
leggja stærri mót í mýrarknattspyrnu.
Þannig komu 270 lið til að taka þátt í heims-
meistaramótinu í sumar, segir á vefnum, og
skemmtu um tíu þúsund manns sér saman
um þessa helgi.
Stjórn Öldunnarstéttarfélags íSkagafirði hefur
sent frá sér ályktun þar
sem lýst er áhyggjum
yfir því að ekki skuli
unnið skipulegar og
meira að atvinnu- og
byggðaþróunarmálum á
vestanverðu Norðurlandi
en raun ber vitni.
Leggur hún til að
sveitarstjórn Skaga-
fjarðar og aðrar sveit-
arstjórnar taki hér for-
ystu, til dæmis með því
að mynda starfshóp til
að leita leiða til að
treysta grundvöll at-
vinnulífs í héraði og
vinni að öflugri byggða-
þróun. „Stjórn félagsins
telur afar brýnt að hafið
verði nú þegar öflugt
starf sem snúi þessari
þróun við,“ segir í álykt-
uninni.
Öfugþróun
Hildur B. Halldórs-dóttir í Nes-kaupstað hlaut
1. verðlaun í myndlist-
arsamkeppni Safnastofn-
unar og menningar-
nefndar Fjarðabyggðar
og Sparisjóðs Norð-
fjarðar. Á myndinni sjást
Pétur Sörenson for-
stöðumaður og Hildur B.
Halldórsdóttir við verð-
launaverk hennar, lengst
til hægri.
Þema keppninnar var
Fjarðabyggð og var opn-
uð á laugardag sölusýn-
ing á innsendum mynd-
um í Kirkju- og
menningarmiðstöðinni á
Eskifirði.
60 verk eftir 23 mynd-
listarmenn bárust í
keppnina. Menning-
arnefnd kaupir verð-
launaverk Hildar.
Sýningin stendur til
25. september.
Ljósmynd/Jón Knútur Ásmundsson
Sextíu verk bárust
Íslensk bónorðsspilfrá 1861 eru á brúð-kaupssýningu Þjóð-
minjasafns. Hér eru
nokkur sýnishorn, fyrst
af kveðskap hans:
Stari ég í stjörnur smá
er stafa undir brúnum.
Stendur ekki joð og á
í þeim fögru rúnum?
Síðan hún:
Víst þér eruð valinn sveinn
og verðið höldur besti;
en eg því hét, að eiga’ei
neinn
ef ei giptist presti.
Þá hann:
Er eg lít þig, únga rós!
í allri fegurð þinni,
þykist eg sjá leiðarljós
lífs á brautu minni.
Og loks hún:
Ei má gera á öllu grein
er svo margir heyra;
ef við sætum saman ein
segja myndi eg fleira.
Af rómantík
TENGLAR
.................................
pebl@mbl.is
Vesturbær | Börnin í vest-
urbæ Reykjavíkur láta ekki
veðrið koma í veg fyrir úti-
leiki. Þau klæða sig bara í
regnföt og stígvél og halda
sínu striki enda margt
skemmtilegt hægt að gera í
bleytu og drullupollum. Þessir
krakkar voru að leika sér við
Hagaskóla. Á meðan stúlk-
urnar brugðu á leik gaf félagi
þeirra ljósmyndaranum rann-
sakandi augnaráð.
Veðurstofan spáir rigningu
um allt land í dag og áfram
næstu daga sunnanlands og
vestan. Útlit er fyrir bjartara
veður á Norður- og Austur-
landi síðari hluta vikunnar.
Um helgina gæti orðið aust-
læg átt og rigning með köflun.
Er því útlit fyrir að börnin
geti áfram leikið sér úti í rign-
ingunni, þau sem vilja. Hins
vegar má búast við að for-
eldrar í vesturbænum og um
allt land verði orðnir heldur
þreyttir á blautum fötum og
drullugum stígvélum þegar
kemur fram á helgi.
Morgunblaðið/ÞÖK
Leikið í rigningunni
FJÓRÐUNGSÞING Vestfirðinga lýsir
andstöðu við að Vestfirðir muni heyra und-
ir þrjú tollumdæmi eins og gert er ráð fyrir
í frumvarpi laga um breytingar á tollalög-
um þar sem kveðið er á um fækkun toll-
umdæma úr 26 í 9. Fjöldi ályktana var
samþykktur á þinginu sem haldið var á
Ísafirði.
Í tollalagafrumvarpi fjármálaráðherra
er gert ráð fyrir því að umdæmi sýslu-
mannanna í Bolungarvík og Ísafirði myndi
Vestfjarðaumdæmi en umdæmi sýslu-
mannsins á Patreksfirði falli undir Vest-
urlandsumdæmi og að tollstjórn á Hólma-
vík heyri undir Norðurlandsumdæmi.
Leggur þingið áherslu á að litið verði til
þess að Vestfirðir hafi um langa hríð verið
eitt kjördæmi, þeir séu eitt skattstjóra- og
dómsumdæmi og að sveitarfélög og íbúar í
fjórðungnum eigi með sér margháttað
samstarf. Þessi tillaga gangi á skjön við
þessi tengsl auk þess sem störf og ábyrgð
færist til annarra landshluta.
Sókn Menntaskólans fagnað
Í annarri ályktun er fagnað sérstaklega
sókn Menntaskólans á Ísafirði til uppbygg-
ingar og framfara sem á undanförnum ár-
um hafi birst í auknum umsvifum hans,
fjölbreyttara námsframboði, fjölgun starfa
og endurnýjun á húsakosti og búnaði. Sér-
stakt gleðiefni er aukin sókn Vestfirðinga
sjálfra að menntaskólanum en það hafi,
ásamt árangri skólans í að minnka brott-
fall, fjölgað nemendum og starfsliði um
20% á þremur árum. Hvetur þingið stjórn-
endur og starfslið skólans til þess að halda
ótrauð áfram á sömu braut.
