Morgunblaðið - 18.11.2004, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. NÓVEMBER 2004 51
MENNING
„SVO undarlegt sem það nú er, þá
hringdu þrír eða fjórir menn í mig
fyrr á árinu og ég sagði nei við þá
alla. Einn hringdi oftar en aðrir, og
ég gat ekki bannað honum að tala
við mig. Ég átti því ekki frum-
kvæðið eða hugmyndina að þessu,
og hafði aldrei hugleitt það að um
mig yrði skrifuð bók, og segi raun-
ar enn, að ég hafi ekki frá neinu að
segja,“ segir Jónas Ingimundarson
píanóleikari um tilurð bókarinnar Á
vængjum söngsins, þar sem hann
segir frá ævi sinni og störfum. Sá
sem oftast hringdi – sá sem skráði
frásagnir Jónasar var Gylfi Grön-
dal, en útgefandi bókarinnar er
JPV. Með bókinni fylgja tveir
geisladiskar með píanóleik Jónasar.
„Þegar upp er staðið kemst mað-
ur svo að því að maður hefur ekki
sagt nema örlítið brot af því sem
maður vildi hafa sagt, og það er
nánast tilviljun ein hvað sagt er.“
Jónas segir bókina ekki vera
ævisögu, en segir að sér þyki þó
vænt um að talsvert sé skrifað um
forfeður hans. „Maður er svo sem
ekkert annað en uppsöfnuð reynsla
fyrri kynslóða, og kannski er eitt-
hvað að finna í manni sjálfum í því
hverjir það eru sem að manni
standa.“
Jónas og Gylfi koma víða við í
bókinni, og auk þess að segja frá
uppruna sínum og æskuárum, dvel-
ur Jónas við námsár sín í Reykja-
vík og í Vínarborg og störf hér
heima eftir að námi lauk; störf sem
spanna vítt svið tónlistar, svo sem
kennslu, kórstjórn, tónleikahald –
þar sem Jónas hefur bæði komið
fram sem einleikari og meðleikari
söngvara; tónleikaskipulag og
fleira.
Margfaldur í roðinu
„Ég hef aldrei verið stefnufastur
maður – hef verið sveimhuga og
ómarkviss. Ég fékk mína fyrstu
píanótíma í fermingargjöf, og það-
an hefur þetta þróast áfram. Ég
átti óvenjulega bernskutíð, en hafði
alla tíð þörf fyrir tónlistina. Hún
hefur blundað með mér í svefni og
vöku. Ég man ekki svo langt aftur
að leikfélagar mínir hafi ekki verið
söngvararnir í Útvarpinu. Ég var
tíu ára þegar ég kunni langar run-
ur úr helstu óperum veraldar utan-
bókar, en hafði þó aldrei séð píanó.
Þegar Jussi Björling kom hingað
1952 mun ég hafa sótt það stíft,
átta ára stráklingur á Selfossi, að
fá að fara með á tónleikana, því ég
þekkti hann úr útvarpinu. Þótt aðr-
ir þekktu hann, fannst mér ég
þekkja hann jafnvel eða betur,
hann var vinur minn úr útvarpinu,
og mér fannst ég eiga erindi á tón-
leikana. En að átta ára strákur
færi á tónleika í Reykjavík var ekki
raunhæfur möguleiki; það var
lengra til Reykjavíkur í þá daga en
það er núna.“
Jónas segir að útgefandi bók-
arinnar hafi átt hugmyndina að því
að leyfa hluta ævistarfsins að fylgja
með bókinni; geisladiskana með
upptökum frá ýmsum tímum á ferli
Jónasar. „Ég ætlaði auðvitað að
vera sá maður að spila inn á disk,
en af því gat ekki orðið. Þá var leit-
að til Útvarpsins, og það var ým-
islegt til þar. Þetta eru upptökur
sem aldrei var ætlunin að gefa út,
en ég er mjög hamingjusamur yfir
því að þær skuli hafa verið til.
Þetta eru tveir diskar, með verkum
eftir Beethoven, Brahms, Schubert,
Bach og fleiri. Þar af eru tveir risa-
stórir konsertar sem ég spila með
Sinfóníuhljómsveit Íslands; Brahms
og Beethoven. Flestir þekkja mig
best af söngstússinu, og þótt ég
vilji ekki gera lítið úr því, þá er ég
nú ekki alveg svo einfaldur í roð-
inu. Ég hef spilað mikið einn, var
kórstjóri í 25 ár og er búinn að
kenna mörg hundruð nemendum.
