Morgunblaðið - 18.11.2004, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. NÓVEMBER 2004 47
DAGBÓK
Líffræðifélag Íslands og LíffræðistofnunHáskólans standa á föstudag og laug-ardag fyrir ráðstefnu undir yfirskrift-inni „Líffræði – vaxandi vísindi“, í til-
efni af 30 ára afmæli stofnunarinnar og 25 ára
afmæli Líffræðifélagsins. Ráðstefnan er haldin í
Öskju, en vegna fjölda fyrirlestra mun hluti dag-
skrár fara fram í sal Íslenskrar erfðagreiningar
og í Norræna húsinu. Alls verða flutt 91 erindi,
þar af átta yfirlitserindi, og 125 veggspjöld verða
til sýnis. Þá verða á ráðstefnunni veitt verðlaun
fyrir framlög námsmanna.
Sigurður Snorrason, formaður ráðstefnu-
stjórnar, segir líffræði vera geysilega fjölbreytt
fag. „Líffræðin spannar fræði sem fást við
smæstu lífsform eins og veirur og bakteríur upp í
stórar, flóknar lífverur eins og manninn.
Líffræðin fæst við að skýra hvernig lífræn kerfi
eru saman sett og hvernig þau starfa. Þetta á
jafnt við um hin smæstu kerfi, þ.e. einstaka frum-
ur og frumuhluta, og hin stærstu, t.d. vistkerfi
sjávar. Þegar horft er til lengri tímaskala fæst líf-
fræði einnig við margháttuð vandamál þróun-
arfræðinnar, svo sem uppruna tegunda, t.d.
mannsins,og skyldleika þeirra innbyrðis. Líf-
fræðin hefur þróast geysihratt á síðustu árum og
er þar einkum byltingu í sameindalíffræði, tölvu-
tækni og upplýsingatækni fyrir að þakka. Þessi
bylting hefur opnað mönnum sýn inn í erfðamengi
lífvera, og orðið til þess að við erum nú að öðlast
sífellt betri skilning á því hvernig gen stýra líf-
efnafræðilegum ferlum sem eru undirstaða dag-
legrar starfsemi lífvera en skýra jafnframt flókn-
ustu ferli eins og fósturþroska, þ.e.a.s. hvernig
fullþroska lífvera eins og maðurinn verður til úr
einni frumu. Jafnframt því að opna nýjar leiðir til
að fást við ótal spurningar á ýmsum sviðum líf-
fræðinnar hafa framfarir í sameindalíffræði sann-
arlega getið af sér nýjar fræðigreinar. Þar má
nefna líftækni, þroskunarerfðafræði, auk greina
er spretta upp úr jarðvegi lífupplýsingafræði eins
og genamengjafræði og prótínmengjafræði.“
Hver eru helstu viðfangsefni líffræðinga í dag?
„Eins og nærri má geta starfa margir líffræð-
ingar hjá opinberum rannsóknastofum sem fást
við líffræðileg vandamál. Þarna má nefna Haf-
rannsóknastofnun, Rannsóknastofnun landbún-
aðarins, Keldur og Veiðimálastofnun. Þá eru
margir líffræðingar við rannsóknir í háskólum og
við einkareknar rannsóknastofnanir eins og Ís-
lenska erfðagreiningu, Prokaría og ORF. Fjöld-
inn allur starfar við rannsóknastofnanir spít-
alanna svo og í opinberum eftirlitssstofnunum
eins og t.d. á Umhverfisstofnun. Þá má ekki
gleyma líffræðingum sem fást við að miðla þekk-
ingu sinni í skólum landsins. Alla þessa fjöl-
breytni má sjá með einhverjum hætti á ráðstefn-
unni.“
Líffræði | Ráðstefna í Háskólanum um líffræði í sínum víðasta skilningi
Afar víðfeðm fræðigrein
Sigurður S. Snorra-
son er fæddur á Ak-
ureyri árið 1951. Hann
lauk BS-prófi í líffræði
frá HÍ 1974 og dokt-
orsprófi í dýrafræði frá
Háskólanum í Liverpool
árið 1982. Sigurður var
ráðinn lektor við líf-
fræðiskor árið 1989, en
gegnir nú dósentsstarfi
með þroskunarfræði
sem aðalgrein. Þá gegnir hann stöðu forstöðu-
manns Líffræðistofnunar HÍ.
