Morgunblaðið - 08.09.2004, Blaðsíða 21
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. SEPTEMBER 2004 21
Stórsekkir
Helstu gerðir á lager.
Útvegum allar stærðir og gerðir.
Tæknileg ráðgjöf.
HELLAS ehf.
Skútuvogur 10F, Reykjavík,
símar 568 8988, 892 1570,
fax 568 8986.
e-mail hellas@simnet.is
HELLAS
BRÉF TIL BLAÐSINS
Morgunblaðið Kringlunni 1 103 Reykjavík Bréf til blaðsins | mbl.is
AÐ byggja atvinnu sína á því að
markaðssetja slys og ófarir sam-
borgaranna, er lágkúra.
Hér er átt við rekstur DV. Ég er
bátasmiður og lenti í þeirri ógæfu
1995 að heill bátur frá mér hvarf frá
bryggju í Hafnarfirði án þess að bú-
ið væri að fullu greiða hann og borga
atvinnuleyfi sem hann var með.
Kaupandinn virtist hafa haft lög-
mann með í ráðum varðandi þessar
aðgerðir. Ég hafði alla tíð átt heið-
arleg viðskipti við menn áður þar
sem fullkomið traust var gagn-
kvæmt. En svo kom þessi skellur
sem setti lás fyrir starf mitt, sem
leiddi af sér það að ég neyddist til
þess að selja hluta eigna minna, til
að standa í skilum með lántöku
vegna hinna brostnu viðskipta. Lög-
maður mannsins gerði heimili mitt
svo gjaldþrota með kröfum sem við-
komandi hafði tekist að sauma sam-
an varðandi mál þetta, klæð-
skerasniðnum til þess að kaupandi
bátsins kæmist hjá að greiða það
sem honum bar fyrir verkið. Minn
klaufaskapur lá í því að treysta lof-
orðum án þess að fest væru á pappír
fyrir fram. Nú í tæpan áratug hefur
lögmaður minn unnið í því að rekja
mál þetta til baka fyrir mína hönd.
Í fljótfærni minni leitaði ég á náð-
ir DV nú á dögunum, svipað því er
rjúpan gerði forðum er hún flúði
undan fálkanum. Eftir að DV sendi
hér heim til mín ljósmyndara sem
heimtaði vígalegar myndir, þá var
ég afhausaður á forsíðu DV, líkt og
rjúpan sem lenti í potti gæða kon-
unnar góðu. Í öllu þessu írafári, sem
út af þessu máli hefur staðið gegnum
tíðina, hef ég gerst sekur um stór-
yrði sem ég bið viðkomandi hér með
afsökunar á, en bendi á að hið sama
hefi ég því miður einu sinni meðtekið
á móti af hálfu hins löglærða manns,
varðandi heimsóknir „vina hans af
Litla-Hrauni til þess að loka á mér
kjaftinum“…
Eftirleiðis mun ég hins vegar ekki
hlaupa í fljótfærni á náðir svokall-
aðra frjálsra fjölmiðla eins og DV
sem virðast markaðssetja venjulegt
fólk sem glæpamenn á einni nóttu
eins og þeim hentar, þótt kjarni
málsins liggi undir steini áfram.
Virðingarfyllst.
GARÐAR H. BJÖRGVINSSON,
Herjólfsgötu 18,
220 Hafnarfjörður.
Glæpamaður
á einni nóttu!
Frá Garðari H. Björgvinssyni
bátasmið:
Eftirfarandi greinar eru á
mbl.is:
Jón Steinsson: „Það er engin
tilviljun að hlutabréfamarkaður-
inn í Bandaríkjunum er öflugri
en hlutabréfamarkaðir annarra
landa.“
Regína Ásvaldsdóttir: „Eitt af
markmiðum með stofnun þjón-
ustumiðstöðva er bætt aðgengi í
þjónustu borgaranna.“
Jónas Gunnar Einarsson:
„Áhrifalaus og mikill meirihluti
jarðarbúa, svokallaður almenn-
ingur þjóðanna, unir jafnan mis-
jafnlega þolinmóður við sitt.“
Jakob Björnsson: „Mörg rök
hníga að því að raforka úr vatns-
orku til álframleiðslu verði í
framtíðinni fyrst og fremst unn-
in í tiltölulega fámennum, en
vatnsorkuauðugum, löndum...“
Tryggvi Felixson: „Mikil
ábyrgð hvílir því á þeim sem
taka ákvörðun um að spilla þess-
um mikilvægu verðmætum fyrir
meinta hagsæld vegna frekari
álbræðslu.“
Stefán Örn Stefánsson: „Ég
hvet alla Seltirninga til kynna
sér ítarlega fyrirliggjandi skipu-
lagstillögu bæjaryfirvalda ...“
Gunnar Finnsson: „Hins vegar
er ljóst að núverandi kerfi hefur
runnið sitt skeið og grundvall-
arbreytinga er þörf ...“
Eyjólfur Sæmundsson og
Hanna Kristín Stefánsdóttir:
„Öryggismál í landbúnaði falla
undir vinnuverndarlög og þar
með verksvið Vinnueftirlitsins.“
Jakob Björnsson: „Með þvílík-
um vinnubrögðum er auðvitað
lítil von um sættir.“
Guðmundur Hafsteinsson:
„Því eru gráður LHÍ að inntaki
engu fremur háskólagráður en
þær sem TR útskrifaði nemend-
ur með, nema síður sé.“
Á mbl.is
Aðsendar greinar
MÉR finnst nú kominn tími til að
eitthvað fari að gerast í samninga-
málum sjómanna, en við erum búnir
að vera samningslausir síðan um
áramót og ekkert hefur gerst, þrátt
fyrir fjölda funda samninganefnda.
