Morgunblaðið - 08.09.2004, Side 33

Morgunblaðið - 08.09.2004, Side 33
MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. SEPTEMBER 2004 33 „VERKEFNAVAL okkar í vetur er afskaplega metnaðarfullt,“ segir Katrín Hall, listrænn stjórnandi Íslenska dansflokksins. „Við tökum hins vegar svolítið annan pól í hæðina, því und- anfarin ár höfum við verið með tiltölulega áhorf- endavænna verkefnaval, ef svo má segja, þar sem við lögðum áherslu á húmor og léttleika í þeim verkum sem við sýndum. Í vetur kveður hins vegar við svolítið annan tón, til dæmis verð- um við í fyrsta sinn síðan árið 2000 með heils- kvöldsverk, sem er Screensaver sem verður frumsýnt í október. Í raun var kominn tími til að mínu mati, við höfum verið að nokkru leyti með sýningar þar sem þrjú verk eru sýnd á einu kvöldi, en nú fá áhorfendur að sjá sjötíu mínútna heilsteypt verk, með kraftmiklum dansi og mik- illi sjónrænni upplifun. Þetta verður þannig ekki síðra fyrir áhorfendur.“ Í vetur eru átta dansarar fastráðnir við Ís- lenska dansflokkinn. Auk þeirra verða tveir verkefnaráðnir dansarar með í októbersýningu flokksins sem þó eru honum vel kunnugir, Jó- hann Freyr Björgvinsson og Nadia Banine, og þrír fyrrverandi dansnemar við Listdansskóla Íslands verða í starfsnámi hjá dansflokknum í vetur. Tengsl Íslenska dansflokksins við útlönd og erlenda listamenn hafa aukist á undanförnum árum og eru þó nokkrar ferðir til útlanda á dag- skrá flokksins í vetur, meðal annars í tengslum við sýningar á verkinu Við erum öll Marlene Dietrich eftir Ernu Ómarsdóttur. Katrín segist fagna þessari vaxandi útrás flokksins, sem hafi ekki komið til af sjálfu sér. „Að skapa flokknum nafn hefur verið stór hluti af minni listrænu sýn og það er af- skaplega gaman að sjá hvernig hróður flokksins fer sívaxandi erlendis. Við höfum lagt okkar metnað í að vinna með þekktum danshöf- undum, sem eru á þeim mælikvarða að sómi er af, því þannig þroskast okkar dansarar óskaplega mik- ið. En síðan tel ég líka að það sé mjög gott bæði fyrir flokkinn og áhorfendur hér heima að fá inn- sýn í það nýjasta og ferskasta sem gerist í dans- heiminum hverju sinni,“ segir Katrín. Hún segir hins vegar til tölulegar staðreyndir þess efnis að aldrei hafi verið samið jafn mikið af íslenskum dansverkum eins og einmitt um þess- ar mundir og dansflokkurinn hafi sjaldan haft eins mörg íslensk verk á efnisskrá sinni og á undanförnum árum. „Með þeim er gjarnan ís- lensk, frumsamin tónlist sem við höfum verið mjög stolt af. Með þessu hefur Íslenski dans- flokkurinn skapað sér ákveðið sérkenni, sem hefur vakið mikla athygli víða erlendis.“ Hlúð að listgreininni Íslenski dansflokkurinn er eina dans- listastofnunin á Íslandi og verður að sinna því hlutverki af kostgæfni, að sögn Katrínar. „Við þurfum að hlúa að listgreininni og koma henni á framfæri við áhorfendur, en einnig að hlúa að þeim listamönnum sem starfa með flokknum. Annars er erfitt að svara þegar stórt er spurt,“ segir hún aðspurð um það mikilvægasta í starf- semi flokksins. „Hvert smáatriði getur í raun og veru verið mikilvægt. Starfsemi okkar er að sjálfsögðu háð mannafla og fjármagni og við höf- um því miður ekki mikið af hvorugu, en afkasta- getan er í raun ótrúleg miðað við okkar þrönga ramma. Hins vegar lítur veturinn mjög vel út hjá okkur og við hlökkum til að takast á við þessi spennandi verkefni sem eru fram undan.