Sigurður er kvæntur Hrefnu Sigurjóns-
dóttur, prófessor við KHÍ. Þau eiga tvö börn.
Skólaskipið Dröfn
ÉG vil lýsa yfir furðu minni, og mót-
mæla því harðlega, að ef satt er að
verið sé að selja skólaskipið Dröfn
sem hefur gegnt sínu hlutverki með
sóma þjóðinni til hagsældar. Þetta er
sjómannaþjóð og allar þjóðir hafa sín
skólaskip nema Íslendingar og er
skömm að því.
Með ósk um það að fleiri láti í sér
heyra í sambandi við þetta mál.
Skúli Einarsson.
Auðnum er oft misskipt
AF og til skjótast upp á yfirborðið
ýmis spillingamál, bæði hér á Íslandi
sem erlendis. Kannske það nýjasta sé
fjármál hins virta leiðtoga Yassers
Arafat sem nú er látinn.
Allar sjónvarpsstöðvar, íslenskar
sem erlendar, hafa fylgst náið með
heilsufari, andláti og útför þessa um-
deilda foringja undanfarið. Að honum
látnum er hann síðan hafinn upp til
virðingar víða um heim, og má þar á
meðal lesa grein eftir Svein Rúnar
Hauksson í Morgunblaðinu 13. nóv.
sl.
Ef satt er, lætur þessi mæti maður
eftir sig 4 milljarða dollara sem komið
hefur verið fyrir í bönkum (t.d. á
Caymaneyjum) og víðsvegar um
heim, undir leyninöfnum.
Af fréttum sem berast fær eftirlif-
andi ekkja hans, Sua og dóttir þeirra,
22 milljónir dollara í lífeyri eða sem
nemur 1,5 miljörðum ísl. kr. á ári.
Geta þær því haldið sínu lúxuslíferni
áfram í París sem endranær.
Á hverjum degi, undanfarin ár,
hafa fjölmiðlar birt fréttir af blóð-
ugum bardögum milli Palestínu og
Ísrael. Eftir stendur hnípin þjóð í
vanda, hörmungar, örbirgð og úr-
ræðaleysi sem varla verður leyst í ná-
inni framtíð.
Kannske hefði verið hægt að rétta
fátækri húsnæðislausri fjölskyldu, já
þó fleiri hefðu verið, smá hjálparhönd
fyrir brotabrot af þessari upphæð,
sem um er rætt.
Auðnum er oft misskipt.
Svanur Jóhannsson.
Blár Nokia-sími týndist
BLÁR Nokia 3100 með tveimur lím-
miðum aftan á týndist í eða við Sund-
höllina á Barónsstíg síðdegis sl. mið-
vikudag. Skilvís finnandi hafi
samband ísíma 588 4880 eða
860 1206.
Gleraugu týndust
GLERAUGU, með brúnum spöngum
með steinum, týndust miðvikudaginn
10. nóvember við Europrice eða
IKEA. Skilvís finnandi hafi samband
í síma 551 2782.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 kl. 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
SVEITIRNAR Ampop og Ensími
troða upp á skemmtistaðnum Gauk
á Stöng í kvöld auk Prins Valium,
sem hefur tónleikana með seiðandi
raftónlist.
Ampop mun á tónleikunum
kynna nýtt efni en sveitin er nú í
þann mund að ljúka við sína þriðju
breiðskífu, sem stefnt er á að komi
út í vor. Þá eru Ampop-liðar að
gera sig klára fyrir stutta hljóm-
leikaferð til Bretlands í lok mán-
aðarins.
