Sunnudagsblaðið - 04.07.1965, Síða 8

Sunnudagsblaðið - 04.07.1965, Síða 8
í augum brezks heittrúarmanns FYRR á öldum var- sú tízka, að bækur baeru löng heiti, enda mátti þá ævinlega sjá af nafninu um hvað bókin fjallaði. Bókarheitið var eiginléga efnis- yfirlit um leið, greinargerð um efni bókarinnar. Sú bók, sem hér verður sagt nokkru nánar frá, kom út í Englandi árið 1681 og var engin undantekning frá þessari reglu. Hún hét hvorki meira né minna en: •Sagnfræðileg frásögn um eyjuna Ceylon í Austur- Indíum; ásamt grcinargcrð' um fangavist höfundar og allmargra annarra Englendinga, sem þar dveljast cnn, og um ótrúlega undankomu höfundar. Eftir Robert Knox, sem þar var fanginn í nærri þvi tutt- ugu ár. Höfundur þessarar bókar, Robert Knox, fæddist árið 1641. Faðir hans var skipstjóri, sem sigldi aðal- lega til hafna við Miðjarðarhaf. Móðirin hét Abi- gael Bonnel og var „einstaklega guðhrædd kona,” sagði sonur hennar löngu síðar, og hún ól börn sin upp í guösótta og góðum siðum. Faðirinn vildi að Robert gerðist verzlunarmaður, en „hugur minn stóð allur til sjávarins.” Og gamli maðurinn lét undan, þegar nokkrir vinir hans ráðlögðu honum ,,aö hindra ekki góðar tilætlanir hans, því aö yfir- leitt duga ungir menn bezt í því starfi, sem hugur þeirra stendur helzt til.” Robert fékk því skipsrúm hjá föður sínum. Knox eldri átti sjálfur skip sitt, en leigði það Austun-Indíaverzlunarfélaginu, þegar fram liðu stundir. Og í nóvember 1659 voru þeir feðgar báðir staddir við Suður-Indland, þegar mastrið brotnaði af skipinu í ofviðri. Knox ákvað að halda til austur- strandar Ceylon, þar sem viður var nægur, og fá þar nýtt siglutré. En meðan áhöfnin starfaði að við- arhöggi, réðust íbúar landsins á þá og tóku þá feðga báða og sextán skipverja aðra höndum og sendu þá til aðseturs Raja Sinha U., sem þá var konungur i Kandy, og kallaöi aig keisara Ceylon- rikis. íbúar Ceylon voru þá sem nú aðallega af tveímur þjóðernum. Á suðurhluta eyjarinnar og um miðbi^ hennar bjuggu Sinhalesar, sem eru arískir, en á norðurhlutanum Tamilar, sem eru af dravídakym- Sinhalesar eru miklu fjölmennari en hinir og auk þess Búddatrúar, en Tamilarnir, sem eru aðeins um 15% af heildaríbúatölu landsins, aðhyllast hindúa- sið. Báðar þjóðirnar hafa stéttaskiptingu að inc*' verskni fyrirmynd, en stéttaskipting Sinhalesanna er ekki nándar nærri eins stíf og flókin og hjá Iud* verjum. Milli Sinhalesa og Tamila höfðu löngum átt sér stað átök, og öðru hvoru voru gerðar iuB' rásir í landið frá Suður-Indlandi, allt þar til Portú- galar komu til sögunnar snemma á 16. öld. Þeir lögðu smám saman undir sig flest strandhéruö eyjarinnar og kristnuðu um 10% íbúanna, svona 1 leiðinni, en Sinhalesar í fjallabyggðum uppi í landi héldu sjálfstæði sínu undir stjórn konunga, sem sátu í Kandy. Fr-ægastur þessara Kandykonunga var Raja §inha II., sem ríkti frá 1629 til 1687. Robert Knox lýsir samskiptum Portúgala vlð Raja Sinha á þessa leið: „Miklar og langvinnar styrjaldir voru milli Ceylonkonungs og Portúgalai og þeir minnast enn margra djarfra portúgalskr3 herforingja. Þeir gerðu konunginum þungar bú- sifjar með innrásum i lönd hans og unnu honum margt til miska, þótt það væri þeim oft dýrkeyP1- Stórorrustur milli þeirra hafa tapazt og unnizt °° mikill mannfjöldi fallið af báðum liðum. Loks var konungnum nóg boðið og liann kallaði á Hollend- inga sér til aðstoðar. Með aðstoð þeirra tók bann öll lönd af Portúgölum og hrakti þá brott frá eynni- H'ollendingar settust þá í rúm þeirra og skömnituðn sér sjálfir laun fyrir erfiðið.” 1 Uobert Knox. Þessi mynd er eins og allar myUt* irnar með greinhrai tekin úr bók hans um Ceyl°B. 472 SUNNtTDAGSBLAÐ m. ALÞÝÐXfeU&W

x

Sunnudagsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sunnudagsblaðið
https://timarit.is/publication/302

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.