Segir að öflugur framhaldsskóli sé lykill-
inn að sókn Vestfirðinga í menntamálum
og þar með grundvöllur frumkvöðlastarfs
og atvinnusköpunar.
Samþykkt var að skipa fastanefnd um
samgöngumál. Henni er ætlað það hlut-
verk að fylgja eftir þeim áherslum í sam-
göngumálum sem vestfirskir sveitarstjórn-
armenn sammælast um á hverjum tíma.
Einn fulltrúi kemur úr hverju samgöngu-
svæði fjórðungsins og sá fimmti verður
skipaður af stjórn Fjórðungssambandsins.
Í ályktun um samgöngumál er vakin at-
hygli á þeirri staðreynd að þungaflutning-
ar á vegum hafi aukist í réttu hlutfalli við
samdrátt í sjóflutningum. Sú þróun leiði af
sér meira slit á vegum ásamt því að um-
ferðaröryggismál þurfi að skoða sérstak-
lega með tilliti til aukinnar umferðar stórra
ökutækja. Er skorað á stjórnvöld að horfa
sérstaklega til þessara breytinga þegar ve-
gafé er ákvarðað. Þá er og lögð áhersla á að
fjárveitingar til vegaframkvæmda á Vest-
fjörðum verði stórlega auknar.
Vilja hafa
Vestfirði eitt
tollumdæmi
Stjórntækniskóli Íslands
Bíldshöfða 18
Sími 567 1466
MARKAÐSFRÆÐI
Hnitmiðað 250 stunda nám í sölu og markaðsfræðum. Náminu er
ætlað að koma til móts við sívaxandi kröfur atvinnulífsins um
hæfari starfskrafta. Námið er ætlað fólki sem vill bæta við
þekkingu sína og fá innsýn í heim markaðsfræðinnar, og að
nemendur tileinki sér markaðshugsun í íslensku viðskipta og
athafnalífi, og nái þannig betri árangri. Kennslan fer fram í formi
fyrirlestra og verkefnavinnu.
Helsu námsgreinar:
Markaðsfræði Sölustjórnun og sölutækni
Vöruþróun Vörustjórnun
Auglýsingar Áætlanagerðir
Viðskiptasiðferði Lokaverkefni
Starfsmenntun. Fjárfesting til framtíðar.
WWW.menntun.is Sími 567 1466. Opið til kl. 22.00.
„Ég mæli með náminu
fyrir alla þá, er starfa við
markaðs- og sölustörf.
Ég hef verið í sölu-
mennsku í 6 ár og nám-
skeiðið hefur nýst mér vel
í starfi. Fjölbreytt og
áhugavert námskeið.“
Elísabet Ólafsdóttir
Eggert Kristjánsson hf.
„Ég mæli tvímælalaust
með þessu námi fyrir
alla þá sem eitthvað eru
tengdir markaðs-, sölu-,
upplýsinga-, skipulags-
og/eða framleiðslumál-
um sinna fyrirtækja.“
Hendricus Bjarnason
Tæknilegur ráðgjafi og umsjónarmaður
markaðstengdra verðbréfa kerfa
ING-bankans í Amsterdam
„Sölu- og markaðsfræði-
nám Stjórntækniskóla Ís-
lands er afar hagnýtt og
ott nám fyrir alla þá er
starfa við sölu- og mark-
aðsmál. Námið er mjög
markvisst og hefur nýst
mér vel í starfi frá upp-
hafi og kemur til með að
gera það í framtíðinni.“
Gróa Ásgeir dóttir,
Flugfélag Íslands.
Mínstund frett@mbl.is
Settur ráðherra úrskurðar | Jón Krist-
jánsson, heilbrigðis- og trygginga-
málaráðherra, hefur að tillögu forsætisráð-
herra verið settur af for-
seta Íslands til að fara með
mál þriggja bæjarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins í
Hveragerði vegna húsa-
leigusamnings Hveragerð-
isbæjar við Sunnumörk
ehf. og taka í því ákvörðun.
Bæjarfulltrúarnir ósk-
uðu álits félagsmálaráðuneytisins á vinnu-
brögðum meirihluta bæjarstjórnar við gerð
samningsins. Árni Magnússon félagsmála-
ráðherra var talinn vanhæfur til að fara með
málið þar sem hann var forystumaður fram-
sóknarmanna í bæjarstjórn þar til hann tók
við ráðherraembætti í núverandi ríkisstjórn.
Ráðuneytið hefur gefið bæjarstjórn
Hveragerðisbæjar kost á að koma á fram-
færi athugasemdum við erindið og á fundi
bæjarráðs á dögunum var bæjarstjóra falið
að gera það í samráði við lögmann bæjarins.
Úr
bæjarlífinu
HÉÐAN OG ÞAÐAN
Ungviðið
Félagsheimili til sölu | Eigendur félags-
heimilisins Bifrastar á Sauðárkróki hafa
auglýst húseignina að
Skagfirðingabraut 2 til
sölu. Sveitarfélagið Skaga-
fjörður er einn eigenda og
ber að skila tilboðum í ráð-
húsið fyrir 20. september.
Á heimaslóð Skagfirð-
ingsins, www.skagafjor-
dur.com, kemur fram að
stóra salnum í Bifröst var fyrir nokkrum
misserum breytt í áhorfendasal fyrir kvik-
mynda- og leiksýningar og tónleika og þá
var húsið einnig lagfært að innan.