Morgunblaðið - 02.11.2004, Side 1
STOFNAÐ 1913 299. TBL. 92. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 2. NÓVEMBER 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Greindarlegur
gamanleikur
Venjulegt fólk í skondnum aðstæðum í
Kallakaffi í Sjónvarpinu | Menning 42
Líf og fjör
á Urðarhóli
Áhersla lögð á hreyfiþjálfun, hollt
fæði og sköpun | Daglegt líf 20
Íþróttir í dag
Singh í sérflokki Spáir að titillinn
fari til Texas Gylfi ræðir við Cardiff
Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu
ÞETTA er í fyrsta sinn í 70 ár að
Skeiðarárhlaup kemur af stað eld-
gosi í Grímsvötnum, en það gerðist
síðast árið 1934, að sögn Freysteins
Sigmundssonar, forstöðumanns
Norræna eldfjallasetursins. Hann
spáði í fyrra að líklega yrði gos í
Grímsvötnum innan tveggja ára.
Freysteinn segir að metið hafi
verið út frá GPS-mælingum á land-
risi og láréttum breytingum í
Grímsvötnum að vaxandi kviku-
þrýstingur væri undir Gríms-
vötnum og þar væri kvika að safn-
ast fyrir.
Spennubreytingar
og þrýstiléttir
Hann segist hafa metið það fyrir
um ári að eldfjallið hafi verið komið
inn í þann tímaramma þar sem all-
ar líkur yrðu á gosi á næstu tveim
árum. Freysteinn segir þann mögu-
leika hafa verið ræddan að þessi
þrýstiléttir og spennubreytingar,
þegar vatnið fer, nægðu til þess að
koma gosinu af stað.
„Hlaupið virkar sem gikkur sem
hleypir eldgosinu af stað,“ segir
Freysteinn. Hann segir að erfitt sé
að meta það hversu stórt gosið
komi til með að vera, en líkur séu á
því að það verði sambærilegt því
sem varð í Grímsvötnum 1998.
FRÉTTASKÝRENDUR treysta sér
ekki til að spá fyrir um hvor verði
kjörinn forseti Bandaríkjanna í kosn-
ingum sem fara fram í dag, George
W. Bush eða John Kerry. Frambjóð-
endurnir voru á ferð og flugi í allan
gærdag en svo mikið jafnræði hefur
verið með þeim Bush og Kerry í skoð-
anakönnunum síðustu dagana að talið
var að hugsanlegar fylgissveiflur á
síðasta degi kosningabaráttunnar
gætu jafnvel ráðið úrslitum, hversu
litlar sem þær annars kynnu að vera.
Kerry spáði metkosningaþátttöku
í viðtali í gær og sagðist trúa því að
„Bandaríkjamenn væru staðráðnir í
að sagan frá árinu 2000 endurtæki sig
ekki“. Bush sagði mikilvægt að úrslit-
in yrðu afgerandi, m.a. vegna þess
hversu vel umheimurinn fylgdist með
þessum kosningum. Bæði Bush og
Kerry voru byrjaðir að missa röddina
eftir mikið álag síðustu dagana.
Bush byrjaði daginn í Ohio en talið
er að úrslitin gætu ráðist þar. Bush
fór síðar til Pittsburgh í Pennsylv-
aniu, sem er annað ríki þar sem óvíst
er um úrslit. Bush hugðist einnig
koma við í Wisconsin, Iowa og Nýju-
Mexíkó en síðan gista á búgarði sín-
um í Crawford, Texas. Þar hugðist
forsetinn kjósa um morguninn og síð-
an halda til Washington en Bush mun
bíða dóms kjósenda í Hvíta húsinu
ásamt fjölskyldu sinni.
John Kerry hóf daginn í Flórída en
naumur sigur þar tryggði Bush for-
setaembættið fyrir fjórum árum, eins
og frægt er orðið. Þar sagði hann á
fundi með stuðningsmönnum sínum
að veröldin fylgdist með og að
draumar íbúa Bandaríkjanna og
væntingar væru í húfi.
Kerry fór síðar til Wisconsin,
Michigan og Ohio. Kerry var vænt-
anlegur til Boston seint í gær en þar
mun hann greiða atkvæði í dag og
bíða dóms kjósenda.
