Morgunblaðið - 08.09.2004, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 08.09.2004, Blaðsíða 20
UMRÆÐAN 20 MIÐVIKUDAGUR 8. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ STAKSTEINAHÖFUNDUR Mbl. sýnir mér þá athygli 27. ágúst að vitna í greinarkorn er ég ritaði í blaðið og ber heitið Halldór eða Hans Blix. Vil ég þakka fyrir það. Auðséð er þó að höfundur Stak- steina hefur ekki lesið nógu vel við- talið við Hans Blix, fyrrum yfir- mann vopnaeftirlits Sameinuðu þjóðanna í Írak sem birtist í DV 22. maí. Staksteinahöfundur reynir að gera sem allra minnst úr málefnaá- greiningi Halldórs utanríkisráð- herra og Hans Blix varðandi Íraks- stríðið og stuðning íslensku ríkisstjórnarinnar við það og telur ekki ástæðu til að „veitast að utan- ríkisráðherra af ekki meira tilefni en mismunandi orðalagi hans og Hans Blix varðandi Íraksstríðið“. Hér er hann á frekar hálum ís. Í viðtalinu segir Hans Blix að Íraksstríðið hafi hvorki verið rétt- lætanlegt út frá pólitískum né laga- legum forsendum og hann er ósammála Davíð Oddssyni og Hall- dóri Ásgrímssyni, sem héldu hinu gagnstæða fram í umræðum á Al- þingi. Ennfremur segist hann vera stoltur af þeim þjóðum, sem ekki studdu stríðið og nefnir þar auk heimalands síns, Svíþjóðar, ríki eins og Chile og Mexíkó, sem bæði eru meðlimir í Öryggisráði SÞ en neituðu að samþykkja ályktun um stuðning við stríðið. Eitthvað sýnist þarna vera um að ræða meira en „orðalagsmun“ milli skoðana utanríkisráðherra Ís- lands og Hans Blix. Aðspurður á hvaða grundvelli lítið ríki eins og Ísland ætti að taka ákvarðanir um stuðning við stríðs- rekstur, svarar Hans Blix: „Með sjálfstæðri, gagnrýnni skoðun á öllum staðreyndum og sönnunum á því sem þær hafa kost á að safna saman.“ Vann utanríkisráðherra Íslands þannig. Var safnað saman stað- reyndum og sönnunum, áður en til ákvarðanatöku kom í þessu af- drifaríka máli? Spyrji hver fyrir sjálfan sig. Eða tóku hann og for- sætisráðherra ákvörðun um stuðn- ing Íslands við innrásina í Írak án þess að málið væri svo mikið sem lagt fyrir sjálfa utanríkismála- nefnd Alþingis. Bendir það til að beitt hafi verið gagnrýnni skoðun í þessu máli. Hræddur er ég um að stór hluti íslensku þjóðarinnar telji ekki ástæðu til að verðlauna utanríkis- ráðherra fyrir frammistöðu hans í Íraksmálinu og ótrúlegan undir- lægjuhátt gagnvart stefnu og starfsháttum ríkisstjórnar George Bush í því máli. Utanríkisráðherra hefur nú rof- ið þá löngu hefð að Ísland skuli vera friðarins land sem haldi sér utan við hvers kyns stríðsátök. Það er vissulega afrek út af fyrir sig. En upp úr stendur að heimurinn er orðinn óöruggari eftir árásar- stríð USA og Breta í Írak. Það sannast betur með hverjum degi sem líður. Það er skoðun Hans Blix sem sýnir að hyldjúpt haf er á milli skoðana hans og Halldórs Ás- grímssonar í þessu máli. Það þarf engan „óvenjulegan þankagang“ til að koma auga á það, heldur aðeins dálítið af heilbrigðri skynsemi. Ólafur Þ. Hallgrímsson Með sjálfstæðri, gagnrýnni skoðun Ólafur Þ. Hallgrímsson svarar Staksteinahöfundi Höfundur er sóknarprestur á Mælifelli í Skagafirði. TILEFNI þessara skrifa er ákvörðun félagsmálaráðherra, Árna Magnússonar, um ráðningu í stöðu ráðuneytisstjóra félagsmálaráðu- neytis. Atburðir og umræða síðustu vikna vekja óneitanlega upp spurn- ingu um vægi staðgóðrar reynslu og faglegrar þekkingar við ráðningu í ábyrgðarstöður innan íslenskrar stjórnsýslu. Það er ekki einungis þessi tiltekna ákvörð- un félagsmálaráðherr- ans sem knýr mig til þessara skrifa heldur það sem á undan er gengið við ráðningar í ábyrgðarstöður á Ís- landi og virðast