Morgunblaðið - 18.11.2004, Page 1

Morgunblaðið - 18.11.2004, Page 1
PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. FIMMTUDAGUR 18. NÓVEMBER 2004 Á netinu mbl.is/vidskipti BLAÐ B  – traustur samstarfsa›ili í fjármögnun Sér›u atvinnutæki› sem flig langar í? Tala›u vi› sérfræ›ing! Glitnir – traustur samstarfsa›ili í fjármögnun atvinnutækja. Glitnir er sérfræ›ingur í fjármögnun atvinnutækja. Rétt val á fjármögnun getur skipt miklu um heildarkostna› vi› fjárfestingu. Glitnir b‡›ur fjórar ólíkar lei›ir vi› fjármögnun atvinnutækja. Umsóknir eru afgreiddar á skjótan hátt flegar nau›synleg gögn liggja fyrir. Haf›u samband vi› rá›gjafa Glitnis e›a kíktu á www.glitnir.is og fá›u a›sto› vi› a› velja flá fjármögnunarlei› sem hentar best. GENGI Bandaríkjadollars gagnvart íslensku krónunni hefur fallið nánast í frjálsu falli síðan í september, úr 72,6 krónum 8. september í 66,6 krónur í gær. Stór hluti viðskipta á heimsmark- aði fer fram í dollurum auk þess sem Íslendingar neyta banda- rískra vara í meiri mæli en marg- ar aðrar þjóðir. Því verður að gera ráð fyrir verðlækkunum á t.d. olíu og matvöru á næstunni. Bensínverð stöðugt Bensínverð á Íslandi hefur verið frekar stöðugt yfir 100 krónum síðustu mánuði. Þetta kemur mörgum spánskt fyrir sjónir í ljósi þess að gengi dollars hefur fallið auk þess sem heimsmark- aðsverð á hráolíu hefur lækkað allverulega á síðustu vikum. „Bensínverð var geysilega hátt í október og áhrif lækkunarinnar hafa ekki skilað sér til okkar enn,“ segir Magnús Ásgeirsson hjá Olíufélaginu hf. þegar hann er inntur eftir því hvernig á því standi að heimsmarkaðsverð á bensíni hafi ekki lækkað nægi- lega til þess að það skili sér til ís- lenskra neytenda. „Bensínverð á heimsmarkaði er um 420 dollarar fyrir tonnið en var mest um 500,“ segir Magnús. Aðspurður segir hann að gjaldeyrisbreytingar skili sér tiltölulega fljótt því bens- ínverð sé endurskoðað reglulega. Þetta hafi þó ekki gerst í október þar sem bensínverð á heims- markaði hafi verið mjög hátt. Þegar Morgunblaðið hafði samband við hin olíufélögin kvað við sama tón. „Ef við skoðum þetta í samhengi voru miklar hækkanir í október og töluverð þörf á verðbreytingum í byrjun nóvember sem við fórum ekki út í. Hins vegar lækkuðum við verð í liðinni viku en höfum ekki tekið um það ákvörðun hvort farið verði í frekari lækkanir á næst- unni,“ segir Stefán Karl Segatta innkaupastjóri Skeljungs og Samúel Guðmundsson fram- kvæmdastjóri fjárfestinga og áhættustýringar hjá OLÍS tekur í sama streng. Veruleg lækkun í Svíþjóð Ef þessi svör eru borin saman við þróun bensínverðs síðan í byrjun október hjá Statoil í Svíþjóð má sjá að verð á blýlausu 95 oktana bensíni var hæst á tímabilinu 9.– 14. október eða 10,64 sænskar krónur en hefur síðan lækkað verulega og var í gær 9,86. Í sam- tali við Morgunblaðið segir tals- maður Statoil að bensínverð hjá þeim hafi verið lækkað tvisvar í þessari viku, síðast í gær, vegna þróunar dollars og heimsmark- aðsverðs á bensíni. Til saman- burðar má geta þess að öll stóru íslensku félögin lækkuðu lista- verð á bensíni um 1 krónu 11. nóv- ember síðastliðinn og er listaverð á bensíni í dag 110,5 krónur hjá félögunum öllum. Endurskoða heildsöluverð Neysla Íslendinga á bandarískum matvörum er töluverð. Hér er að- allega um að ræða morgunkorn, kex, tómatsósur, poppkorn og sælgæti, auk nokkurra annarra tegunda. Eðlilegt má teljast að sú mikla lækkun sem orðið hefur á dollarnum á síðustu mánuðum hafi áhrif á verð á þessum vöru- tegundum, bæði bandarískum og öðrum, vegna samkeppni á mat- vörumarkaði. Engu að síður hef- ur vísitala neysluverðs hækkað um tæp 