Morgunblaðið - 08.09.2004, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 08.09.2004, Qupperneq 25
kynningu og vináttu um liðna áratugi. Helga var falleg og góð, vildi öllum vel og var umhyggjusöm við þá sem áttu erfitt. Hún var yndisleg eiginkona Lárusar bróður, móðir barnanna sinna og barnabörnin áttu alltaf ástúð og skjól hjá henni og er söknuður þeirra allra mikill. Við sendum þeim öllum; Lárusi, Þórhildi og Ólafi Birni og fjölskyldum þeirra innilegar samúðarkveðjur og biðjum algóðan Guð að blessa þau öll. Blessuð sé minning hennar. Katrín og Ólafía. Móðursystir mín Helga Sigurðar- dóttir lést á Landakotsspítala 30. ágúst sl. Ég á bara góðar minningar um Helgu frænku mína og þær eru sam- ofnar æskuminningum af Sólvallagöt- unni þar sem við bjuggum báðar – hún reyndar allt sitt líf að undantekn- um örfáum mánuðum. Það var alltaf kært með okkur Helgu og á mínum yngri árum setti ég mér það takmark í lífinu að verða falleg og góð eins og hún þegar ég yrði stór. Helga var afskaplega glaðlynd og jákvæð manneskja og barngóð með eindæmum enda löðuðust börn að henni hvar sem hún kom. Henni tókst það sem er svo dýrmætt, að varðveita barnið í sjálfri sér. Ég naut góðs af þessum eiginleik- um hennar þegar ég var barn. Vegna veikinda mömmu minnar þurfti ég að fara á barnaheimili eins og það var þá kallað. Ég man ennþá hvað það var spennandi þegar Helga frænka kom að sækja mig og ég sá brosandi andlit hennar í dyragættinni. Þá vissi ég að það yrði skemmtilegt á heimleiðinni. Ýmis minningabrot koma upp í hug- ann í því sambandi eins og þegar við renndum okkur fótskriðu á ísi lagðri Tjörninni, spörkuðum í sameiningu og með ærinni fyrirhöfn spýtukubb neðan úr miðbæ alveg heim að dyrum á Sólvallagötunni, sátum á bekk í Hljómskálagarðinum og borðuðum vínber sem þá voru algjör lúxusfæða. Á unglingsárunum vann ég á sumr- in í kirkjugarðinum við Suðurgötu og stakk mér þá oft í hádeginu til Helgu og Lárusar og fékk kjötsúpu og fleira gott og svo drukkum við Lalli kaffi úr óbrjótandi glösum á eftir. Þannig átti ég athvarf hjá Helgu og alltaf þegar ég kom í heimsókn tók hún á móti mér með þeirri hlýju og gleði sem henni var eðlislæg. Ég hef fylgst með veikindastríði Helgu frænku minnar síðustu mán- uði. Hún tókst á við það af æðruleysi og kvartaði aldrei þrátt fyrir að vitað var að hún var sárþjáð. Það var stutt í brosið og umhyggjan fyrir þeim sem voru í kringum hana var enn til staðar þrátt fyrir alvarleg veikndi hennar sjálfrar. Að leiðarlokum þakka ég elskulegri frænku minni allt sem hún hefur gert fyrir mig og mitt fólk og sendi þeim Lárusi, Þórhildi, Óla Birni og fjöl- skyldum þeirra innilegar samúðar- kveðjur. Ingibjörg Pétursdóttir. Meðal fyrstu æskuminninga minna eru heimsóknir á Sólvallagötu 5a en þar bjó amma mín Ólafía með þremur börnum sínum, þ. á m. Lárusi yngri syni sínum sem er móðurbróðir minn. Þetta var í húsi Sigurðar Eyleifs- sonar skipstjóra sem þar bjó með fjöl- skyldu sinni. Sambýlið hlýtur að hafa verið gott og góðir straumar milli hæða því svo fór að Lárus gekk að eiga eina skipstjóradótturina, Helgu sem við kveðjum nú. Má því með sanni segja að þau Helga og Lárus hafi ekki leitað langt í makaleitinni og í þessu húsi áttu þau heimili í rétta hálfa öld þar til á síðasta hausti að þau fluttu sig um set í þjónustuíbúð í Lönguhlíð. Helga Sigurðardóttir var fíngerð kona, fríð sýnum, hláturmild og barn- góð með afbrigðum. Helga hafði einkar jákvætt lífsviðhorf og ég minn- ist þess ekki að hafa heyrt hana nokkru sinni hallmæla nokkurri manneskju né sýna öfund í garð