Sunnudagsblaðið - 10.10.1965, Page 8

Sunnudagsblaðið - 10.10.1965, Page 8
ÞAU voru öll dönsk, þrjár og þrír. Þeir voru afskaplega stroknir og lyktuðu af vellyktandi og þær voru voða brosmildar, alltaf til í að hlæja, þegar einhver sagði brandara, og þeir sögðu líka ógurlega marga brandara. Þau fengu borð í einum básnum með fram- lengingu og einn sá, sem sat við endann var fram- sögumaður og hann pantaði. Fyrsti þjónninn skyldi ekki aimennilega dönsku, og þá sagði framsögu- maðurinn: „Fanens íslandsmannen” og hin öll hlógu. Þá kom annar þjónn, sem talaði dönsku með góðu skrollhljóði. Framsögumaðurinn brosti ofurlítið og bað um matseðilinn og svo kom mat- seðillinn. Auðvitað hélt framsögumaðurinn fram- söguræðu og las upp það, sem stóð á matseðlin- um. Þær brosmiidu voru alltaf að hlæja. Það voru tvær umræður og málinu vísað í nefnd. Athuga- semdir: „íslendingerne kan ikke lave grisestej.” Löng lýsing, nei, Iangar og dramatískar lýsingar á hinum ýmsu grisasteikum. Sá, sem sat hægra megin við borðið sagði frá Iitla sæta grísnum, sem pabbi hans á Jótlandi ætti og honum fannst aga- lega Ijótt, að það skyldi þurfa að drepa hann, og þá hlógu þær ekki og meira að segja setti ein upp skeifu, en þá var einmitt komið að atkvæða- greiðslunni og þeir sem vildu körfukjúklinga áttu að benda út í loftið með vísifingri, en hinir, sem vildu kálfafíllettuna áttu að benda með baugs- fingri. Visifingurnir unnu, og framsögumaðurinn æpti: „Bravó.” Ein umræða var við höfð um hvort ætti að borða kjúklinginn með hnif og gaffli eða með puttunum. Ýmiss rök hnigu að báðum aðferðum: „Kongen sþiser jo med fingrcne, hvorfor lægger de knive og gaffle po bordet?” Já, og nú tóku þær þátt í umræðunum. Sú, sem hafði séð sjálfan kóng- ihn, hann Friðrik V. borða körfukjúkling með puttunum, hafði sig mjög í frammi og sagðist ekki skilja þann skrælingjahátt að ætla að borða körfu- kjúkling með hníf og gaffli. Puttarnir urðu ofan á og þau borðuðu öll með puttunum. Framsögu- maðurinn var súr á svipinn, sagði engan brandara. Litli karlinn, sem sat vinstra megin, hvislaöi ein- hverju að konunni meö litaða hárið, sem sat við hliðina á honum, og hún hló og hvíslaöi yfir borð- ið að konunni með mikla dinglumdanglið i eyr- unum og þá fóru allir að hlæja og háværi fram- sögumaðurinn kallaði á þjóninn og sagði: „Vi vil ha mere rödvin.” Þjónninn kom og sagði veskú — og hellti pínu pennadropa í glasið hjá framsögumanninum og hann gretti sig dálítið og sagði: „De kan bruges,” og þá hlógu hin öll og fram- sögumaðurinn þurfti að setja stút á munninn á sér til að halda niðri í sér hlátrinum, því auð- vitað gat hann ekki hlegið að sínum eigin brand- ara, jafnvel þó að hann væri anzi vel heppnaður. Maður borðar með miklu meiri tilfinningu, þeg- ar maður notar puttana en þegar maður hefur hníf og gaffal, sýgur vandlega af beinunum og getur jafnvel leyft sér þann munað að smjatta dá- lítið og jafnvel ropa ofurlítið og þá auðvitað hlæja, og þegar háværi framsögumaðurinn sagði: „Nu for vi deseren” hafði Iitli karlinn vinstra megin að minnsta kosti tvisvar ropað og hann var ógur- lega fyndinn. „Vi vil ha deser,” sagði háværi framsögumaður- inn, þegar þjónninn kom með ávöxtinn og rjóma- froðuna, svipurinn var allur ein fyrirlitning. —• Þjónninn varð kindarlegur, setti spurningarmerki á andlitið og konan á rauða kjólnum, sem sat í horninu spurði, hvort ekki væri hægt að fá deser og þá sagði háværi framsögumaðurinn: Foi’stor de ikke, vi vil ha d e s e r . Nxi voru komnir tveir þjónar og þeir bukkuðu sig báðir og ungþjónn í hvítum jakka kom aftur með matseðilinn og allir þjónarnir stóðu á önd- inni af eftirvæntingu, hvort „deser-málið” yrði tekið til tveggja umræðna og því vísað í nefnd og atkvæðagreiðsla og allt það. Þau hvísluðust, og varaliturinn á konunni með dinglumdanglið í eyrunum hafði leitað dálítið ut á kinnarnar í kjúklingaátinu, og þegar hún hvísl- aði, géngu varirnar upp og niður eins og á pínu- litlum fiski. Allt í einu kom xirskurðurinn og eng- in atkvæðagreiðsla: „Vi vil ha kaffe og koniak.” Þjónunum létti og ungþjónninn i hvíta sloppn- um fór aftur með matseðilinn. Þegar þjónninn kom með kaffið, þá vildu þeír fá sígaravindla, enga bölvaða Hollandssterta — heldur almennilega Havannasígara og þjónninn kom aftur með háan hlaða af sígarakössum og þeir þrefuðu og þráttuðu og þjónninn stóð alltaf með alla kassana í fanginu þangað til háværari fram- sögumaðurinn sagði: „Har de ikke flóra daníka?” Það var óskaplega mikil lífsreynsla í því að borða við hliðina á danska fólkinu og þegar sköll- ótti maðurinn í hoi’nhásuum stóð upp, þá heyrðist lxann segja stundarhátt: „Það vildi ég að allt helvítis draslið stæði í Baununum.” — bébjoð. 4gg SUNNUDAGSBLAÖ - ALÞÝÞUBLAÐIÖ á ooooooooooooooooooooo

x

Sunnudagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sunnudagsblaðið
https://timarit.is/publication/302

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.