Morgunblaðið - 08.09.2004, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 08.09.2004, Blaðsíða 36
MENNING 36 MIÐVIKUDAGUR 8. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ „ÓKEI, ef þér finnst hún svona góð segðu mér þá hvað er að gerast í myndinni. Ekkert. Nákvæmlega ekkert.“ Gagnrýnandi heyrði samtal tveggja ungra vinkvenna sem ekki voru á eitt sáttar um ágæti banda- rísku myndarinnar Fyrir sólsetur. Önnur kunni greinilega að meta hana en hinni fannst ekkert gerast. Auðvitað hefur hún rétt fyrir sér upp að vissu marki. Það gerist ekki mikið í myndinni. Ekkert meira og merkilegra en í lífinu sjálfu. En það er einmitt það sem gerir Fyrir sól- setur svo einstaka mynd í hugum okkar sem endrum og sinnum vilj- um fá að sjá smáraunsæi í bíó, eitt- hvað sem gerist í alvöru. Gömul kynni gleymast ei. Þau kynntust fyrir níu árum. Það var sumarið ’94 um borð í lestinni milli Búdapest og Vínar. Hún frönsk, hann bandarískur. Hún Celine, hann Jesse. Þau féllu hvort fyrir öðru og eyddu saman 14 stundum, áttu saman ástarfund til sólarupp- rásar. Þá skildu leiðir með þeim skilaboðum að þau myndu finna hvort annað í Vín, á ákveðnum stað, ákveðinni stund. Hann mætti, hún ekki. Nú, í bókabúð í miðborg Parísar, þar sem hann er að árita skáldsögu sína sem byggist á örstuttu en ör- lagaríku sambandi þeirra, liggja leiðir þeirra saman. Og þau hafa tíma til sólseturs. Þar til hann þarf að ná flugvél aftur heim til Banda- ríkjanna. Eins og forðum smella þau líka saman. Geta talað um allt, eins og sálufélagar. Heimsmálin, listirnar, ástina, fortíð sína og fram- tíð. Þau ræða starf hennar við þró- unaraðstoð í þriðja heiminum. Rit- list hans. Allt ákaflega meðvitað og upplýst. Öruggt. Bæði 32 ára. Hann giftur og á eitt barn. Hún í sam- bandi. Bæði orðin þroskaðri, vitrari og víðsýnni. Bæði vansæl, með stórt tómarúm í hjartanu. Stóra ástin verður ekki umflúin. Fyrir sólsetur er einhver raunsæjasta, sannasta og fyrir vikið ljúfasta ástarsaga sem hægt er að hugsa sér. Ekki vegna þess hversu oft þau kyssast og kela. Ekki út af einhverjum langsóttum rómantískum látalátum, ættuðum úr bíóheimum. Heldur vegna þess að maður trúir því að þetta fólk geti í alvörunni fellt hugi saman annars staðar en á hvíta tjaldinu. Þetta er alvörufólk, með alvörukenndir. Al- vöruvonir og -væntingar. Þau ræða á eðlilegum nótum um eðlilega hluti – jafnvel þótt tilgerðarlegir og full- meðvitaðir verði á köflum. Lykillinn felst í spunanum. Leik- stjórinn Linklater (School of Rock, Dazed & Confused) og leikararnir Hawke og Delphy – sæt og innilega sannfærandi – unnu handritið, sam- tölin, saman og notuðu sín eigin eðl- islægu viðbrögð, sinn eigin reynslu- brunn. Þannig ku víst – sé viljinn fyrir hendi – vera hægt að greina visst uppgjör Hawkes við hans eigið hjónaband við Umu Thurman. Hvort sem það á við rök að styðjast eður ei þá er mjög auðvelt að trúa því, því hér eru allar tilfinningar, öll viðbrögð trúanleg og þar liggur styrkur þessarar bestu myndar Linklater til þessa. Gott dæmi um þennan styrk, þessa næmi Linklat- er, er ægifagurt atriði, þrungið til- finningu, þar sem þau ganga sam- an, Claire og Jesse, upp stigann í íbúð hennar. Þau segja ekkert en um leið allt. Hún ætlar að hleypa honum inn fyrir þröskuldinn. Inn fyrir landamærin. Af hlutlausa svæðinu, strætum Evrópu, á henn- ar. Og þá verður aldrei aftur snúið – eða hvað? Endalokin eru sem fyrr galopin. Óvænt. Gleðileg en um leið ergjandi. Fullkominn endir á nær fullkominni ástarsögu. Á eftir sól- arupprás kemur alltaf sólsetur. Og sólarupprás að nýju. Fyrir sólarlag er eins raunsæ og ástarsögur á hvíta tjaldinu geta orðið. Sönn ást KVIKMYNDIR Háskólabíó – bandarískir indíbíódagar Leikstjóri: Richard Linklater. Handrit: Richard Linklater, Julie Delphy, Ethan Hawke. Aðalhlutverk: Julie Delphy, Ethan Hawke. 80 mín. Bandaríkin 2004. Fyrir sólsetur (Before Sunset)  Skaprhéðinn Guðmundsson Ethan Hawke og Julie Delphy bjuggu til samtölin í Fyrir sólsetur ásamt leikstjóra myndarinnar Richard Linklater. SJÓNVARPSKONAN Barbara Walters, einn af stjórnendum fréttaþáttarins 20/20 á sjónvarps- stöðinni ABC í Bandaríkjunum, hyggst hætta störfum við þáttinn. Walters er 75 ára og þykir ein fremsta fréttakona heims. Und- anfarin 25 ár hefur hún komið að gerð þáttarins 20/20 og hefur á ferlinum meðal annars tekið viðtöl við Fidel Castro árið 1977, Michael Jackson árið 1997 og Monicu Lew- insky árið 1999, en meira en 48 milljónir áhorfenda fylgdust með síðastnefnda viðtalinu í sjónvarps- þættinum. Walters segist þó ekki ætla að hætta störfum í sjónvarpi, hún mun taka nokkur viðtöl á ári fyrir fréttastofu ABC og koma áfram fram í þættinum The View, spjall- þætti sem hún átti frumkvæði að. „Ég vildi hætta á toppnum,“ sagði hún um ákvörðun sína. Barbara Walters hættir í 20/20 Barbara segir bless.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.