eiga það sammerkt að þar hafi reynsla og þekk- ing verið sniðgengin. Ég hef verið búsett í Bretlandi undanfarin sex ár en átti stutta viðdvöl heima á Íslandi núna í ágúst. Þá bar svo við að í einni og sömu vikunni bar hæst í fjölmiðlum ákvarðanir nokkurra ráð- herra ríkisstjórnarinnar þar sem deilt var um hvort ákvarðanir þeirra hefðu verið studdar faglegum rökum þar sem málsgögn eru metin í þeim tilgangi að uppfylla fyrirfram yfirlýst skilyrði eða hvort þessar ákvarðanir hefðu verið niðurstaða annars konar atburðarásar þar sem pólitísk og/eða önnur sjónarmið ráða. Um er að ræða í fyrsta lagi stólaskipti ráðherra í ríkisstjórn þar sem reyndum stjórn- málamanni, Siv Friðleifsdóttur um- hverfisráðherra, var hafnað á skák- borði stjórnmálanna. Í öðru lagi var endurvakin umræðan um ráðningu í embætti hæstaréttardómara fyrir um réttu ári þar sem Hjördísi Há- konardóttur dómstjóra var hafnað og nú síðast ákvörðun félagsmálaráð- herra, sem fól í sér höfnun á reynslu og þekkingu Helgu Jónsdóttur borg- arritara, sem auk reynslu af alþjóð- legum vettvangi hefur, umfram aðra umsækjendur, yfirburði hvað varðar samanlagða reynslu og þekkingu af störfum innan íslenskrar stjórnsýslu. Af umræðunni mátti ráða að í öllum þessum tilvikum hafi mörgum fund- ist að reynslan og þekk- ingin hafi verið fyrir borð borin. Pólitískar ákvarðanir eru, bæði ljóst og leynt, niðurstaða málamiðlana er oftast bera merki átaka milli þeirra hags- muna sem í húfi eru hverju sinni. Slíkt er eðli stjórnmála. Um ákvarð- anir ráðherra er varða ráðningar í störf innan stjórnsýslunnar gilda hins vegar aðrar reglur og til þess ætlast að fag- leg sjónarmið ráði. Stjórnmálamenn koma jú og fara, og það er hlutverk þeirra að ákveða hvaða stefnu beri að fylgja hverju sinni. Embættismenn gegna hins vegar störfum í lengri tíma og eru þar burðarás reynslu og þekkingar um það hvernig beri að undirbúa og fylgja eftir ákvörðunum lýðræðiskjörinna fulltrúa. Flestir vilja sjá að menntun, reynsla og verð- leikar umsækjenda um slík störf ráði við mat umsókna. Íslenskur almenn- ingur, sem er vel upplýstur sam- anborið við hvað gerist meðal margra annarra þjóða, gerir ráð fyrir að skýrt samband sé milli ákvörðunar og þeirra gagna, sem ákvörðunin byggist á. Hætt er við að óljós tengsl þar á milli gefi tilefni til að ætla að málið sé bæði ólöglegt og siðlaust. Það er mér undrunarefni er ég, héðan frá Bretlandi, lít til ungrar ís- lenskrar stjórnsýslu þar sem enn má betur gera og efla þekkingu byggða á reynslu, að þar sé að finna for- ystumenn sem telja sig geta verið án bestu fáanlegu reynslu og þekkingar sem völ er á í landinu hverju sinni. Þó varð sú undantekning á í umræðum um umsækjendur í embætti hæsta- réttardómara í fréttum Rík- isútvarpsins að morgni laugardags 28. ágúst sl. þar sem fram kom í máli eins viðmælenda, að einn umsækj- enda um stöðuna, Jón Steinar Gunn- laugsson hæstaréttarlögmaður, væri einfaldlega, eins og það var orðað, með svo mikla reynslu sem hæsta- réttarlögmaður að naumast yrði hægt að ganga fram hjá slíkum um- sækjanda. Tilefni þessara skrifa er aftur á móti saga um þrjár vel menntaðar konur með mikla og góða reynslu er höfðu sóst eftir ábyrgð- arstörfum á vettvangi stjórnmála og stjórnsýslu og taldar voru hæfastar til starfans. Þar virtust þó rökin um mikla reynslu og þekkingu hvorki hafa þetta sama vægi né gera málið einfaldara. Því vaknar sú spurning hvort í afgreiðslu þessara mála felist ekki ákveðnar vísbendingar til kvenna sem búa yfir mikilli reynslu og þekkingu og hafa hug á að taka að sér ábyrgðarstörf fyrir íslenska stjórnsýslu í