Metþátttöku
spáð í kosn-
ingunum
Milwaukee, Orlando. AFP, AP.
AP
Rosemary Moody (t.h.) raðar utankjörstaðaatkvæðum á kosningamiðstöð í
Des Moines í Iowa. Óvíst er hver fer með sigur í Iowa í kosningunum í dag.
Mesta/25
Fréttaskýrendur þora ekki að spá um úrslit bandarísku forsetakosninganna
ELDGOS hófst í Vatnajökli um kl. 22.00 í gær-
kvöldi. Þá gerði ákafur gosórói vart við sig eftir
snarpa jarðskjálftahrinu í gærkvöldi. Ekki hafði
orðið vart við öskufall eða sést gosmökkur í rad-
ar um miðnætti í nótt. Að sögn Magnúsar Tuma
Guðmundssonar jarðeðlisfræðings var þá óvíst
hvort eldgosið hefði náð upp úr jöklinum eða
ekki.
Veginum yfir Skeiðarársand var lokað um
miðnætti af öryggisástæðum. Lögreglustjórarnir
í Vík í Mýrdal og á Höfn í Hornafirði fóru að til-
mælum almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra
og lokuðu veginum við Núpsstað að vestan og við
afleggjarann að Skaftafelli að austan.
Samkvæmt upplýsingum frá flugstjórn á
Reykjavíkurvelli var tveimur flugvélum beint
suður fyrir áætlaða ferla af öryggisástæðum
seint í gærkvöld. Var ein flugvélin á leiðinni til
lendingar á Keflavíkurflugvelli og önnur var á
yfirflugi á leið til Bandaríkjanna.
Snörp skjálftahrina
hófst um klukkan 19.30
Jarðskjálftamælar Veðurstofunnar sýndu að
gosórói gerði vart við sig kl. 21.50 eftir snarpa
jarðskjálftahrinu í Grímsvötnum sem hófst kl.
19.30 í gærkvöldi, að sögn Matthew Roberts
jöklafræðings hjá Veðurstofunni. Skjálftunum
fjölgaði eftir því sem leið á kvöldið. Jarðskjálfta-
mælir á Grímsfjalli sýndi vaxandi gosóróa frá kl.
21.50 líkt og fleiri jarðskjálftamælar í kringum
Vatnajökul.
„Það bendir til þess að sífellt aukið magn
kviku streymi til yfirborðsins,“ sagði Matthew.
Hann sagði að samkvæmt uppruna jarðhræring-
anna væri gosstaðurinn á svipuðum slóðum og
gaus 1998. Það er innan Grímsvatna, vestast við
norðurhlið Grímsfjalls. Þó taldi Veðurstofan ekki
hægt að útiloka að gosstaðurinn væri aðeins
sunnar, jafnvel aðeins sunnan við Grímsfjall.
Eldgos í Grímsvötnum
Gosstaðurinn á svipuðum slóðum og 1998 Veginum yfir Skeiðarársand lokað af öryggisástæðum
Morgunblaðið/Kristinn
Freysteinn Sigmundsson, forstöðumaður Norræna eldfjallasetursins, og Páll Einarsson, jarðeðl-
isfræðingur á Raunvísindastofnun HÍ, skoðuðu skjálftamælana í náttúrufræðahúsinu Öskju í gær-
kvöldi, um það leyti sem eldgosið í Grímsvötnum var að hefjast, hið fyrsta á þessari öld.
Vel fylgst með/4
Þrettánda eldgosið/24
FRAMBJÓÐENDURNIR tveir í
bandarísku forsetakosningunum
mættust á flugvellinum í Milwaukee
í Wisconsin í gær en John Kerry og
fylgdarlið hans var að koma þangað
um það bil þegar George W. Bush
var að yfirgefa borgina. Stóðu flug-
vélar þeirra í sjónfæri hvor frá ann-
arri um skamma stund. Bílalest Ker-
rys ók svo þvert í veg fyrir rútu sem
full var af blaðamönnum sem fylgja
Bush eftir í kosningabaráttunni, og
voru á leið út í flugvél, en Kerry var
þá á leið inn í miðbæ Milwaukee.
Mættust
í Milwaukee
„Hlaupið
virkar sem
gikkur“