Morgunblaðið - 18.11.2004, Blaðsíða 54
54 FIMMTUDAGUR 18. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Miðasala opnar kl. 15.30
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
Sýnd kl. 4. Ísl. tal.
J U L I A N N E M O O R E
HVAÐ EF ALLT SEM ÞÚ HEFUR
UPPLIFAÐ...VÆRI EKKI RAUNVERULEGT?
Sýnd kl. 10. B.i. 16 ára.
Sýnd kl. 3.50 og 8. B.i. 14 ára. Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10. B.i. 12 ára.
Frá leikstjóra RUSH HOUR og RED DRAGON
PIERCE BROSNAN
SALMA HAYEK
WOODY HARRELSON
DON CHEADLE
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15.Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15. B.i. 14 ára.Sýnd kl. 6 og 8.
Ein besta spennu- og grínmynd ársins
Frá leikstjóra RUSH HOUR
og RED DRAGON
PIERCE BROSNAN
SALMA HAYEK
WOODY HARRELSON
DON CHEADLE
Ein besta spennu-
og grínmynd ársins
J U L I A N N E M O O R E
HVAÐ EF ALLT SEM ÞÚ HEFUR
UPPLIFAÐ...VÆRI EKKI
RAUNVERULEGT?
Í bíó
Í bíó
Sýnd kl. 6 og 10.10.
Yfir 7500 manns
Yfir 32.000 gestir
Stærsta íslenska heimildarmyndin
Sýnd kl. 4. Ísl. tal.
Besta heimildarmynd ársins
Sýnd kl. 6. Ísl. tal.
Sýnd kl. 8 og 10. B.i. 14 ára.
kl. 5.45, 8 og 10.15. B.i. 14 ára.
Frábær gamamynd
með Billy Bob Thornton
... þú missir þig af hlári
Frábær gamamynd
með Billy Bob Thornton
... þú missir þig af hlári
Frumsýning
Frumsýning
BILLY BOB THORTON BERNIE MAC LAUREN GRAHAM
HELSTI kostur Eftir sólsetur er glampandi sólskin
og safírblátt Karíbahafið sem hristir fljótlega af
okkur drungann sem sest að í kuldalegum og gleði-
snauðum skammdegisgrámanum. Annað er það eig-
inlega ekki. Myndin er laglega gerð útlitslega, taka
Dantes Spinotti er fagmannleg, tónlistin mátulega
seiðandi og það er hreint ekkert leiðinlegt að sjá
Hayek og Harris tipla um fáklæddar. En þegar öllu
er á botninn hvolft er Eftir sólsetur fjallbratt inni-
haldsleysi í ætt við aðalstjörnuna – jafnvel þó hún
feli sig á bak við grásprengda skeggbroddana.
Sólsetrið segir af Max (Brosnan) og Lolu (Hay-
ek), færustu demantaþjófum heims. Í myndar-
byrjun fylgjumst við með síðasta ráninu þeirra þar
sem þau gera í leiðinni alríkislögguna Stan (Harrel-
son) að fífli. Parið flýgur á brott til Bahamaeyja þar
sem þau hyggjast setjast í helgan stein en Stan hef-
ur aðrar hugmyndir. Hann veit af komu skemmti-
ferðaskips til eyjanna með verðmætasta eðalstein
veraldar innanborðs. Stan hyggur á hefndir.
Eftir sólsetur er þokkaleg skemmtun en vitlaus-
ari gerast þær ekki, enginn fer fram á rökrétta at-
burðarás í myndum um rán á demöntum, þessa líf-
lega kapítula í krimmagreininni, en hér tekur hvert
atriðið við af öðru þar sem skynseminni er ofboðið í
afarlöngum forleik að lokasprettinum. Þegar hann
reynist ótrúlega bragðlaus er fokið í flest skjól.
Myndin á greinilega að halda Brosnan inni á kort-
inu eftir 007, sem skilur engar sýnilegar framfarir
eftir sig, heldur er Brosnan sem fyrr, notalegur en
rýr. Hayek gæti etið hann í morgunmat og fengið
sér aftur á diskinn. Samband þeirra er náttúrulaust,
enda aðalnæringin þreytandi kossaflangs. Harrel-
son fær ívið betur skrifað hlutverk hrakfallabálksins
og skilar því sómasamlega en Harris og Cheadle eru
föst í daufum löggu og bófa hlutverkum. Brosnan
stenst ekki samanburð við Steve McQueen, Conn-
ery, að ekki sé talað um Cary Grant og myndin er
lítið meira en litaglatt bergmál fágaðra ránsmynda á
borð við To Catch a Thief og Entrapment.
Rósrautt
sólarlag
KVIKMYNDIR
Laugarásbíó, Smárabíó, Regnboginn,
Borgarbíó Akureyri
Leikstjóri: Bratt Ratner. Aðalleikendur: Pierce Brosnan,
Salma Hayek, Woody Harrelson, Don Cheadle, Naomie
Harris. 93 mínútur. Bandaríkin. 2004.
