Sunnudagsblaðið - 24.01.1965, Side 21

Sunnudagsblaðið - 24.01.1965, Side 21
eftir a8 háfa heyrt talað iim „Duiarfullu göngin,” sem voru vinsælasta skemmtiatriðið, fyrsta mánuðinn eða svo, að minnsta kosti?” . „Jú, var ekki eitthvað grugg- ugt við þau?” • „Ósköp litið. Það var þaggað niður. Þessi dularfullu göng voru reyndar aðeins mílu löng göng, ljóslaus. Menn voru settir upp í litla vagna, sem runnu síðan í myrkri í 15 mínútur. Þetta vár ýkaflega vinsælt, nteðan það stóð.” „Vinsælt?” „Auðvitað. Það er heillandi að verða hræddur, þegar það er hluti af leik. Böm fæðast með eðlis- lægan ótta við þrennt: há hljóð, fall og ljósley.si. Það. er vegna þessa,,sem það þykir skemmtilegt að læðast að einhverjum og gera honum bylt við. Það er vegna þessa sem það er svo skemmti- legt að fara í rútsibananum í Tí- yólív Qg það yar þetta, sem gerði DularfuUu Göngin svo vinsæl. — Fólk kom út úr myrkrinu: skjálf- andi og hálfdautt af hræðslu, en það hélt áfram að kaupa sig inn. „Bíðið við. Nú man ég eftir því. Einhverjir komu dauðir út, var það ekki? Það kom. Upp . éinhver orðrómúr um það, þegar búið var að loka göngunum.” , Sálfræðingurinn ræskti sig. —. „Tveir eða þrír hrukku upp af. Það var ekki neitt. Þeir borguðu aðstandendunum og fengu borgar- stjórnina í Jonglor til að skipta sér ekkert af því. Ef hjart- veikt fólk vildi endilega fara inn í göngin, sögðu þeir, gerði þáð það á eigin ábyrgð, og auk þess skyldi þetta ekki endurtaka sig. Svo létu þeir lækni vera við inn- ganginn og hann skoðaði alla, sem fóru inn. Þá fyrst voru miðarnir beinlínis rifnir út.” „Og hvað þá?” „En það var svolítið meira. Fólk kom stundum út alveg eðlilegt, nema hvað það neitaði að fara inn í hús, öil hús: hallir og íbúðar- hús, hreysi, kofa og tjöld.” • Theremon brá. „Þér eigið við að það hafi ekki viljað fara inn imd- ir þak. Hvar svaf þetta fólk?“ „ÚU.” Einar gamli í Rauðhúsum þótti nokkuð ýkinn meí köfl- um. Eitt sinn sagðist hann hafa farið á rjúpnaveiðar, en gleymt !, að taka, með.sér 'högl. En þá var hann svo heppinn, að finna eitt á jörðinni, og með því skaut hann allan daginn, tók það jafnóðum úr rjúpunum, sem hann veiddi. Þegar kvöld- áði var haglið líka orðið svo lítið, að það var ekki hægt að eygja það með berum augum. % — ★ — Enskur lávarður, sem var enginn prestavinur, var eitt sinn í veizlu með fjölda presta. Undir borðum hvíslaði hann að sessunaut sínum, að hann vildj veðja um, að af tíu prest- um hefði enginn á sér bæna- bók. Þeir véðjuðu, létust þrátta og komu svo tali sínu; að til- efni varð til þeás að biðja um bænabók til þess að slá upp deiluatriðinu. En engin kom bænabókin. Þá bauð lávarður- inn sessimaut sínum annað veðmál og hélt því fram, að af tíu prestum myndu sex hafa á sér tappatogara. Hinn tók því, og síðan var þjóni gert við- vart um, hvað til stæði. Hann kom inn með flösku af rauð- víni og brotinn tappatogara og mæltist til þess við gest- ina að þeir léðu sér tappa- togara. Hver einasti af prest- unum fór þá í vasa sinn og dró þetta nytsemdaráhald fram. — ★ — Konráð Gíslason sagði eitt sinn við Magnús Eiríksson, sem lengi var í Kaupmannahöfn og kallaður var „frater”: — Eg gekk í gærkvöldi í Litaragötu, og sá þar í glugga fallega og brosleita stúlku. — Datt mér þá í hug, sem Hall- grímur Pétursson segir í sálmi eínum: „Þegar þig freisting fellur á, forðastu einn að Vera þá.” Eg fylgdl ráðum hans og fór inn til stúlkunnar. Magnús svaraði: — Já, frat- er, ég held, að Hallgrímur hafi pú ekki meint þetta svona. I „Þéir .hefðu átt að þröngva því inn." : : r'. ; ' n,Það var gert. Og þá urðu þess- ar. manneskjur óðar og slógu höfðinu við næsta vegg. Inni var ekki hægt að halda þeim nema í spennitreyju og með þvl að gefa þeim morfínsprautu.” „Fólkið hefur verið vitskert.” „Það var einmitt vitskert. Einn af hverjum tíu, sem fóru inn í göngin, kom vitskertur út. Það var kallað á sálfræðinga, og við gerð- úm það eina, sem hægt var að gera. Við lokuðum göngunum.” — Hann rétti úr höndunum. „Hvað var að þessu fólki?" spurði Theremon að lokum. „Þéssir vesalingar gátu ekki sigrazt á þeirri innilokunarkennd, sem kom yfir þá í myrkrinu. — Fimmtán mínútur án ljóss eru langur tími. Þér reynduð aðeins tvær eða þrjár mínútur, og mér virtist þér taka það nærri yður. Fólkið í göngunum fékk innilok- unarkennd. Ótti þeirra við myrk- ur og innilokun var dreginn fram og fæst ekki til að hverfa. Þessi áhrif hafa fimmtán mínútur í myrkri.” Það varð löng þögn. Smám sam- an komu hrukkur í enni Therem- ons. „Eg trúi því ekki, að það sé svona slæmt.” „Þér viljið ekki trúa þvi, eigið þér við,” sagði Sheerin. „Þér er- uð hræddur við að trúa því. Lítið út um gluggann.” Theremon gerði það og sálfræð- ingurinn hélt áfram án þess að þagna: „ímyndið yður Myrkur — alls staðar. Ekkert ljós svo langt sem augað sér. Allt er svart, hús- in, trén, akrarnir, jörðin, himin- inn, allt svart. Og stjörnur yfir öllu saman, hvað sem þær kunna að vera. Getið þér gert yður þet.ta í hugarlund?” „Já, ég get það,” svaraði The- remon. Sheerin sló hnefanum I borðið: ALÞÝÐUBLAÐIÐ - SUNNUDAGSBLAÖ 53

x

Sunnudagsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sunnudagsblaðið
https://timarit.is/publication/302

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.