Og í fréttum 2. sept. síðastliðinn var
haft eftir forseta sjómanna-
sambandsins að það komi að því að
grípa þurfi til aðgerða. Ég trúi því
ekki fyrr en ég tek á að það þurfi að
koma til verkfalls til að eitthvað fari
að gerast. En ef maður skoðar gagn-
kröfur LÍÚ þá stórefast maður um
að þeir vilji yfirhöfuð semja við sína
starfsmenn. Ein höfuðkrafa þeirra
er sú að hlutaskipti lækki vegna
tækninýjunga um borð. Hvað þýðir
sú krafa og hver á að meta hvað það
sem gert er til hagræðingar skili
miklu og réttlæti skert hlutaskipti?
Er það að setja í nýtt skip vinnslu-
línu, sem er verið að henda í land úr
öðru skipi vegna þess að hún er úr-
elt, og neita svo að greiða mönnum
10% frystiálag vegna tækninýjunga
eins og dæmi er um? Er furða þó
sjómenn séu ekki ginnkeyptir fyrir
að semja um svona hluti þegar fram-
kvæmdin er á þenn-
an veg. Þá má líta á
kröfu LÍÚ um að
sektir vegna samn-
ingsbrota falli niður,
ég spyr nú bara,
hvers vegna er þessi
krafa til komin, og
hver er tilgangurinn
með henni? Ég lít nú
svo á að þessi grein í
samningnum sé
dauður bókstafur,
nema einhver brjóti
samninga. Ég hélt að
ef menn gerðu með
sér samning ætluðu
þeir sér að standa við
hann, klásúla um fé-
víti sé bara öryggis-
ventill, sem er örugg-
lega í fleiri
samningum sem
gerðir eru en kjara-
samningum.
Ef litið er til und-
angenginna samn-
ingaviðræðna og
hvernig málin fóru
þá, og svo hvernig
gangurinn er í þessu núna, verður
maður hugsi um hvað LÍÚ gangi
eiginlega til með þessu háttalagi,
sem mér finnst þeir sýna sínum við-
semjendum. Ég trúi því varla að það
sé þeirra draumur að fá á skipin Pól-
verja og Rússa sem þeir geti greitt
1000 dollara á mánuði og farið með
eins og þeir vilja. En ef heldur fram
sem horfir þá fara menn að flykkjast
í land af skipunum, og það byrjar hjá
þeim útgerðum sem verst koma
fram við sitt fólk. Menn eru orðnir
langþreyttir á dónaskap og óbilgirni
sem forysta LÍÚ sýnir sínum við-
semjendum. Og ef svo fer að það
kemur til langs verkfalls þá er ég
mjög hræddur um að það
skili sér ekki allir til
baka, og það verði bestu
mennirnir sem fara
fyrstir. Þannig að mér
finnst að með þessu
háttalagi sé LÍÚ að grafa
sína eigin gröf, ég er ekki
viss um að menn átti sig
á hvað er í gangi.
Þannig að nú er komið
ræs á forystu LÍÚ að
fara að mæta á vaktina
til að vinna en vera ekki
með orðhengilshátt og
óbilgirni. Ég er nokkuð
viss um að ef menn
leggja sig fram um að
leysa þessa deilu þarf
það ekki að taka langan
tíma, það er bara að drífa
í þessu. Við höfum það
þannig á sjónum að
menn eiga að vakna við
fyrsta ræs og drífa sig út
á vaktina til að vinna. En
ef menn vakna ekki við
fyrsta, er farið aftur, og
ef menn liggja áfram og
mæta of seint á vaktina,
þá fer skipstjórinn og talar við við-
komandi, og það virkar nú yfirleitt
þannig að viðkomandi vaknar við
fyrsta ræs eftir það, og mætir á
vaktina og klárar sína vinnu. Mér
finnst að þeir hjá LÍÚ ættu að taka
þetta til sín, stjórnvöld eru búin að
gefa þeim of oft séns og vinna verkið
fyrir þá, það er kominn tími til að
þeir klári þetta sjálfir.
LÍÚ það er ræs
Kristinn Gestsson fjallar um
samningamál sjómanna
’En ef maðurskoðar gagn-
kröfur LÍÚ þá
stórefast maður
um að þeir vilji
yfirhöfuð semja
við sína starfs-
menn.‘
Kristinn Gestsson
Höfundur er skipstjóri.
Fyrir
flottar
konur
Bankastræti 11 sími 551 3930