Morgunblaðið - 08.09.2004, Qupperneq 40

Morgunblaðið - 08.09.2004, Qupperneq 40
ÁHUGAVERÐASTA myndin sem gefin er út á myndbandi og mynd- diski í vikunni – að undanskilinni hinni margumtöluðu Píslasögu Krists – kemur aldrei þessu vant frá Kóreu. Myndin heitir Boksuneun naui geot á frummálinu, Sympathy for Mr. Ven- geance á ensku en á íslensku mætti útfæra nafn hennar Hefndarþorsti. Það er fremsti leikstjóri S-Kóreu í dag, Chan-wook Park, sem gerði myndina en hann er tvímælalaust einn athyglisverðasti leikstjóri sem komið hefur frá Asíu í langan tíma. Einhver mesti aðdáandi Park er eng- inn annar en Quentin Tarantino og hefur Tarantino viðurkennt fúslega að hafa fengið heilmikið að láni frá Park í gegnum tíðina. Þeir eiga líka fjölmargt sameiginlegt sem kvik- myndagerðarmenn, fást gjarnan báð- ir við hefndina og ofbeldi, sem þeir nálgast á listrænni hátt en flestir aðr- ir. Útkoman, sérstaklega hjá Park, verður því kannski best lýst sem ein- hvers konar yfirþyrmandi wagner- ískri hasarmyndaupplifun. Það kem- ur hvað best í ljós í nýjustu mynd Parks Old Boy, sem fékk Grand Prix verðlaunin í Cannes og var í sérstöku uppáhaldi hjá dómnefndarformann- inum Tarantino – og undirrituðum. Hefndarþorsta gerði hann þar á undan. Er frá 2002 og hefur ekki fengið síðri dóma en Old Boy. Hún fjallar um daufblindan mann sem upplifir miklar hörmungar og leitar hefndar. Myndin þykir í meira lagi ljót og ógeðfelld líkt og aðrar myndir Park. Hún er því sannarlega ekki allra. Þá er alltaf Píslarsagan – eða kannski ekki … 11:14 er spennumynd með léttu ívafi með Hillary Swank í aðal- hlutverki sem fékk Óskarsverðlaun fyrir Boys Don’t Cry, Colin Hanks, syni Tom Hanks og Rachel Leigh Co- ok og Henry Thomas, sem lék Elliot á sínum tíma í E.T. Bring it On Again er framhald klappstýrusmellsins Bring it On Myndir vikunnar | Mynd eftir uppáhald Tarantinos Kóreskur hefndarþorsti Hefndarþorsti er forvitnileg mynd fyrir alla sem spenntir eru fyrir hasarmyndum og asískri kvik- myndagerð.                                                                                !" #  $%  &'    ( &# & ") * &+&,  #"-   &# .& /! 0 1  & " 23 * 45 40 MIÐVIKUDAGUR 8. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ ÁLFABAKKI Sýnd kl. 5.40, 8, og 10.20. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 10.20. b.i. 12 ára ÁLFABAKKI Sýnd kl. 4 Ísl tal. ÁLFABAKKI kl. 8 B.i 14 ára. KRINGLAN 10. B.i 14 ára. Þeir hefðu átt að láta hann í friði. EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP KL. 8 OG 10.20. Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. B.i. 14 ára. S.V. Mbl.  HP. Kvikmyndir.com S.V. Mbl.  HP. Kvikmyndir.com ÁLFABAKKI Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.10. b.i. 14 ára Kemur steiktasta grínmynd ársins SÝNIÐ ALDREI SLÆMA LITINN ÞVÍ ÞAÐ VEKUR ATHYGLI ÞEIRRA. I I I I Í I I .  G.E. Ísland í bítið/Stöð 2  Kvikmyndir.com S.K., Skonrokk  Ó.H.T Rás 3.  Ó.H.T Rás 3.  STÓRSKEMMTILEG Ó.H.T Rás 2  O.O.H. DV Sýnd kl. 10. B.i. 14 ára. Sýnd kl. 8. Sýnd kl. 10. Sýnd kl. 8. Sýnd kl. 5.40.  S.V. Mbl                                                                                                !  "  #  # $   %  &  $ #     ' "         (()* +), -). /)+ /)0 1)- 1)* 1)( 1)( *), 0*)0 ,.) 0)+ /)+ -*)0 1)- --)+ /)0 1)( (1*). Bring it on Again IMDB.com 3.7/10 The Passion of Christ  (H.J.) Sympathy For Mr Vengeance The Guardian 6/10 BBC  Twisted  (S.V.) Win A Date With Ted Hamilton  (S.V.) 11:14 IMDB.com 7.2/10 Útgáfa vikunnar „MENN eru auðvitað ofsakátir með að The Bourne Supremacy heldur toppsætinu aðra vikuna í röð. Fyrir utan það að hafa tekið inn yfir 14 þús- und manns á 10 dögum meðan fyrri myndin (The Bourne Identity) tók rúmlega 14 þúsund á 2 mánuðum,“ segir Christof Wehmeier hjá Sambíó- unum um bíóaðsóknina um síðustu helgi hérlendis en bandaríska spennumyndin Yfirburðir Bourne heldur áfram að bera nafn með rentu og var mest sótta mynd helgarinnar. Næstvinsælust var bandaríska gríndellan Harold og Kumar fara á Hvíta kastala. „Hún kom okkur skemmtilega á óvart. Þessi steikta mynd á líka nóg eftir.“ Þá var íslenska myndin Dís frum- sýnd um helgina og sáu hana um 2 þúsund manns. Myndin hefur fengið fínar viðtökur gagnrýnenda og spurst vel út meðal almennings. Má því búast við að hún eigi eftir að þrauka lengi og jafnvel vinna á í að- sókn eftir því sem vikurnar líða en það hefur gjarnan verið tilfellið með íslenskar myndir – að þær byrji hægt og þeim vaxi síðan ásmegin. Bandarísku indíbíódagarnir hafa staðið yfir í Háskólabíói á aðra viku og hafa gengið afar vel. „Við erum hæstánægðir með gengi þeirra og hafa þegar um 7.500 manns séð myndir hátíðarinnar. Nú fer líka hver að verða síðastur að sjá þessar mynd- ir því hátíðinni lýkur formlega á morgun.“ Christof segist þó búast við að vinsælustu myndir hátíðarinnar verði sýndar eitthvað áfram. Ein þeirra er hin umdeilda Ken Park en hún hóf göngu sína stuttu fyrir helgi og var uppselt á allar sýningar helg- arinnar en ekki má sýna myndina nema á allra seinustu sýningum hvers sýningardags. Bíóaðsókn | Bíógestir völdu spennu, grín og íslenskt um helgina Bourne, borgarabjálf- ar og íslenska Dísin Dísir tvær – sögupersónan Dís og Vigdís Finnbogadóttir. skarpi@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.