Sunnudagsblaðið - 04.07.1965, Page 11

Sunnudagsblaðið - 04.07.1965, Page 11
móti þeim og þeir sendir áfram til Colombo, en hai" „vöktum við mikla athygli meðal fólksins, því að við vorum berfættir og í klæðum Sinhalesa og síðskeggjaðir, og það flykktist utan um okkur til að sJá hverjir og hvað við værum.” Landstjóri Hollend- mSa spurði Knox nákvæmlega um Kandyríkið og hann lét þess meðal annars gelið, að íbúarnir væru 0rðnir þreyttir á harðstjórn Raja Sinha, og vissu Vel> að landar þeirra , sem Hollendingar réðu yfir hefðu betri stjórn. Þetta svar gladdi landstjórann 1T1 j ög, og hvort sem það hefur verið því að þakka °ða ekki, þá skipaði liann svo fyrir, að flóttamenn- ma skyldi ekkert skorta, meðan þeir> væru í borginni. ÍTemur vikum eftir að þeir komu til Colombo hélt Jandstjórinn til Bataviu á Jövu og tók þá félaga m°ð sér. „Hann sýndi mér svo mikinn sóma,” segir Knox, „að hann lét mig snæða með sér af borði síhu, og þar fengum við í hverri máltíð tíu eða kjötrétti og margar gerðir af vínum. Snemma í Janúar 1680 komu þeir tii Batavíu og þar voru ^óttökurnar jafnvel enn glæsilegri en í Colombo. Landstjórinn þar, sem réð fyrir öllum hollenzku Áhstur-Indíum, lét hann sitja til borðs með sér, „en har sat einungis hann sjálfur og frúin, sem var al- Sett deniöntum og perlum. Stundum borðuðu synir hans og tengdadætur og aðrir gestir með þeim, og Óá voru lúðrar þeyttir allan tímann á meðan.” Nú Aftaka meö fíl. lögðu Englendingarnir tveir af Singhalesaklæðin og skáru skegg sín, en hollenzki landstjórinn lét þá hvorki skorta skrautklæði né fé. Hann bauðst til að sjá þeim fyrir ókeypis fari tij Evrópu með hol- lenzku skipi, en fulitrúar brezka Austur—Indía verzlunarfélagsins höfðu nú frétt af ferðum þeirra og mæltust til þess, að þeir héldu heimleiðis með skipi félagsins, Caesar, sem þeir og gerðu. Caesar varpaði akkerum á Thamesfljóti í september 1680. Bók sína ritaði Knox að mestu leyti á heimleiðinni. Hann segist aðallega hafa gert það „til að venja hönd sína við skriftir, því að allan tímann, sem ég var fangi, hafði ég hvorki penna, blek né pappír, og nú þegar ég kom eins og nýfæddur í heiminn, t.aldi ég það skyldu mína að læra að skrifa, og mér fannst þetta vera verðugt viðfangsefni til að beita penna mínum að, en þá ætlaði ég mér ekkert meira með því.” Eftir heimkomuna gekk Knox svo aftur í þjónustu verzlunarfélagsins, en handritið var sent til útgáfu. Formála að bókinni ritar dr. Róbert Hooke, sem var mjög náinn vinur Knox til æviloka og arfleiddi hann að „eitthvað 30 þúsund pundum í reiðu fé og auk þess jarðeignum, og þó liafði hann lifað við örbirgð, eins og hann skorti fé til að fæða sig og klæða sómasamlega.” Þessi maurapúki virðist hafa verið bezti vinurinn, sem Knox eignaðist um dagana, enda hafa þeir verið um margt líkir. Þó verður að segja Knox það til hróss, að hann studdi móðurfrændur sína drengilega í ellinni og í erfða- skrá sinni mundi hann eftir ungum ættingjum sínum. sm. W.'fy M 1 ml Fara verður fljótt yfir sögu Knox eftir að hann kom heim aftur. Hann tók upp Indlandssiglingar á ný og lenti í ýmsum ævintýrum. Nokkra fyrrver- andi samfanga sína frá Kandy rakst hann á í þess- um siglingum, en þeim hafði verið gefið frelsi eftir andlát Raja Sinha 1687. Hins vegar kærðu þeir sig ekki nærri allir um að fara, þótt nokkrir væru að týnast burt næstu árin. Sá síðasti, sem vitað er um, hvarf heim árið 1704 eftir nærri 50 ára vist í Kandy. Knox hætti siglingum, er hann var kominn á sextugs aldur, en lifði lengi eftir það. Hann andaðist 1720, þá kominn fast að áttræðu. Bók hans hlaut góðar móttökur á þeirrar tíðar mælikvarða. Árið 1708 segir Knox í bréfi: „Allar þær bækur, sem prentaðar voru, hafa selzt upp og fleiri hefðu selzt, hefðu þær verið fyrir hendi, og einnig hefur bókin verið þýdd á hollenzku og frönsku.” En þótt undarlegt megi virðast um jafn- vinsæla bók var hún ekki endurprentuð í Englandi. meðan Knox var á lífi. Áhrif bókarinnar má þó víða merkja og til hennar er vitnað í fjölmörgum rit- um. Greinilegt er t. d„. að Daníel Defoe hefur þekkt i rilið, og áhrifa frá því gætir nokkurra í Robinson Rrúsó. Mogingildi Ceylonbókar Knox er þó ekki fólgið í éhrifum hennar á bókmenntasöguna, heldur hinu, hve glögga og lifandi mynd þar er að fá af gamla konungsríkinu í Kandy. Það er meira að segja mikið efamál, að síðari verk um sama efni, taki þcssai’i gömlu bók fram. 1 ALÞÝSUBLAÖIÐ - SUNNUDAGSBLAÐ 475

x

Sunnudagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sunnudagsblaðið
https://timarit.is/publication/302

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.