Sunnudagsblaðið - 29.06.1958, Side 7
Jaeoby var svo upptekinn af
hugsunum sínum, að það leið nokk
ur tími þar til hann veitti eftir-
tekt síbiljuhljóði lögreglubílsins,
sem ók á eftir honum, en þegar
hann leit í spegilinn sá hann að
lögreglubíllinn dró á hann. Hann
ók þá út á vegarbrúnina og nam
staðar. Lögr'egkrbíllinn stöðvaðist
einnig, og kaidur sviti sprati út
á Jacoby, þegar hann sá lögregiu-
þjón stíga út úr bílnum. Hanr>
gekk að bíl Jacoby og lagði olnbog
ann í opin bílgluggann.
- —- En ég ók ekki vfir fjörutíu,
saði Jacoby.
— Það hefi ég heldur ekki sagt,
svaraði lögregluþjónninn og stakk
höfðinu inn um gluggann. — En
annað afturljósið á bílnum vðar
lýsir ekki.
Jaeoby vætti þurrar varirnar og
fingur hans fálmuðu fumkennt
um stýrið. ;
— Það hafð; ég ekki hugmynd
um. Bæði afturljósin voru í lagi,
þegar ég fór að heiman. Eg að-
gæti þau alltaf öðru hvoru.
— Það er vinstra afturijósið,
sem er bilað, sagði lögregluþjónn-
inn. — Það er ólöglegt að aka án
afturljósa. Það getur valdið slysi.
Því næst leit lögregluþjónninn á
ökuskírteini Jacobys og lýst; á
það með vasaljósi, en rétti hon-
um það svo.
— Já, einmitt, þér eruð frá Edge
town?
— Já, það er smáhær nokkra
kílómetra hér frá. Ég rek þar ný-
lenduvöruverzlun.
— Ég veit hvar Edgetown er,
sagði lögregluþjónnin.n. — Hvert
ætlið bér að halda?
— Ég fór bara í smá ökuferð,
sagði Jacohy brosandi, og reyndi
að blása burt svitadropana á efri
vörinni. — Bara smá ökuferð til
hess að svala mér; hað er svo
hræðilega heitt og mollulegt núna.
Það er dásamlegt að koma út í
tært sveitaloftið öðru hvoru. En
það getur konan mín aldrei skilið.
SUNNUDAGS BLAÐIÐ
Hún vill heldur sitja heima og lesa'
Hún er alltaf lesandi. Hún er vön
að lesa sig í svefn, og nú er hún
sjálfsagt sofnuð. En ég þarfnast
þess að fá mér férskt loft eftir að
vera búinn að standa í búðinni
allan daginn.
— Já, einmitt, sagði lögreglu-
þjénninn dálítið óþolinmóður. —
En það var þetta með afturljós-
ið. Það er benzínafgreiðsla hérna
rétt hiá. Það er bezt að þér farið
þangað og fáið yður nýja peru.
Ef ég ætti að fylgja reglunni, þá
ætti ég að skrifa yður upp, skiljið
þér.
— Já, þökk fyrir, lögregluþjónn,
sagði Jacoby. — Ég er yður þakk-
Tátur fyrir liðlegheitina. Ég ska!
$ 5
5 Smásaga |
\ eftir s
s s
j F. J. Smith. \
s $
< $
sjá um að gert verði við ljósið,
yður er óhætt að treysta því.
Hann bölvaði með sjálfum sér,
þegar lögregluþjónninn gekk aitur
til bílsins. Benzínstöðin í Fischer
var lítil og ófullkomin. Frekknótt-
ur stráksnláði kom að bíl Jacoby
og spurði:
— Fullan geymi?
— Nei, ég ætla bara að fá peru
í vinstra afturljósið, svaraði Ja-
coby og hamraði fingrunum órc-
legur á stýrið.
Þegar strákurinn kom aftur eft-
ir nokkrar mínútur, rétti Jacoby
honum fimm dollara seðil. Hann
átti ekki smærra. Drengurinn leit
á seðilinn.
— Á ég elcki að setja peruna í
fyt'ir yður?
Jaeoby s‘á í speglinum að lög-
reglubíllinn var einmitt í þessu
að renna að benzínstöðinni.
33f)
— Jú, að sjálfsögðu svaraði
hann stráknum stuttaralega.
Drengurin stakk peningaseðlin-
um í vasann og gekk aftur fyrir
bílinn. Jacoby fór út úr og horfði
á meðan drengurinn skrúfaoi
luktarglerið af og setti peruna í.
En ekkert Ijós kom á peruna.
— Ilvað er nú að? spurði strák-
urinn og skrúfaði perunni fastar
með olíublautum fingrum.
— Það er auðvitað eitthvað að
perunni, sagði Jacoby og horfði
útundan sér til lögregluþjónsins.
— En peran er alveg ný, mót,-
mælti strákurinn. — Ég fók hana
beint upp úr pakkanum, eins og
þér sáuð sjálfur.
— Hún getur vel verið ónýt fyr-
ir því.
Strákurinn skrúfaði peruna úr
aftur og bar hana upp að Ijósinu,
og um leið kom lögregluþjónninn
til þeirra.
— Hvað er að, drengur? spurði
hann vingjarnlega.
— Lítið á þessa peru. Getið þér
séð að nokkuð sé að henni? Ég
held hún sé alveg í lagi.
Lögregluþjónnin tók við per-
unni og hélt henni upp í Ijósið.
— Nei, það er ekkert að þess-
ari peru. Settu hana bara í aftur
og geyjaðu henni svolítið til. —
Kannski er perustykkið slitið.
— Ég hefi þegar gert það, svar-
aði strékurinn.
Hann setti peruna í á ný og
gerði eins og lögregluþjónninn
hafði ráðlagt honum.
— Þarna sjáið þér sjálfur, sagði
hann.
Lögregluþjónninn stóð hugsandi
um stund. Svo lagði hann höndina
á aurbrettinn og hristi bílinn til.
Þá kviknaði á peninni, en slokkn-
aði jafnihraðan aftur.
— Það eru leiðslurnar, sagði
hann. Annað hvort eru þær lausar,
eða einangrun hefur bilað.-------
Hvað hafið þér { farangursgeymsl-
unni? Bíllinn virðist afturhlaðinn.
Gerið svo vel að fletta á bls. 34G.