Morgunblaðið - 08.09.2004, Side 31
DAGBÓK
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. SEPTEMBER 2004 31
Út er komin, á vegum Hemru útgáfu,bókin Krakkaeldhúsið, þar sem finnamá uppskriftir að mat sem borinn er áborð í leikskólum landsins. Ástæðan
fyrir útgáfu bókarinnar er sú reynsla margra for-
eldra að börnin borði vel í leikskólanum en fúlsi við
matnum heima. Þá var safnað saman uppáhalds-
réttum leikskólabarna um land allt og þeim komið
saman í aðgengilega uppskriftabók fyrir foreldra.
Ásta Vigdís Jónsdóttir, ritstjóri Krakkaeldhúss-
ins, segir leyndarmálið á bak við leikskólamatinn
liggja í einfaldleika og góðu hráefni. „Matráðarnir
sem sendu inn uppskriftir í bókina töluðu líka mik-
ið um mikilvægi þess að bera matinn fallega fram
og að skapa gott andrúmsloft í kringum matmáls-
tímann til að gera hann að notalegri samverustund
þar sem snæddur er hollur, lystugur og góður
heimilismatur.“
Hvað er það sem virkar svona vel í leik-
skólamatnum?
„Það er fyrst og fremst einfaldleikinn. Réttirnir
bera líka iðulega skemmtileg nöfn sem höfða til
yngstu kynslóðarinnar, eins og Drekaegg eða
Risaeðlubrauð. Þar sem þetta eru einfaldar upp-
skriftir er upplagt fyrir foreldra að leyfa litlum
gikkjum að taka þátt í matreiðslunni. Þó ekki sé
það annað en að velja rétt og fá að krydda pínulítið
eða hræra smávegis í sósunni. Þetta er ráð sem
hefur virkað mjög vel á mínu heimili.“
Geta foreldrar haldið uppi fjölbreyttu úrvali
matar fyrir börn sín með þessari bók?
„Svo sannarlega. Í bókinni eru uppskriftir að
fjölda rétta úr fiski, kjöti og grænmeti, auk með-
lætis, eftirrétta og baksturs og því ættu allir að
geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Myndirnar í bók-
inni eru teknar með það í huga að vekja áhuga og
matarlyst krakka þannig að upplagt er að for-
eldrar og börn skoði bókina saman. Á myndunum
er ferskt grænmeti, ávextir og vatn áberandi með
það í huga að hveja til hollra matarvenja.“
Hentar þessi matur líka vel fyrir foreldra?
„Já, að öllu leyti. Þetta er góður, hollur og ein-
faldur matur, sem er fljótlegt að elda og kemur
ekki illilega við pyngjuna. Þessi bók er ekki síst
hugsuð til þess að gera matmálstímann hjá barna-
fjölskyldum að góðri samverustund, þar sem allir
snæða í sátt og samlyndi hollan og næringarríkan
mat. Þessi bók ætti því að vera kærkomin fyrir
foreldra því matmálstímarnir hjá barna-
fjölskyldum standa oft ekki undir þessum vænt-
ingum. Ég vil líka taka það fram að þessi bók ætti
ekki síður að höfða til ungs fólks sem er að hefja
búskap með tilheyrandi tilraunamennsku í eldhús-
inu.“
Matargerðarlist | Uppskriftabók með uppáhaldsmat leikskólabarna
Einfaldleiki og gott hráefni
Ásta Vigdís Jóns-
dóttir er fædd í Kópa-
vogi árið 1967. Hún út-
skrifaðist úr grafíkdeild
Myndlista- og hand-
íðaskóla Íslands árið
1991 og lauk BA-prófi í
bókmenntafræði frá
Háskóla Íslands árið
1996. Þá lagði hún
stund á kennslufræði
og hlaut kennslurétt-
indi frá HÍ árið 1998.
Ásta hefur undanfarin ár starfað sjálfstætt
sem þýðandi. Hún er gift Guðmundi Inga
Markússyni trúarbragðafræðingi og eiga þau
saman þrjú börn.
Orð í tíma töluð
ÉG var nýlega að hlusta á Ingva
Hrafn í útvarpsþættinum Hrafna-
þingi á Útvarpi Sögu þar sem hann
var að tala um vanbúna og ofhlaðna
stóra bíla með tengivagna. Hann
sagðist hafa horft upp á fram-
úrakstur í Hvalfjarðargöngunum á
svona stórum bíl sem var svo mikið
hlaðinn að hann var hræddur um að
óhapp gæti átt sér stað, en þarna er
engin gæsla.
