Morgunblaðið - 08.09.2004, Page 16

Morgunblaðið - 08.09.2004, Page 16
MINNSTAÐUR 16 MIÐVIKUDAGUR 8. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ „ÞETTA var nú eiginlega algjör til- viljun,“ segir Hörður Finnbogason, ungur Akureyringur sem í gær lagði upp í leiðangur með rannsókn- arskútunni Töru frá Torfunefs- bryggju en leiðin liggur til Frakk- lands. Tara hefur legið við bryggju á Akureyri undanfarna daga eftir leiðangur norður í höf, m.a. var siglt til Grænlands og Jan Mayen. „Skútan kom til Akureyrar í lok júlí en þar voru teknar vistir og skipt um áhöfn. Ég fór um borð og spurði hvort ég mætti koma með krakkana af siglinganámskeiðinu og leyfa þeim að skoða. Það var auðsótt mál, en síðan hef ég verið í sam- bandi við áhöfnina, aðstoðaði við út- vegun varahluta og þá urðu tveir Frakkar eftir í landi og við buðum þeim að gista í húsi siglingaklúbbs- ins. Þannig tókust með okkur ágæt kyni. Þeir höfðu svo samband við mig og buðu mér að sigla með sér til Frakklands. Að sjálfsögðu tók ég boðinu með þökkum og hlakka til að fara með,“ sagði Hörður. Hann hef- ur síðustu tvö sumur verið leiðbein- andi á siglinganámskeiðum Nökkva, alvanur siglingum, fór á sitt fyrsta námskeið 8 ára gamall, „og hef verið með bakteríuna síðan.“ Hörður sagði að siglingin með Töru yrði al- gjörlega ný reynsla, hann hefði ekki áður siglt á svo stórri skútu né held- ur svo langa leið. „Ég hugsaði mig ekki einu sinni um þegar mér bauðst að sigla með, ákvað bara strax að skella mér,“ sagði Hörður og átti von á rólegheita siglingu, „það er nánast eins og að vera um borð í togara að vera hérna, það er frábært fólk í áhöfninni og and- rúmsloftið létt og þægilegt,“ sagði hann en um borð eru einkum Frakkar og Nýsjálendingar. Dansk- ir vísindamenn og fleiri sem voru með í leiðangrinum munu fljúga til síns heima frá Akureyri. Tara var smíðuð árið 1989, hún er 36 metrar, 120 fet, 10 metra breið, smíðuð úr þykku áli og um borð eru eru tvær 22 kW vélar. Skútan er með tvo svokallaða fellikili og þegar báðir eru niðri ristir hún 3,5 metra. Tara hét áður Seamaster og var í eigu Sir Peters Blake, eins þekkt- asta siglingakappa Nýja-Sjálands og í hópi þekktutu siglingamanna í heimi, en hann vann fjölda afreka á þessu sviði. Fór m.a. fyrir sveit Nýja-Sjálands sem vann Ameríku- bikarinn í siglingum árið 1995 og 1996. Sir Peter Blake var myrtur um borð í skútunni í byrjun desem- ber árið 2001 en hún var þá bundin við bryggju á Amazon-fljóti í Bras- ilíu. „Þetta var alveg rosalegt, “ sagði Alister Moore, sem var með í Akureyringur siglir með frægri skútu til Frakklands Morgunblaðið/Kristján Hörður Finnbogason í stafni skútunnar við Torfunefsbryggju á Akureyri. Þetta verður algjörlega ný reynsla HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ AKUREYRI STJÓRN Vaxtarsamnings Eyja- fjarðarsvæðisins hefur hafið störf en fyrsti fundur hennar var haldinn fyrir helgina. Meginverkefni vaxt- arsamnings er að stuðla að upp- byggingu klasa og tengslaneta helstu aðila á völdum sviðum í at- vinnulífinu og verkefnum er þeim tengist. Þessi uppbygging er á frumstigi og mun stjórnin í fyrstu leggja áherslu á að móta starf sitt og hugmyndafræði, auk þess sem staðið verður fyrir kynningu og