ann- arra. Helga bar mikla umhyggju fyrir fjölskyldu sinni og öllu venslafólki, hún hélt nánu sambandi við foreldra mína meðan þau lifðu og við systkinin höfum einnig notið vináttu hennar og gestrisni alla tíð og fyrir þær góðu stundir skal nú þakkað. Ég hitti Helgu síðast um miðjan júlímánuð sl. en þá var hún á Landa- kotsspítala þar sem hún naut að- hlynningar eftir erfið veikindi nú á vormánuðum. Við sátum og spjölluð- um saman á stofu hennar þar sem hún naut útsýnis yfir Landakotstún- ið, kirkjuna og húsin þar í kring sem var það umhverfi sem henni hafði ver- ið svo kært alla tíð. Hún vildi lítið gera úr eigin veikindum en spurði mig þeim mun betur út úr um hagi mína og minna og lét þá einmitt þau orð falla að nú þyrftum við öll að fara að hittast. Voru þau ummæli mjög dæmigerð fyrir hennar lífsviðshorf og okkur öllum hollt að hafa í huga hversu mikilvægt er að rækta fjöl- skylduböndin í erli og hringiðu dags- ins. Við Björg, dætur okkar og fjöl- skyldur þeirra sendum Lárusi frænda, Þórhildi og Ólafi Birni og fjölskyldum þeirra okkar innilegustu samúðarkveðjur og biðjum Guð blessa minningu Helgu Sigurðardótt- ur. Þórður Jónsson. MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. SEPTEMBER 2004 25 Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÞÓRLAUG BJARNADÓTTIR, áður til heimilis í Lönguhlíð 3, Reykjavík, lést föstudaginn 3. september. Útför hennar fer fram frá Háteigskirkju fimmtu- daginn 9. september kl. 13.30. Bjarni Magnússon, Jónína Magnúsdóttir, Ólafur H. Guðmundsson, Guðmundur S. Magnússon, Oddrún Kristófersdóttir, Sveinn R. Ingason, Halldóra K. Guðmundsdóttir, Ragnheiður Valgarðsdóttir, Jimmy Glud, Hjördís Valgarðsdóttir, Þormar Stefánsson, Guðný Ósk Einarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, JÓHANNA KRISTJÁNSDÓTTIR, Kríuási 15, Hafnarfirði, lést á líknardeild Landspítala Kópavogi þriðjudaginn 31. ágúst sl. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey. Kristjana Erlendsdóttir, Knútur Björnsson, Gísli Erlendsson, Svanhvít Magnúsdóttir, Hafsteinn Erlendsson, Vilborg Elísdóttir, Kristján Erlendsson, Freyja Erlendsdóttir, Friðsteinn Vigfússon, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær bróðir okkar, HALLDÓR SIGURÐSSON, Port Richey, Flórída, lést 16. júní síðastliðinn. Guðlaug Sigurðardóttir, Sveinn Sigurðsson, Pétur Sigurðsson, Agnes Sigurðardóttir, Gunnar S. I. Sigurðsson. Hjartkær fyrrverandi eiginmaður minn, ÍVAR HAUKUR ANTONSSON, verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju miðvikudaginn 15. september kl. 14.00. Fyrir hönd systkina hans og barna, Kristbjörg Steingrímsdóttir. Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, VALGERÐUR ANNA EYÞÓRSDÓTTIR, (Lóa), Melabraut 10, Seltjarnarnesi, lést á líknardeild Landakotsspítala laugar- daginn 4. september. Hafdís Eiríka Ófeigsdóttir og aðstandendur. INGIBJÖRG GUÐMUNDSDÓTTIR, Syðri-Á, Ólafsfirði, lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri fimmtudaginn 2. september. Útför hennar fer fram frá Ólafsfjarðarkirkju laugardaginn 11. september kl. 14:00. Blóm eru vinsamlega afþökkuð, en þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á að láta félagasamtök í Ólafsfirði njóta þess. Árni Helgason, Sigurbjörg Ingvadóttir, Unnur Guðmundsdóttir, Guðrún Ólöf Guðmundsdóttir, Ingi Viðar Árnason, Katrín Sigurðardóttir og fjölskyldur. ✝ Kormákur Ingv-arsson fæddist í Halakoti (Hvítár- bakka) í Biskups- tungum 7. mars 1926. Hann lést á hjúkrun- arheimilinu Ljós- heimum á Selfossi 24. ágúst síðastliðinn. Foreldrar hans voru Jónína Ragnheiður Kristjánsdóttir, f. 30.8. 