Morgunblaðið - 18.11.2004, Side 3
Fáðu úrslitin
send í símann þinn
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. NÓVEMBER 2004 B 3
ll FÓLK
● SÆVAR Freyr
Þráinsson hefur
verið ráðinn nýr
framkvæmda-
stjóri farsíma-
sviðs Símans.
Sævar, sem er
viðskiptafræð-
ingur, hefur starf-
að hjá Símanum
frá 1996 sem forstöðumaður ýmissa
sviða og var síðast forstöðumaður
sölu- og vörustjórnunar gagnasviðs.
Sævar tekur við af Magnúsi Ög-
mundssyni sem lætur af störfum um
áramót til þess að taka við stöðu
framkvæmdastjóra hjá Lyst ehf. sem
meðal annars rekur McDonalds á Ís-
landi. Lyst er í eigu Jóns Garðars Ög-
mundssonar sem er bróðir Magnúsar.
Nýr framkvæmda-
stjóri hjá Símanum
● ERIC Figueras
hefur verið ráðinn
framkvæmda-
stjóri við-
skiptaþróunar
TölvuMynda. Eric
lauk MS-námi í
rafmagnsverk-
fræði frá Háskóla
Katalóníu í Barce-
lona árið 1992 og MBA-gráðu frá
IMD-háskólanum í Sviss árið 2001.
Hann hefur áður starfað hjá Síman-
um í sex ár og hefur undanfarin ár
gegnt starfi stjórnarformanns hjá
hugbúnaðarfyrirtækinu TrackWell.
Nýr framkvæmda-
stjóri hjá
TölvuMyndum
● AFL fjárfestingarfélag festi í fyrra-
dag kaup á 250 þúsund hlutum í
breska iðnfyrirtækinu Low & Bonar
plc. samkvæmt tilkynningu sem birt-
ist á heimasíðu kauphallarinnar í
London. Samtals á Afl fjárfesting-
arfélag, sem er dótturfélag Fjárfest-
ingarfélagsins Atorku, því 17,05
milljónir hluta í félaginu og er verð-
mæti þeirrar eignar miðað við loka-
verð í fyrradag um 20 milljónir punda
sem samsvarar tæplega 2,5 millj-
örðum króna.
Í samtali við Morgunblaðið í gær
sagði Styrmir Þór Bragason, fram-
kvæmdastjóri Atorku, að það væri
ekki á stefnuskránni að gera yf-
irtökutilboð í Low & Bonar, enda
væru stærri hluthafar í fyrirtækinu.
Að hans sögn er hér um að ræða
gott fyrirtæki sem er spennandi fjár-
festingarkostur.
Hlutur Afls
2,5 milljarða virði
ll STUTT
● SAMKVÆMT könnun sem
bandaríski fjárfestingarbankinn
Goldman-Sachs framkvæmir reglu-
lega eru bandarískir forstjórar mun
svartsýnni um framtíðina en evr-
ópskir starfsbræður þeirra. Það
sem veldur áhyggjum er meðal
annars hækkandi hráefnaverð og
óvissa um olíuverð. Þetta kemur
fram á vef Financial Times.
Evrópskir forstjórar hafa að-
allega áhyggjur af hagvexti í
löndum sínum en eru bjartsýnir
hvað varðar efnahagsvirkni í heim-
inum.
Bandarískir forstjórar
svartsýnir
◆
◆