Morgunblaðið - 08.09.2004, Page 34

Morgunblaðið - 08.09.2004, Page 34
MENNING 34 MIÐVIKUDAGUR 8. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ Áskriftarkort á 6 sýnigar Aðeins kr. 10.700 Stóra svið Nýja svið og Litla svið LÍNA LANGSOKKUR e. Astrid Lindgren Su 12/9 kl 14, Su 19/9 kl 14, Su 26/9 kl 14 CHICAGO e. Kender, Ebb og Fosse Grímuverðlaunin: Vinsælasta sýning ársins! Lau 18/9 kl 20, Lau 25/9 kl 20, Lau 2/10 kl 20, Lau 9/10 kl 20 THE CONCEPT OF BEAUTY e. Nadiu Banine WHERE DO WE GO FROM THIS e. Peter Anderson Fi 9/9 kl 20 NÚTÍMADANSHÁTÍÐ 3/9 - 11/9 MANWOMAN e. Ólöfu Ingólfsdóttur & Ismo-Pekka Heikenheimo Fö 10/9 kl 20 Lau 11/9 kl 20 Opnunartími miðasölu: Mánudaga og þriðjudaga: 10:00-18:00 Mið-, fim- og föstudaga: 10:00-20:00 Laugar- og sunnudaga: 12:00-20:00 Miðasölusími 568 8000 - miðasala á netinu: www.borgarleikhus.is PARIS AT NIGHT e. Jacques Prévert í samstarfi við Á SENUNNI Fi 9/9 kl 20, Fö 10/9 kl 20, Lau 11/9 kl 20, fi 16/9 kl 20, fö 17/9 kl 20 Takmarkaður sýningafjöldi KVÆÐAMANNAFÉLAGIÐ IÐUNN SIGURRÓS ofl. Afmælis- og útgáfuhátíð Mi 15/9 kl 20 - Aðeins einir tónleikar ÓSÓTTAR PANTANIR SELDAR DAGLEGA Lau . 11 .09 20 .00 ÖRFÁ SÆTI Sun . 12 .09 20 .00 NOKKUR SÆTI F im . 16 .09 20 .00 NOKKUR SÆTI Lau . 18 .09 20 .00 NOKKUR SÆTI Fös . 24.09 20 .00 AKUREYRI „Se iðand i og sexý sýn ing sem d regur f ram hina r unda r l egustu kennd i r . “ - Va l d ís Gunna rsdó t t i r , útva rpskona - Frumsýning fös. 8. okt. kl. 20 Sun. 10. okt. kl. 20 • fös. 15. okt. kl. 20 • sun. 17. okt. kl. 20 ATH. Allar sýningar hefjast kl. 20 Miðasala á Netinu: www.opera.is Símasala kl. 10-18 virka daga: 511 4200 Rakarinn morðóði Óperutryllir eftir Stephen Sondheim MIÐASALAN er opin á fame.is, á þjónustuborði Smáralindar og í síma 528 8008 JÓNSI SVEPPI Fim. 9. sept. kl. 19.30 Fös. 10. sept. kl. 19:30 Sun. 12. sept. kl. 19:30 SÍÐUSTU SÝNINGAR: ATH. 2 AUKASÝN. Vegna gríðarlegrar eftirspurnar Fös. 17. sept. kl. 19.30 Lau. 18. sept. kl. 19.30 Vegna mikils álags á símkerfinu viljum við benda á að hægt er panta miða með tölvupósti í miðasala@smaralind.is eða inn á www.fame.is. Erich Wolfgang Korngold ::: Robin Hood Jón Þórarinsson ::: Þrír mansöngvar Maury Yeston ::: Kyndarasöngurinn úr Titanic Marlcolm Arnold ::: Tam O´Shanter, op. 51 Jón Leifs ::: Björn að baki Kára úr Sögusinfóníunni Kurt Weill ::: Mackie Messer úr Túskildingsóperunni Stephen Sondheim ::: Broadway Baby úr Follies Richard Strauss ::: Till Eulenspiegels lustige Streiche HÁSKÓLABÍÓI, FIMMTUDAGINN 9. SEPTEMBER KL. 19.30 Hljómsveitarstjóri ::: Rumon Gamba Einsöngvari ::: Maríus Sverrisson Háskólabíó vi› Hagatorg I Sími 545 2500 I sinfonia@sinfonia.is I www.sinfonia.is Glæsileg byrjun Starfsár Sinfóníuhljómsveitarinnar hefst á fimmtudaginn með glæsi- legum tónleikum þar sem kynnt er til sögunnar ný íslensk söngstjarna á hraðri uppleið: Maríus Sverrisson. Maríus hefur gert garðinn frægan í Þýskalandi undanfarið þar sem hann hefur m.a. verið í lykilhlutverki í verðlaunasöngleiknum Titanic, sem gekk fyrir fullu húsi í 10 mánuði samfleytt. Tryggðu þér miða og góða byrjun á menningarvetrinum! 