framtíðinni? Vægi reynslu og þekkingar Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir skrifar um ráðningar í ábyrgðarstöður ’Flestir vilja sjá aðmenntun, reynsla og verðleikar umsækjenda um slík störf ráði við mat umsókna. ‘ Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir Höfundur er með MSc-gráðu í stjórn- sýslufræðum og er að ljúka dokt- orsnámi í stjórnsýslufræðum við London School of Economics and Political Science. HANN tekur enn flugið, Mávurinn að norðan, helsti fulltrúi sérhags- munanna og grætur sem aldrei fyrr. Barlómurinn er sá sami og áður, þrír þingmenn frá Vestfjörðum halda sjávarútveginum í helj- argreipum og standa fyrir lagasetningu sem færir veiðiheimildir frá fyrirtæki hans, Sam- herja til útgerð- armanna, sem beinlínis geri út á stjórn- málamenn. Þarna er Þorsteinn Már Bald- vinsson að gagnrýna löggjöf um línuívilnun og kvótasetningu svo- nefndra dagabáta inn í krókaflamark. Viðhorf hans er að stjórn- málamenn eigi ekki að taka ákvarð- anir sem varða úthlutun kvóta. Þar er hann sammála frænda sínum Þor- steini Vilhelmssyni, sem fyrir þremur árum, í viðtali við Morgunblaðið, bað Guð að hjálpa sér, ef stjórnmálamenn ætluðu að úthluta kvóta. Það gætu þeir ekki nema með skít og skömm. Þeim var mikið gefið Fyrir 20 árum voru þeir frændur að hefja útgerð og stóðu illa að vígi í upphafi kvótakerfisins, þar sem veiði- reynsla skipanna var af skornum skammti. Má vera að þeir hafi beðið æðri máttarvöld að hjálpa sér, en þeir ákváðu að nauðsynlegt væri, svona til öryggis, að leita víðar fanga. Og hvar báru þeir niður annars staðar en hjá stjórnmálamönnunum? Og fengu ríkulega uppskeru. Á fáum árum fengu 3 skip fyrirtækisins mikinn kvóta umfram veiðireynslu þeirra með sérstökum ákvörðunum sjáv- arútvegsráðuneytisins sem hver um sig náði til fárra útgerðarmanna. Mér telst til að þessi meðgjöf stjórnmála- mannanna til fyrirtækisins sé um 6000 tonn af botnfiski, sem síðar varð varanlegur og framseljanlegur kvóti. Kvóti sem ekki þurfti að greiða fyrir og var sannarlega frá einhverjum tekinn. Fyrir vikið fékk fyrirtækið rekstrargrundvöll og varð svo verð- mætt að þegar Þorsteinn Vilhelms- son gafst upp á samstarfinu við frænda sinn og seldi sinn hlut fékk hann rúma þrjá milljarða króna í sinn hlut. Það voru blessaðir stjórn- málamennirnir sem gerðu þá frændur ríka. 84% vilja breyta kerfinu Ástæða þess að stjórn- málamennirnir eru enn að setja lög sem hafa áhrif á úthlutun veiði- heimilda er einföld. Það er almenn óánægja með kvótakerfið eins og skýrt kemur fram í nýlegri Gallup-könnun. Áttatíu og fjögur prósent vilja breyta kerfinu eða leggja það niður en aðeins 16% vilja halda því óbreyttu. Stuðnings- menn kerfisins eru í minnihluta í öll- um stjórnmálaflokkum og meðal stjórnarflokkanna er aðeins 1 stuðn- ingsmaður óbreytts kerfis á móti hverjum 2 sem vill breyta því eða leggja það niður. Af könnuninni má ráða að óánægjan beinist að sam- þjöppun veiðiheimilda, áhrifum fram- salsins á einstök byggðarlög og því að einstaklingar geti auðgast með því að selja veiðiheimildir. Kerfið er lokað og nýir menn geta ekki haslað sér völl í greininni nema með því að greiða þeim sem fyrir eru háar fjárhæðir. Þetta ættu þeir Samherjamenn að hugleiða því að þeir bera mikla ábyrgð á því að kerfið er svo óvinsælt sem raun ber vitni. Geta sjálfum sér um kennt Þeir sviku gefin loforð og fluttu kvóta og útgerð Guðbjargar ÍS frá Ísafirði, Þeir fluttu kvóta og útgerð tveggja togara frá Hafnarfirði þrátt fyrir ákvæði í kaupsamningi um annað og þeir hafa leikið svipaðan leik á Norð- ur- og Austurlandi. Þeir sem