Þegar stórir eldsneytisflutn-
ingabílar fara þarna um finnst mér
það ábyrgðarhluti að þeir séu á ferð-
inni um leið og fólksbílar. Finnst
mér að það ætti að loka göngunum
fyrir almennri umferð á meðan þeim
er hleypt í gegn. Þarf virkilega stór-
slys til að eitthvað verði gert meira í
öryggismálum í göngunum?
Eins vil ég nefna að oft sér maður
ökumenn stórra bíla með aðra hönd
á stýri og farsíma í hinni.
Vegfarandi.
Svört baktaska týndist
SVÖRT baktaska, ásamt seðlaveski
m/debetkorti og Nokia 3210 gsm-
síma, týndist þriðjudaginn 31. ágúst
sl. við Björtuhlíð í Mosfellsbæ. Finn-
andi vinsamlegast hafi samband í
síma 861 3221.
Gullarmband týndist
GULLARMBAND, hvítagull og
rauðagull með glærum steini, týnd-
ist sl. sunnudag. Armbandið hefur
mikið tilfinningalegt gildi fyrir eig-
anda. Skilvís finnandi hafi samband í
síma 692 1370.
Lyklakippa týndist
LYKLAKIPPA með mynd af barni
og hús- og bíllyklum á, týndist í mið-
bænum á menningarnótt. Skilvís
finnandi hafi samband í síma
896 1017.
Brún leðurtaska týndist
BRÚN leðurtaska með bókhalds-
gögnum týndist sl. mánudag á höf-
uðborgarsvæðinu. Skilvís finnandi
hafi samband í síma 692 8022.
Svartur kettlingur í óskilum
FRESSKETTLINGUR, ca 6 mán-
aða gamall, svartur með hvítar lopp-
ur og bringu, hefur sést að und-
anförnu á Þórsgötu í Reykjavík
svangur og veglaus. Eigendi er beð-
inn að hafa samband við Elínu í síma
661 8830.
Skotta er týnd
SKOTTA er kolsvört læða, eins og
hálfs árs. Hún týndist frá Sól-
vallagötu 48 sl. miðvikudag, 2. sept.
Hún er eyrnamerkt og með ól. Þeir
sem hafa orðið hennar varir hafi
samband í síma 554 5834 og
849 5279.
Búkötturinn Brandur
er týndur
BRANDUR hvarf fyrir mánuði frá
Dallandi í Mosfellsbæ. Hann er full-
orðinn, geltur högni, eyrnamerktur
G5011. Brandur er gæfur þó hann
sæki ekki sérstaklega í samskipti við
fólk. Hann er brúnbröndóttur með
hvít hár á bringu og fremst á lopp-
um. Hann er stór og var vel í holdum
þegar hann hvarf. Stundum svarar
hann nafni. Þeir sem telja sig hafa
séð þennan uppáhaldskött vinsam-
legast láti vita í síma 566 6880,
566 6885, 822 2010 eða 820 2688.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Fyrirbænamiðillinn Sirrý G.
Tek á móti fyrirbænum
virka daga frá kl. 10-12 fyrir hádegi.
Sími 690 9662
Á KOMANDI vetri bætist nýtt
nafn í kóraflóru höfuðborg-
arsvæðisins er Samkór Reykja-
víkur tekur til starfa. Kórinn,
sem er blandaður kór, byggist á
gömlum grunni því flestir kór-
félagar koma úr Snæfell-
ingakórnum í Reykjavík sem lauk
26 ára starfsferli sínum síðast-
liðið vor.
Kórstjóri Samkórs Reykjavíkur
er Bretinn John Gear en hann út-
skrifaðist frá London College of
Music 1991 með BA-gráðu og ein-
leikarapróf á píanó. Hann hefur
stjórnað kórum á Bretlandi, í
Færeyjum og hér heima á Bíldu-
dal og Tálknafirði.
Frá árinu 1998 hefur John
starfað sem tónmenntakennari í
Smáraskóla í Kópavogi.
Samkór Reykjavíkur mun æfa á
mánudagskvöldum frá kl. 20.00
til kl. 22.00 í Smáraskóla í Kópa-
vogi. Nú er leitað eftir áhuga-
sömu og metnaðarfullu söngfólki,
einkum góðum karlaröddum.
Fram undan hjá kórnum eru
skemmtilegir og áhugaverðir
tímar, s.s. æfingabúðir, jóla-
tónleikar og vortónleikar. Einnig
er fyrirhuguð söngferð út fyrir
landsteinana með fjölbreyttri og
skemmtilegri dagskrá.
„Samkór Reykjavíkur“
SÖNGHÓPURINN „Reykjavík 5“
heldur tónleika í Íþróttaleikhúsinu
á Sólheimum í Grímsnesi, á morg-
un, fimmtudaginn 9. september,
klukkan 20.30 og eru allir hjart-
anlega velkomnir.