4 600 200 leikfelag.is Miðasölusími BRIM - e. Jón Atla Jónasson gestasýning Lau 11/9 kl. 18 NOKKUR SÆTI LAUS Lau 11/9 kl. 21 ÖRFÁ SÆTI LAUS Sun 12/9 kl. 20 NOKKUR SÆTI SVIK e. Harold Pinter frumsýn. fös. 1/10 kl. 20 UPPSELT 2. sýn. sun. 3/10 kl. 20 ÖRFÁ SÆTI 3. sýn. fim. 7/10 kl. 20 ÖRFÁ SÆTI 4. sýn. fös. 8/10 kl. 20 ÖRFÁ SÆTI HÁRIÐ - sýnt í Íþróttahöllinni fös 24/9 kl. 20 - sala í fullum gangi HÁRIÐ „tryggðu þér miða“ Stutt- og heimildamyndahátíðinNordisk Panorama verður haldin hér á landi dagana 24.–28. september og lítur dagskrá hátíð- arinnar afar kræsilega út. Hæst ber keppnina sjálfa en bæði verða sýndar norrænar stutt- og heim- ildamyndir sem koma til með að keppa um verðlaun hátíðarinnar; besta norræna stuttmyndin og besta norræna heimildarmyndin. Í keppninni taka þátt 41 stuttmynd og 23 heimildamyndir sem valdar voru af norrænni dómnefnd úr 450 sem sendar voru til Nordisk Panorama í ár. Eru þar á meðal myndir sem þegar hafa unnið til verðlauna heima fyrir og á al- þjóðlegum hátíðum. Að mati að- standenda hátíðarinnar eru veru- lega sterkar myndir í keppni enda var þrautin þyngri fyrir dóm- nefnd að velja úr innsendum myndum. Því má búast við háum standard og harðri keppni um sigurlaunin sem eru hálf milljón króna í hvorum flokki. Sérstakan gaum ber að gefa ís- lensku myndunum sem komust í keppni að þessu sinni. Þær eru stuttmyndirnar Peningar eftir Sævar Sigurðsson, Síðustu orð Hreggviðs eftir Grím Há- konarson, Vín hússins eftir Örn Marínó Arnarsson og Þorkel S. Harðarson – sem þegar hefur unnið til verðlauna í stutt- myndakeppni Grandrokk, Síðasti bærinn eftir Rúnar Rúnarsson og Who’s Bardi? eftir Ragnar Braga- son en Ragnar á enn fremur einu íslensku heimildamyndina sem keppir á Nordisk Panorama, Love is in the Air. Líkurnar á íslensk- um sigri eru því að ósekju meiri í stuttmyndaflokknum enda eru ís- lensku kandídatarnir þar einkar frambærilegar myndir eftir nokkra af efnilegustu kvikmynda- gerðarmönnum landsins um þess- ar mundir.    En það verður heilmargt meiraí boði þessa fjóra daga sem hátíðin stendur yfir en sjálf keppnin. Þannig verða í gangi ýmsar hliðardagskrár, kaupstefna með stutt- og heimildamyndir, fjármögnunarstefna og seminar þar sem margir heimskunnir verða meðal fyrirlesara. Margt áhugaverðra mynda verður í boði á hliðardagskrám hátíðarinnar. Þar verða m.a. boð- ið upp á dagskrá með úrvali ís- lenskra heimildamynda þar sem hæst ber frumsýninguna hér á landi á Reykjavíkurmynd sem Sól- veig Anspach gerði árið 2000. Þar verða einnig sýndar myndirnar Hagamúsin og Hestasaga eftir Þorfinn Guðnason, oghin