Morgunblaðið - 02.11.2004, Side 20

Morgunblaðið - 02.11.2004, Side 20
Þ að væsir ekki um börnin í Heilsuleikskólanum Urðarhóli í Kópavogi og greinilega vel hugsað fyrir þörfum þeirra og velferð. Heimsókn í leikskólann staðfestir þetta og þar iðar allt af lífi og starfi frá morgni til kvölds Leikurinn er hornsteinn leik- skólastarfsins, hvort heldur um er að ræða frjálsan leik eða skipulagð- an, og hugmyndafræði Urðarhóls varðandi leikinn er sú að hinn sjálfsprottni leikur fái rúman tíma jafnt inni sem úti. Þetta má glöggt sjá í leik barnanna, hvort heldur er á skólalóðinni eða innandyra. Það er líka gaman að fylgjast með börn- unum í skipulögðum íþróttatímum, þar sem þau leggja metnað sinn í að klifra sem hæst í köðlum eða standa sem lengst á höndum. Í listsköp- unartímunum fá þau útrás fyrir sköpunarþörf sína, sem eflir gagn- rýna hugsun og þjálfar rökhugsun. Og í matartímunum leggja þau grunn að góðri heilsu með hollu fæði. Það er af nógu að taka þegar komið er í heimsókn í Urðarholt og það sem hér er nefnt aðeins brot af þeirri starfsemi sem þar fer fram. Alhliða heilsuskóli Heilsuleikskólinn Urðarhóll er fyrsti leikskóli sinnar tegundar hér á landi, vígður í september 1995, og hugmyndina að starfseminni á Unn- ur Stefánsdóttir, sem hefur verið skólastjóri leikskólans frá upphafi. „Ég stundaði íþróttir á árum áð- ur og þegar ég var ráðin skólastjóri við leikskólann, sem þá hét Skóla- tröð og rúmaði 30 börn, var ég með hugmyndir um að leggja höf- uðáherslu á íþróttir í skólastarfinu. Að athuguðu máli fannst mér það of einhæft og komst því að þeirri nið- urstöðu að gera þetta að alhliða heilsuskóla. Ég er alin upp í sveit og við íþóttaiðkun og vissi að nær- ing skiptir miklu máli til að ná ár- angri í íþróttum og þaðan kemur grunnhugmyndin,“ segir Unnur um upphaf skólastarfsins í Urðarfelli. „Þegar ég réð til mín fyrstu kennarana við skólann sagði ég þeim að þetta væri heilsuleikskóli, en var að öðru leyti ekki með neinar mótaðar tillögur. Við vorum fimm talsins og saman mótuðum við þessi þríþættu markmið skólans, það er hreyfing, næring og listsköpun í leik, sem enn eru í fullu gildi.“ Heilsubók barnsins Unnur sagði að eftir hálfs árs skólastarf hefði leikskólanum boðist styrkur frá Heilsueflingu, sem var samvinnuverkefni heilbrigðisráðu- neytisins og Landlæknisembætt- isins. „Okkur var sagt að nota styrkinn til að þróa fullkominn heilsuleikskóla og eftir að hafa lagt höfuðið í bleyti komumst við að þeirri niðurstöðu að best væri að út- búa heilsubók barnsins, þar sem við gætum mælt hvernig börnin stæðu sig í áhersluþáttum skólans. Heilsubókin er nú veigamikill þáttur í leikskólastarfinu, en í hana eru skráðar ýmsar upplýsingar um barnið, hæð og þyngd, heilsufar, næring, svefn, félagsleg færni, hreyfing og listsköpun. Skráð er í bókina vor og haust og í framhaldi af því fá foreldrar viðtal við kenn- ara sem skýrir þeim frá stöðu barnsins í viðkomandi þáttum. Heilsubókin er gott tæki fyrir okk- ur til að fylgjast með hvernig börn- in standa sig í áhersluþáttum skól- ans. Um leið veitir hún okkur kennurunum aðhald og gefur for- eldrum góðar upplýsingar um fram- farir og stöðu barnsins,“ sagði Unn- ur. Fita, sykur og salt af skornum skammti Starfsemi þessa fyrsta heilsuleik- skóla í landinu óx fljótt fiskur um hrygg, bæði vegna vaxandi aðsókn- ar barna og eins hefur fagmenntað starfsfólk sýnt mikinn áhuga á að starfa samkvæmt stefnu skólans. Árið 1997 bættist við pláss fyrir 20 börn í húsi við Kópavogsbraut og árið 2000 var byggt nýtt hús þar við hliðina sem rúmar 100 börn, og er heildarfjöldinn því kominn upp í tæplega 150 börn. Með stækkun skólans fékkst leyfi til að ráða sérstaka fagstjóra til að sinna áhersluþáttum skólans. Þann- ig er allur matur eldaður í nýja skólahúsinu samkvæmt forskrift sérstaks næringarráðgjafa, Borg- hildar Sigurbergsdóttur. Unnur sagði að matseðillinn hefði haldið sínu striki frá upphafi, með lítils- háttar breytingum