Sunnudagsblaðið - 29.06.1958, Blaðsíða 10

Sunnudagsblaðið - 29.06.1958, Blaðsíða 10
342 SUNNUDAGSBLAÐIÐ klæðskera sauma horwum nákvæm lega eins jakka — en Churchill hélt áfram að riota þann gamla. Aftur á móti var hann mjög nosturssamur og kröfuharður um buxurnar sínar. Þær urðu alltaf að vera vel pressaðar. Ohurchill tuggði vindling sinn í ákafa dag nokkurn þegar hann gekk út. Hann var áreiðanlega sannfærður um með sjálfum sér að ég hafði rétt fyrir mér — en hann vildi bara ekki viðurkenna það. Ég hafði búið hann áður en haun fór í móttöku eina í franska bæn um Nancy, og hafði sett heiðurs- merki hans „Medaille Miiitarire“ í vinstri jakkaboðunginn. Hann horfði á sig í spegiinum um stund, og skyndilega veitti hann heiðursmerkinu eftirxekt. — Normann, kallaði hann. — Þér hafiþ sett það í öfugan barm. Ég fullvissaði hann urri, að þetta heiðursmerki ætti að bera vinsíra megin, eins og öll önnur opinber heiðursroerki. — Nei, það á að vera hægra megin, þrætti Churchill. Ég vildi ekki að húsbóndi minn yrði sér til minnkunar á opinber- um stað, svo að ég hélt fast við mitt, og sagði: —'Fyrirgefið, herra, en borði „Medaille Militaire“-heiðursmerk isins á að vera á vinstri jakkaboð ung og N sjálft heiðursmei'kið vinstra megin á brjóstinu. Ég sagði honum einnig, að ég hefði kynnt mér málið í franska sendiráðinu. En Churtíhill krafðist þess að ég flytti heiðursmerkið yf- ir á hægra jakkahornið — og gekk síðan ánægður út. Ég vissi að allir í Nancy, sem báru þetta heiðursmerki myndu verða viðstaddir þessa móttöku, og hvað skyldu þeir eiginlega halda um Ohurohill? hugsaði ég. Þegar húsbóndi minn kom aftur heim sagði hann hrifinn: — Normann, þessir Franskmenn • eru háttvísustu menn í heimi. Ég var kynntur fyrir öllum þeim, sem bera „Medaille Milita.ire“- heiðursmerkið í Nancy, og allir voru með það í vinstra barmi, en áður en samkvæminu var lokið, höfðu allir flutt það yfir 1 kægri barm vegna mín. Ég hefi verið vitni að því hvern- ig Churtíhill hefur skipt skapi frá degi til dags, þau fjögur ár, sem ég var hei'bergisþjónn hans. En ekkert gerði honum jafn gramt í geði og hávaði, þegar hanxt var að vinna. Eitt sinn staðnæmdist hann í miðju verki og sendi mig út til þess að reka í burt smið, sem var að smíðum í hesthúsi hans. Hann var mjög næmur á öll hljóð. Eng- inn mátti blýstra þegar hann var nálægur, ekki einu sinni uppá- haldslagið hans: „Run Rabbit Run“. Svo var það annað lag, sem hann vildi aldrei hlusta á, því að það vakti honum angur. Það var lagið: „Keep right on ton the end of the Road“. Aldrei hefi ,ég samt séð Chur- öhill .jafn miður sín og út af landshornaflakkara einum. Hann hafði sezt að í skúrhreysi einu við Chartwiell, og þaðan mátti enginn hrekja hann. Meðan hann hafðist þarna við fór Churchill í ferðalag, en þegar hann kom heim aftur, var flakkarinn látinn og hafði verið jarðsettur sem hver annar umkomulaus fátæklingur. Ghurtíhill ■ varð svo angurvær, þegar hann heyrði þetta, að hann vildi láta grafa flakkarann upp og jarðsyngja hann aftur með hæfi legri viðhöfn. Gamalt orðtæki segir að enginn sé hetja í augum herbergisþjóns síns. En í mínum augum er Churc hill mikil hetja, og ég varð fyrir vonhrigðum, þegar hann var sleg inn til riddara. Hann verðskuldaði að verða gerður að hertoga . . . Og nú lifi ég í þeirri von, að ein- hverju sinni geti ég sagt við vini Pylsur eru gæðamatur finnst seppa, eins og á má sjá. SMÆLKI — Ég sé að sum brauðin kosta 90 aura og önnur 80 aura, hver er munurinn? spurði viðskiptavinur. inn. — Það er augljóst mál; brauð- in, sem kosta 90 aura, eru 10 aur- um dýrari en hin, svaraði bakar- inn. mína: — Hertoginn af Ohartwell var húsbóndi minn . . . ENDIR.

x

Sunnudagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sunnudagsblaðið
https://timarit.is/publication/302

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.