Sunnudagsblaðið - 04.07.1965, Síða 9

Sunnudagsblaðið - 04.07.1965, Síða 9
Portúgalar biðu lokaósigur fyrir Hollendingum °s Raja Sinha árið 1658, en þá neyttu Hollendingan í;erisins og hernámu eins mikið af strandlengjunni °g nálægum héruðum og þeir gátu. Raja Sinha ^omst brátt að því, að hann hafði aðeins fengið önr>an keppinaut engu betri í stað Portúgala. Við Þetta jókst harðýðgi hans og kaldlyndi, og svo fór að lokum, að þegnar hans gerðu uppreisn í Kandy arið 1664. Uppreisnin var bæld niður á fáeinum ðögum, en Raja Sinha sneri ekki aftur til höfuð- korgarinnar frá fjallavíginu Hanguranketa, en Þangað hafði hann flúið, þegar uppreisnin hófst. Robert Knox og samfangar hans voru í Kandy, Þegar þessi misheppnaða uppreisn hófst, og það var einungis fyrir heppni, að þeir sluppu við að verða Uðnir við málið, en uppreisnarmenn höfðu fengið ®nglendingunum vopn. Þeir félagar voru þá taldir Porsónuleg eign konungsins, þrælar, sem nutu sér- ^akra forréttinda. í fyrstu máttu þeir þó ekki ferð- um landið að vild, heldur var þeim komið fyrir níá ákveðnum mönnum, sem skyldu sjá þeim fyrir f*ði og húsaskjóli. Fyrir öðrum þörfum sínum sóu ^eir með því að vinna það, sem til féll. Flestir ^eirra byrjuðu á að hnýta teppi, en Knox fitjaði upp a arðvænlegri atvinnugrein. Hann gerðist okrari, »bví að hér eru vextir af peningum tvöföldun þeirra a einu ári, og á þann hátt jukust eigur mínar tals- ''ert frá ári til árs.” Hann varð fljótt allefnaður andeigandi og harmaði, að „enginn landa minna frá ^Oglandi var sama sinnis, heldur létu þeir sér n®gja þau hús, sem fólkið léði þeim, og hnýttu teppi af kappi til að vinna sér inn peninga, og lögðust Slðan i drykkjuskap, þar til þeir voru' allir eyddir; 05 Þannig skiptist á teppagerð og drykkja, drykkja Ug teppagerð. Þannig leið tími þeirra flestra, fiVl að skipun konungsins var þeim gefið fæði.” Knox var ólíkur löndum sinum að fleiru leyti Cn Því. að hann ávaxtaði sitt pund, en sóaði ekki e'gum sínum í drykkjuskap. Flestir tóku þeir sér Stllám saman innfæddar stúlkur fyrir konur og sett- Usf; í helgan stein. En Robert Knox fór ekki að ®mi þeirra. Faðir hans andaðist þegar árið 1661, nábúar hans hvöttu hann oft til þess að fá sér °0u og bentu honum á, „aö það væri ekki hentugt nilgum manni eins og mér að lifa einn i húsi; og Cf konungnum þóknaðist síðar meir, að senda mig eim, væru hjónabandssiðir þeirra slíkir, sögðu Glr, og ólíkir okkar siðum, að ég gæti skilið við °nu mína og farið, án þess að það þætti nokkuð hugavert.” Knox fór alltaf kurteislega undan í aemingi, „þótt í hjarta mínu ætlaðist ég aldrei , eift slíkt fyrir; þvert á móti hraus mér einlæglega .UgUr við öllum slíkum hugsunum.” Hann fékk llð með sér þrjá aðra, sem höfðu svipaða afstöðu kvenna, og þessir fjórir piparsveinar hófu sam- .yi1, þar sem konur fengu ekki einu sinni að koma . neimsókn. „Og þannig bjuggum við fjórir saman eitthvað tvö ár án þess að nokkurn tímann félli ^ t orð á milli okkar.” En svo fór þó, að tveir c'aganna féllu og tóku sér „konur eða rekkju- aúta.” Eftir var þá aðeins einn, Stephen Rut- land, „en hann var eins staðfastur og ég og akveð- inn að kvænast ekki. Og við skildum ekki til hins síðasta, heldur flúðum saman.” Allir ensku fangarnir voru nú kvæntir menn nema þessir tveir, og því hættu Sinhalesarnir að búast við að þeir strykju. Þeim var þess vegna leyft að ferðast um landið að vild, og það notfærði Knox sér óspart. Hann lét sér vaxa sítt skegg að siö innfæddra og gekk berfættur og í sams konar klæðnaði og þeir. Auk þess var, hann kominn vel niður í málinu og þess vegna öðlaðist hann staðgóða vitneskju um landið og íbúa þess. Meðal annars gefur Knox í riti sínu mjög merki- lega lýsingu á stéttakerfi Sinhalesa og lýsir þar nákvæmlega helzta mun á klæðaburði, umgengnis- venjum og húsakynnum hinna einstöku stétta, en þetta allt er nú að mestu úr sögunni. Langf jölmenn- asta stéttin voru bændur eða jarðræktarmenn, og þessi stétt var einnig talin æðst. Bramínastétt var þar að sjálfsögðu ekki til, því að íbúarnir voru búddatrúar. Búddadómur þeirra var þó ekki upp- runalegur, því að bæði umbáru þeir stéttakerfi, sem Búdda fordæmdi, og gengu meira að segja svo langt, að telja sumar stéttir, standa utan þjóð- félagsins. Lægstir allra manna meðal þeirra voru rodiyas, eins konar förumenn, sem drógu fram Raja Sinlia. ALÞÝÐUBLAÐIÐ — SUNNUDAGSBLAU 473

x

Sunnudagsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sunnudagsblaðið
https://timarit.is/publication/302

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.