Morgunblaðið - 08.09.2004, Síða 22

Morgunblaðið - 08.09.2004, Síða 22
Forseti Íslands bauð gestum sínum til hátíðark Karl Gústaf Svíakonungur skoðar eitt sænsku gler- listaverkanna sem sýnt er í Listasafni Íslands. Veðrið var ekki upp á sitt besta í gær þegarKarl Gústaf XVI Svíakonungur, Silvíadrottning og Viktoría krónprinsessa hófu þriggja daga opinbera heimsókn sína hingað til lands. Fóru þau víða um borgina, heimsóttu Þjóð- minjasafn Íslands, fóru í Öskju, náttúrfræðahús Há- skólans, og Listasafn Íslands þar sem konungurinn afhenti forseta Íslands formlega safn sænskra gler- listaverka. Lenti flugvél þeirra á Reykjavíkurflugvelli upp úr klukkan tíu, þar sem sendiherra Íslands í Svíþjóð, Svavar Gestsson, og kona hans, Guðrún Ágústs- dóttir, tóku á móti gestunum. Viktoría kom í ann- arri vél en ríkisarfinn og konungurinn mega ekki ferðast saman. Leiðin lá því næst til Bessastaða þar sem Ólafur Ragnar Grímsson forseti og Dorrit Moussaieff for- setafrú tóku á móti konungshjónunum í hífandi roki og rigningu. Þau létu veðrið ekkert á sig fá og stilltu sér samviskusamlega upp í myndatöku með bros á vör, hlustuðu á þjóðsöng beggja landanna, hittu íslenska ráðherra og íslensk skólabörn. Áhugasöm um framtíð íslenskra jökla Kóngurinn og krónprinsessan heimsóttu Öskju þar sem þau hlýddu m.a. á erindi, á alþjóðlegri ráð- stefnu um loftslagsbreytingar á jörðinni og áhrif þeirra. Helgi Björnsson prófessor tók á móti feðg- inunum í Öskju og fræddi þau meðal annars um eldvirkni í Öskju og Kötlu og áhrif loftslagsbreyt- inga á jökla. „Þau voru geysilega áhugasamir áheyrendur og höfðu bæði greinilega mikinn áhuga á framtíð íslenskra jökla,“ sagði Helgi en hann sagðist hafa kynnt þeim spár um framtíð Vatnajök- uls og sýnt þeim líkan þar sem sést hversu mikið hann muni minnka á næstu 200 árum ef hitastig hækkar hér á landi. Afhenti sænsk glerlistaverk Í Listasafni Íslands afhenti sænski konungurinn Ólafi Ragnari formlega safn 63 glerlistaverka eftir þekktustu glerlistamenn Svíþjóðar en safnið er gjöf til íslensku þjóðarinnar. Síðan var haldið í Þjóð- minjasafnið þar sem fjölskyldan skoðaði sig um undir leiðsögn Margrétar Hallgrímsdóttur þjóð- minjavarðar. Opinber heimsókn sænsku konungshjónanna o Kynntu sér ástand ís- lenskra jökla Karl Gústaf Svíakonungur, Silvía drottning og Morgunblaðið/Þorkell Sænsku konungshjónin, Viktoría krónprinsess uðu hið endurbætta Þjóðminjasafn Íslands und 22 MIÐVIKUDAGUR 8. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. HalldórÁsgrímsson utan-ríkisráðherra og LailaFreivalds, utanríkis- ráðherra Svíþjóðar, áttu fund í Ráðherrabústaðnum síðdegis í gær þar sem þau ræddu auk ann- ars þróun sameiginlegrar öryggis- og varnarmálastefnu Evrópu- sambandsins, samrunaferlið í Evrópu í ljósi væntanlegrar stjórnarskrár ESB og áherslur landanna á 59. allsherjarþingi SÞ, sem hefst í New York síðar í mán- uðinum. Að loknum fundi þeirra ræddu ráðherrarnir stuttlega við fréttamenn. Halldór sagði mikilvægt fyrir Íslendinga að eiga nána samvinnu við Svía á sviði utanríkismála í ljósi þess að Ísland væri ekki í Evrópusambandinu. Þá var Freivalds spurð að því hvort hún teldi að samstarf Norð- urlandanna yrði auðveldara ef öll Norðurlöndin væru í Evrópusam- bandinu og sagðist hún telja að svo yrði þrátt fyrir að samstarf ríkjanna væri mjög gott fyrir. Halldór Ásgrímsson sagði um þetta: „Ég held að það sé alveg ljóst að það væri auðveldara fyrir Norð- urlöndin ef þau væru öll þ en þau þurfa þá öll að hafa muni af því og hafa áhuga það vill svo til að hvorki Ís Noregur hefur ákveðið að um aðild. En eins og þetta þá hjálpa hin Norðurlöndi mjög mikið í þessu samban leggja mikið á sig til þess velda okkur samstarfið við ópusambandið.