Morgunblaðið - 18.11.2004, Síða 5

Morgunblaðið - 18.11.2004, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. NÓVEMBER 2004 B 5 NFRÉTTIR  HÁSKÓLINN í Reykjavík býður nú upp á nýtt, alþjóðlegt nám fyrir stjórnendur, sem kallast upp á ensku Program for Management Develop- ment (PMD). Guðrún Helga Hamar, verkefnisstjóri námsins, segir að Stjórnendaskóli HR sé frumkvöðull í að bjóða upp á slíkt nám hér á landi en erlendis sé PMD „þekkt vöru- merki“ á atvinnumarkaði. „Hingað til hafa stjórnendur þurft að sækja nám af þessu tagi til útlanda, en það er bæði dýrt og tímafrekt,“ segir Guðrún Helga. Hún segir námið henta vel stjórnendum sem hafi ann- aðhvort menntað sig á öðru sérsviði en stjórnun og viðskiptum og vilji fá innsýn í þann heim, eða tekið MBA próf fyrir nokkru síðan og vilji fríska upp á kunnáttuna og fylgjast með því sem er að gerast í fræðunum í dag. Að sögn Guðrúnar Helgu er lagt upp úr því að hafa framúrskarandi leiðbeinendur í náminu. „Við gerum okkar bezta til að útvega hæfustu fyrirlesara í hverju fagi fyrir sig. Þeir koma úr HR og jafnframt úr ýmsum af þekktustu viðskiptahá- skólum heims, t.d. IMD í Sviss, IESE Business School í Barcelona og Richard Ivey School of Business í Kanada. Allir hafa þeir mikla reynslu í stjórnendamenntun,“ segir Guðrún Helga. Fyrirkomulag náms- ins er með þeim hætti að kennt er á u.þ.b. tveggja vikna fresti í tvo daga í senn, yfirleitt fimmtudag og föstu- dag, og námið tekur aðeins eina önn. Stjórnendur geta því nýtt námið strax í starfi. Sérhannað fyrir stjórnendur „Við þróun námsins var kapp lagt á að sérsníða námsefnið að þörfum stjórnenda,“ segir Guðrún Helga. „Um er að ræða gagnvirkt nám þar sem stjórnendur koma saman og ræða málin undir handleiðslu fær- ustu sérfræðinga. Fólk hefur þá tækifæri til að ræða þau viðfangsefni sem stjórnendur í dag eru að kljást við í starfi og skiptast á upplýsingum og reynslu, ekki aðeins við leiðbein- endurna heldur líka aðra stjórnend- ur. Við leggjum áherzlu á stjórnun og ákvarðanatöku, verkefni og um- ræður en ekki fræðilega fyrirlestra.“ Guðrún Helga segir að PMD-nám- ið sé jafnframt vettvangur til að styrkja tengslanetið. „Myndaður verður hópur sem hefur sem ólíkast- an bakgrunn og kemur frá ýmsum sviðum viðskiptalífsins,“ segir hún. Morgunblaðið/Golli Færustu leiðbeinendur Guðrún Helga Hamar segir Háskólann í Reykjavík leita til ýmissa af þekktustu við- skiptaháskólum heims eftir kennurum fyrir PMD-námið. HR með nýtt nám fyrir stjórnendur ÍBÚAR á Fjóni í Danmörku hafa nokkrar áhyggjur af framtíð Maga- sin-verslunarinnar í Óðinsvéum eftir kaup Baugs, Straums og Birgis Bildtvedt á Magasin-verslunarkeðj- unni í síðustu viku. Óstaðfestur orð- rómur er uppi, samkvæmt fréttavef Fyens, um að loka eigi einni af átta stórverslunum Magasin í Danmörku og þykir líklegt að Magasin-verslun- in í Óðinsvéum verði fyrir valinu vegna slakrar frammistöðu. Í Berl- ingske Tidende er haft eftir tals- manni nýju eigendanna að allar ákvarðanir þar um séu í höndum hins nýja forstjóra Magasin, Peters Husum. Hann muni einnig taka ákvörðun um hvort Magasin komi í framtíðinni til með að kaupa inn vörur í félagi við „stóra enska vöru- húsakeðju“. Því hefur jafnvel verið haldið fram að af átta verslunum Magasin verði einungis haldið eftir þeim tveimur verslunum sem staðsettar eru í Kaupmannahöfn og versluninni í Ár- ósum. Stjórnarformaður Magasin, Henrik Wedell Wedellsborg, vísar þessu á bug og telur að einungis gæti verið um að ræða lokun eða flutning á einni stakri verslun. Áhyggjur af lokun Maga- sin á Fjóni Vátryggingafélag Íslands, Ármúla 3, 108 Reykjavík, sími 560 5060, www.vis.is flar sem tryggingar snúast um fólk VÍS b‡›ur fyrirtækjum og einstaklingum me› atvinnurekstur samsetta vátryggingar- vernd. fiarfir fyrirtækja eru breytilegar og me› fyrirtækjatryggingum VÍS velja fyrirtæki sér vernd sem sni›in er a› fleirra flörfum. fijónustufulltrúar, sérhæf›ir í fyrirtækjatrygg- ingum, annast fyrirtækin sem tryggja hjá VÍS og a›sto›a vi› val á fleirri vernd sem hæfir vi›komandi rekstri. Hringdu í síma 560 5060 og kanna›u hva› vi› getum gert fyrir fyrirtæki› flitt e›a sendu fyrirspurnir á upplysingar@vis.is Fyrirtækjatryggingar VÍS tryggja öruggara starfsumhverfi. Fyrirtækjatryggingar VÍS eru sérsni›nar a› flínum atvinnurekstri F í t o n / S Í A

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.