fræðslu gagnvart hagsmunaaðilum og almenningi. Í skýrslu nefndar um byggðaþró- un Eyjafjarðarsvæðisins, sem kynnt var fyrr á árinu, var lagt til að gerður yrði svokallaður vaxtar- samningur frá 2004–2007, sem byggist á nýjum aðferðum við að styrkja hagvöxt einstakra svæða með uppbyggingu klasa. Lögð er m.a. áhersla á klasa á sviði mennta og rannsókna, á heilsusviði, ferða- þjónustu og á sviði matvæla. Heild- arfjármagn til reksturs samnings- ins þessi tæp 4 ár er áætlað rúmar 177 milljónir króna – þar af komi um helmingur frá sveitarfélögum á svæðinu, einkaaðilum og stofnunum og um helmingur frá stjórnvöldum. Þorsteinn Gunnarsson, rektor Háskólans á Akureyri, er formaður stjórnar Vaxtarsamnings Eyja- fjarðarsvæðisins en aðrir í stjórn eru, Baldur Pétursson frá iðnaðar- ráðuneyti, Sigríður Stefánsdóttir frá Akureyrarbæ, Guðmundur Guð- mundsson frá Byggðastofnun, Val- ur Knútsson frá Atvinnuþróunar- félagi Eyjafjarðar, fyrir hönd sveitarfélaga í Eyjafirði, Berglind Hallgrímsdóttir frá Iðntæknistofn- un Íslands, Impru Nýsköpunarmið- stöð, Benedikt Sigurðarson frá KEA, Ásgeir Magnússon frá Skrif- stofu atvinnulífsins á Norðurlandi, Björn Snæbjörnsson frá stéttar- félögum í Eyjafirði og Hermann Ottósson frá Útflutningsráði Ís- lands. Vaxtarsamningur Eyjafjarðarsvæðisins Uppbygging klasa og tengslaneta meginverkefnið Mismunandi meðferð | Um þol- falls- og þágufallsmeðferð er heiti á fyrirlestri á Félagsvísindatorgi sem haldinn verður í húsakynnum Há- skólans í Þingvallastræti kl. 16.30 í dag, miðvikudaginn 8. september. Í erindi sínu ræðir Ingvar Guðna- son um muninn á meðferð þar sem meðferðaraðilinn ræður för (þolfalls- meðferð) og meðferð þar sem með- ferðaraðili og skjólstæðingur fylgj- ast að í gegnum meðferðarferlið (þágufallsmeðferð). Ingvar vinnur hjá Fjölskylduþjónustu Skagfirð- inga auk þess sem hann starfar á meðferðarheimilinu að Háholti en hann hefur unnið við ýmis meðferð- arheimili fyrir unglinga. DANSKI sendikennarinn Tina Trane var upptekinn við að fá nem- endur í 9. bekk G. í Hvassaleitisskóla til þess að tjá sig á dönsku. Sjálf seg- ist hún leggja áherslu á að fá ís- lensku nemendurna til þess að tala á dönsku um hluti sem standa þeim næst eins sjálfa sig, félaga, fjölskyld- una, áhugamál o.s.frv. Tina verður hér þangað til skóla lýkur næsta sumar og mun kenna dönsku í grunnskólum á höfuðborgarsvæðinu en auk hennar er svo annar danskur sendikennari að störfum á Norður- landi en þeir eru hér á vegum danska menntamálaráðuneytisins til þess að efla dönskukennsluna. Tina segist aldrei hafa komið til Íslands áður en segir það vera frekar lítið mál að aðlagast aðstæðum hér enda margt með svipuðu sniði. „Vinnan hjá mér snýst fyrst og fremst um það að fá íslenska nem- endur til þess að tala dönsku því vanalega gengur kennslan út á það að lesa danskan texta, leysa verkefni og skrifa dönsku,“ segir Tina. Hún segist hafa fundið að nem- endur séu dálítið feimnir við að tjá sig á dönsku og það sé einmitt þrösk- uldurinn sem hún einbeiti sér að því að komast yfir. „Það er mikilvægt að krakkarnir tjái sig á dönsku, jafnvel þótt það sé ekki allt kórrétt, það er betra en að segja ekkert. Ég beiti mismunandi aðferðum til þess að fá þá til að tala, það veltur á hverjum nemanda fyrir sig og ég hef aldrei hitt barn sem ekki vill læra meira. Þetta gengur bara alveg ágætlega.