Morgunblaðið - 08.09.2004, Side 38
38 MIÐVIKUDAGUR 8. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Mjáumst
í bíó!
Uppáhalds köttur allrar
fjölskyldunnar er
kominn í bíó!
Sjáið frábæra
gamanmynd
um frægasta, latasta
og feitasta kött í heimi!
Sýnd kl. 6. ísl tal.Sýnd kl. 5.45.
Nicole Kidman
Sýnd kl. 8 og 10.
Sýnd kl. 8.
Sýnd kl. 10.15.
Ný íslensk mynd gerð eftir
samnefndri metsölubók,
í leikstjórn
Silju Hauksdóttur,
með Álfrúnu Helgu
Örnólfsdóttur í
titilhlutverkinu.
Stórskemmtileg nútímasaga
úr Reykjavík sem tekur á
stöðu ungs fólks í
íslenskum samtíma með
húmorinn að vopni.
óvenjulega venjuleg stelpa
Miðasala opnar kl. 15.30
Sýnd kl. 8 og 10.40. B.i. 14 ára.
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
Sýnd kl. 4 og 6. ísl tal.
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. Enskt tal.
Yfir 25.000 gestir!
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. Sýnd kl. 5.20, 8 og 10.40.
NOTEBOOK
NOTEBOOK
NOTEBOOK
HJ MBL
"Fjörugt bíó"
Þ.Þ. FBL
Kem í bíó 10 sept
kl. 4, 6, 8 og 10.
Ný íslensk mynd gerð eftir samnefndri metsölubók,
í leikstjórn Silju Hauksdóttur,
með Álfrúnu Helgu Örnólfsdóttur í titilhlutverkinu.
Stórskemmtileg nútímasaga úr Reykjavík sem tekur
á stöðu ungs fólks í íslenskum samtíma með
húmorinn að vopni.
óvenjulega venjuleg stelpa
Mjáumst
í bíó!
Óvenjuleg danssýning verð-ur í Laugardalshöllinnimeð Pilobolus-dansleik-húsi í mars á næsta ári.
Þetta er mögnuð sýning sem manns-
augað á bágt með að trúa, segir í til-
kynningu. „Við erum ótrúlega stoltir
og ánægðri að hafa náð að koma
þeim til landsins því þau eru bókuð
vel út árið 2006. Þau ferðast alveg
stanslaust um heiminn en það eru
sex dansarar í hópnum, tvær konur
og fjórir karlar,“ segir Ísleifur Þór-
hallsson skipuleggjandi.
„Við erum alltaf með augun opin
fyrir alls konar atburðum sem eru
spennandi,“ segir Ísleifur. „Á árinu
höfum við boðið uppá tónleika með
Sugababes og Lou Reed sem heppn-
uðust frábærlega og erum ekki í vafa
um að þessi gerólíki viðburður eigi
eftir að fá álíka góðar viðtökur.“
Höfðar til breiðs hóps
„Þetta er í senn list og hámenning.
Sýning sem er samt að höfða til mjög
breiðs hóps. Hún er fyrir allan aldur
og bæði kyn. Dansararnir eru frægir
fyrir það að ná upp góðri stemningu í
salnum,“ segir hann en ekki er óal-
gengt að áhorfendur láta í sér heyra
á sýningum Pilobolus; fagnaðarlæti
brjótast oft út með tilheyrandi
hlátrasköllum og klappi, þannig að
stundum er eins og um rokktónleika
sé að ræða.
„Þú trúir ekki eigin augum og
hvernig þau fara að þessu. Þú skilur
ekki hvernig einn maður getur verið
með fjóra á bak-
inu og hlaupið
um sviðið,“ segir
hann en þessi
lýsing ber vitni
um hversu
óvenjulegur
dansflokkur
þetta er.
Pilobolus kemur til Íslands með
lítinn her tæknimanna og nokkur
tonn af græjum. Ísleifur segir að
miklar kröfur séu gerðar til alls að-
búnaðar í Höllinni, hvort sem um er
að ræða aðstöðu dansaranna eða
áhorfenda.