Miðaverðið er 1.000 krónur og
rennur ágóði tónleikanna til Leik-
félags Sólheima. „Reykjavík 5“
mun m.a. flytja útsetningar Man-
hattan Transfer og New York Voi-
ces ásamt ýmsu öðru skemmtilegu,
en sönghópinn skipa þau; Hera
Björk Þórhallsdóttir, Kristjana
Stefánsdóttir, Aðalheiður Þor-
steinsdóttir, Gísli Magnason og
Þorvaldur Þorvaldsson, en Agnar
Már Magnússon leikur með þeim á
píanó.
Sungið á Sólheimum
Tónlist | Tónleikar til styrktar Leikfélagi Sólheima
Ljóðabókin Spuni eftir Ívar Björns-
son frá Steðja er komin út. Þetta er
4. ljóðabók höfundar en hinar komu
út 1992, 1995 og 1999 og heita
Liljublóm, Í haustlitum og Á kvöld-
himni.
Að sögn höf-
undar er nýja
bókin sérstæð að
því leyti að ljóð-
unum fylgja fjórar
stuttar sögur.
Hún er 110 blað-
síður að lengd,
88 með ljóðum
og 22 með sög-
um.
„Ljóðin er flest ort í hefðbundnu
formi, það er rímuð og stuðluð. Rími
er þó stundum sleppt, en stuðla-
setningu oftast haldið. Bragarhættir
eru fjölbreyttir og sumir nýstárlegir.
Í efnisvali leitar höfundur víða
fanga og má segja að honum sé þar
ekkert mannlegt óviðkomandi. Oft-
ast er þó alvara mannlífsins tekin til
umfjöllunar, en gaman og glettni eru
gjarnan stutt undir yfirborðinu eins
og þeir þekkja sem lesið hafa fyrri
bækur Ívars. Er þar líka iðulega
komið á óvart í kvæðislok,“ segir í
tilkynningu útgefanda.
Bókin Spuni er gefin út á kostnað
höfundar og annast hann sjálfur
dreifingu hennar og sölu. Hann veitir
einnig allar nánari upplýsingar
heima og í síma 552-4818.
Offsetfjölritun hf. sá um prentun
og bókband eins og um fyrri bækur
höfundar.
Ljóð
BÆKUR Guðrúnar Helgadóttur,
Litlu greyin, Undan illgresinu, Ekkert
að þakka og Ekkert að marka hafa all-
ar verið gefnar út í Danmörku á veg-
um forlagsins Klim, og fallið í mjög
góðan jarðveg. Samkvæmt upplýs-
ingum frá Vöku-Helgafelli hafa dansk-
ir fjölmiðlar farið lofsamlegum orðum
um þær og er t.d. Ekkert að þakka,
sögð „yndislega útsmogin“. Gagnrýn-
andi Politiken, Steffen Larsen, segir
að Guðrún skrifi „af rósemd og var-
færni“, og segir hana einnig beita „fín-
gerðri og skilningsríkri kímni“.
Nú stendur til að tvær bækur til við-
bótar eftir Guðrúnu komi út í Dan-
mörku; þ.e.a.s. Aldrei að vita, sem
kemur út í haust, og Öðruvísi dagar,
sem kemur út á næsta ári. Bækur
Guðrúnar hafa nú komið út í Banda-
ríkjunum, Japan, Þýskalandi, Hol-
landi, Danmörku, Svíþjóð, Noregi,
Færeyjum, Kóreu og Ítalíu.
Bækur | Íslenskar barnabækur seldar til Danmerkur
Spaugileg og fyndin saga
Guðrún Helgadóttir rithöfundur.
PAUL Farrington, söngvari og
söngkennari, heldur 5 daga nám-
skeið dagana 10.–14. september á
vegum Söngskólans í Reykjavík.
Paul Farrington er þekktur
víða sem einn fremsti „radd-
vandamálaleysir“ í faginu með yf-
ir 14 ára reynslu og hefur unnið
með mörgum af þekktustu söngv-
urum í óperu- og tónleikaheim-
inum í dag, s.s. Barbara Bonney,
Margaret Price, Felicity Lott og
fleirum.
Námskeiðið er haldið í Snorra-
búð, tónleikasal Söngskólans við
Snorrabraut 54 frá kl. 10–14 og
er opið áheyrendum.
Nánari upplýsingar eru veittar
á skrifstofu Söngskólans í
Reykjavík í síma 552 7366.
Námskeið í
Söngskólanum
Mikið úrval af
fallegum
rúmfatnaði
Skólavörðustíg 21, Reykjavík, sími 551 4050