Morgunblaðið - 08.09.2004, Qupperneq 37
FÆTUR þýsku fyrirsætunnar
Heidi Klum hafa verið metnir á
litlar 130 milljónir króna. Upp-
boðshaldarinn Phillips De
Pury & Company var feng-
inn til að verðleggja fætur
fyrir raftækjaframleiðand-
ann Braun, sem mun
tryggja fæturna á meðan
Klum auglýsir nýja háreyð-
ingarframleiðslu fyrirtækins.
Lengd, lögun, fágæti og aug-
lýsingagildi fótleggja Klum
réð verðmatinu.
„Eftir að hafa verðlagt dauða
hluti í 15 ár þá var það kærkomin
tilbreyting að verðmeta eitthvað
lifandi – og ég dáist sérstaklega að
útlínum þessa sköpunarverks,“ seg-
ir tryggingasérfræðingurinn John
Souglides. Fæturnir á Kum eru
ekki einu líkamshlutarnir sem
tryggðir eru upp í topp.
Gjarnan eru fætur knattspyrnu-
stjarna tryggðir; þannig eru fót-
leggir Davids Beckhams tryggðir
fyrir rúma 5 milljarða króna á með-
an rokkarinn Bruce Springsteen
fengi 435 milljónir króna ef hann
missti röddina. Þá gerði leikkonan
og söngkonan Jennifer Lopez alla
agndofa er hún lýsti yfir að hún fær
tæpa 2 milljarða króna ef afturendi
hennar hlýtur skaða.
Rándýrir
fótleggir á
Klum
blessaðri.
Eins gott að
hún misstígi
sig ekki.
MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. SEPTEMBER 2004 37
Ég kem
eftir 2 daga
Girl Next Door
Sjóðheit og sexí
gamanmynd um strák
sem fórnar öllu fyrir
ástina.
Frumsýnd 10. september í
Smárabíói og Laugarásbíói
- SPENNANDI VALKOSTUR
Stangarhyl 3, 110 Reykjavík, sími 591 9000
www.terranova.is
Akureyri, sími 461 1099
Súpersól til
Portúgal
21. september
frá kr. 19.990
Nú getur þú tryggt þér síðustu sætin í sólina til Portúgal í september
í vikuferð á hreint ótrúlegum kjörum. Í Portúgal getur þú notið lífsins
við frábærar aðstæður og þú nýtur
traustrar þjónustu fararstjóra
Terra Nova allan tímann.
Þú bókar ferðina og 3 dögum
fyrir brottför færðu að vita hvar
þú gistir í fríinu þínu.
Verð kr. 39.890 á mann
M.v. 2 saman í gistingu í vikuferð. Innifalið
flug, gisting og flugvallarskattar.
Ferðir til og frá flugvelli kr. 1.800 á mann.
Verð kr. 29.995 á mann
M.v. 2 fullorðna og 2 börn í vikuferð.
Innifalið flug, gisting og flugvallarskattar.
Ferðir til og frá flugvelli kr. 1.800 á mann.
Verð kr. 19.990 á mann
Flug og flugvallarskattar.
Flugsæti kr. 32.600/2 = kr. 16.300.
Skattar kr. 3.690.
MANNI fannst það nú ekki merki-
legar fréttir þegar maður heyrði af
útgáfu þessarar plötu. Prodigy
sneri aftur fyrir tveimur árum með
slöppu lagi („Baby’s Got a Temp-
er“) og maður klóraði sér því í
hausnum. Til hvers? En … þegar
litið er til fyrri
platna Prodigy,
einkum hinna stór-
góðu Music for the
Jilted Generation
(’95) og The Fat of
the Land (’97), þá
leyfir maður sér auðvitað að vona.
En vonin sú fór fyrir lítið. Hér er
að finna kunnuglega takta, kunn-
uglegar tilraunir til að koma stuð-
inu í gang en flestallt er fremur
flatt („Wake Up Call“ og „Med-
usa’s Path“ minna þó á glæsta for-
tíð).
Að fá fræga gestasöngvara til
liðs við sig að hætti UNKLE og
Chemical Brothers gengur heldur
ekki upp. Liam Gallageher og Jul-
iette Lewis gera ekkert fyrir plöt-
una.
Svo má ekki gleyma að þeir
Maxim og Keith Flint eru fjarri
góðu gamni og þó að Liam Howlett
sjái um alla tónlist þá áttu þeir
tveir (og dansarinn Leeroy) mestan
þátt í að sveipa Prodigy ein-
hverjum sjarma, eitthvað sem er
víðsfjarri hér. Liam okkar Howlett
virðist ekki hafa mikið til málanna
að leggja í heimi samtíma raf-
tónlistar.
Þetta er eins og þegar Stone
Roses sneri aftur með Second
Coming árið 1994, fimm árum eftir
að sveitin átti breska nýbylgju-
rokkið. Sú plata er skítsæmileg svo
sem en þeirra tími var liðinn. Það
sama er uppi á teningnum hér.
Erlendar plötur
The Prodigy – Always Out-
numbered, Never Outgunned
Arnar Eggert Thoroddsen
Púðurskot
að mestu
Fólk í fréttum | Fræga fólkið hefur dýra líkamshluta
Fótleggir tryggðir fyrir
130 milljónir króna
Reuters
LEIKSTJÓRINN Michael Moore
vill að nýjasta mynd sín, Fahr-
enheit 9/11, keppi um Ósk-
arsverðlaunin í flokki bestu
mynda, en ekki í flokki heimild-
armynda, á næsta ári, að því er
greint er frá í frétt BBC. Myndin,
sem er hörð ádeila á stefnu
George W. Bush, Bandaríkja-
forseta, er orðin sú tekjuhæsta í
sögu heimildarmynda.
Moore sagðist vonast til þess að
myndin yrði sýnd í sjónvarpi fyrir
forsetakosningarnar vestra í nóv-
ember, svo „hún næði til eins
margra og hægt væri“.
Samkvæmt reglum um Ósk-
arsverðlaunin, mætti myndin ekki
keppa um titilinn besta heimild-
armyndin, yrði hún sýnd í sjón-
varpi, en ekki væri útilokað að hún
keppti um að verða valin besta
myndin.
Moore sagði að bestu „Ósk-
arsverðlaun“ sem hann gæti hlotið
væru að Bush tapaði í kosning-
Moore vill Fahrenheit
í sjónvarp sem fyrst
Reuters
Michael Moore var meinaður að-
gangur að flokksþingi Repúblík-
ana í New York um daginn.
unum og bætti við að hann hefði
„ekki gefið upp von“ um að reyna
að fá myndina sýnda í sjónvarpi
fyrir kosningarnar.
Sagðist hann ekki viss um að
hægt væri að fá myndina sýnda í
sjónvarpi en sagðist vonast til að
það fengist fram. Þess vegna hefði
hann ákveðið að leggja myndina
ekki fram í flokki heimildamynda
fyrir Óskarsverðlaunin.
Lítur ekki á
myndina sem
heimildarmynd