“ Fyrsta opinbera heim Halldórs til Svíþjó Halldór sagði að engin á lægi fyrir um stefnubreyti Norðurlandasamstarfið auðveldara ef öll ríkin væru innan ESB SKREF Í RÉTTLÆTISÁTT Tillögur nefndar forsætisráð-herra um réttarstöðu samkyn-hneigðra eru mikilvægt skref í átt til þess að útrýma mismunun sam- kynhneigðra og gagnkynhneigðra á Íslandi. Nefndin vill m.a. að sett verði í lög bann við mismunun samkyn- hneigðra á vinnumarkaði. Hún legg- ur til að samkynhneigðir, rétt eins og gagnkynhneigðir, geti skráð sig í sambúð og þar með fengið sömu rétt- indi og gagnkynhneigðir í sambúð njóta. Ennfremur telur nefndin ekki nauðsynlegt að það sé skilyrði fyrir stofnun staðfestrar samvistar sam- kynhneigðra að a.m.k. annar einstak- linganna sé íslenzkur borgari sem eigi fasta búsetu á Íslandi, heldur sé nægilegt að annar eða báðir eigi bú- setu í landi þar sem í gildi séu lög um staðfesta samvist sem séu hliðstæð íslenzku lögunum. Nefndin telur æskilegt að hægt verði að afnema þá mismunun í hjú- skaparlöggjöfinni að aðeins borgara- legir vígslumenn geti gefið samkyn- hneigða saman í staðfesta samvist. Nefndir bendir réttilega á að skilyrð- ið fyrir því að þessi mismunun verði afnumin sé að þjóðkirkjan breyti af- stöðu sinni gagnvart hjónaböndum samkynhneigðra, þannig að samkyn- hneigðir geti fengið kirkjulega vígslu eins og gagnkynhneigð pör. Ástæða er til að taka undir hvatningu nefnd- arinnar til kirkjunnar í þessu efni. Þá er nefndin þeirrar skoðunar að samkynhneigðir einstaklingar séu al- veg jafnhæfir uppalendur og gagn- kynhneigðir. Fyrir vikið sé ekki ástæða til að meina gagnkynhneigð- um að ættleiða börn og er nefndin sammála um að frumættleiðingar samkynhneigðra para á íslenzkum börnum skuli heimilaðar. Hins vegar klofnaði nefndin er kom að því að heimila ættleiðingar samkyn- hneigðra para erlendis. Sama á við um rétt lesbískra para til að gangast undir tæknifrjóvgun á íslenzkri heil- brigðisstofnun; þar varð nefndin ekki sammála og skiptist í jafnstóra hluta með og á móti. Báðir helmingar nefndarinnar færa ýtarleg rök fyrir afstöðu sinni. Þeir nefndarmenn, sem ekki vilja heimila ættleiðingar samkyn- hneigðra para erlendis, benda á að Asíulönd, sem æ fleiri íslenzkir for- eldrar hafa leitað til eftir ættleiðingu undanfarin ár, heimili ekki ættleið- ingar til samkynhneigðra og hafi nei- kvæða afstöðu gagnvart þeim. Þann- ig geti t.d. samvinnu við kínversk stjórnvöld um ættleiðingar verið í hættu stefnt, verði þetta skref stigið. Jafnframt bendir nefndin á að það geti aukið á það sálræna álag, sem barn, sem ættleitt er frá útlöndum, verði fyrir, að alast upp hjá samkyn- hneigðum foreldrum. Hinn helmingur nefndarinnar bendir á að mat á álagsþáttum í fjöl- skyldu ættleidds barns hljóti að taka mið af högum, aðstæðum og hæfni einstaklinga, ekki