Morgunblaðið - 18.11.2004, Blaðsíða 19
stæður og hvað virkaði og hvað
ekki. Hvað mér fannst gott og
hvað slæmt.
Númer eitt er þetta atvinna mín.
Ég fæ greitt fyrir og má segja að
þetta sé bara spurning um að velja
sér starf. Ég hef gaman af að
vinna með einstaklinga og það er
mjög ánægjulegt þegar manni
tekst að snúa við ferli sem hefur
kannski verið á erfiðri leið og þú
sérð krakkann vaxa upp og dafna.
Ég þekki dágóðan part af þeim
krökkum sem voru hjá foreldrum
mínum. Maður heldur alltaf uppi
njósnum um krakka sem skiptu
mann máli ef mögulegt er að kom-
ast í tæri við einhvern sem veit
eitthvað um þá. Meiri parturinn af
krökkunum hefur dafnað vel og
komist á réttan kjöl.“
Þorbjörg segir strákana sína
gera það sem krakkar í sveit gera,
þeir séu með í búskapnum og
heimilishaldinu. „Þeir stunda sinn
skóla og að öllu leyti er þetta bara
daglegt líf eins og hjá öðru fólki.
Við erum ekki með
neitt prógramm í
gangi heldur sköpum
þetta sem fjölskyldu,
leyfum þeim að eiga
heima hjá okkur sem
okkar krakkar.“ Fíg-
aró mjálmar langt inn-
an úr sínum hnaus-
þykka feldi, sú stutta
biður um meira súkku-
laði og húsfreyjan kall-
ar til piltsins að svara í
símann.
Skin og skúrir
Þorbjörg segir það
erfiðasta sem hún hafi
lent í þegar hún var
send suður að sækja
stúlku sem hafði farið í
helgarfrí og neitaði að
koma til baka. „Ég
geri það aldrei aftur. Ég þurfti að
taka hana úti á miðju sjoppuplani
og setja inn í bíl og fara með hana
vestur. Þetta var vont og ég læt
ekki hafa mig í það aftur. Þetta
snerist við frá þessum degi, þegar
hún komst að því að svona þýddi
ekkert, hún yrði að gjöra svo vel
að taka á. Þessi stelpa hefur mjög
oft verið kölluð kraftaverkið og
þegar hún fór frá okkur var vel
hægt að tala við hana, hún náði
10. bekknum þrátt fyrir að vera
ekki góður námsmaður og var
orðin heilli í öllu sem hún gerði.
Hafði lært umburðarlyndi og gat
átt samskipti við aðra krakka og
fjölskyldu.
Það yndislegasta er að ég er að
verða amma af elsta barninu sem
var hjá okkur. Sú er orðin 22 ára í
dag og ég er svo ánægð að hafa
getað fylgt henni allan þennan
tíma, frá bernsku og fram til þess
að hún eignaðist kærasta, fór að
búa og býr sig nú undir það að
verða foreldri sjálf.“
spilta og kemur þeim til manns
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Hún umvefur strákana sína Þorbjörg Ás-
björnsdóttir á Lynghóli í Skriðdal segir strák-
ana hluta af fjölskyldunni.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. NÓVEMBER 2004 19
MINNSTAÐUR
Förðunarfræðingur Kanebo kynnir þessa einstöku varaliti sem sameina
alla kosti draumavaralitarins og meðferð fyrir varirnar.
Í Hagkaup Spönginni í dag fimmtudag
og á morgun föstudag kl. 12-18.
Spönginni
Hefur þú prófað varaliti með gulli og silki?
INTERNATIONAL