Morgunblaðið - 08.09.2004, Side 41

Morgunblaðið - 08.09.2004, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. SEPTEMBER 2004 41 H rin gb ro t Fyrir tuttugu árum komþriðja plata ísfirsku rokk-sveitarinnar Grafík, Get égtekið cjéns, út. Plöturnar á undan, Út í kuldann (’81) og Sýn (’83) þóttu í tormeltara lagi þó að ótvíræðir hæfileikar skinu þar í gegn. Á Get ég tekið cjéns small hins vegar allt saman, ekki síst vegna til- komu ungs og einkar sjarmerandi söngvara að nafni Helgi Björnsson. Á plötunni er m.a. að finna lögin „Þúsund sinnum segðu já“, „16“ og „Húsið og ég (Mér finnst rigningin góð)“, lög sem áttu eftir að njóta óhemju vinsælda og lifa þau góðu lífi enn þann dag í dag. Loksins endurútgefin Fyrir stuttu var platan endur- útgefin af R&R Music, útgáfufyr- irtæki Rafns heitins Jónssonar, sem var trymbill Grafíkur alla tíð. Platan var endurhljómjöfnuð af Bjarna Braga í Írak af tilefninu. Vegna þessa ætlar endurreist Grafík að fagna í Austurbæ á morgun með hljómleikum en svipaðir tónleikar voru haldnir á Ísafirði í júlí síðast- liðnum. Sveitin er nú skipuð þeim Haraldi Þorsteinssyni, Hirti Hows- er, Agli Erni Rafnssyni, Helga Björnssyni og Rúnari Þórissyni. „Þetta situr þarna allt saman,“ segir Rúnar sem stofnaði Grafík á sínum tíma ásamt Rabba og Erni Jónssyni þegar hann er spurður hvernig það sé að rifja upp tuttugu ára gömul gítarriff. „Þetta er eig- inlega eins og að læra að hjóla.“ Rúnar segir þetta auk þess vera dálítið sérstakt, en hann hefur ekki komið nálægt popp- og rokkbrans- anum svo mælanlegt sé síðan 1987. Það sé því gaman að fást við þetta á nýjan leik. Þegar blaðamaður hring- ir í Rúnar er hann staddur á miðri æfingu fyrir tónleikana og segir hann að vel gangi að dusta það ryk af sem upp hefur safnast síðan í sumar. „Við tókum Get ég tekið cjéns upp í Hljóðrita ásamt Sigurði Bjólu,“ rifjar Rúnar upp. „Sjálfum finnst mér hún vera vel heildstæð svona eftir á að hyggja og það er líka ástæða fyrir því af hverju svo er. Hún var nefnilega kláruð í þriggja vikna striklotu, nánast frá því hún var samin og að því að hún kom í búðir. Þetta var stíft ferli sem eftir á að hyggja borgaði sig vel.“ Lögin smullu inn Ásgeir Tómasson, fréttamaður á Ríkisútvarpinu og poppfræðingur, man gjörla eftir útkomu plötunnar. „Á þessum árum var Rás 2 að slíta frumbernskuskónum ef svo má segja,“ segir Ásgeir. „Og þetta var með því útvarpsvænasta sem maður heyrði. Lögin smullu inn. Mig minn- ir að Kókostré og hvítir mávar (eftir Stuðmenn) hafi verið helsti keppi- nautur plötunnar (hlær).“ Ásgeir segir að platan hafi komið þó nokkuð á óvart því sveitin hafi kú- vent úr kuldarokki yfir í tónlist fyrir fjöldann. „Maður heyrði þó á hinum tveim- ur plötunum að þetta voru eldklárir strákar,“ bætir hann við. „Get ég tekið cjéns var grípandi án þess að þetta væri einhver froða. Maður setti hljómsveitina ósjálfrátt í hóp með því erlenda gáfumannapoppi sem tíðkaðist þá. Hún stóð fyllilega undir þeim stimpli.“ Mikill akkur í Helga Heimir Már Pétursson skrifaði um tónlist fyrir Þjóðviljann í eina tíð og þekkir feril Grafíkur vel og er auk þess frá sama bæ og hljóm- sveitin. „Jú, þessi plata var auðvitað tölu- verð breyting frá því sem áður hafði verið,“ segir Heimir. „En þarna fannst mér eins og hljómsveitin væri búin að ná öllum vopnum sínum. Hún var orðin öruggari og búin að ydda stílinn til ef svo má segja. Platan var fyrsta Grafíkurplatan sem bjó yfir heildarbrag og nú var ekki lengur verið að gera tilraunir því að nið- urstaðan úr fyrri til- raunum var greinilega komin!“ Heimir segir auk þess að mikill akkur hafi verið í Helga, enda mikill karakter þar á ferð. „Grafík hefðu reyndar getað farið í aðra og þyngri átt. Það var allt opið af síðustu plötu þar á undan að dæma. Á Get ég tekið cjéns sam- hæfðu þeir einkar vel vandaðan hljóðfæraflutning og innsæi fyrir góðum popplögum, eitthvað sem fer ekki alltaf saman. Þeir vissu alveg hvað þeir voru að gera.“ Tónleikar | Grafík fagnar tímamótum Ljósmynd/Björg SveinsdóttirLiðsmenn Grafíkur 2004 ásamt Rabba. Grafík (Helgi, Rabbi og Rúnar) bregða á leik. Myndin er tekin í kringum 1986. Afmælistónleikarnir fara fram í Austurbæ á morgun, fimmtudag. Miða er hægt að nálgast í síma 5112255, á concert.is og á Hard Rock Café. arnart@mbl.is Aftur komnir á cjéns ÁLFABAKKI Sýnd kl. 8 og 10.20 AKUREYRI Sýnd kl. 6. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 3.50 og 6. Ísl tal. AKUREYRI Sýnd kl. 8 og 10. B.i 14 ára. Þeir hefðu átt að láta hann í friði. KEFLAVÍK Sýnd kl. 8. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.10. S.V. Mbl.  HP. Kvikmyndir.com Kemur steiktasta grínmynd ársins Kemur steiktasta grínmynd ársins KRINGLAN sýnd kl. 5.50 KRINGLAN sýnd kl. 8 og 10.20. KRINGLAN sýnd kl. 6, 8 og 10. b.i. 14 ára Julia Stilesli il ÁLFABAKKI Sýnd kl. 4 og 6. The KEFLAVÍK Sýnd kl. 8 og 10. B.i 14 ára. KEFLAVÍK Sýnd kl. 10. B.i 14 ára.  Ó.H.T Rás 3. AKUREYRI Sýnd kl. 6, 8 og 10. B.i 14 ára. KRINGLAN Sýnd kl. 6 og 8

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.