Sunnudagsblaðið


Sunnudagsblaðið - 10.10.1965, Qupperneq 10

Sunnudagsblaðið - 10.10.1965, Qupperneq 10
A ' 'i': H Wg&L i ■ : •.'; ■ ■ >* Krassin kemur bakdyramegin til bú. taðar brezka forsætisráðherrans. Curzons lávarðar var það óbærileg tilhugsun, að við skyldum ræða við „þessa hræðilegu ríkisstjórn í Moskva.” J’essi f jandsamlega afstaða utan- ríkisráðherrans olli því, að ekld voru farnar venjulegar leiðir við gerð viðskiptasamningsins. Eins og Punch orðaði það, voru aðal- dyrnar í Downing Street 10 bann- aðar bolsévíkum, og því varð Krassin að nota „sölumannadyrn- ar”, og það var Sir Robert Horne, fjármálaráðherra, sem undirritaði samninginn, ekki utanríkisráð- herrann. Þetta var ekki efnileg byrjun. En Rússland var á þessum árum tilbúið til að þola auðmýk- ingu, og jafnvel upp á þessi býti var viðurkenning Breta vel þegin. Auk þess fylgdi Ítalía og önnur riki fljótlega í kjölfar Breta. Mér hefur að sjálfsögðu aldrei verið skýrt frá því, livaða ástæður komu utanríkisráðuneytinu til að velja mig til að veita forstöðu þeirri viðskiptasendinefnd, sem í voru fjórir „opinberir sendi- menn” og skrifstofulið þeirra og send var til Moskva samkvæmt viðskiptasamningnum. Og ég hef alltaf undrað mig á því, að Sovét- stjórn skyldi fallast á útnefningu mína eftir þau nánu tengsl, sem ég hafði staðið í við hemaðar- íhlutunina, en ég hafði verið sett- ur yfirherstjóri hjá stjórn Kol- shaks í Omsk. En þetta starf virt- ist sérstaklega freistandi og ég tók boðinu fegins hendi. Fyrsta vandamálið, sem þurfti að leysa, var hvað hinir opinberu full- trúar ættu að gera, þegar til Mos- kva væri komið. Því var skotið til Curzons lávarðar og hann á- kvað, að ég skyldi semja mín eig- in fyrirmæli sjálfur. Eg hófst handa við það, og ég man enn, hve glaður ég varð, er ég frétti að lávarðurinn hafði fallizt á upp- kast mitt. Það var merkt með geysistóru C á öftustu síðunni, og neðan við það var lítill reitur. Innan i reitinn var fagurleg3 skrifað: „Þessi fyrirmæli eru mjog vel samin.” Þetta var góð byrjun Það var sannarlega heiður, eð vera skipaður sendifulltrúi ríkisstjórn Rússlands, jafnvel þótt það væri bolsévikastjórn, sem ekki hefði hlotið nema de facto viður- kenningu. Við héldum til Moskva í ágúst- lok og fórum um Riga. Wilham Peters, hinn ágæti aðstoðarmaður minn, hafði verið sendur á und- an mér til að undirbúa komu o&t- ar. Við komuna urðu ýmsir erfið- leikar á vegi okkar. í fyrsta laS* var sá matur, sem hægt var a fá þar, alveg óætur. Þetta leyst um við með því að komast að ÞV1 samkomulagi við bolsévikastjórn- ina að flytja mætti þrjá vagna a vörum til sendinefndarinnar 3 490 SUNNUDAGSBLAÐ - ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Sunnudagsblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sunnudagsblaðið
https://timarit.is/publication/302

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.