Morgunblaðið - 08.09.2004, Side 26

Morgunblaðið - 08.09.2004, Side 26
MINNINGAR 26 MIÐVIKUDAGUR 8. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ ✝ VilhjálmurSverrir Valur Sigurjónsson er fæddur í Reykjavík 1. mars 1918. For- eldrar hans voru þau Sigurjón Jónsson, sjómaður í Reykja- vík, fæddur 5. apríl 1894 í Vík á Akra- nesi, dáinn 29. jan- úar 1947, og kona hans Vilhelmína Sig- ríður Vilhjálmsdótt- ir, síðast húsfreyja í Reykjavík, fædd 30. október 1898, dáin 3. mars 1919. Hálfsystir Vilhjálms sammæðra er Helena Halldórs- dóttir, fædd 21.12. 1916. Hálf- systkini Vilhjálms samfeðra eru Vilhelmína, Ólafur Jón, Þórunn, Sigurður sem lést ungur, Soffía, Hörður, Gunnsteinn sem er lát- inn, Kristinn, Sigurður Sævar og Þóranna Erla. Árið 1944 kvæntist Vilhjálmur Sigríði Símonardóttur. Þau skildu. Börn þeirra eru 1) Vil- helmína Sigríður, f. 1941, dætur hennar og Jóns Böðvarssonar eru Sigríður Jónsdóttir, og á hún tvö börn og Ásthildur Jónsdóttir og á hún tvö börn. 2) Sigrún, f. 1945, d. 1948. Með Jensínu Waage átti Vilhjálmur soninn 3) Vilhjálm Hafstein, f. 1948, búsettur í Ástr- alíu ásamt konu sinni Aldísi Tryggvadóttur. Sonur þeirra er Alexander og eiginkona hans er Kellý Baindridde. 23.12.1955 gekk Vilhjálmur að eiga Erlu Bergmann Danelíusdóttur, f. 16.10.1935, frá Hellissandi, dóttir hjónanna Sveindísar Ingigerðar Hansdóttur, húsmóður, og Dan- elíusar Sigurðssonar, skipstjóra. Erla og Vilhjálmur eignuðust 6 börn: 4) Sverrir Bergmann, maki Soffía Guð- mundsdóttir, dætur þeirra eru Berglind og Hanna Soffía. 5) Heimir Bergmann, fyrri kona hans er Anna Margrét Ing- ólfsdóttir, þau skildu. Sonur þeirra er Hreimur Örn, sambýliskona hans er Þorbjörg Sif Þor- steinsdóttir. Heimir á einnig soninn Vig- fús Baldvin. Seinni kona Heimis er Bryndís Kristjánsdóttir, þau skildu, dóttir þeirra er Hrund. 6) Bragi Bergmann. Barnsmóðir hans er Sólveig Dóra Hartmanns- dóttir, þau slitu samvistir. Börn þeirra eru Vilhjálmur, Snæbjörn og Ingibjörg. Eiginkona Braga er Ingibjörg S. Ingimundardóttir og synir hennar eru Magnús Blöndal og Alexander Rafn. 7) Guðrún Bergmann, gift Kolbeini Reynis- syni, börn þeirra eru Steinunn Erla, Smári og Bjarki. 8) Pálmi, kvæntur Guðrúnu Lindu Jóns- dóttur og dætur þeirra eru Rakel og Erla Þóra. 9) Bjarni, sambýlis- kona hans er Guðrún María Helgadóttir og börn þeirra eru Pálmi Grétar, Alexandra og Helga Margrét. Vilhjálmur var lærður prentari og starfaði sem slíkur um 7 ára skeið. Hann starfaði sem leigubíl- stjóri frá 1946–1988, lengst af á Hreyfli. Hann var einnig öku- kennari um langt árabil. Útför Vilhjálms verður frá Fossvogskirkju í dag og hefst at- höfnin kl. 10:30. Afstæður er aldurinn eins og dæmin sanna. Frábær ertu, faðir minn, fremstur góðra manna. (BB.) Þessa vísu færðum við systkinin pabba á 85 ára afmælinu hans þann 1. mars 2003. Hún segir sína sögu því pabbi var alla tíð ungur í anda og léttur í lund og reyndist okkur frá- bær faðir. Guð gefi að við komumst í hálfkvisti við hann á því sviði. Þá megum við vel við una. Pabbi átti viðburðaríka ævi og var hamingjusamur, þótt byrjunin hafi ef til vill verið