1890, d. 26.12. 1974 og Ingvar Jó- hannsson, f. 11.3. 1897, d. 23.4. 1983. Þau bjuggu á Hvítár- bakka í Biskupstungum. Kormák- ur var sjötti í röð 14 systkina. Systkini hans eru: Ingvar Ragnar, f. 31.3. 1918, d. 12.3. 1997; Ingi- gerður, f. 23.8. 1920; Einar, f. 19.9. 1921; Kristinn, f. 24.11. 1922; Jó- hanna Vilborg, f. 15.4. 1924; Hörð- ur, f. 3.6. 1927, d. 20.3. 1986; Hár- laugur, f. 14.6. 1928, d. 1.9. 2003, tvíburi Hárlaugs lést við fæðingu; Ragnhildur, f. 13.8. 1929; Guðrún, f. 26.2. 1932; Elín, f. 9.5. 1933; Sumarliði Guðni, f. 22.6. 1934 og Haukur, f. 11.10. 1935. Kormákur kvænt- ist 18.6. 1955 Sól- veigu Erlu Brynj- ólfsdóttur frá Sólheimum í Hruna- mannahreppi, f. 15.9. 1934. Foreldar Sólveigar Erlu voru Brynjólfur Guð- mundsson, f. 10.2. 1897, d. 22.1. 1988 og Líney Elíasdóttir, f. 29.12. 1898, d. 6.11. 1972. Kormákur og Erla hófu búskap á Sólheimum í Hrunamannahreppi 1955 en hættu búskap 1994 er son- ur þeirra og tengdadóttir tóku við búinu og fluttu þau þá á Flúðir. Sonur þeirra er Jóhann Brynj- ólfur bóndi á Sólheimum, f. 28.6. 1956. Kona hans er Esther Guð- jónsdóttir bóndi, f. 1.3. 1966. Þau eiga þrjú börn: Erlu, f. 4.3. 1987, Guðjón, f. 28.9. 1989 og Ingvar, f. 22.12. 1994. Útför Kormáks fer fram frá Hrunakirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Kæri afi Konni. Við viljum kveðja þig með þessari vísu sem á svo vel við þig. Þú hafðir svo gaman af hestum og kindum og hafðir alltaf tíma til að sinna okkur þegar við komum í sveitina til þín áð- ur en við fluttum þangað sjálf. Nú ertu vonandi búin að hitta hestana þína og hrútana og farinn að smala og syngja hástöfum. Vorið góða, grænt og hlýtt, græðir fjör um dalinn. Allt er nú sem orðið nýtt, ærnar, kýr og smalinn. Kveður í runni, kvakar í mó kvikur þrastarsöngur. Eins mig fýsir alltaf þó aftur að fara í göngur. (Jónas Hallgrímsson.) Með kveðju, barnabörnin þín, Erla, Guðjón og Ingvar. ÞAÐ voru margar góðar minningar sem komu upp í huga mér þegar mér bárust þær fréttir að Kormákur eða Konni á Sól eins og hann var oft kall- aður væri dáinn. Ætli ég hafi ekki verið 11 ára gamall fyrsta sumarið sem ég var í sveit hjá þeim Konna og Erlu. Ég hafði aldrei farið að heiman áður og var eðlilega hálf kvíðinn. En þær áhyggjur voru með öllu óþarfar og svo vel líkaði mér vistin að sumrin urðu fjögur talsins og nýtti ég oft páskafrí og önnur frí frá skólanum til að fara austur í sveitasæluna á Sól- heimum. Enda sáu þau til þess að mér leið eins og heima hjá mér, strax frá fyrsta degi. Konni var bóndi af gamla skólanum og duglegur með eindæm- um. Hestamennskan var honum í blóð borin og bý ég enn að þeim ráðum sem hann veitti mér varðandi hest- ana. Það sem ég lærði á Sólheimum á þessum árum var fyrir mér betra en nokkur skóli og mótaði mig mikið til framtíðar. Tel ég mig hafa notið mik- illa forréttinda að hafa fengið að dveljast hjá þeim hjónum öll þessi sumur. Ég veit að það hefur verið erf- itt hjá Erlu að horfa upp á veikindi Konna undanfarið, en nú hefur hann fengið hvíldina og ekki er ólíklegt að hann sé kominn á bak einhverjum gæðinga sinna og hafi riðið til fjalls. Megi minningin um góðan mann lifa. Sveinbjörn Sveinbjörnsson. KORMÁKUR INGVARSSON Morgunblaðið birtir minningar- greinar alla útgáfudagana. Skil Minningargreinar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is (smellt á reitinn Morgun- blaðið í fliparöndinni – þá birtist valkosturinn „Senda inn minning- ar/afmæli“ ásamt frekari upplýs- ingum). Minningar- greinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.