þjóðfélagshópa. Þessir nefndarmenn benda jafnframt á að þrátt fyrir fullan ættleiðingar- rétt samkynhneigðra í Svíþjóð finn- ast ekki dæmi þess að erlent ríki hafi séð ástæðu til að útiloka samstarf um ættleiðingar til gagnkynhneigðra þar í landi. Óhætt er að taka undir síðarnefndu rökin. Umhyggja þeirra nefndar- manna, sem ekki vilja heimila ætt- leiðingar erlendis, fyrir hag barna er vafalaust vel meint. Í ljósi þess að nefndin fjallar um réttindi samkyn- hneigðra sem mannréttindi er hins vegar afar hæpið að ætla að neita þeim um þau vegna þess að önnur ríki hafi þessi mannréttindi ekki í heiðri. Slíkur rökstuðningur hlýtur alltaf að leiða þá í ógöngur sem á annað borð vilja að við búum í frjálslyndu lýð- ræðisríki þar sem mannréttindi eru í heiðri höfð. Þá virðist það liggja í augum uppi að aðstæður gagnkynhneigðra para eru jafnmismunandi og aðstæður samkynhneigðra para. Við mat á því hvað er barni fyrir beztu hlýtur að vera horft til margra þátta, t.d. tekna, stuðnings stórfjölskyldunnar, andlegrar og líkamlegrar heilsu o.s.frv. – og fráleitt að útiloka heilan þjóðfélagshóp fyrirfram vegna kyn- hneigðar enda sýna rannsóknir að það er enginn munur á samkyn- hneigðum og gagnkynhneigðum sem foreldrum. Rökstuðningur af þessu tagi á sér í raun þá forsendu að for- dómar og skilningsleysi í garð sam- kynhneigðra ríki enn. Að svo miklu leyti sem það er rétt er nær að berj- ast gegn fordómunum en að halda áfram að mismuna fólki á grundvelli kynhneigðar. Hvað varðar tæknifrjóvganirnar telja nefndarmennirnir þrír, sem leggjast gegn þeim, að veigamestu rökin séu þau að sæði til slíkra tækni- frjóvgana yrði alla jafna fengið frá sæðisgjöfum, sem nytu nafnleyndar, t.d. frá dönskum sæðisbönkum. Þar með væri brotin sú meginregla að börn þekki uppruna sinn. Hinn helm- ingur nefndarinnar bendir hins vegar á að það sama eigi við þegar gjafa- sæði sé fengið til að hjálpa gagnkyn- hneigðu pari að eignast barn, jafnvel þótt dregið hafi úr slíku vegna bættr- ar tækni við tæknifrjóvganir. Kjarni málsins kemur fram í þessum orðum þessara nefndarmanna: „Að neita lesbískum pörum um rétt, sem gagn- kynhneigðum er færður með vísun til þess að barn hafi ekki tök á að komast að faðerni sínu, telja nefndarmenn- irnir þrír ekki réttlætanlegt.“ Við þetta má bæta því, sem Morg- unblaðið hefur áður bent á; að sam- félagið samþykkir, eða lætur óátalið, að fólk eignist börn að óyfirveguðu ráði, jafnvel eftir skyndikynni sem hvorki áttu að leiða til barneigna né sambúðar eða hjúskapar. Alltof mörg þessara barna þekkja ekki annað for- eldri sitt eða sjá mest lítið af því. Fyrst þetta líðst eru þá nokkur ein- ustu rök fyrir að standa í vegi fyrir því að fólk fái að eignast börn sem þráir það og er tilbúið að leggja á sig það erfiði og fyrirhöfn, sem tækni- frjóvgun eða ættleiðingarumsókn út- heimtir? Væntanlega tekur Alþingi skýrslu nefndarinnar til rækilegrar umræðu og setur lög sem afnema eins og kost- ur er mismunun samkynhneigðra og gagnkynhneigðra. Miklu skiptir auð- vitað að tillögur nefndarinnar um aukna fræðslu um samkynhneigð nái fram að ganga. Með því að eyða for- dómum og vanþekkingu fjarlægjum við líka endanlega forsendurnar fyrir því að mismuna fólki eftir kynhneigð.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.