Svo er það kynningar- og uppeldis-
starfið. Þegar ég var að kenna á
Selfossi 1974 fengu allir skólarnir
frí til að fara á tónleika í Selfoss-
bíói. Það komu tólf til þrettán
hundruð manns á tónleika þann
daginn, eða helmingur af byggðinni
sem þá var á Selfossi. Þetta var í
rauninni byrjunin á því sem síðar
varð Tónlist fyrir alla. Þetta er því
nokkuð sem ég er búinn að vera að
gera alla ævina, þótt það hafi lítið
verið um það fjallað. Ég hef reynt
að ryðja brautina fyrir aðra mús-
íkanta líka – hef ekki bara verið að
skipuleggja tónleika fyrir sjálfan
mig. Það hafa fleiri hundruð tón-
leikar fylgt í kjölfarið – bæði Tón-
list fyrir alla, tónleikar á lands-
byggðinni, og það sem ég hef
skipulagt í Salnum, þar sem nú eru
haldnir 150 tónleikar á ári. Starf
mitt með söngvurum kom til af
hreinni tilviljun. Sjálfur var ég einn
af fyrstu söngnemum Einars Krist-
jánssonar – og sjálfsagt einn af
hans síðustu nemendum líka – hann
dó nú brátt. Ég fann mér til furðu
prógramm úr Tónlistarskólanum í
Reykjavík, þar sem ég er að syngja
lög úr Vetrarferð Schuberts við
undirleik Ágústu konu minnar
[Hauksdóttur]. Ekki dettur mér í
hug að halda að það hafi verið
söngur af listrænum hápunkti, en
það er gaman að því í ljósi þess
sem síðar varð. Söngvarana sem
hæst stóðu eftir stríð kann ég utan-
bókar, Maríu Callas, Di Stefano,
Tito Gobbi og hvað þeir hétu nú
allir, fyrir utan íslensku söngvarana
sem mér fannst eins og leikfélagar
mínir, þótt ég þekkti þá ekki.“
Jónas segir allt óráðið um hvort
framhald verði á frásögnum hans í
annarri bók, það verði bara að
koma í ljós. Í tilefni af útkomu bók-
arinnar verður efnt til samkomu í
Salnum á laugardaginn kl. 15, til að
fagna útgáfu hennar. Samkoman
verður opin almenningi, og þar
verður bæði spilað og sungið.
Bækur | Frásagnarbók Jónasar Ingimundarsonar, Á vængjum söngsins, komin út
Með bókinni fylgja tveir hljómdiskar með píanóleik Jónasar, með verkum
eftir Beethoven, Brahms, Schubert, Bach og fleiri.
Fékk mína fyrstu píanó-
tíma í fermingargjöf
Morgunblaðið/Þorkell
NORRÆNIR músíkdagar hefjast í
dag í Danmörku. Tónlistarhátíðin
er haldin annað hvert ár til skiptis á
Norðurlönd-
unum en hún var
fyrst haldin árið
1888 í Kaup-
mannahöfn og er
því ein elsta tón-
listarhátíð
heims. Á hátíð-
inni í ár verða
tæplega hundrað
nýleg og norræn
tónverk flutt á
samtals 30 tón-
leikum og uppá-
komum.
Meginmark-
mið Norrænna
músíkdaga er að
kynna það helsta
sem er í boði af
norrænni sam-
tímatónlist
hverju sinni og
skapa vettvang
fyrir umræðu og
flutning á fram-
sæk9inni tónlist
hverju sinni.
Fyrir hönd Ís-
lands taka þátt í
hátíðinni tón-
skáldin Haukur
Tómasson, sem
nýlega hlaut
Tónskáldaverð-
laun Norð-
urlandaráðs, Hróðmar Ingi Sig-
urbjörnsson, Atli Ingólfsson,
Kjartan Ólafsson, Magnús Blöndal
Jóhannsson, Snorri Sigfús Birg-
isson, Jón Nordal og Steingrímur
Rohloff. Hátíðinni lýkur síðan hinn
28. nóvember með stórtónleikum
Sinfóníuhljómsveitar Helsingja-
borgar þar sem flutt verða ný nor-
ræn hljómsveitarverk.
Næstu Norrænu músíkdagar
verða haldnir á Íslandi árið 2006 og
er undirbúningur fyrir þá þegar
hafinn.
Norrænir
músíkdagar
Magnús Bl.
Jóhannsson
Atli Ingólfsson
Snorri Sigfús
Birgisson