erfið. Einungis árs- gamall missti hann móður sína og hafði lítið af föður sínum að segja fyrr en á unglingsárum. Hann ólst upp hjá Sigríði ömmu sinni í Gerði í Innri-Akraneshreppi og Bjarna, manni hennar, sem hann kallaði jafnan fóstra sinn og bar þeim hjón- um ávallt vel söguna. Það hlutskipti að alast upp án móður og föður hlýt- ur að hafa verið erfitt en pabbi kvart- aði aldrei né tregaði það í okkar eyru enda reyndust Sigríður og Bjarni honum einstaklega vel. Pabbi gegndi mörgum hlutverk- um á lífsleiðinni. Hann skilaði þeim undantekningarlaust vel, enda mörgum gáfum gæddur. Nú þegar leiðir skilja er við hæfi að lýsa nokkr- um þeim helstu: Pabbi var prentari. Hann hóf nám í Félagsprentsmiðj- unni í Reykjavík árið 1939 og lauk sveinsprófi í prentun fjórum árum síðar. Að námi loknu starfaði hann í Félagsprentsmiðjunni á annað ár sem yfirprentari í vélasal við góðan orðstír. Árið 1945 hélt hann til Dan- merkur og Englands til að kynna sér nýjustu tækni í prentun. Eftir að heim kom réðst hann sem yfirprent- ari í Hrappseyjarprenti, fyrirtæki þeirra Sigurðar Nordals, Jónasar Sveinssonar og Svans Jóhannssonar. Það kom hins vegar fljótlega á dag- inn að pabbi þoldi illa vinnu í prent- smiðju, vegna þess mikla ólofts sem þar var, og að læknisráði hætti hann því starfi. Það hefur eflaust reynst honum þungbært að þurfa að láta af því starfi sem hann menntaði sig til að gegna en stundum verða menn að gera fleira en gott þykir. Pabbi var leigubílstjóri og öku- kennari. Þegar hann varð að hætta sem prentari hóf hann að keyra leigubíl og starfaði sem leigubifreið- arstjóri frá 1946–1988, lengst af á Hreyfli. Hann var líka ökukennari í nokkra áratugi og kenndi m.a. mömmu og okkur systkinunum að keyra bíl. Hann naut vinsælda í báð- um þessum störfum og þótti hart að þurfa að láta af þeim fyrir aldurs sakir árið 1988, enda þá sem fyrr með sprækari ökumönnum á höfuð- borgarsvæðinu og þótt víðar væri leitað! Pabbi var þúsundþjalasmiður. Hann gat gert við bílinn sinn sjálfur ef því var að skipta, teppalagt húsið, lagt dúk eða flísar, bólstrað húsgögn, smíðað skápa, gert við pípulagnir – og þannig mætti áfram telja. Og eng- inn var betri í uppvaskinu en hann, allt fram á síðasta dag. Verk- og handlagni hans reið ekki við ein- teyming, svo mikið er víst. Pabbi var söngvari. Sextán ára að aldri hleypti hann heimdraganum og hélt til Reykjavíkur í söngnám hjá Sigurði Birkis, söngmálastjóra þjóð- kirkjunnar. Sigurður bauðst til að kenna pabba söng – og það endur- gjaldslaust – því Sigurður sagði að pabbi væri undrabarn. Hjá Sigurði lærði pabbi söng í þrjú ár og bjó að því námi alla tíð. Hann söng í ýmsum kórum og kvartettum, m.a. Karlakór alþýðu, Kátum félögum og kór Tón- listarfélags Reykjavíkur. Úr þeim síðastnefnda var stofnaður kvartett sem fékk hlutverk hjá Leikfélagi Reykjavíkur. Þar kynntist pabbi frænda sínum, Bjarna Böðvarssyni hljómsveitarstjóra.Eftir þau kynni söng pabbi oft með hljómsveit þessa landsfræga frænda síns, meðal ann- ars í vinsælum þáttum í Ríkisútvarp- inu sem fluttir voru á gamlárskvöld og báru heitið Gamlar minningar. Hann