Sunnudagsblaðið - 24.01.1965, Page 2

Sunnudagsblaðið - 24.01.1965, Page 2
■wmwwwmwHwwwwHwtwwwv; í Stefán Ólafsson í Vallanesi: HEIMSÁDEILA ÞESSI öld er undarlig, allir góðir menn um sig ugga mega að mestu. Illir taka yfirráð, að því hef ég um stundir gáð, að þeim er fylgt í flestu. Fer eg með efnið undarlegt: Ef þér girnizt nokkuð frekt manna fylgi að fanga, þá skal hann ekki óttast guð og ekki stunda hans heilög boð, heldur rækja hið ranga. Þingheimurinn þýtur upp, þegar hann sér Belzubub dýrkaður er af einum. Aðhyllast og elska hann einnig verja hver, sem kann, bæði í ljósi og leynum. Þeir, sem seilast aðra á, okra, deila, stinga, slá, strjúka, stela, ljúga, og útlegðar vinna verk, vörnin er þeim nógu sterk hjá flestum manna múga. Sá hinn góði er gjarðafár, gisna má hann síð og ár, dittar að honum engrnn, sem sú eik fyrir utan tröð, er engan hefur börk né blöð og öll er af sér gengin. Mútan tekur máttarskref, má hún það rétta aflátsbréf segjast verstu synda. Þá hefur fjandinn skrifað skrá og skvett forgyltum sandi á, sem bæði augun blindar. Hún réttlætir ranglátan, ranglætir hinn fróma mann, gerir svo greitt að flækja. Þeim hana tekur talar hún í, tekst þeim varla upp frá því rættdæmið að rækja. Því er nú orðið illt í heim, að enginn sinnir manni þeim, er gerir sinn guð að stunda og breytir eftir boðum hans, brýtur ríkið andskotans. Hann má f ara til hunda. WWWWWWWHHHWWHHM»HW< HHWWW|WW(WIWW|WIW^*»WW*I»MWM 34 SUNNUDAGSBLÁ& - Atí>VÐU£iLAÐXÐ WHW

x

Sunnudagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sunnudagsblaðið
https://timarit.is/publication/302

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.