4% á milli ára. „Þetta skýrist á því að einungis 10% innfluttra neysluvara á Ís- landi koma frá Bandaríkjunum,“ segir Jón Þór Sturluson, for- stöðumaður Rannsóknarseturs verslunarinnar. Að óskoðuðu máli telur hann ólíklegt að gengisfall dollars hafi áhrif á innflutning frá öðrum löndum en Bandaríkjun- um. En lítil áhrif dollars á verð- bólgu megi einnig skýra með því að samkeppni á heildsölumarkaði sé ekki eins mikil og áður var. Það sé því spurning hvort neytendur megi eiga von á verðbreytingum á bandarískum matvörum á næst- unni. „Við endurskoðum verðlagn- ingu okkar reglulega með tilliti til gengis og munum einmitt gera það á næstu dögum,“ segir Magn- ús Ólafsson, framkvæmdastjóri sölusviðs hjá heildversluninni Innnes ehf. „Það getur tekið tíma fyrir gengisbreytingar að skila sér inn á lager vegna birgðastöðu hverju sinni.“ Magnús segir að neytendur hafi á undanförnum árum notið góðs af gengisfalli dollars og að það sé trú hans að svo muni áfram verða. Ekki mikil áhrif á hagstjórn Óljóst er hver raunveruleg áhrif gengisfalls dollarsins eru á ís- lenska hagkerfið í heild. „Gengi dollars hefur fallið verulega síðan í lok nóvember 2001 en þá var gengið hæst, 110,13 krónur,“ seg- ir Jón Þór Sturluson. „Þessi þró- un hefur töluverð áhrif á lánastöðu þjóðarbúsins en þó má ekki gleyma að staða dollars í dag er ósköp svipuð og hún var til langs tíma á 10. áratugnum. Hér er að mínu mati frekar um að ræða leiðréttingu á þeim upp- gangi sem varð undir lok þess áratugar og í byrjun þessarar aldar,“ segir Jón. „Ég sé ekki að þetta eigi að hafa stór áhrif á hag- stjórn á Íslandi.“ Vænta verður verðlækk- ana vegna falls dollarsins Olíufélögin eru seinni til að lækka bensínverð en olíufélög í Svíþjóð – Endurskoðun á verðlagningu bandarískrar matvöru á næstunni – Lítil áhrif á hagstjórnina                    ! !   "#$$%$&       $%'( )&* #&+ ,$%- VIÐSKIPTABLAÐ MORGUNBLAÐSINS HANNES Smárason, stjórnarformaður Flugleiða, og Stelios Haji-Ioannou, hinn lit- ríki stofnandi og aðaleigandi EasyJet- flugfélagsins, áttu í gær fund í London. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins var fyrst og fremst um „kurteisisheimsókn“ að ræða hjá Hannesi. Fyrir fundinn hafði Stelios, eins og hann vill láta kalla sig, hins vegar ýmislegt um hugsanlega yfirtöku Flugleiða á EasyJet að segja. Á hluthafafundi í Stelmar-skipafélaginu, sem hann stofnaði einnig, sagði Haji- Ioannou að hann hefði ekki áhuga á að selja neitt af 41% hlut, sem hann á ásamt fjöl- skyldu sinni í EasyJet, til Flugleiða. Hann sagðist ekki gera ráð fyrir neinu „of drama- tísku“ á fundinum með Hannesi. Haji-Ioannou sagði jafnframt að reglur Evrópusambandins myndu takmarka er- lendan eignarhlut í EasyJet við 40%, sam- kvæmt frétt Evening Standard. Hann benti jafnframt á að hann ætti nafn EasyJet, sem hann leigir félaginu, og hefði rétt á að verða formaður stjórnar þess þeg- ar honum sýndist. „Ég hef selt hlutafé af og til, en ekki á því verði, sem það er á núna, og sannarlega ekki svo mikið að ég missti [stjórnina á félaginu],“ sagði Haji-Ioannou. L Á G G J A L D A F L U G F É L Ö G Brattur Stelios Haji-Ioannou ætlar ekki að gefa eftir yfirráð í EasyJet. Hannes Smárason og aðaleig- andi EasyJet funda í London Stelios ætlar ekki að selja hlut sinn S É R B L A Ð U M V I Ð S K I P T I , E F N A H A G S M Á L O G A T V I N N U L Í F Á S A M T S J Á V A R Ú T V E G S B L A Ð I Muna að hneigja sig Menningarlæsi skiptir máli í alþjóðaviðskiptum 4 Næstum komin í biblíuna Hex kemst í úrslit hjá Red Herring 8 FLÓKIN EIGNATENGSL Á FJÁRMÁLAMARKAÐI

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.