Sunnudagsblaðið - 11.04.1965, Page 12

Sunnudagsblaðið - 11.04.1965, Page 12
geymd! frakkana lunst lanl f hornl á útiskemmu og breiddi yfir bann sundur sprettum strigapoka. Hann klæddist hónum í ollum ferðalög- nin, nema ef hann skrapp til næsta bæjar og það koip fyrir að hann.. var i honum í miklum baðstofu- kulda þegar hann skrifaði löng bréf til æskuvina sinna, sem voru I Ammiríku. Löngu áður en afi minn lézt, hafði hann gert þá ráðstöfun, að frakkinn skyldi fylgja sér i gröf- ina. Það mætti gjarnan klæða sig dauðan í einhverjar léreftsríur, en umfram allt vildi hann vera í þess ari beztu flík, sem hann hafði eign azt á ævinni. Ef til viU hefur hann dreymt um, áð þegar drott- inn kallaði alla menn til upprisu og dómsins mikla, þá kynni það að hafa nokkur áhrif á hinn mikla ainvalda, að hann skæri sig úr með að ganga frakkaklæddur til dómsins, þegar flestir kæmu þang að stripaðir eða á nærklæðum éinum. Afi minn sat nú á Litla-Brún, eh teymdi Lóu með trússunum eftir sér. Trússin voru dálítið misþung. Afi minn sagði mér að halda mig á Jarp aftan við Lóu og gera sér aðvart ef reiðingurinn með klyfj- unum tæki að hallazt ofmikið. — Miðklakkur var i klyfberanum, og ég gat miðað hann við faxið á hrossinu, en ef klakkurinn fór áð yísa til hliðar við faxið, bar mér iað reka upp kall eða óp áður en áburðurinn færi undir kvið. Við lögðum nú á stað og héldum 9/o sem leið liggur upp brúnins á hálsinum, sem ér á milli Núps- dals og Vesturárdals. Brúnin er allbrött, en við fórum hægasta fetið. Þegar við komum f hana miðja, sigum við inn í kafdimma þokuna, sem lá á hálsinum þó að bjart væri niðri í dölunum. Við vorum ekki komnir nema stuttan spöl frá hæmnn, þegar afi minn fór pð kveða ríinur af Reimarl og Fal hinum sterka eftir Hákon I Brokey. Hákon var hans uppáhalds skáld. Ekki kvað hann hátt, en þó mátti ég vel greina visurnar. Ég hafði Iitla ánægju af þessum kveð skap, þvi ég gklldi ekki hinar duH- ræðu kenningar, sem voru marg- ar ekki barnameðfæri En gamli maðurmn, sem án efa fannst lesta gangurinn leiðinlegur, leltaðt ina í æfintýraheim rimnanna og upp- lifði með hljóðfall háttaima orr- ustugný og stóra sigurvinninga suður á Sardiníu- Á mig hafði kveðskapurinn svæfandi áhrif, enda var hugur- inn allur bundinn við framandi hérað og borgina á Borðeyri og hennar lystisemdir. Við riðum fram hjá Torfustaðavatni. Það hafði ég oft séð áður og í vitund minni var það eins og hafið, sí- breytilegt; stundum slétt og glampandi eins og spegill, aðra tíma æst og ógnandi, þegar stór- ar öldur voru reknar af stormum langt upp á vatnsbakkana. Á vatn- inu héldu sig að sumri til fjöldi fugla. Voru það ýmsar andateg- undir, sem urpu á vatnsbökkunum. Þar voru líka á hverju sumri tvenn svanabjón. Söngur þeirra á kyrrum sumarkvöldum var sú feg- ursta músik, sem ég hafði þá heyrt. Það var líka ofurlitil urríða- veiði í vatninu og nýmetið hragð* aðist vel í fátækt og fábreytni mat- aræðis. Þokan var það dimm, að ekki sást nema stuttan spöl frá landi. Við landbakkana var það alveg gárulaust og hávellur og endur renndu sér ofan af vatns- bökkunum ásamt ungum sinum og syntu dálítið óttaslegin vegna ó- væntrar umferðar út I þokuna. Norðankælan vakti hægfara öld- ur, sem hurfu dálítið ygldar á brún inn i þokukafið. Ég horfði hugleiddur á vatníð og fuglana, sem renndu sér út frá ströndinni, en gleymdi að horfa á áferð trússanna á áburðarhrossinu. Þegar við vorum komnir spöl- korn vestur fyrir vatnið, varð mér litið á miðklakkinn í klyfberanum og sá að hann vísaði neðanhallt við faxið á Lóu. „Afi, það er að snarast af“, hrópaði ég hátt og skrækt eins og mér lá römur til. En afi minn var ekki alveg til- búinn að fara af baki og rétta trússin við. Hann var að byrja fértugustu og áttundu vísuna í rímunum: 1 ■j Hreysti sýndu höldar minir huldir gerðum og skiftu sér með báðum borðtms, blóði úthelltu mars á storðum. Hana varð aB kveða vfsuaa tl enda, en það reið baggamuninn og reiðingurinn fór undir kvið, svo við urðum að fara af baki. Afi varð að spretta klyfberagjörðun- um og rétta reiðinginn. Svo lét hann annan baggann upp og ég stóð undir honum á meðan hann lét hinn til klakks. Að því búnu stigum við á bak á ný og hann byrjaði strax að kveða fertugustu og níundu vísuna: Eg þeim fylgdi útbúinn með Óðins funa mörgum gjörði bófa bana, bykkjur lét ég helveg flana". ★ BORGIN VIÐ HÚNAFLÓA Þégar við komum á Vesturár- dalsbrúnina, var þokan að láta undan síga fyrir sólfari og vax- ándi norðankæiuuni. Fólkið á bæj unum í dalnum var að fara á engj arnar með orf og hrífur. Ég vor kenndi því fásinni og erfiði þegar ég bar þau lítilmótlegheit saman við kaupstaðardýrðina, sem ég áttí í vændum. Ég hafði nægan tíma til þess að virða fyrir mér allt landslag, sem við fórrnn yfir, sero var mér að öllu ókunnugt áður: Hver hóll, holt, laut, brekka og ás var mér ný opinberun, þvi það var það fyrsta, sem ég hafði séð af heiminum fyrir utan heima- haga. Hrútafjarðar-hálsinn, sem leið okkar lá nú um er þangað kom, var eitthvað virðulegri en heimahálsinn. Vegslóðirnar voru miklu hreiðari og sumstaðar voru smá-vegarspottar, gerðir af mannahöndum, sem f minuro augum voru stórkostleg mann* virki. Þegar við komum að Hólma vatni, fannst mér að sumu leyti meira um það en Torfustaða-vatn, því þó að það væri allmiklu minna ummáls, var í þvi eyja eða hólmi, alþakinn hávaxinni hvönn, sem var eins og skógur tilsýndar. Ég hafði heyrt Jónas á Húki segja að hólminn væri sannkallaður aldingarður. Hann lagði hvanna- ræturnar í brennivínskúta sina og þótti öllum, sem drukku hjá hon- um hvannarótar-brennivín bera af flestum áfengum drykkjum. Jónas notaði þó akki hvannarót að staðaldri í brennivinið, því hott $4 ÍWWWWWWHSÍíA* m |

x

Sunnudagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sunnudagsblaðið
https://timarit.is/publication/302

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.