á milli árstíða. Hann byggist upp á því að hafa lítið af fitu, sykri og salti í fæðunni, en jafnframt lögð áhersla á fjölbreytni og sem flesta fæðuflokka. „Við höldum líka í gamlar mat- arhefðir, erum til dæmis með slátur á þorranum og hangikjöt á jólum,“ sagði Unnur. „Börnin borða morg- unverðinn heima, en við erum með ávaxta- og grænmetismáltíð milli klukkan níu og tíu. Síðan erum við með hádegisverð, oftast heitan þar sem við höfum fisk tvisvar í viku og kjöt einu sinni í viku. Hina dagana erum við með pastarétti, baunarétti, grænmetisrétti, skyr og fleira og í dag er til dæmis pítsa í matinn. Svo erum við með nónnæringu um miðj- an dag, þar sem boðið er upp á eina til tvær tegundir af brauði og tvær áleggstegundir. Mikið af brauðinu er bakað hér í skólanum og svo höf- um við sætabrauð einu sinni í mán- uði, en börnin virðast ekkert sakna þess og kvarta aldrei,“ sagði Unnur. Hvað hreyfinguna varðar er íþróttakennari í fullu starfi við leik- skólann, Jónas Traustason, sem vinnur samkvæmt ákveðinni náms- áætlun fyrir börnin. Öll börnin fara til hans tvisvar í viku í íþróttatíma og eru um hálftíma í senn. Á vorin og fram á haust eru innitímar á sal lagðir niður en þess í stað farið í gönguferðir. Linda B. Ólafsdóttir leikskóla- kennari, sem einnig er með fram- haldsnám í listum, er fagstjóri í þættinum listsköpun í leik, en hún hefur unnið sérstaka námskrá fyrir tveggja til sex ára börn þar sem kennd er leiklist, tónlist og mynd- list, og fara börnin einu sinni í viku í tíma til hennar auk þess sem þau vinna listastarf inni á deildunum sínum. Við þetta má svo bæta að Heilsu- leikskólinn Urðarhóll hlaut nýverið viðurkenningu frá umhverfisnefnd Kópavogsbæjar fyrir „áhugavert framtak í umhverfismálum“, eins og það var orðað í viðurkenning- arskjalinu. Með flokkun og end- urnýtingu fer til dæmis fram mikið fræðslustarf. Þar læra börnin að til- einka sér nýja hugsun sem síðan verður þeim eðlileg og sjálfsögð. Með því að hafa ávallt umhverf- isstefnu skólans í huga þegar inn- kaup eru gerð sparast tími og pen- ingar. Umhverfisstefna Urðarhóls bygg- ist því á þremur grunnþáttum ábyrgri umgengni, flokkun og end- urnýtingu og ábyrgum innkaupum. Unnur sagði að nú væru fleiri leikskólar farnir að feta í fótspor Urðarhóls. „Við höfum fengið óskir og fyrirspurnir um ráðgjöf og leið- beiningar varðandi þessa stefnu okkar og erum að sjálfsögðu ánægð og stolt yfir því,“ sagði Unnur Stef- ánsdóttir, skólastjóri Heilsuleik- skólans Urðarhóls í Kópavogi.  BÖRN | Heilsuleikskólinn Urðarhóll leggur áherslu á hreyfiþjálfun, hollt fæði og skapandi starf Leikurinn er hornsteinn leikskólastarfsins Jónas Traustason íþróttakennari: Leiðbeinir Guðrúnu Sunnu og Láru. Morgunblaðið/Þorkell Unnur Stefánsdóttir skólastjóri: Fylgist með börnunum við listsköpun. Í rólum: Úti á skólalóðinni. MARKMIÐ Heilsuleikskólans Urð- arhóls eru að auka gleði og vellíðan með áherslu á næringu, hreyfingu og listsköpun í leik.  Hreyfing. Í markvissri hreyfi- þjálfun eflist alhliða þroski barns- ins. Barnið öðlast betri líkamsvit- und og góð líkamleg færni leiðir af sér ánægðara barn. Sjálfsöruggt og ánægt barn á auðveldara með að leika sér og tileinka sér þekkingu. Markviss hreyfiþjálfun hefur einnig áhrif á málþroska og málskilning barna og þar með eykst félagsfærni og leikgleði sem eflir vináttubönd.  Næring. Hollt fæði er grunnur að almennri heilsu einstaklings, svo sem líkamlegri og andlegri vellíðan, þroska, ónæmi og frammistöðu alla ævi. Í æsku er hollt fæði sér- staklega mikilvægt vegna þess að á þessu tímaskeiði fer fram mesti vöxtur og þroski ævinnar. Gæta Markmið Heilsuleik- skólans Urðarhóls Næring, hreyfing og listsköpun 20 ÞRIÐJUDAGUR 2. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LÍF Frábærar, fjörugar og fjölbreyttar ævintýraferðir fyrir fyrirtæki jafnt sem vinahópa. Upplýsingar í síma 562-7700 www.travel-2.is svg@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.