marg- verðlaunaða Brandon Teena Story eftir Grétu Ólafsdóttur og Susan Musak svo einhverjar séu nefndar. Í dagskránni „Heitar heimild- armyndir“ verða sýndar nokkrar af áhugaverðustu heimild- armyndum síðustu ára í heim- inum, allt margverðlaunaðar myndir; m.a. The Corporation og The Yes Men! sem báðar fjalla um hinn harða heim alþjóðaviðskipta og siðferði sem þar ríkir. The Day I’ll Never Forget er átak- anleg mynd um umskurð kvenna, The Story of the Weeping Camel er saga úr Góbí-eyðimörk Mong- ólíu, Putin’s Mama sem fjallar um konu sem kom fram í Rússlandi 1999 og kvaðst vera móðir Pútíns forseta.    Ólafur Torfason kvikmynda-gagnrýnandi tekur þátt í undirbúningi hátíðarinnar og hef- ur því kynnt sér betur en flestir aðrir þær erlendu myndir sem sýndar verða á hátíðinni. Hann segir sérstaka dagskrá helgaða myndum frá Balkanskaga, alls 16 talsins, einkar áhugaverða. „Þetta er flott nýjung, við höfum ekki séð mikið af Balkanskaga ennþá.“ Af heimildarmyndum í keppni segir hann sérstaklega áhuga- verða The Moment of Truth (Stund sannleikans) frá Noregi, „mynd um konu sem hefur verið með sömu hárgreiðslu frá barns- aldri en reynir að breyta til“. Father to Son (Faðir andspænis syni) er finnsk mynd sem Ólafur telur áhugaverða „en hún fjallar um samskipti feðga, með alvöru og svörtum húmor“. Af stuttmyndum í keppninni telur Ólafur áhugaverðar finnsku myndina Solitude (Einveru). „Stuttmynd þar sem maður á skeri brúkar flaggastafróf.“ Einn- ar mínútna myndin Famlieport- rett (Fjölskylduljósmynd) frá Nor- egi „nýtir formið frábærlega vel“. „Gjennom mine tykke briller (Gegnum þykku gleraugun mín) er stuttmynd eftir Pjotr Sapegin, Rússa sem sest hefur að í Noregi og gert margar alveg stórgóðar ræmur. The Yellow Tag (Guli merkimiðinn), 6 mín. stuttmynd eftir Jan Troell frá Svíþjóð, einn þekktasta leikstjóra Svía um ára- tuga skeið fjallar um andstæð- urnar í reglugerðarverki ESB og hefðbundinnar sveitasælu. Adrift (Á reiki), 9 mín. stuttmynd eftir Inger Lise Hansen, Noregi, afar flott og sérstæð landslags- og veðrunarstúdía frá Svalbarða og Þrándheimi.“ Af myndunum utan keppni nefnir Ólafur sérstaklega tvær myndir; The Corporation (Fyr- irtækið) eftir Joel Bakan, Jennifer Abbot og Mark Achbar, mynd sem „reynir að sálgreina fyrirbærið fyrirtæki eins og persónu og kemst að því að því hættir til sið- blindu“, og The Story of the Weeping Camel, (Sagan af grát- andi kameldýrinu) frá Góbí- eyðimörkinni í Mongólíu eftir heimakonuna Byambasuren Davaa og Ítalann Luigi Falorni. Kvikmyndir í víðsjá ’Að mati aðstandendahátíðarinnar eru veru- lega sterkar myndir í keppni enda var þrautin þyngri fyrir dómnefnd að velja úr innsendum myndum.‘ AF LISTUM eftir Skarphéðin Guðmundsson skarpi@mbl.is Er þetta móðir Pútíns forseta? Svarið fæst e.t.v. á Nordisk Panorama.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.