Tvö þúsund númeruð sæti í boði
Frágangur á sviði skal til að
mynda fullnægja ýtrustu kröfum og
tryggt verður að allir áhorfendur í
Höllinni sjái allt sem fram fer jafn-
vel. Af þeim sökum verða aðeins um
2.000 númeruð sæti í boði þegar
kemur að miðasölu.
Pilobolus er sérstök danssýning
þar sem dans, fim-
leikar, list og vísindi
renna saman í eitt.
„Eitt helsta ein-
kenni þeirra er að
tengja saman lík-
ama sína og nota
þannig lögmál
eðlisfræðinnar
til framkvæma
eitthvað sem fólki
finnst að eigi að
vera algjörlega
ómögulegt og
hefur aldrei séð
áður. Dans-
ararnir virðast vaxa hver
úr öðrum, stafla sér upp og
mynda lifandi listaverk,“ segir í
tilkynningu en list og skemmtun eru
sögð sameinast í sýningu sem er til
skiptis draugaleg, erótísk og fyndin,
en alltaf ótrúleg.
Tónlist er mikilvægur þáttur sýn-
ingarinnar. Pilobolus hefur í gegn-
um tíðina fengið aðila á borð við
Brian Eno og David Byrne til
samstarfs við sig og áhorfendur
mega búast við því að heyra tónlist
frá sveitum eins og Primus, Radio-
head og Squarepusher.
Varð til fyrir slysni
Dansleikhúsið hefur starfað í rúm-
lega þrjá áratugi og hefur ferðast
um allan heim og hlotið hvarvetna lof
gagnrýnenda og áhorfenda. Pilobol-
us varð til fyrir hálfgerða slysni árið
1971 þegar nokkrir nemendur í
Dartmouth-
háskóla í
Bandaríkj-
unum ákváðu
að skella sér á
eina dans-
námskeiðið
sem var í boði.
Kennarinn Alison Chase var þá 24
ára gömul og segir að ekkert hafi
gengið að kenna þessu fólki að
dansa. „Þetta var hörmung. Þannig
að ég datt niður á aðra lausn, að
kenna þeim að búa til dans,“ segir
Chase.
„Þetta var eins og að gefa okkur
málningu og pensla og sjá hvað ger-
ist,“ er haft eftir Robby Barnett,
sem var í upphaflega hópnum. „Við
fengum hráefni og fórum að leika
okkur. Það vildi bara svo til að hrá-
efnið var okkar eigin líkamar.“
Upphófst þá ævintýrið. Nemend-
urnir lærðu að sameina líkama,
klifra hver yfir annan, hoppa, sveifla
sér, fljúga, lyfta og fleygja hver öðr-
um út um allt. Þeir skýrðu þennan
dans Pilobolus. Nemendasýning var
tekin upp á myndband og í kjölfarið
bauðst þeim að halda sýningu í New
York. Sú sýning fékk afbragðsdóma
í New York Times og vakti athygli
Charles Reinhart, yfirmanns einnar
virtustu danshátíðar heims, Americ-
an Dance Festival. Síðan þá hefur
Pilobolus vakið enn meiri athygli og
er skemmst að minnast ítarlegrar
umfjöllunar bandaríska fréttaskýr-
ingaþáttarins 60 Minutes um hópinn.
Stofnendur Pilobolus eru nú orðn-
ir listrænir stjórnendur og ný kyn-
slóð dansara hefur verið þjálfuð upp.
Aðeins sex manneskjur í heiminum
eru nú fullfærir Pilobolus-dansarar
og eins og áður sagði verða þeir allir
á sviði Laugardalshallarinnar í
mars.
www.pilobolus.com
www.event.is
ingarun@mbl.is
’Dansararnir virðastvaxa hver úr öðrum,
stafla sér upp og mynda
lifandi listaverk.‘
Trúir ekki
eigin augum
Dans | Pilobolus-dansleikhús í Laugardalshöllinni 10. mars 2005