Eftir sólsetur (After the Sunset) Sæbjörn Valdimarsson
HROLLVEKJUR eru allsráð-
andi í bíóhúsum landsins og
einn hrollurinn tekur við af öðr-
um. Um síðustu helgi var það
Hinir gleymdu (The Forgotten)
sem hélt áhorfendum föstum og
skjálfandi í sætum sínum og um
þessa helgi er það Óbeitin (The
Grudge). Um 3.200 manns sáu
myndina yfir helgina síðustu sem skilaði henni
í toppsætið eins og búist hafði verið við en alls
hafa nú á fimmta þúsund manns séð hana, að
meðtöldum forsýningum.
„Hryllingsmyndir eru heitar þessa stundina
og mikið gert af því að endurgera japanskar
hryllingsmyndir,“ segir Christof Wehmeier hjá
Sambíóunum. „Nú er skammdegið líka komið
og ég held bara að fólk hafi gaman af að láta
hræða sig svolítið. Það er allavega vel öskrað í
salnum. Áhorfendur eru orðnir 5.000. Hún á
eftir að hræða nokkur þúsund í viðbót.“
Grínkrimminn Eftir sólsetrið (After The
Sunset) með Pierce Brosnan var heims-
frumsýnd hér á landi á föstu-
dag og gekk ansi vel, og í raun
betur en í Bandaríkjunum, þar
sem hún var einnig frumsýnd
um helgina. Hér náði hún 2.
sæti og rétt ríflega 3.100
áhorfendum á meðan hún varð
að sætta sig við 3. sætið vestra.
Eddu-verðlaunamyndin Blind-
sker – Saga Bubba Morthens heldur enn velli á
listanum og er í 15. sæti, en nú hafa tæplega 8
þúsund manns séð þessa „heimildarmynd árs-
ins“ og má búast við að aðsóknin taki einhvern
kipp núna eftir þessa verðskulduðu vegtyllu.
Það er gleðiefni að tvær kvikmyndahátíðir
skuli standa yfir um þessar mundir; Norrænir
bíódagar gengu vel í Háskólabíói og nú er tekin
við Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík sem
stendur fram til 25. nóvember og mun bjóða
uppá 16 nýjar, innlendar og erlendar kvik-
myndir.
Bíóaðsókn | The Grudge vinsælust
Hræðsla í skammdeginu
Japanskar vofur hræða í íslenska
skammdeginu: The Grudge.
skarpi@mbl.is
!
"
#
$
$
%
&
'
!" #
!" #
$ %& ''(%)* &%+,-+
.
.
& ( * $
! "
#
$
& '#
! ( &
#)"
* ) + ,) .
/
0
1
!
2
3
/4
5
6
/3
/0
4
//
/!
/1
/5
0"
0/
$%
/
/
!
3
!
!
1
0
/3
0
4
5
!
0
2
!
2
/1
5
!
7)89*7%%:;:<%
=7)8:=7)8:> 7:7)8: ?7)8; *$)%
=7)8@!' A:> 7:7)8:
7)89*7%%:<%
:; *$)%:B=%87)8 =7)8
7)89*7%%:;:<%
7)89*7%%:<%
:B=%87)8
7)8;:; *$)%:B=%87)8
=7)8:> 7:7)8
=7)8: *?C
7)89*7%%:; =7)8:> 7 =7)8:> 7 =7)8
=7)8:;7)8: ?7)8<%
=7)8
B=%87)8
7)89*7%%:B=%87)8
7)89*7%%:;:
? =7)8
B=%87)8
MAÐUR var stunginn og rapp-
mógúllinn Dr. Dre kýldur í andlit á
Vibe-verðlaunahátíðinni sem fram
fór á mánudagskvöld í Santa Monica
í Bandaríkjunum.
Verðlaunahátíðin er helguð hipp-
hopp-tónlist og átti Dr. Dre að veita
þar viðtöku heiðursverðlaunum úr
hendi upptökustjórans Quincy Jones
og rapparans Snoop Dogg. Þegar
Dre gerði sig líklegan til að fara upp
á svið til að taka við viðurkenning-
unni var hann kýldur, árásarmað-
urinn flúði og lífverðir Dres fylgdu í
humátt á eftir honum. Brutust þá út
allsherjar slagsmál meðal hinna
u.þ.b. eitt þúsund gesta sem voru við
hina „virðulegu“ verðlaunaathöfn.
Margir særðust lítillega og einn al-
varlega sem var stunginn í kviðinn
með hnífi og fluttur á slysadeild.
Árásarmaðurinn gengur laus.
Eftir að lögreglu tókst að róa
mannskapinn var hátíðarhöldum
haldið áfram og Dr. Dre fékk sín
heiðursverðlaun.
AP
Snoop Dogg og Quincy Jones,
stuttu áður en áflogin brutust út.
Fékk
kjaftshögg
og heiðurs-
verðlaun