“ Screensaver eftir Rami Be’er Frumsýnt í október 2004 Nútímasamfélagið með öllu sínu áreiti er yrkisefni hins ísraelska Rami Be’er, sem er stjórnandi hins þekkta Kibbutz dansflokks þar í landi. „Áreitið leiðir til þess að við sýnum ekki okkar rétta and- lit, heldur búum til skjöld, brynjum okk- ur gagnvart raunveruleikanum – sköp- um okkar eigin „screensaver“,“ segir í lýsingu á verkinu. Sjö myndvarpar eru notaðir til að varpa upp texta og tölum á sviðið, bæði á veggi og á dansara. Áhrifunum er líkt við byssukúlur, sem smjúga í gegnum dansarana og áhorfandann. Við erum öll Marlene Dietrich eftir Ernu Ómarsdóttur og Emil Hvratin Frumsýnt í febrúar 2005 Stórstjarnan Marlene Dietrich er þekkt fyrir að hafa skemmt í seinni heimsstyrjöldinni og var dáð jafnt af bandarískum sem þýskum hermönnun- um. Söngur og skemmtun var hennar leið til að berjast í stríðinu. Í verkinu Við erum öll Marlene Diet- rich er sambandið milli stríðs og listar skoðað og spurt um tengslin milli þess að vera hermaður og listamaður. Verkið er stærsta verkefnið sem dansarinn og danshöfundurinn Erna Ómarsdóttir hefur fengist við til þessa, en Walkabout Stalk, DanseM og IBM 1401 (a users manual) eru meðal annarra dansverka hennar. Við erum öll Marlene Dietrich er sam- starfsverkefni Íslenska dansflokksins og Maska Productions í Ljubljana í Slóveníu, í samvinnu við Listahátíð í Reykjavík. Verkið hlaut styrk frá Evr- ópusambandinu sem hluti af verkefninu Trans Dans Europe 2003–2006 og mun flokkurinn sýna verkið minnst í sjö borgum Evrópu á næsta ári. Open Source eftir Helenu Jónsdóttur Frumsýnt í mars 2005 Verkið er unnið upp úr samnefndu verki Helenu sem sigraði í Dansleik- hússamkeppni Íslenska dansflokksins og Leikfélags Reykjavíkur vorið 2003. Sýningin sameinar marga dansstíla, margbrotna hljóðmynd og myndbönd, auk þess sem búningarnir skapa mikið sjónarspil. Nafn verksins vísar til þeirrar ótæm- andi uppsprettu hugmynda og hefða sem listamenn og allir skapandi einstak- lingar hafa tiltækar í nútímanum, ekki síst eftir tilkomu internetsins og alþjóð- legrar miðlunar. Í Open Source er þess freistað að leiða saman í einu verki það hugmyndasafn sem við lifum í og njót- um í daglegu lífi okkar. Danshátíð á Listahátíð Frumsýnd í maí 2005 Íslenski dansflokkurinn mun í sam- vinnu við Listahátíð í Reykjavík bjóða upp á sýningar þriggja dansflokka frá Finnlandi, Tékklandi og Frakklandi næstkomandi vor. Sýningarnar eru hluti af verkefninu Trans Dans 2003–2006. Finnski dansflokkurinn Nomadi pro- ductions mun sýna verk eftir Arja Raatikainen og Alpo Aaltokoski, en flokkurinn er einn þekktasti nútíma- dansflokkur Finnlands. Snerting, innri hugsanir og minningar er kjarni verka þeirra. Dansverkin frá Tékklandi eru tvö, annað samið af Karine Pointes og heitir Mi non sabir þar sem fjórir einstakling- ar eru á sama svæðinu án þess þó að vera saman. Night Moth heitir hitt verkið, en það er unnið af Petra Haue- rova og er þar um sólóverk að ræða. Verkið sem kemur frá Frakklandi er unnið af William Petit og dansað af dansflokki hans, Rialto Fabrik Nomade. Rialto Fabrik Nomade er framsækinn dansleikhúsflokkur sem leggur áherslu á nýja sköpun, tengingu ólíkra list- greina og gagnvirk samskipti við áhorf- endur. Verk á dagskrá Íslenska dans- flokksins í vetur www.id.is UM ÞESSAR mundir eru fjórir dansarar Íslenska dansflokksins staddir í Slóv- eníu ásamt Ernu Ómars- dóttur og fleiri þátttakend- um við æfingar á verkinu Við erum öll Marlene Diet- rich. „Við finnum fyrir miklum áhuga víða um heim á þessu samstarfi okkar og Ernu Ómars- dóttur, sem er af mörgum talin ein af efnileg- ustu og framsæknustu listamönnum innan nú- tímadansgeirans í Evrópu,“ segir Katrín Hall. Síðar í þessum mánuði er fyrirhuguð svoköll- uð „work-in-progress“-sýning á verki Ernu og segist Katrín, sem verður viðstödd sýninguna, hlakka mikið til að sjá fyrstu drög að henni. Marlene æfð í Slóveníu Erna Ómarsdóttir Verkið Screensaver eftir ísraelska danshöfundinn Rami Be’er verður frumsýnt 22. október næstkomandi. Katrín Hall Dans | Íslensk og erlend verk á efnisskrá Íslenska dansflokksins í vetur Sterk tengsl við útlönd inn á Nýja svið hússins. Dansararnir eru með augnlinsur og vafra leitandi um rýmið með star- andi augum. Þegar inn á