Ampop hefur verið í töluverðri
útrás síðustu misseri, en í sept-
ember spilaði sveitin í Manchester
á hinni margrómuðu tónleikahátíð
„In The City.“ Einnig kom hljóm-
sveitin fram á tónleikum í London,
ásamt Gary Jules og Aqualung,
ekki alls fyrir löngu, en sveitin fer
aftur út til Bretlands í viku tón-
leikaferðalag á sunnudagsmorgun
og leikur tvenna tónleika í London
og eina í Bath. Nýr meðlimur
bættist í sveitina fyrr á árinu og
lék meðal annars með þeim á
Airwaves og í september, en þar
er á ferðinni Jón Geir Jóhannsson,
trommuleikari og slagverks-
listamaður.
Ensími tók þátt í nýafstaðinni
Airwaves-hátíð en hefur lítið spil-
að opinberlega síðustu mánuði.
Sveitin hefur undanfarið unnið að
nýju efni sem sveitin mun kynna á
tónleikunum, en einnig hafa þeir
unnið að gerð myndbands. Ensími
verður með lag á safnplötu sem
kemur út í byrjun desember til
styrktar frelsisbaráttu Palestínu.
Ómþýð raftónlist
og rokk á Gauknum
Tónleikarnir hefjast stundvíslega
kl. 22. Aðgangseyrir að tónleik-
unum er 700 kr.
Ampop á Iceland Airwaves.
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigi 5
• Sími 581 2141
15% afsláttur
af stökum jökkum
Sértilboð á vattfóðruðum frökkum
HREINLÆTISVÖRURNAR FRÁ
REYKVÍKINGAR!
VIÐ BJÓÐUM ÞÉR Í FERÐALAG
UM BORGINA!
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins bjóða
Reykvíkingum í vettvangsferð um borgina
laugardaginn 20. nóv. 2004 kl. 14.00.
14.00 Mæting við Valhöll, Háaleitisbraut 1.
14.15 Lagt af stað í langferðabifreiðum
frá Valhöll. Við skoðum m.a.
uppbyggingu í Sundahöfn, 101
Skuggahverfi, Slippsvæðið og tillögu um
staðsetningu tónlistar- og ráðstefnuhúss.
Skoðum hugmyndir um samgöngubætur,
færslu Miklubrautar, mislæg gatnamót og
tillögur um legu Sundabrautar. Ökum
að Geldinganesi og um nýja hverfið í
Grafarholti.
15.45 Kaffi og veitingar í Valhöll í boði
borgarstjórnarflokksins.
Ávarp
Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar, oddvita
Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn.
Allir hjartanlega velkomnir
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku
í síma 515 1700
Borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokksins
www.gimli.is - ww.mbl.is/gimli
Árni Stefánsson viðskiptafræðingur og lögg. fasteignasali
FASTEIGNASALAN
GIMLI GRENSÁSVEGI 13, SÍMI 570 4800 - FAX 570 4810
Traust þjónusta í 20 ár
SÉRHÆÐ Í VESTURBÆ
KÓPAVOGS ÓSKAST
Til mín hefur leitað fjársterkur aðili sem búinn
er að selja og óskar eftir að kaupa sérhæð
með bílskúr eða annarri vinnuaðstöðu.
Verðhugmynd allt að 20,0 millj.
Áhugasamir vinsamlega hafið samband og
ég mun fúslega veita nánari upplýsingar.
Hákon Svavarsson, lögg.
fasteignasali, sími 898 9396.
1. e4 e6 2. d4 d5 3. Rc3 Rf6 4. Bg5
dxe4 5. Rxe4 Rbd7 6. Rf3 h6 7.
Rxf6+ Rxf6 8. Bh4 c5 9. Bb5+ Bd7
10. Bxd7+ Dxd7 11. De2 cxd4 12. 0–
0–0 Bc5 13. De5 De7 14. Rxd4 0–0 15.
Hhe1 Hfd8 16. f4 Hd5
Staðan kom upp á alþjóðlegu at-
skákmóti sem lauk fyrir skömmu í
Korsíku. Viswanathan Anand
(2.781) hafði hvítt gegn Mikhail
Gurevich (2.644). 17. Dxd5! exd5 18.
Hxe7 Bxe7 19. Rf5 Bd8 20. Bxf6
Bxf6 21. Hxd5 He8 22. c3 h5 23. Rd6
Hd8 24. Hd2 og svartur gafst upp
enda taflið tapað.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Hvítur á leik.