tók ennfremur þátt í söng- leiknum Bláu stjörnunni sem fluttur var við góðar undirtektir í Sjálfstæð- ishúsinu við Austurvöll. Pabbi var einn af stofnendum Hreyfilskórsins og Hreyfilskvartetta, bæði karla- kvartetts og blandaðs kvartetts, og sungu þeir á skemmtunum um ára- bil. Eftir að pabbi settist í helgan stein samdi hann ljóð fyrir Hana Nú- hópinn í Kópavogi og tók virkan þátt í kórstarfi eldri borgara þar í bæ. Heima við söng hann líka mikið, bæði einn og með mömmu og okkur börnunum, tengdabörnunum og síð- ar barnabörnunum. Söngurinn var stór þáttur í lífi pabba alla ævi og gaf bæði honum og öllum í kringum hann mikla gleði og lífsfyllingu. Pabbi hefði eflaust verið kallaður bæði stórsöngvari og hetjutenór ef menn hefðu verið búnir að finna þær nafngiftir upp um miðbik liðinnar aldar! Pabbi var skákmaður. Hann tók þátt í mótum fyrir hönd Taflfélags Hreyfils og keppti meðal annars fyr- ir hönd þess á alþjóðlegum mótum og vann þar til verðlauna. Pabbi var skáld. Hann hóf ungur að yrkja stökur og kvæði og skrifa sögur og hélt því áfram til hinsta dags. Hann kenndi okkur systkinun- um öllum líka að meta góðan kveð- skap og fyrir það verðum við honum ævinlega þakklát. Á sjötíu ára af- mælinu eignaðist hann tölvu og sat við hana löngum stundum til að færa kveðskap sinn og annarra á rafrænt form. Á áttræðisafmælinu kom út ljóðabók hans, Leiftur hins liðna, og hann var alla tíð liðtækur við að búa til hefti með völdum ljóðum ýmissa höfunda og gefa vinum og vanda- mönnum. Pabbi var eiginmaður, faðir og afi. Þau mamma gengu í hjónaband á Þorláksmessu árið 1955. Fyrstu bú- skaparárin bjuggu þau í Reykjavík en árið 1962 reistu þau sér hús í Hlaðbrekku 20 í Kópavogi og hafa búið þar síðan. Þau voru alla tíð mjög samhent og samstiga í öllu sem þau gerðu enda ávallt nefnd í sama mund af öllum sem þau þekktu; Erla og Villi eða Villi og Erla. Okkur er til efs að hægt sé að finna kærleiksríkara heimili en Hlaðbrekku 20. Þar nut- um við systkinin ómældrar ástar og umhyggju beggja foreldra sem studdu okkur með ráðum og dáð hvað sem bar að höndum. Dýrmæt- ara veganesti út í lífið er ekki hægt að hugsa sér.Í Hlaðbrekkunni ríkti ávallt glaumur og gleði og allir voru aufúsugestir; vinir okkar systkin- anna, ættingjarnir, nágrannarnir og aðrir vinir og kunningjar. Það var ávallt gestkvæmt á heimilinu og veislumatur á borðum fyrir alla sem þangað komu. Þannig er því farið enn þann dag í dag, bæði hvað varð- ar gestkvæmnina og veislumatinn hennar mömmu, að ógleymdum hnallþórunum hennar! Engu breytti þótt fuglarnir flygju úr hreiðrinu einn af öðrum – eftir sem áður hefur Hlaðbrekkan verið samnefnarinn í lífi okkar systkinanna sem og barnanna okkar sem hafa notið ómælds ástríkis afa síns og ömmu. Og fuglar himinsins nutu líka ástrík- isins því árum saman gaf pabbi þeim matarafganga daglega og þeir flykktust á blettinn í Hlaðbrekkunni til að fá skammtinn sinn. Þeir sakna nú vinar í stað. Í Hlaðbrekkunni var oft rökrætt um pólitík og hækkuðu þá sumir róminn því það væri seint sagt um föður okkar að hann hefði ekki skoðanir á mönnum og málefn- um. Sama máli