Morgunblaðið - 08.09.2004, Qupperneq 17
þeim leiðangri, en hann gerði eftir
atburðinn hlé á siglingum en er nú
kominn um borð aftur. Alister var
ekki um borð þegar ódæðið var
framið, „ég var með kvikmynda-
tökuliði í rannsóknarleiðangri inni í
frumskógi, en pabbi var um borð og
hann var barinn illa,“ sagði Alister
en faðir hans er enn einn af áhöfn-
inni. „Það sigldu sjö menn á gúmmí-
bát að skútunni og réðust grímu-
klæddir um borð veifandi byssum.
Peter reyndi að verjast árásinni, en
þeir skutu hann til bana og tveir
aðrir í áhöfninni særðust,“ sagði
Alister. Hann sagði ræningjana lítið
hafa haft upp úr krafsinu, en at-
burðurinn fékk mjög á áhöfnina.
Morgunblaðið/Kristján
Hörður Finnbogason t.h. með unnustu sinni Freydísi Konráðsdóttur og
Alister Moore skipverja um borð í rannsóknarskútunni Töru.
MINNSTAÐUR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. SEPTEMBER 2004 17
MIRALE
Grensásvegi 8
108 Reykjavík
sími: 5171020
Opið:
mán. - föstud.11-18
laugard.11-15
Spennandi
gjafavörur og húsgögn
Brautarholti 4
47. starfsár
Keppnisdansar
Hinir frábæru danskennarar
Svanhildur Sigurðardóttir
og Ingibjörg Róbertsdóttir
sjá um þjálfunina.
14 vikna námskeið,
mæting 1x, 2x eða 3x í viku.
Freestyle/Hipp hopp
10 vikna námskeið,
mæting 2x í viku.
Erla Haraldsdóttir
sér um kennslu. Brúðarvalsinn
Einkatímar fyrir verðandi brúðhjón.
Fyrir þá sem vilja skella sér í dansinn þá hringið í síma 551 3129
milli klukkan 16 og 22 daglega fram til laugardagsins 11. sept.
Kennsla hefst í Reykjavík mánudaginn 13. sept.
Einnig fer fram kennsla í Mosfellsbæ.
Erla
Freestyle
Hipp Hopp
Salsa
Harpa og Heiðar kenna ekta
KÚBU-SALSA
Samkvæmisdansar
Barnadansar
Áratuga reynsla og þekking
tryggir bestu fáanlega kennslu.
14 vikna námskeið
fyrir fullorðna og börn,
yngst 4 ára. Dansleikur í lokin.
Samkvæmisdans
5x1 tími í senn fyrir þá
sem lítinn tíma hafa.
Álftanes | Ívar Guðmundsson, nemandi í 6E í Álftanesskóla, datt heldur
betur í lukkupottinn á dögunum þegar hann hlaut fyrstu verðlaun í skóla-
leik Pennans-Eymundssonar og Bókabúða Máls og menningar og fékk að
bjóða öllum bekknum sínum út að borða og að sjá söngleikinn Fame í
Smáralind. Eftir sýninguna fengu krakkarnir að fara baksviðs þar sem
stjörnurnar tóku vel á móti þeim.
Bauð öllum bekknum út
að borða og á Fame
Garðabær | „Minn Garðabær er
verkefni til þess að búa til einhvers-
konar heimabanka eða heimabæjar-
félag fyrir hvern og einn íbúa. Við
ætlum að fara af stað með þetta
verkefni núna í haust,“ segir Ásdís
Halla Bragadóttir, bæjarstjóri
Garðabæjar, og bætir hún því við að
verkefnið marki tímamót í rafrænni
þjónustu sveitarfélaga. Ásdís Halla
kynnti verkefnið opinberlega í fyrsta
sinn á norrænni ráðstefnu um upp-
lýsingatækni og lýðræði, og hefur
hugbúnaðarfyrirtækið Hugvit unnið
að þróunarverkefninu.
Hún segir að búið sé að þróa verk-
efnið og vonast hún til þess að það
verði tekið í gagnið í október eða
nóvember. Garðbæingar fái þá sent
til sín lykilorð sem þeir geti nýtt sér
til þess að fara inn á heimasvæðið
„Minn Garðabær“ sem er að finna
inn á vef Garðabæjar.
Tilgangur verkefnisins er að koma
enn frekar á móts við íbúa Garða-
bæjar og sinna þeirra persónulegu
þörfum, íbúar geta t.d. séð hvar í
kerfinu mál sem þeir senda til bæj-
aryfirvalda er statt. Ásdís Halla seg-
ir að með þessu sé ætlunin að allir
bæjarbúar nýti sér vefinn til um-
ræðna og skoðanaskipta og þar með
aukist þátttökulýðræði í sveitarfé-
laginu.
„Ég veit ekki til þess að nokkurs-
staðar í heiminum hafi menn náð
þessum áfanga, að persónugera
þjónustuna með þessum hætti. Þetta
er það sem menn hafa verið að tala
um á alþjóðlegum ráðstefnum núna í
mörg ár, og hafa verið að tala um það
þurfi að búa til einhverskonar „port-
al“ eða hlið, sem er svona aðgangur
einstaklinganna að stjórnsýslunni
með einföldum hætti,“ segir Ásdís
Halla.
Tímamótaverkefni
Fáðu úrslitin
send í símann þinn