“ Snorri og Sigrún Inga í 9.G sögðu það ganga ágætlega að tala dönsku. Þau skilji kannski ekki alltaf allt sem Tina segir en nái yfirleitt samheng- inu og þetta gangi smám saman bet- ur. Þótt þau tali oft dönsku hjá ís- lenska kennaranum þá sé þetta öðruvísi hjá Tinu sem tali ekkert nema dönsku og þegar þau skilji ekki eitthvað útskýri hún það fyrir þeim á dönsku. Danskur sendikennari í heimsókn í Hvassaleitisskóla „Mikilvægt að krakk- arnir tjái sig á dönsku“ Morgunblaðið/Ómar Tina Trane sendikennari ræðir við nemendur 9. bekkjar G í Hvassaleitisskóla. Vesturbær | Almennur fundur íbúa í grennd við reit á horni Holtsgötu og Bræðraborgarstígs sem fram fór á mánudag mótmælti harðlega byggingu fjölbýlishúss á svæðinu og drögum að deiliskipulagi á svæð- inu. Í ályktun fundarins segir m.a.: „Nýbyggingar samkvæmt deili- skipulagsdrögunum eru ekki í sam- ræmi við núverandi byggð við Bræðraborgarstíg og Holtsgötu austan Vesturvallagötu sem ein- kennist af stökum lágreistum hús- um en ekki háreistum sambyggðum fjölbýlishúsum. Byggingar sam- kvæmt drögunum mundu myrkva næsta nágrenni og hækka verulega hlutfall malbiks og steypu í um- hverfi íbúa og vegfarenda.“ Einnig er bent á að nýbyggingar samkvæmt deiliskipulagsdrögunum komi til með að auka umferð um Bræðraborgarstíg, en yfir hann fer stór hluti skólabarna hverfisins tvisvar á dag. Einnig muni fjölgun íbúa, þar sem byggð er þegar einna þéttust í Reykjavík, auka á bíla- stæðavandamál hverfisins, jafnvel þótt fylgt sé ákvæðum bygginga- reglugerðar um fjölda bílastæða með hverri íbúð. Fráleitt sé að gera ráð fyrir frávikum frá kröfum um bílastæði, nema í átt til fjölgunar. Vilja græn svæði í stað fjölbýlishúsa Fundurinn skoraði á skipulags- yfirvöld Reykjavíkur að láta gera ný og verulega breytt drög að deili- skipulagi fyrir Holtsgötureit, þar sem gert yrði ráð fyrir grænum svæðum, t.d. sparkvelli, og í mesta lagi fáum nýjum íbúðum í stökum húsum þar sem í núverandi drögum er gert ráð fyrir fjölbýlishúsum. Ef gert verði ráð fyrir nýjum íbúðum skuli ekki hvikað frá ákvæðum byggingareglugerðar um bílastæði, heldur gerð aukin krafa sem nemur tveimur stæðum á íbúð. „Fundurinn minnir skipulags- og byggingarsvið Reykjavíkurborgar og meðlimi skipulags- og bygging- arnefndar á að hagsmunir núver- andi íbúa hverfisins og þeirra sem munu byggja það í framtíðinni vega þyngra en stundarhagsmunir ein- stakra verktaka,“ segir að lokum í ályktun íbúafundarins. Mótmæla fyrirhuguðu fjölbýlishúsi Seltjarnarnes | Þrátt fyrir að búið sé að afhenda bæjarstjóra Seltjarnarness lista með undir- skriftum rúmlega 900 íbúa á Seltjarnarnesi hyggst áhuga- hópur um betri byggð á Sel- tjarnarnesi halda áfram að safna undirskriftum hjá þeim sem vilja koma nafni sínu á lista. Frestur til að gera athuga- semdir við deiliskipulagið renn- ur út 10. september, og geta þeir sem vilja aðstoðað við söfn- unina að óska eftir því að rita undir mótmælin haft samband við umsjónarmenn í síma 864- 2112 eða senda tölvuboð á net- fangið: verndum@nesid.is. Mótmæla áfram

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.