gegndi um fótboltann þar sem pabbi og mamma, eins og svo oft, deildu sameiginlegu áhuga- máli. Og pabbi vissi hvílíkan gim- stein hann átti þar sem mamma var. Hann var allt til hinsta dags óspar á hrósið í hennar garð og kallaði hana gjarnan drottninguna sína, perluna sína og ástina sína. Hún á það vissu- lega allt skilið því mamma er sann- arlega einstök kona. Það er sérstök list að varðveita ástareldinn og rækta kærleikann með þeim hætti sem þau gerðu alla tíð. Síðast en ekki síst var pabbi hetja. Hann greindist fyrst með krabba- mein fyrir 13 árum en lét allar hrak- spár sem vind um eyru þjóta. Þrátt fyrir ýmsar aðgerðir og nokkur bakslög hélt hann sínu striki og sinni reisn til hinsta dags. Við erum þakk- lát fyrir að hann fékk þá ósk sína uppfyllta að liggja banaleguna heima í Hlaðbrekku því þar vildi hann vera og hvergi annars staðar. Sú ósk hans rættist fyrst og fremst vegna ótrú- legar ósérhlífni og umhyggju mömmu, sem, með dyggri aðstoð frábærs starfsfólks Heimahlynning- ar Krabbameinsfélagsins, gerði pabba það kleift að kveðja í rúminu VILHJÁLMUR S. V. SIGURJÓNSSON Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi, HAUKUR NÍELSSON bóndi, Helgafelli, verður jarðsunginn frá Lágafellskirkju fimmtu- daginn 9. september kl. 15.00. Níels Hauksson og fjölskyldur, Marta Hauksdóttir og fjölskyldur, Helgi Sigurðsson og fjölskylda. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi, BERGVIN KARL INGÓLFSSON frá Húsabakka, Aðaldal, síðast til heimilis á dvalarheimilinu Hvammi, Húsavík, sem lést á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga sunnudaginn 5. september, verður jarðsunginn frá Húsavíkurkirkju laugardaginn 11. september kl. 14.00. Arnrún Karlsdóttir, Ingibjörg María Karlsdóttir og aðrir aðstandendur. Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, HARALDUR KR. JÓHANNSSON, hjúkrunarheimilinu Sóltúni 2, Reykjavík, áður til heimilis í Hólmgarði 66, Reykjavík, sem lést mánudaginn 6. september, verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju þriðjudaginn 14. september kl. 13.30. Ingibjörg Gunnlaugsdóttir, Haraldur Kr. Haraldsson, Guðný Soffía Marinósdóttir, Kolbrún Jarlsdóttir og barnabörn. Systir mín og móðursystir, UNNUR STEFÁNSDÓTTIR bókbindari, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík fimmtudaginn 9. september kl. 13.30. Olga Stefánsdóttir, Páll Þórhallsson. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÁGÚSTA GUÐRÚN HALLDÓRSDÓTTIR, lést á Landspítala Hringbraut þriðjudaginn 7. september. Jarðarförin auglýst síðar. Halldór Ómar Sigurðsson, Laufey Guðrún Sigurðardóttir, Atli Sigurðsson, Berglind Sigurðardóttir, Hafrún Sigurðardóttir, Einar Björn Þórisson, barnabörn og barnabarnabörn. Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÓN TÓMASSON, Álftamýri 67, verður jarðsunginn frá Grensáskirkju fimmtu- daginn 9. september kl. 15.00. Guðrún Júlíusdóttir, Tómas Jónsson, Guðrún Axelsdóttir, Júlíus Jónsson, Björk Garðarsdóttir, Jón Gunnar Jónsson, Fríða Birna Kristinsdóttir, Erla Jónsdóttir, Grétar Helgason, afa- og langafabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.