Sunnudagsblaðið - 29.06.1958, Blaðsíða 6

Sunnudagsblaðið - 29.06.1958, Blaðsíða 6
• 338 SUNNUDAGSBLAÐIÐ Bilað affirrljós KLUKKAN var hálftíu þegar Jacoby læddist inn í dimmt svefn herbergið og kyrkti konuna sína. Það gekk stillilega og hljóðlátlega fyrir sig, án nokkurra stympinga eða erfiðleika. Fyrr um kvöldið hafði hún kvart að yfir hitanum og hafði gengið snemma til rekkju. Hún var í fasta svefni þegar hann kom inn, og áður en henni vannst tími til þess að gefa hið minnsta hljóð fvá sér, var allt afstaðið. 'Enda þótt Jacoby hefði verið búinn að undirbúa líflát konu sinnar gaumgæfilega í Öllúm smá atriðum, fór ekki hjá þvi að hann þyrfti að hleypa í sig kjarki til þess að framkvæma verkið. — í sjálfu sér var það ekkert undar- legt, því að Jaooby var enginn hetja; hann var smáleitur og alls ekki gáfulegur útlits, og lítiL augu hans hvimuðu bak við þykk gler- augun. Hann hafði einmitt útlit fyrir að vera nákvæmlega það sem hann var: væskislegur nýlendu- Vörukaupmaður í smábæ. Þegar hann hafði komið líkinu fyrir í farangursgeymslunni á bíln um sínum ók hann eftir mann- lausum götunum og út á þjóðveg- inn. Þar beygði hann í áítiiia til New Orleans. Svo.varp hann önd- inni léttara og kveikti sér í sígar- ettu. Athygli hans beindist að jöfnu, að veginum' framundan, ljósunum á bílnum, hraðamælin- um og speglinum er sýndi veginn afturundan. Jacoby var aðgætinn maður, sem aldrei treysti á neina slembilukku eða tilviljanir. Enda þótt hann ætti fyrir höndum að aka rúmlega fimmtíu kílómetra vegalengd, var enginn asi á hon- um og hann ók uridir löglegum öku f hraða. Hið jafna, þýðláta hljóð vélarinnar róaði taugar hans, og hann yfirvegaði með sjáifum sér það sem hann átti eftir að koma í verk. — Það eru nú bara hreinir smámunir úr þessu, hugsaði hann — hreinir smámunir. Hvaöa auli sem var mundj fær um að Ijúka því sem eftir var. Það sem hafði krafist hugrekkis og yfirvegmiar var um garð gengið. Vegarafleggjarinn sem hann átti að beygja inn á var um þriggja kílómetra leið frá benzín- st'öðinnt f Fisöher. Hann var auð- kerindur með gulu vegarskilti, svo að það var engin leið að villast. Hann átti að beygja til hægri við vegvísinn, og aka nokkra kíló- metra á malarvegi, sem var lítú umferð um, þar til hann kom að hinni djúpu tjörn, sem ferðinni var heitið til. Þar setlaði hann að stöðva bílinn, og bera líkið að tjörninni, og fara svo gftur og ná í járnstykkið, sem hann ætlaði að binda það við. Þegar hann hafði svo bundið járnið fast við líkið með sfcálvír sem hann hafði með- ferðis (því ekki var að treysta snæri eða kaðli sem fúnaði í vatn- inu) mundi hann varpa líkinu í tjörnina. Hann hafði áður rann- sakað tjarnarbotninn og vissi að það var slím og leðja í botninum, sem brátt mundi hyija likið. Hann brosti ánægður með sjálf- um sér, en bros hans breyttist brátt í grettu, þegar hann heyrði skruðning og skelli í bílnum. — Vegurinn var holóttur og ójafn. Það stafaðt auðvitað af regninu undanfarna daga, þá hafði runnið úr veginum, hugsaði hann gramur. Hann mundi raunar eftir því að hann hafði eitthvað lesið um það í blöðunum. Vatnið hafði grafið sig niður í vegina, og víða höfðu komið mikil hvörf og sig í veginn. Þetta gat auðveldlega orsakað fjaðrabrot í bílnum, ef hann æki ekki varlega. Og í kvöld mátti ekkert koma fyrir bílinn hans. Hann hægði á ferðinni og ók ekki nema á fjörutíú kílómetra hraða, og fylgdjist nákvæmlega með veginum um leið og hann hugleiddi hvað hann ætti að taka sér fyrir hendur næsta dag. Um morguninn mundi hann ganga til vinnu sinnar eins og venjulega, eins og ekkert hefði gerst. Hann mundi borða hádegisverð á Trav- ellers Hotel eins og hann var van ur að gera á miðvikudögum. Og þegar hann hefði lokað verzlun- inni klukkan sex, mundi hann kannski líta inn á Monareh og fá sér glas af öli Um hálfsjö eða sjöleytið mundi hann svo koma heim. Klukkutíma síðar byrjaði hann svo að hringja til ýmissra kunningja og vina og spyrja eftir konunni. Því næst mundi hann látast verða órólegur og hringja til Thompson og leita ráða hjá honum. Jafnvel þótt hann mundi ýmislfegt gruna, vom engar sann- anir. Þar var enginn spor að rekja, ekkert eitur, engir blóð- blettir og ekki neitt. Og heldur ekkert lík, en án líks gat ekki ver- ið um neinn glæp að ræða. Konan hafði einfaldlega horfið — bað var allt og sumt.

x

Sunnudagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sunnudagsblaðið
https://timarit.is/publication/302

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.