áður voru aufúsugestir eru nú orðnir and- varagestir. Þeim er ekki lengur fagn- að heldur eru þeir grunaðir um græsku og keyptir út ef mögulegt er. Þeir ganga svo langt að beita sér gegn mönnum sem ekki tala þeirra tungu varðandi kvótakerfið og vísa ég þar til þess þegar Árna Steinari Jó- hannssyni var bolað frá því að flytja ræðu sjómannadagsins á Akureyri fyrir 2–3 árum og í staðinn fenginn annar þeim þóknanlegur og í sumar var við sama tækifæri málpípa þeirra fengin til þess að úthúða Guðmundi Halldórssyni, formanni Eldingar á Vestfjörðum. Vandinn í sjávarútvegi eru heljartök þessara útgerð- armanna og annarra þeim líkra. Þeir eru vanir að ráða því sem þeir vilja og treysta, sem fyrr, á áhrif sín meðal stjórnmálamanna. Enn er kallað og krafist aðgerða gagnvart þremur þingmönnum. Það verður grannt fylgst með því hverju Mávagráturinn skilar að þessu sinni. Stóra spurn- ingin er hversu lengi tekst fulltrúum sérhagsmunanna í andstöðu við al- menning að tefja nauðsynlegar og óhjákvæmilegar breytingar á kvóta- kerfinu? Um það snúast átökin sem fyrr. Mávagrátur Krisinn H. Gunnarsson fjallar um sérhagsmuni ’Stóra spurningin erhversu lengi tekst fulltrúum sérhags- munanna í andstöðu við almenning að tefja nauðsynlegar og óhjá- kvæmilegar breytingar á kvótakerfinu?‘ Kristinn H. Gunnarsson Höfundur er alþingismaður. Á ÞESSUM síðustu og verstu tímum hafa menn tekið að marka nýja hreintungu- stefnu. Inntak hennar er að allt mögulegt skuli vera á hreinni ensku. Sumir veit- ingastaðir í Reykjavík (Smoky Bay) bjóða aðeins upp á matseðla á ensku og „Háskól- inn í Reykjavík“ ætl- ar að hafa allt við- skiptanám á ensku (Mbl 26/8). Ofan á bætist að Skjár einn hyggst nota enska sjónvarpsþuli til að lýsa enskum knatt- spyrnuleikjum. Fólkið vill það, segja Skjás- verjar. En Hörður Magnússon, íþrótta- fréttamaður, bendir á að meðal fólksins séu börn sem ekki eru enn farin að læra ensku (Mbl 17/7). Við má bæta að fullorðnir Íslendingar eiga fullt í fangi með að skilja enska íþróttafréttamenn sem einatt tala furðulegar mállýskur á hundrað kílómetra hraða. Eftirtektarvert er að nú rísa ís- lenskir íþróttafréttamenn upp á afturlappirnar og mótmæla fram- ferði stöðvarinnar. Ástæðan er ein- faldlega sú að þeir missa vinnufæri fyrir vikið. Satt best að segja mun fjöldi manns missa spón úr aski sínum aukist vegur enskunnar enn meir. Íslenskukennarar munu sjá sæng sína uppreidda, blaðamenn fara á vergang og lífs- starf rithöfunda verður að engu. Þetta verða menn að taka með í reikninginn áður þeir byrja að jarma um hagkvæmi enskunnar. Háskólanefnan hefði líka átt að hugsa út í þá staðreynd að við- skiptanemar verða að kunna góð skil á ís- lensku efnahagskerfi. Það krefst þess að þeir lesi töluvert af efni á íslensku. Best er að gera slíkt í nám- skeiðum sem haldin eru á því hallærislega tungumáli. Því er ekki furða þótt sá grunur læðist að manni að aðstand- endur H.R. og Skjás eins séu haldnir oftrú á enskuna vegna kúl- heita hennar. Svo slæm eru rökin fyrir því að nota beri ensku í þeim mæli sem þeir vilja. Og þá vaknar spurningin: Er skynsamlegt að skipta við menn sem þjást af slíkri glámskyggni? Alltént mætti mál- hollt fólk minnast þess að enginn neyðir það til að horfa á útsend- ingar Skjás. Það þarf heldur ekki að nema við The University of Smoky Bay. Hreintungustefn- an nýja  allt á hreinni ensku! Stefán Snævarr skrifar um málfar Stefán Snævarr ’Er skyn-samlegt að skipta við menn sem þjást af slíkri glám- skyggni?‘ Höfundur er prófessor í heimspeki við Háskólann í Lillehammer.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.