svið er komið liðast dansararnir þrír um undir vatnsnið og minntu á kafla á svifdýr eða fiska í vatni. Eftir eins konar inngang að verkinu í anddyri og stutta dans- viðkynningu á sviðinu lauk dansverkinu fyr- irvaralaust. Verkið var rétt að hefja flugið þegar því var lent. Hugmyndin að byrja í anddyri og færa verkið inn á svið gerði sig ágætlega en auð- velt var að missa sjónir af dansinum í mann- mergðinni. Hreyfingarnar á sviðinu voru nota- legar áhorfs og endirinn þar sem sjónarspilinu var snúið við hitti í mark. Engu að síður finnst gagnrýnanda kjarnann vanta í verkið og hefði vilja sjá það blómstra mun lengur. The Concept of Beauty Inntakið í dansverki Nadiu Banine er brengl- uð fegurðardýrkun samfélagsins og þá sér í lagi á stúlkum og konum; „ekki vera mennsk vertu fullkomin“. Höfundur tekur fyrir ósanngjarnar útlitskröfur sem gerðar eru til kvenna. Verkið samanstendur af fimm dönsurum, textaskjá ásamt lesnum texta. Þetta þrennt myndaði sannfærandi heild. Dansinn sem var hógvær og ekki í forgrunni var í góðu jafnvægi við sýndan og lesinn textann. Texti Elísabetar Jökulsdóttur var sláandi. Í honum birtast staðreyndir og hann deilir á þær ótrúlegu útlitskröfur sem dynja á konum. Í verkinu er spáð í undirrótina á þessum kröfum: „Konur eiga að hafa sjálfar sig á heil- ÞAÐ er mikil gróska í nútímadansi á Íslandi og telst athyglisvert að á ári hverju er haldin heil danshátíð tileinkuð nútímadansi í borg ekki stærri en Reykjavík. Á hátíðinni hafa verið frumflutt sjö dansverk eftir jafnmarga höfunda ásamt einu gestaverki frá Svíþjóð. Aðsókn áhorfenda ber vitni um áhuga á listinni og hafa þær sýningar sem ritari hefur séð verið fluttar fyrir fullu húsi. Dansverk Ástrósar Gunnarsdóttur hefst í anddyri Borgarleikhússins og leiðir áhorfendur anum þá fá þær ekki áhuga á pólitík eða stjórn- unarstöðum.“ Höfundur veltir upp spurningum um kynlífið: Batnar það með stærri brjóstum? Verkið var vel ígrundað og endir þess sagði meira en mörg orð. Dansverkið færir nær þær bjöguðu hugmyndir sem ríkja í garð kvenna. Það er stígandi í ádeilunni sem styrkir dans- verkið. Where do we go from this Verk Peters fjallar á gamansaman hátt um erfiðleika sem upp geta komið þegar dansverk er búið til. Það hefst á fallegum dansi tveggja bleikklæddra kvenna við klaufalega spilaða tón- list/hljóð hljómborðsleikara og trommara. Klaufaskapurinn ágerist og úr verður samræða og ágreiningur milli tónsmiða og dansara. Tón- skáldin stíga sporin eins og þau vilja hafa þau og dansararnir spila eftir eigin eyra, öll í leit að rétta listaverkinu. Áhorfendur skemmtu sér konunglega yfir fíflaganginum og sögðu að- spurðir sína skoðun á verkinu. Ritara fannst verkið fara vel að stað en fljótlega leysast upp í vitleysisgang. Þetta heimildarverk um erfiðleik- ana í sköpuninni var sniðugt á köflum en rétt eins og leikarinn sem á æfingartímanum mis- mælir sig og gleymir textanum sínum, vekur engan sérstakan áhuga. Þessi þrjú dansverk voru ólík og sýna glöggt þá breidd sem felst í nútímadansi. Í verkunum fær margbreytileiki listarinnar notið sín. Ólík andlit nútímadansins LISTDANS Reykjavík Dance Festival Nútímadanshátíð 2004 3.–11. september. Án titils eftir Ástrós Gunnarsdóttur. Lýsing: Kári Gíslason. Dansarar: Aðalheiður Halldórsdóttir, Guðbjörg Halla Arnalds, Ástrós Gunnarsdóttir. The Concept of Beauty Eftir Nadiu Banine. Tónlist: Deep Purple. Lýsing: Kári Gíslason. Texti: El- ísabet Jökulsdóttir. Dansarar: Lovísa Ósk Gunn- arsdóttir, Aðalheiður Halldórsdóttir, Björn Ingi Hilm- arsson, Steve Lorenz og Hjördís Lilja Örnólfsdóttir. Where do we go from this EFTIR PETER ANDERSON Tónlist: Davíð Þór Jónsson, Helgi Helgason. Lýsing: Kári Gíslason. Dansarar: Aðalheiður Halldórsdóttir. Lovísa Ósk Gunnarsdóttir. Lilja Ívarsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.